Morgunblaðið - 28.09.1989, Page 42
42
MORGliNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR ,28.. SEFTEMBER 1989
+ Eiginmaður minn og faðir okkar, EINAR S. JÓSEFSSON, Ásvallagötu 2, lést í St. Jósefsspítala, Landakoti, þann 25. september. Stefania Ottesen og dætur.
Útför móður okkar og tengdamóður, GUÐRÍÐAR BJÖRNSDÓTTUR, Hraunbrún 38, Hafnarfirði, áður Austurgötu 22b, Hafnarfirði, verður gerð frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 29. september kl. 15.00. Sigríður Jósefsdóttir, Már Péturssgn, Sigurbjörn Jósefsson, Ragnheiður Ólafsdóttir, Markús Jósefsson. Ingibjörg Karlsdóttir.
t
Konan mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
GUÐMUNOA HARALDSDÓTTIR,
Sandhólum, Bitru,
er lést í Sjúkrahúsi Akraness þann 19. þessa mánaðar, verður
jarðsungin frá Fossvogskapellu föstudaginn 29. sept. kl. 13.30.
Kjartan Ólafsson,
Óla Friðmey Kjartansdóttir, Gunnar Sverrisson,
Ingvar Einar Kjartansson, Sigurður Óli Gunnarsson,
Gísli Kr. Kjartansson, Ingunn Helga Gunnarsdóttir.
t
HILDIGUNNUR ÁSGEIRSDÓTTIR,
Aðalgötu 48,
Ólafsfirði,
verður jarðsungin frá Ólafsfjarðarkirkju föstudaginn 29. septem-
ber kl. 14.00.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Krabbmeinsfélag fslands.
Ingólfur Baldvinsson,
börn og tengdabörn.
t
Útför
MARGRÉTAR SIGFRÍÐAR SÍMONARDÓTTUR,
Skeggjagötu 6,
Reykjavík,
verður gerð frá Fossvogskirkju föstudaginn 29. september kl.
15.00.
Baldur Steingrfmsson,
Steingrfmur Baldursson, Friða Ásbjörnsdóttir,
Höskuldur Baldursson, Magdalena Búadóttir
og barnabörn.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma,
SESSEUA SIGURÐARDÓTTIR,
Hamarsgerði 2,
verður jarðsungin föstudaginn 29. september frá Bústaðakirkju
kl. 13.30.
Fyrir hönd barna, tendgabarna og barnabarna,
Jóhann Valdimarsson.
t
Þökkum sýnda samúð og vináttu við andlát og útför móður okkar
og tengdamóður,
INGVELDAR BJÖRNSDÓTTUR.
Björn R. Einarsson, Ingibjörg Gunnarsdóttir,
Guðmundur R. Einarsson, Halla Kristinsdóttir.
A).
Kransar, krossar, kistu-
skreytingar, samúðarvendir
og samúðarskreytingar.
Sendum um allt land á opnunartíma
frá kl. 10-21 alla daga vikunnar.
MIKLUBRAUT 68 o 13630
Agúst Jóhannes-
son - Minning
Frændi minn Ágúst Jóhannesson
fæddist þann 28. nóvember árið
1916 á Karlsstöðum í Vaðlavík í
Suður-Múlasýslu. Faðir hans var
Jóhannes Sigfússon, ættaður úr
Stóru-Breiðuvík í Helgustaðar-
hreppi og móðir hans var Valgerður
Arnoddsdóttir ættuð úr Sandgerði.
Þeim hjónum_ varð þrettán barna
auðið og var Ágúst fjórði í röðinni.
Komust ellefu til fullorðinsára en
tvö létust í æsku. Ég get ímyndað
mér að það hafi þurft að taka til
hendi á svo stóru heimili sem Karls-
staðaheimilið hefur verið á þessum
tíma. Það hefur því reynt á sam-
heldni og snemma hafa systkinin
vanist öllum verkum. Þegar Ágúst
var firnm ára gerðist atburður sem
hafði mikil áhrif á allt hans líf upp
frá því. Hann veiktist af lömunar-
veiki o'g lamaðist við það hægri
handleggur hans að miklu leyti frá
öxl. Það var samt aldrei að merkja
á hans verkum að hann nyti ekki
beggja handa, önnur eins ham-
hleypa ogþann var til allra verka.
Þegar Ágiíst var sautján ára lést
faðir hans. Fluttist þá ijölskyldan
suður til Keflavíkur. Bjó Valgerður
börnum sínum heimili þar sem þau
bjuggu uns þau giftust eitt af öðru.
Stundaði fjölskyldan öll almenn
störf þess tíma. Ágúst vann ýmist
til sjós eða lands. Hann var mörg
sumur sem kokkur á síldarbátum
og einnig á vetrarvertíðum. Þrátt
fyrir þá fötlun sem hann lifði við
var hann hagur í höndum og vann
í mörg ár við smíðar með bræðrum
sínum. Þeir byggðu saman mörg
hús og má þar fyrst nefna Baldurs-
götu 10. Árið 1951 kynntist Ágúst
eftirlifandi eiginkonu sinni, Berg-
ljótu Ingólfsdóttur frá Seyðisfirði.
Sem barni fannst mér það alltaf
ákaflega rómantískt að Gústi og
Begga skyldu hafa kynnst í gegnum
foreldra mína. Hann var að heim-
sækja frænku sína, sem var móðir
mín og Begga var þá stödd hjá
bróður sínum sem var faðir minn.
Þetta þótti mér alltaf ævintýri
líkast. Þau Ágúst og Bergljót gengu
í hjónaband 27. september 1952.
Þeim varð þriggja barna auðið: Jó-
hannes, fæddur 1953, framhalds-
skólakennari, búsettur í Reykjavík.
Hrólfur Brynjar, fæddur 1955, bók-
menntafræðingur, búsettur í
Svíþjóð, og Guðrún, fædd 1960,
stúdent og starfar sem meðferðar-
fulltrúi. Hennar sambýlismaður er
Leifur Vilhjálmsson. Barnabarnið
er eitt, Dúa Berg, dóttir Guðrúnar,
og var hún afa sínum mjög kær.
Má segja að þau hafi verið miklir
vinir. Agúst vildi búa fjölskyldu
sinni gott heimili. Réðst hann því í
byggingu hússins við Faxabraut 36
ásamt bræðrum sínum, Gunnlaugi,
Sigfúsi og Alexander. Seinna
byggði hann hús í Háaleiti 5 þar
sem íjölskyldan bjó í mörg ár. Var
t
Útför
ÞORVALDAR JÓNSSONAR,
Miklubraut 64,
Reykjavik,
fer fram frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 30. september kl.
16.00.
Kveðjuathöfn verður í Fossvogskirkju föstudaginn 29. september
kl. 10.30.
Oddný Þorvaldsdóttir, Hólmar Magnússon,
Jón Þorvaldsson, Guðný Einarsdóttir,
Ingibjörg Þorvaldsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
t
Útför
SIGURÐAR GEIRSSONAR,
Vilmundarstöðum,
Reykholtsdal,
ferfram frá Reykholtskirkju laugardaginn 30. septemberkl. 14.00.
Hlfn Gunnarsdóttir,
Geir Sigurðsson,
Ástríður Sigurðardóttir,
Guðrún Sigurðardóttir,
Eysteinn Sigurðsson,
Magnús Sigurðsson,
systkini, tengdabörn og barnabörn.
t
Við þökkum öllum nær og fjær sem sýndu okkur samúð við andlát
og útför sonar míns og bróður okkar,
BÆRINGS VAGNS AÐALSTEINSSONAR.
Sérstaklega þakka ég vinum og ættingjum í Bolungarvík fyrir
rausnarlegan styrk.
Fyrir mína hönd og systkina hins látna,
Svanhildur Marfasdóttir.
t
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug
við andlát og jarðarför,
GÍSLA JÓHANNSSONAR,
garðyrkjumanns,
Friðrikshúsí,
Hjalteyri.
Gyða Antoníusardóttir,
börn, tengdabörn
og afabörn.
þá í heimilinu tengdamóðir Gústa,
amma mín Guðrún Eiríksdóttir. Bjó
hún hjá þeim hjónum allt til dauða-
dags árið 1970. Árið 1969 keyptu
þau hjónin Hafnarbúðina. Ári
seinna réðust þau í byggingu nýs
húss þar sem þau ráku matsölu og
verslun. Þau seldu Hafnarbúðina
árið 1979. Sama ár tók hann við
starfi hafnarstjóra í Landshöfn
Keflavíkur og Njarðvíkur. Því starfi
gegndi hann til ársins 1986 er hann
lét af störfum fyrir aldurs sakir. Á
sama tíma fluttu þau að Óðinsvöll-
um_5 í nýtt hús sem Ágúst byggði.
Ágúst lét mikið að sér kveða í
félagsmálum. Hann var meðal
stofnenda Sósíalistafélags
Keflavíkur. Var hann oftar en einu-
sinni í framboði til bæjarstjórnar-
kosninga fyrir Alþýðubandalagið
og tók virkan þátt í þjóðfélagsum-
ræðu. Ágúst var mjög vel lesinn
pg má segja að hann hafi kunnað
Islendingasögurnar utan að. Vitn-
aði hann oft í frægar persónur og
hafði yndi af að segja börnum sínum
sögur fornkappa. Hann hélt einnig
mikið upp á sögur Halldórs Lax-
ness. Málefni Sjálfsbjargar, félags
fatlaðra, bar hann alla tíð mjög
fyrir brjósti. Núna síðast, nokkrum
dögum fyrir andlátið, lagði hann
sitt af mörkum í vinnu vegna lands-
söfnunar Sjálfsbjargar. Hann var
einn af stofnendum Austfirðingafé-
lags Suðumesja. Sat oft í stjórn
félagsins og var þess utan í ýmsum
nefndum. Ágúst lék í mörgum leik-
ritum sem sett voru upp af leik-
félaginu Stakk í Keflavík. Má þar
nefna leikritið Páska og Bör Börs-
son svo eitthvað sé talið. Hann var
mikill náttúruunnandi. Voru ófáar
ferðir þeirra hjóna á æskustöðvar
beggja austur á landi. Gönguferðir
með Ferðafélaginu stundaði hann
einnig á meðan heilsan leyfði. Þau
hjónin voru mjög gestrisin og
frændrækin. Var ævinlega opið hús
öllum þeim íjölmörgu ættingjum og
vinum sem þangað lögðu leið sína.
Alla tíð hafði heimili þeirra hjóna
mikið aðdráttarafl í mínum huga.
Því það vora ekki bara frændi og
frænka sem tóku mér opnum örm-
um heldur líka elskuleg amma mín
á meðan hún lifði. í Keflavík vora
líka búsett mörg af systkinum
Gústa. Það var eftirminnilegt að
fínna hve samstillt þessi dökkeygu
fríðu systkini vora. Sjá augun
glampa af innibyrgðri kátínu sem
braust svo út í hjartanlegum hlátri.
Hann frændi minn átti svo margt
ógert. Hann dreymdi alla tíð æsku-
stöðvarnar þar sem hann sá í hill-
ingum drauma sína um æðarvarp
og blómlegan búskap rætast í þessu
fallega umhverfi. Líka langaði hann
að ferðast meira um landið sitt sem
hann unni mjög. Síðastliðið sumar
hugleiddi hann kaup á hjólhýsi þar
sem vel gæti farið um þau hjónin
á ferðalögum og nú rétt áður en
kallið kom ætlaði hann austur á
land í berjaferð. Síðasta árið átti
hann við sára vanheilsu að stríða.
Hann hafði samt trú á að það myndi
lagast en raunin varð önnur. Hann
var fluttur fársjúkur á Borgarspítal-
ann þar sem hann lést eftir skamma
legu þann 21. september. Ég votta
Beggu frænku minni mína dýpstu
samúð svo og börnum hennar og
öðram ættingjum á þessari erfiðu
stundu. Minningin um góðan dreng
lifir.
Gunnhildur Hrólfsdóttir