Morgunblaðið - 16.11.1989, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1989
17
Fuglum fækkaði um 14%
við Tjöraina á þessu ári
komast upp. Hefur þeim fækkað
um 54% eða 117 unga. Á þetta við
um allar tegundir, þó sérstaklega
duggönd og stokkönd. Líklegar
skýringar eru taidar vera náttúru-
legar sveiflur í helstu fæðustofnum
og minnkandi fæða vegna uppfyll-
ingar í Norðurtjörn.
í skýrslunni kemur fram að ár-
lega valda vargar tjóni á anda-
varpi, helst sílamáfur, sem tekur
litla unga og hrafn, sem rænir
hreiður. Þá má nefna svartbak,
mink og ketti. Bent er á að auð-
velt er að losna við varga aðra en
sílamáf sem sækir á Tjörnina vegna
brauðgjafa en honum má halda í
skefjum með skotum, Grágæsa pör-
um hefur fjölgað úr tveimur í sext-
án á niu árum og komust 30 ungar
upp í sumar. Minna var um hettu-
máfs- og kríuhreiður en oft áður
en afkoma kríu var góð og urðu
um 40 ungar fleygir.
í lok skýrslunnar er ítrekuð nauð-
syn þess að strax verði hafist handa
um að girða borgarfriðlandið í
Vatnsmýrinni og koma á eftirliti
með Tjarnarfuglunum. Bent er á
að á næstu árum verða öll varp-
svæði utan flugvallargirðingar eyði-
lögð, nema borgarfriðlandið.
Tvisvar sinnum fleiri ungar komust á legg
í ÁFANGASKÝRSLU um fuglarannsóknir við Tjörnina á þessu ári,
kemur fram að fuglum fækkaði um 14% á þessu ári. Ekki er vitað
um hvað veldur þessari fækkun en bent á að fyllt hafi verið upp í
hluta Norðurtjarnar og gengið á varplönd í Vatnsmýrinni. Rúmlega
tvisvar sinnum fleiri ungar komust á legg í ár miðað við 1988 og
er líkleg skýring talin vera hagstæð fæðuskilyrði. Um 16% fleiri
mýflugur veiddust í flugugildru við Norðurtjörnina í ár miðað við
árið á undan.
Fijósemi og klakárangur anda
var ágætur í ár og góður árangur
hjá öndunum í hóhuunum en lélegur
hjá þeim sem urpu í Vatnsmýr-
innni. Þar rændu hrafnar um 60%
hreiðra. Samtals komust upp 143
andarungar. Best var afkoman hjá
æðarfugli, skúfönd og gargönd en
lélegri hjá stokkönd og duggönd eða
80% afföll.
Þrátt fyrir að rúmlega tvisvar
sinnum fleiri ungar hafi komist á
legg miðað við árið í fyrra, sýnir
meðaltal síðustu tveggja ára sam-
anborið við meðaltal áranna 1973
til 1981 að færri ungar en áður
Stokkönd með unga sína.
Samgönguráðuneytið:
Kostnaður ekki end-
urgreiddur ef RUV
feer jarðstöð frá EBU
EF Ríkisútvarpið myndi þiggja jarðstöð af Evrópusambandi sjón-
varpsstöðva (EBU) myndi það ekki fá endurgreiddan kostnað frá
sambandinu, eins og hingað til hefúr tíðkast, að minnsta kosti
næstu tvö árin og ef til vill Iengur; segir í frétt frá samgönguráðu-
neytinu vegna synjunar beiðni RUV um að eiga og reka jarðstöð
til móttöku sjónvarpsefnis.
Þar segir að RÚV greiði nálega
15 milljónir króna í þáttöku- og
rekstrargjlad árlega til EBU, sem
síðan endurgreiði RÚV útlagðan
kostnað gegn framvísun reikn-
inga. Ákveðið hámark sé á þessum
endurgreiðslum og þær geti að
hámarki numið 375 þúsund gull-
frönkum, sem jafngildi tæplega
10 milljónum íslenskra króna.
Þannig hafi EBU endurgreitt
ríkissjónvarpinu leigugjald vegna
jarðstöðvarinnar í Skyggni.-
Síðan segir að niðurstaða ráðu-
neytisins hafi orðið sú að gera
Pósti og síma að kaupa bráða-
birgðalofnet nú og verði uppsetn-
ingu þess lokið fyrir áramót. Ekk-
ert sé því til fyrirstöðu að það
verði staðsett í Efstaleyti, eins og
RÚV hafi óskað eftir. Þá komi til
greina viðræður um hugsanlegan
rekstur RÚV á jarðstöðinni, þó
eignarhald komi ekki til greina
vegna fjarskiptalaganna.
„Ríkisútvarpið og Póstur og
sími eru báðar mikilvægar ríkis-
stofnanir og eiga með sér fjölþætt
samstarf. Samgönguráðuneytið
leggur ríka áherslu á að samvinna
þessara stofnana sé sem best og
er ætíð reiðubúið að leggja sitt lóð
á vogarskálina' til að svo megi
verða,“ segir að lokum.
PC
Byrjenda-
námskeið
Skemmtilegt og gagnlegt nám-
skeið fyrir þá sem eru að byrja
að fást við tölvur.
Tími: 21.. 23.. 28. og 30. nóv. kl. 20—23.
BSRB, ASÍ og VR styðja félaga sína
til þátttöku á námskeiðunum.
Leiðbeinandi: Stefán Magnússon.
Tölvufræðslan
Borgartúni'28, sími 687590
frá
1 9 9
ACCOUO
Nýr ACCORD 1990. Stíl-
hreint, svipsterkt og klass-
ískt útlitið segir ekki allt.
Stórfelldar breytingar eru
á bílnum frá fyrri árgerð-
um. Má þar fyrst nefna
100% aluminium vél,
(feyknalega) kraftmikil,
16-ventla og með tvöfalda
jafnvægisása á sveifarás,
sparneytin og umfram allt
hljóðlát.
Frábærir aksturseiginleikar
sem eiga sér fáar hliðstæð-
ur eru framkallaðir með
endurbótum á fjörðun,
sjálfstæðri fyrir hvert hjól,
sem eykur rásfestu og
öryggi í akstri. ACCORD
1990 er stærri, rýmri og
vandaðri en áður.
Aukin þægindi, meiri
hljóðeinangrun, vandaður
Honda frágangur og rúm-
góður bíll fyrir 5 fullorðna,
gerir aksturinn og tilveruna
að samfelldri ánægjustund.
Honda Accord 1990, glæsi-
bifreið á hagstæðu verði
sem sannarlega er vert að
kynna sér.
Sýning laugardag og sunnu-
dag.
Honda á Islandi, Vatna-
görðum 24, sími 689900.