Morgunblaðið - 16.11.1989, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1989
Neyðarástand í San Salvador:
Yilja vopnahlé til að hægt
verði að hlynna að særðum
San Salvador, Genf. Reuter.
Reuter
Tveir skæruliðar halda vörð í Zacarail-hverfi í San Salvador en hverf-
ið er eitt þeirra sem skæruliðar hafa á valdi sínu. Hundruð manna
hafa flúið hverfið af ótta við sprengjuárásir stjórnarhersins.
RAUÐI krossinn hvatti í gær
stjórnarherinn og skæruliða
vinstrisinna í E1 Salvador til að
Ie&SÍa niður vopn í höfúðborg
landsins, San Salvador, til að
hægt yrði að flylja særða á
sjúkrahús. Barist var með vél-
byssum og sprengingar glumdu
við í borginni. Að minnsta kosti
600 manns, þar af 50 óbreyttir
borgarar, hafa beðið bana í bar-
dögunum fi*á því um 1.500
skæruliðar réðust inn í úthverfi
borgarinnar á laugardag. Rúm-
lega 1.000 hafa særst.
í yfirlýsingu frá höfuðstöðvum
Rauða krossins í Genf segir að
starfsmenn stofnunarinnar hafi
ekki komist inn á átakasvæðin í
San Salvador til að hlynna að þeim
sem særst hafa í átökunum.
Skæruliðamir réðust á laugardag
á bústað Alfredos Cristianis, for-
seta landsins, og síðan hefur ekk-
ert lát verið á bardögum í verka-
mannahverfum í útjöðrum borgar-
innar.
Skæruliðarnir hafast við í skot-
gröfum og byggingum og veijast
þar árásum herþyrlna. Utgöngu-
bann gildir nú allan sólarhringinn
og nær það til helmings borg-
arbúa, sem eru alls um milljón.
Borgarbúar sögðu að matvæli
væru nú af skomum skammti á
þeim svæðum sem skæruliðar hafa
náð á sitt vald. íbúar þessara
svæða áræða ekki að fara út á
göturnar af ótta við bardagana.
Utan átakasvæðanna vom fáir á
ferli nema fyrir utan nokkra stór-
markaði þar sem fólk reynir í ör-
væntingu að tryggja sér þær fáu
vömr sem enn em á boðstólum.
Skæruliðarnir segjast njóta
stuðnings borgarbúa en að sögn
stjórnarinnar er borgumnum hald-
ið í gíslingu. Útvarpsstöð stjórnar-
hersins skýrði frá því að herinn
myndi bráðlega gersigra skæmlið-
ana, sem einnig era sigurvissir og
segjast hafa náð þriðjungi landsins
á sitt vald.
19
Lítiö inn tii okkar og skoöiö vönduð
vestur-þýsk heimilistœki!
Hjá SIEMENS eru gœði, ending og
fallegt útlit ávallt sett á oddinn!
SMITH&NORLAND
NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300
INNIHURÐIR
FATASKÁPAR
UNGLINGAHÚSGÖGN
HILLUSAMSTÆÐUR
RATTAN-HÚSGÖGN
SÓFASETT
OG MARGT FLEIRA
NY VERSLUN!
ÁRMÚLI 1 - REYKJAVÍK
Nií erum við á tveimur stöðum.
BÚSTOFN hefur opnað nýja verslun í
Armúla 1, Reykjavík, en rekur vitaskuldþá
gömlu, góðu áfram af fullum krafti við
Smiðjuveginn íKópavogi.
BÚSTOFN er alltaf námer eitt í verðlagi og
vörugœðum og nú númer eitt við Armúlann.
Smiðjuvegi 6, Kópavogi — Ármúla 1
Sími 44 5 44
Opið á föstudögum til kl. 19.
Opið á laugardögum frá kl. 10—16.