Morgunblaðið - 16.11.1989, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1989
Bandaríkin:
Gervihnöttur á
niðurleið
Houston. Reuter.
RÚMLEGA tveggja tonna
gervihnöttur mun falla niður
í gufuhvolf jarðar í lok mánað-
arins, að sögn talsmanna
bandarísku geimvísindastofn-
unarinnar, NASA. Hnettinum,
er nefnist Solar Max, var skot-
ið á loft 1980. Talið er að
hann muni að mestu brenna
upp-er hann kemur inn í gufu-
hvolfið en mögulegt er að allt
að 400 kílogramma þungir
hlutar úr honum geti fallið til
jarðar. Vísindamenn NASA
segjast ekki geta sagt um það
fyrir fram með mikilli pá-
kvæmni hvar hnötturinn komi
inn í gufuhvolfið. Braut hnatt-
arins liggur ekki yfir ísland.
Breskt sjúkrahús:
Lík uppgötvað
eftir sex daga
London. Reuter.
LÍK manns, sem orðið hafði
bráðkvaddur inni á salerni í
St. Bartholomews-sjúkrahús-
inu, var ekki uppgötvað fyrr
en sex dögum eftir andlátið,
að sögn embættismanns hjá
heilbrigðisþjónustunni í Lon-
don. Maðurinn var 61 árs að
aldri, einhleypur og átti enga
aðstandendur. Hann var á leið
í röntgen-myndatöku en kom
við á salerni sem ekki er ætlað
sjúklingum á sjúkrahúsinu,
heldur gestum. „Að lokum
vöknuðu grunsemdir hjá ræsti-
tækni vegna þess að sömu
dyrnar voru alltaf læstar og
hún kallaði á hjálp,“ sagði
embættismaðurinn. „En við
viljum fá að vita hvers vegna
maðurinn fannst ekki fyrr.“
S AS-flug til
Lettlands?
Stokkhólmi. Reuter.
Skandinavíska flugfélagið
-SAS mun hefja áætlunarflug
til Tallinn í Eistlandi síðar í
mánuðinum. I gær skýrði fé-
lagið frá því að það myndi ef
til vill hefja flug til Riga í
Lettlandi á vori komanda og
ætti í viðræðum við sovéska
flugfélagið Aeroflot um lag-
færingar á alþjóðaflugvellin-
um í Riga. SAS verður fyrst
vestrænna flugfélaga til að
fljúga beint til Eystrasalts-
landanna en sem stendur þurfa
flugfarþegar á leið til þeirra
að koma við í Leníngrad.
Afg-anistan:
Harðar árásir
á Jalalabad
Isiamabad. Reuter.
AFGANSKIR mujahedin-
skæruliðar gera nú harða hríð
að borginni Jalalabad í austur-
hluta Afganistan, að sögn tals-
manna skæruliða sem hafa
aðsetur í nágrannaríkinu Pa-
kistan. Einn þeirra sagði 2.000
- 4.000 skæruliða hafa náð á
sitt vald tveim varðstöðvum
stjórnarhersins og skriðdreka,
auk þess sem þeir hefðu eyði-
lagt skötfærageymslur
skammt frá borginni. Herlið
Najibulla-stjórnarinnar hefur
svarað árásunum með harðri
sprengjuhríð á virki skæruliða
í grennd við borgina. Frá því
að Sovétmenn drógu her sinn
á brott í febrúar hafa skæru-
liðar lagt mikla áherslu á að
ná Jalalabad. Talsmaður
stjórnarinnar í Kabúl sagði á
mánudag að skæruliðar hefðu
um 10.000 manna lið við borg-
ina.
Holkeri útilokar
aðild Finna að EB
FINNAR munu ekki gera við Evrópubandalagið neina þá samn-
inga, sem skerða frelsi þeirra til að taka eigin ákvarðanir. Hefur
breska dagblaðið Financial Times þetta eftir Harri Holkeri, forsæt-
isráðherra Finnlands, en hann var í þriggja daga opinberri heim-
sókn í London í byijun mánaðarins.
keri í viðtali við blaðið og útilokaði
þar með í raun aðild Finna að EB,
jafnt í bráð sem lengd. Hann lagði
hins vegar áherslu á, að Finnar
vildu taka þátt í þeirri efnahags-
legu samræmingu, sem nú ætti sér
stað í Evrópu, en útskýrði það
ekki nánar.
Holkeri sagði, að Finnar legðu
mikið upp úr samstarfinu innan
EFTA, Fríverslunarbandalags Evr-
ópu, þar sem reynt væri „að halda
sama takti“ og í EB-ríkjunum með
alls kyns reglugerðarbreytingum
og öðrum ráðstöfunum vegna innri
markaðarins árið 1992. Hann tók
hins vegar skýrt fram, að þótt ein-
hver Austur-Evrópuríkjanna, til
dæmis Ungveijaland, gerðust aðil-
ar að EB myndi það engu breyta
fyrir Finna.
„Pólitískt frelsi Finnlands er
ekki til sölu. Við munum aldrei
fallast á, að ákvarðanir í okkar
eigin málum verði teknar annars
staðar en í Helsinki,“ sagði Hol-
Noregur:
Ottast að
íjórir hafi
týnt lífi í
flug-slysi
Slagsmál á Kýpur
Meira en fimm hundruð námsmenn af grískum uppruna reyndu í
gær að ráðast yfir grænu línuna svonefndu er skiptir löndum milli
Grikkja og Tyrkja á Kýpur. Var þetta gert í tilefni þess að sex ár
voru liðin frá því Kýpur:Tyrkir lýstu yfir stofnun sjálfstæðs ríkis á
sínum hluta eyjarinnar. Á myndinni sjást lögreglumenn tvístra hópn-
um með kylfum.
^ Ósló. Reuter.
ÓTTAST er, að sjúkraflugvél
með Qóra menn innanborðs hafi
farist í (jalllendinu í Norður-
Noregi í fyrrinótt. Hafði hún
ekki fúndist þegar síðast fréttist
enda veður hið versta á þessum
slóðum.
Flugvélin, sem er af Cessna-
gerð, hvarf af ratsjárskjám nokkru
áður en hún átti að lenda á flug-
vellinum í Bardufoss fyrir sunnan
Tromsö en þangað var fyrirhugað
að sækja sjúkling. Voru um borð
tveir flugmenn, hjúkrunarkona og
ungur námsmaður. Leit að vélinni
var skipulögð strax en í gær var
skyggni lítið sem ekkert vegna
mikillar snjókomu og hvassviðris.
Könnunarviðræður EB og EFTA:
Gert ráð fyrir yfir-
þjóðlegum lausnum
- sagði Hjörleifur Guttormsson alþingis-
maður í ræðu á aukaþingi Norðurlandaráðs
HJÖRLEIFUR Guttormsson al-
þingismaður sagði í ræðu er hann
flutti á þriðjudag á aukafundi
Tékkóslóvakía:
Stj órnin sleppir
andófsmönnum
Prag. Reuter.
Tékkneskur dómstóll lét í gær lausa Qóra andófsmenn, sem höfðu
verið handteknir fyrir að hvetja fólk til að minnast innrásar Varsjár-
bandalagsríkjanna fyrir 21 ári. Hefur sú niðurstaða komið nokkuð á
óvart.
Andófsmaðurinn Miroslav Kusy
var dæmdur í átta mánaða skilorðs-
bundið fangelsi og til að vera undir
eftirliti í 14 mánuði fyrir að hafa
„skaðað hagsmuni ríkisins" en hinir
þrír, Vladimir Manak, Hana Ponicka
og Anton Selecky, voru sýknaðir af
ákæru um að hafa hvatt til, að lagð-
ir yrðu blómsveigar á þá staði þar
sem fólk beið bana í innrásinni.
Alexander Dubcek, burtrekinn
formaður kommúnistaflokksins, var
viðstaddur réttarhöldin, sem fram
fóru í Bratislava, en í næstu viku
verður réttað í máli fimmta andófs-
mannsins, Jans Carriogurskys.
Manet-mál-
verká 1.700
milljónir
Malibu í Kaliforníu. Reuter.
SKÝRT var frá því í gær að J.
Paul Getty-safnið í Bandaríkjun-
um hefði keypt olíumálverkið
„Rue Mosnier, fánum prýtt 30.
júní 1878,“ eftir franska impres-
sjónistann Edouard Manet fyrir
sem svarar 1.700 milljónum ísl.kr.
Myndin sýnir örkumla hermann
haltra eftir götunni Rue Mosnier í
París við lok hátíðardags, um það
leyti er lífið við hana er aftur að
færast í samt lag. Verkið var í eign
listaverkasafnarans Pouls Mellons.
Vaclav Maly, sem er framarlega
í Mannréttindasamtökunum Charta
’77, sagði, að dómarnir hefðu komið
á óvart en varaði þó við bjartsýni
á, að harðlínustefna kommúnista
væri eitthvað að linast. „Þeir vilja
bara forðast beinar ögranir eins og
á stendur og hafa nokkrar áhyggjur
af ímynd sinni á Vesturlöndum,"
sagði hann.
Norðurlandaráðs að staða Norð-
urlanda með tilliti til Vestur-
Evrópu væri háð verulegri óvissu
um þessar mundir. Kvaðst hann
setja spurningarmerki við það
markmið Evrópubandalagsins
(EB) og Fríverslunarbandalags
Evrópu (EFTA) að koma á fót
sameiginlegu, evrópsku efiia-
hagssvæði og taldi gagnrýnisvert
hvernig að þessu stefnumiði hefði
verið unnið.
Hjörleifur minnti á að hann hefði
sem aðili að efnhagsnefnd Norður-
landaráðs sett skýran fyrirvara um
frelsi í fjármagnshreyfingum og
ijármálaþjónustu hvað ísland
áhrærði. Kvað hann sýnt að tillögur
um evrópskt efnahagssvæði fælu
m.a. í sér að reglur innri markaðar
EB, sem verða mun að veruleika í
árslok 1992, yrðu yfirfærðar á
Norðurlönd. Slíkt teldi hann ekki
eftirsóknarvert fyrir þau Norðurl-
önd, sem aðild eiga að EFTA og
að minnsta kosti ekki fyrir ísland.
Hjörleifur sagði að mörg orð
hefðu fallið um að aðild EFTA-
ríkjanna að sameiginlega efna-
hagssvæðinu mætti ekki fela í sér
að þau gengjust undir yfirþjóðlegt
vald. „Eftir könnunarviðræður
sumarsins er Ijóst að framkvæmd
á evrópsku efnahagssvæði felur í
reynd í sér yfirþjóðlegar lausnir
varðandi stofnanir, eftirlit og dóm-
stóla, þótt reynt verði að breiða
yfir þá staðreynd á pappírnum."
Könnunarviðræður þær sem fram
hefðu farið milli bandalaganna
tveggja í framhaldi af Óslóarfund-
inum í mars væru andstæða lýðræð-
islegra vinnubragða. Gagnrýnislaus
aðlögun Norðurlanda að EB væri
ógnun við mörg norræn gildi.
í ræðu sinni hvatti Hjörleifur
Guttormsson ennfremur til þess að
skjótt yrði brugðist við þeim hug-
myndum sem Míkhaíl S. Gorbatsjov
kynnti í heimsókn sinni til Finn-
lands nýverið og kvaðst styðja
ábendingar um hvernig auka mætti
samskipti sovéskra valdhafa og ein-
stakra sovétlýðvelda og Norður-
landa. Lagði hann m.a. til að fulltrú-
um Eystrasaltsríkjanna þriggja og
Karelíu yrði boðað að koma sem
áheyrnarfulltrúar á 38. þing Norð-
urlandaráðs í Reykjavík.
Bandaríkj aþing:
Flykkjast um lög'gjöf í
málum fiskmetiseftirlits
^ Washingtoh. Frá ívari Guðmundssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
ÁTTA frumvörp til laga um fiskmetiseftirlit og breytingartillögur
við þau liggja nú fyrir í báðum deildum Bandarikjaþings, sjö í
fúlltrúadeildinni og eitt í öldungadeildinni. Umfangsmesta frum-
varpið um þetta efni er borið fram í fúlltrúadeildinni.
Flutningsmaður frumvarpsins trúadeildarinnar, hefir gerst mik-
var upphaflega E. de la Gaza, sem
er formaður landbúnaðarnefndar
deildarinnar. Frumvarp hans gerir
ráð fyrir “nákvæmri skoðun á og
eftirliti með fiskmeti, sem selt er
til neyslu I Bandaríkjunum, á borð
við það, sem er krafist af eftirlits-
aðilum með kjöti og öðrum hráum
matvælum".
John Dingell þingmaður, sem
er formaður viðskiptanefndar full-
ilvirkur stuðningsmaður lagasetn-
ingar um fiskeftirlit. Hann vill
láta neytendur bera kostnaðinn
af eftirlitinu. Dingell lét svo um-
mælt fyrir skömmu, að hann
myndi stuðla að því, að lög verði
sett um fiskeftirlitið áður en árinu
lýkur. Síðan hefir umræðum í
nefnd um málið verið frestað.
Það er skoðun margra sem
kunnugir eru starfsvenjum þings-
ins, að fiskeftirlitsmálið sé orðið
að bitbeini meðal þingmanna, sem
telja, að mál þetta sé vinsælt
meðal almennings og vilja því
eigna sér heiðurinn af lagasetn-
ingu um eftirlit á þessu sviði.
Fiskimálastofnun Banda-
ríkjanna (NFI) hefir gefið út nýjar
og endurbættar reglur og ráð-
leggingar um flutning á ferskum
fiski og fiskmeti með flugvélum.
Reglurnar eru samdar í samvinnu
við Alþjóðaflugmálastofnun Sam-
einuðu þjóðanna (ATA) og eru
afhentar félögnm í NFI, en meðal
þeirra eru margir íslendingar.