Morgunblaðið - 28.09.1989, Side 50
KNATTSPYRNA EVROPUKEPPNI BIKARHAFA
MORGÚNBLÁÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR‘28. SEPTEMBER 1989
Evropukeppni
bikarhafa
Dortmund - Basiktas (Tyrkl.).......2:0 (3:1)
Martin Driller (16.), Jérgen .Wegmann (86.) -
Ali (76.) 47.000.
Grasshoppers - Slovan (Tékkósl.)...4:0 (4:3)
Valkeakoski (Finnl.) - Ferencvaros.1:1 (2:6)
Djurgarden - Union Luxemborg.......5:0 (5:0)
Celtic - Partizan Belgrad..........5:4 (6:6)
Jacki Dziekanowski 4 (25., 46., 56., 80.), Andy
Walker (65.) - Budini Vuiacic (8.), Aleksandar
Dordevic (50.), Miko Durovski (61.), Sladjan
Scepovic (87.) 49.500.
HPartizan komst áfram á útimörkunum.
Hamrun (Malta) - Real Valladolid...0:1 (0:6)
Mónakó - Belenenses (Portúgal).....3:0 (4:1)
Dinamó Búkraest - Dinamo Tirana....2:0 (2:1)
Sampdoría - Brann..................1:0 (3:0)
Srecko Katanec (75.) 12.000
Limassol (Kýpur) - Admira (Austurríki)....l:0 (1:3)
Cork (írland) - Torpedo Moskva.....0:1 (0:6)
Ballymena - Anderlecht.............0:4 (0:10)
— Patrick Vervort 2 (27., 87.), Marc Degryse
(53.), Amór Guðjohnsen (84.) 2.500.
Dynamó Berlín - Valur..............2:1 (4:2)
Rainer Emst (23.), Joem Lenz (83.) - Siguijón
Kristjánsson (51.) 9.500.
Ikast (Grikkl.) - Groningen........1:2 (1:3)
Swansea - Panathinnakos Aþena......3:3 (5:6)
Legia Varsjáv - Barcelona..........0:1 (1:2)
Michael Laudrup (11.) 25.000.
ADN
Rainer Ernst sést hér skalla knöttinn í netið
hjá Valsmönnum, án þess að þeir Bjami Sigurðs-
son og Þorgrímur Þráinsson komi vörnum við.
Baldur í
Bandaríkjunum
■ BALDUR Bragason lék ekki með Vals-
mönnum í gærkvöldi — var farinn til Banda-
rílqanna vegna náms. Sigurjón Kristjáns-
son kom inn í byrjunarliðið í hans stað og
gerði eina mark Vals.
■ ÞORGRÍMUR Þráinsson sagði fyrir
síðasta leik í 1. deild að hann myndi leggja
skóna á hilluna í haust, en í gær lék hann
vel sem aftasti maður vamar og dró orð sín
til baka.
■ EINAR Páll Tómasson hefur mikinn hug
á að leika með liði í V-Þýskalandi í vetur,
en til stóð að hann léki þar sl. vetur. Þá fór
hann snöggt til Crystal Palace og æfði með
Lundúnarliðinu.
„Komum
þeimá
óvart“
- sagði Guðmundur Þor-
björnsson, þjálfari Vals
„LEIKURINN spilaðist eins og við vildum.
Reyndar fengum við fleiri marktækifæri, en ég
átti von á og miðað við hvernig menn lögðu
sig fram var 2:1 tap tvímælalaust ósann-
gjarnt," sagði Guðmundur Þorbjörnsson, þjálf-
ari Vals, við Morgunblaðið eftir að Valsmenn
höfðu tapað gegn Dynamo í Austur-Berlín í
gærkvöldi.
Valsmenn léku mjög skynsamlega, létu mótheijana
koma, en beittu síðan skyndisóknum. Bæði lið
sköpuðu sér góð marktækifæri, en Ernst gerði eina
markið fyrir hlé um miðjan hálfleikinn með skalla
eftir hornspyrnu.
Siguijón Kristjánsson jafnaði í bytjun seinni hálf-
leiks með glæsilegu skoti. Magni Blöndal Pétursson
tók aukaspyrnu og sendi á Siguijón, sem var við víta-
teigsbogann. „Hann tók boltann viðstöðulaust á lofti
og hamraði í bláhornið“ eins og Sævar Jónsson orð-
aði það. Sigurmark heimamanna kom sjö fyrir leiks-
lok, en áður fengu bæði lið nokkur tækifæri til að
skora.
„Eftir jöfnunarmarkið snerust áhorfendur greini-
lega á okkar band, en okkur tókst ekki að nýta fær-
in. Eg hef leikið marga Evrópuleiki, en ég hef aldrei
verið eins fúll og nú vegna taps á útivelli,“ sagði
Sævar.
Guðmundur þjálfari var mjög ánægður þrátt fyrir
tapið. „Þetta var mjög góður leikur og synd að keppn-
istímabilinu sé lokið. Allir áttu sannkallaðan stórleik,
en þjálfari mótheijanna sagði á blaðamannafundi eft-
ir leikinn að leikaðferð okkar hefði gengið upp, en
ekki þeirra. Þeir áttu von á að rúlla okkur upp, en
við komum þeim á óvart,“ sagði Guðmundur.
Hann vildi ekki gera upp á milli leikmanna sinna,
en sagði að Bjarni Sigurðsson hefði varið stórkost-
lega, Sævar Jónsson leikið einn sinn besta leik og
Steinar Adolfsson sýnt hvers hann er megnugur.
—
Valsmenn í landsliðs-
búningi Argentínu
Valsmenn léku í argentíska landsliðsbún-
ingnum — voru í hvítum sokkum og hvítum
buxum og peysum með ljósbláum og hvítum
röndum. I Evrópukeppni meistaraliða í fyrra
lék liðið á útivelli gegn Mónakó í hvítum sokk-
um, hvítum buxum og peysum með dökkbláum
og svörtum röndum, sem er búningur Inter
Mílanó.
Mm
FOLK
■ ARNOR Guðjohnsen gerði
þriðja mark Anderlecht í 4:0 sigri
gegn Ballymena á írlandi. Arnór
skaut af um 30 m færi og hafnaði
boltinn í samskeytunum.
M ÍTÖLSKU meistararnir, Inter
Mílanó, féllu nokkuð óvænt úr
keppni í Evrópukeppni meistaraliða.
Þeir gerðu jafntefli við sænska liðið
Malmö FF, 1:1 í Mílanó. Aldo
Serena kom Inter yfir á 68. mínútu
en Leif Engquist jafnaði tíu mínút-
um fyrir leikslok. Malmö vann fyrri
leikinn 1:0 og heldur því áfram.
■ EVRÓPUMEISTARAR bikar-
hafa, Barcelona, sluppu fyrir horn
er þeir sigruðu pólska liðið Legía
Varsjá, 1:0. Brian Laudrup gerði
eina mark leiksins en jafntefli hefði
ekki nægt Börsungum. Maður
leiksins var Andoni Zubizaretta,
markvörður Barcelona en hann
varði oft mjög vel.
I DIEGO Maradona slapp vel er
Napolí sigraði Sporting Lissabon
5:4, eftir vítaspyrnukeppni. Mara-
dona brenndi af vítaspyrnu, þegar
liðin höfðu leikið í 210 mínútur án
þess að skora, en það kom ekki að
sök.
M FIORENTINA sigraði einnig
eftir vítaspyrnukeppni. Liðið vann
Atletico Madrid 3:1. Juan Goico-
echea, sem kallaður var „Slátrar-
inn frá Bilbao“ fékk rautt spjald,
í annað sinn á tveimur vikum,
snemma í síðari hálfleik. Hann er
þekktastur fyrir að hafa fótbrotið
Diego Maradona og Bernd
Schuster.
■ HOLLENSKA lögreglan hand-
tók 19 Vestur-Þjóðveija fyrir leik
Feyenoord og Stuttgart í Evrópu-
keppni félagsliða. Engin slagsmál
voru, heldur voru þeir handteknir
fyrir þjófnað og vopnaburð. Rúm-
lega 200 lögreglumenn voru á vell-
inum og 400 til viðbótar í viðbragðs-
stöðu.
FELAGSMAL
Herrakvöld KR
Hið árlega herrakvöld KR verð-
ur haldið í Hreyfilshúsinu ann-
að kvöld, föstudag, og hefst kl.
7.30, en áætlað er að borðhald byiji
kl. 8.30. Baldur Bóbó Frederiksen
verður veislustjóri. Miðar fást í
KR-heimilinu og við innganginn.
KNATTSPYRNA / ENGLAND
„Bíð þolinmóður
eftir tækifærinu^
- segir Þorvaldur Örlygsson, sem æfir með Nottingham Forest
ÍÞRÖmR
FOLK
„ÉG byrjaði ekki vel, fékk spark
í ökkla og varð að fara af velli
í æf ingaleik varaliðsins gegn
Walsall, er 10 mínútur voru til
leiksloka. Við fengum allir að
heyra það. Brian Clough hund-
skammaði mig, en sagði samt
að ég hefði staðið mig þokka-
lega í ömurlegum leik. Ég vona
bara að fall sé fararheill,“ sagði
Þorvaldur Örlygsson, knatt-
spyrnumaður ársins, við Morg-
unblaðið í gær.
orvaldur hefur staðið í ströngu
að undanfömu og hver stórvið-
burðurinn rekið annan. Hann fagn-
aði íslandsmeistaratitlinum fyrir
rúmri viku, vann aftur sæti í lands-
liðinu og var öryggið uppmálað
gegn Tyrkjum, og stóð uppi sem
leikmaður 1. deildar í kjöri leik-
manna í vikulok. Á sunnudag hélt
hann til Englands, kom til Notting-
ham aðfararnótt mánudags og lék
umræddan leik í hádeginu á mánu-
dag.
„Ég var að vonum drulluþreytt-
ur. Ég var sóknartengiliður hægra
megin, við sóttum og sóttum, en
töpuðum 2:1 — vorum ömurlega
lélegir,“ sagði Þorvaldur. „Það tek-
ur sinn tíma að aðlagast breyting-
unum. Ég þarf bæði að ná mér nið-
ur eftir það sem á undan hefur
gengið og eins að setja mig inn í
nýtt umhverfi. Hér er allt öðruvísi
en ég á að venjast," bætti hann við.
Forest bauð Þorvaldi til sín með
tveggja ára samning í huga, en þar
sem hann hefur ekki atvinnuleyfi í
Englandi, má hann ekki leika þar
í keppni. Hann æfir hins vegar með
aðalliðinu og má taka þátt í leikjum,
sem eru sérstaklega settir á. „Eina,
sem ég get gert, er að gera mitt
besta og sýna mig á æfingum.
Svona mál ganga venjulega ekki
hratt fyrir sig, en ég bíð bara þolin-
móður eftir tækifærinu — annað-
hvort kemur það eða ekki,“ sagði
leikmaður ársins.
Þorvaldur Örlygsson.
M PATRIK Sjöberg, sænski
heimsmeistarinn í hástökki, verður
frá æfingum vegna meiðsla næstu
þijá mánuðina. Sjöberg mun gang-
ast undir uppskurð á báðum fótum
vegna eymsla í hásinum, sem hafa
háð honum í keppni í sumar og
verður í gifsi á báðum fótum í
minnst þijár vikur. píðan taka við
•éttar æfingar í 10 vikur áður en
hann getur farið að æfa á fullu
aftur.
■ REAL Madríd hefur náð best-
um árangri 528 liða í 34 ára sögu
Evrópumótanna í knattspyrnu
samkvæmt úttekt France Football
í gær. Barcelona er í 2. sæti, Ju-
ventus í 3. sæti og Bayern
Miinchen í 4. sæti. Liverpool, sem
hefur eins og önnur ensk lið verið
útilokað síðan 1985, er engu að
síður í 7. sæti.