Morgunblaðið - 28.09.1989, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 28.09.1989, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. SEFTEMBER 1989 49 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691282 KL. 10-12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS Allt of mikið af hraðahindrunum Munið! Bömin í umferðinni em börnin okkar. Til Velvakanda. Mig langar til að kvarta yfir ýmsu sem gert hefur verið í gatna- kerfi Reykjavíkur að undanförnu. Svo virðist sem sú öfugþróun sé í gangi hér að eftir því sem bílum fjölgar stjórlega séu sífellt fleiri hindranir lagðar fyrir ökumenn og þeim gert torveldara að ferðast um göturnar. Vil ég fyrst nefna tvö ný umferðarljós á Hverfisgötu sem em til að stórtefja fyrir um- ferð á þessari fjölförnu götu og em þar að auki á gatnamótum þar sem tiltölulega lítil umferð er af hliðargötum. Þá vil ég einnig nefna umferðarljós á Kleppsvegi. Miklu hefur verið plantað niður af hraðahindmnum til mikillar óþui-ftar og vil ég benda fólki, sem hefur verið að undirrita bænaskjöl til borgarinnar um slíkt, á að hætta því hið snarasta og gæta frekar bama sinna betur. Einnig vil ég benda á þrenging- ar í götum sem áður vora beinar og breiðar svo sem á Grandagarði og í Fellsmúla. Þó ber að sýna þakklæti fyrir það sem vel er gert og vil ég í því sambandi nefna nýju brúna og gatnamótin þar sem áður var Miklatorg. Að lokum vil ég segja að ég vonast til-að ráða- menn lesi þetta og láti sér segj- ast. Ég efa ekki að fjöldi fólks er á sama máli og hvet ég alla til að láta í sér heyra um þetta mál. Sigurður Þessir hringdu . . . Störf Barnavemdarnefndar Sigrún Þorsteinsdóttir hringdi: „Það er kominn tími tiL að 'for- eldrar þeirra barna sem tekin hafa verið af heimili sínu láti til skarar skríða og opni umræðu, vegna þess að ég er þess fullviss um að brotið sé á foreldram með úrskurðum á vegum Barnavernd- arnefndar. Margir foreldrar hafa átt í vök að verjast og mannlegar tilfinningar hafa ekki verið tii af hendi Barnaverndarnefndar. Ég skora á stjómvöld að fara í gegn- um öll þau mál sem koma og hafa komið inn á borð til Barna- verndarnefndar Reykajavíkur." Dýr saltfiskur Kona hringdi: „Faðir minn, sem er orðinn aldraður, keypti fyrir skömmu sólþurrkaðan fisk á útimarkaðin- um í Austurstræti. Keypti hann eitt kíló og kostaði það 760 kr. Mér þótti fiskurinn nokkuð dýr og fór að athuga hvað hann kost- ar í verslunum almennt. Kom í ljós að sólþurrkaður saltfiskur kostar frá 450-460 kr. víðast hvar. Nú mun það venja að verð sé lægra á útimörkuðum en í verslunum og telur fólk sér trú um að það sé að gera góð kaup. Þama er hins vegar um svo mik- inn varðmun að ræða að kaupend- ur hjóta að krefjast skýringar. Þessir viðskiptahættir era fyrir neðan allar hellur.“ Gullarmband Mjótt gullarmband með keðju- mynstri tapaðist fyrir tveimur eða þremur mánuðum. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 619003. Fundarlaun. Friðum hrygningarfiskinn S.G. hringdi: „Ég skora á fiskifræðingana og ríkisstjórnina að beita sér fyrir því að hrygningarstaðir umhverfis landið verði friðaðir. Við fáum aldrei sterkan seiðastofn ef við friðum ekki hrygningarfiskinn. Einnig má benda á að friða þyrfti kolann sem kemur á hryngingar- svæðin út af Siglufirði og er drep- inn í tonna tali. Ef við föram ekki að friða hrygningafiskinn fáum við of lítið af seiðum.“ Úr stóðrétt Skagíírðinga við Reynistað.. Morgunbiaðia/Bjöm Bjömsson Réttað hjá skagfirsk- um stóðbændum Sauðárkrókí. MIKILL fiöldi hrossa og manna var saman kominn í annarri aðal- stóðrétt Skagfirðinga, Reyni- staðarétt, hinn 17. september. Þrátt fyrir kalsaveður og bleytu safnaðist fjöldi fólks að réttinni, svo sem venja er, og vora margir langt að komnir. Eins og jafnan áður ríkti sannkölluð stóðréttarstemmning í Staðarrétt og gengu ungir sem aldnir vasklega fram við sundur- dráttinn. Einnig var, samkvæmt venjunni. gleðskapur nokkur og sungið marg- raddað við réttarvegginn þegar drætti var lokið. Réttað verður í hinni áðalstóðrétt Skagfirðinga, Laufskálarétt, þann 29. þessa mán- aðar. í tengslum við Laufskálarétt verða Suðurleiðir með sérstaka ferð frá Umferðarmiðstöðinni í Reykjavík föstudaginn 29. septem- ber klukkan 13 og til baka síðari hluta sunnudags. - BB Munið tilboð fyrir 1. október. HEIMILISF.. ISLANDS Póstbox 1464 121 Reykjavík Sími 27644 Handmenntaskóli islands hefur kennt yfir 1400 Islendingum bæði heima og erlendis á síðastliðnum átta árum. Hjá okkur getur þú lært teikningu, litameð- ferð, skrautskrift og gerð kúluhúsa - fyrir fullorðna - og föndur og teikningu fyrir börn í bréfaskólaformi. Þú færð send verkefni frá okkur, sendir okkur úrlausnir þínar og þær eru sendar leiðréttar til baka. - Biddu um kynningu skólans með þvl að senda nafn og heimilisfang til okkar eða hringdu í síma 27644 núna strax, símsvari tekur við pöntun þinni á nóttu sem degi. -Tlma- lengd námskeiðanna stjórnar þú sjálf(ur) og getur því hafið nám þitt, hvenær sem er, og verið viss um framhaldið. Hér er tækifærið, sem þú hefur beðið eftir til þess að læra þitt áhugasvið á auðveldan og skemmtilegan hátt. Þú getur þettalíka. ÉG ÓSKA EFTIR AD FA SENT KYNNINGARRIT HMÍ MÉR AD KOSTNADARLAUSU NAFN____________________________________-_____ V TEG: VICTORY - BREIDD 305 CM V., ........ . 1 ,. ■ ! .... •• REGENT MOBEL Þýsk vegghúsgögn í miklu úrvali - Ijós og dökk. &JT Húsgagna4iöirm ■I!!!!!!!!'!** B íí REYKJAVÍK J a'- -

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.