Morgunblaðið - 16.11.1989, Side 38

Morgunblaðið - 16.11.1989, Side 38
táÖRGÚNBLAÐIÐ IÞROTTIR ráMTUMGÓril NÓVEMBER 1989 Engíniaglar Minni Gífurlegum fjármunum er árlega variö í endurbætur og viögeröir, því skulum við nýta okkur ónegldu hjólbarðana og haga akstri eftir aðstæðum. GATNAMÁIASTJÚRINN í REYKJAVÍK KRAFTLYFTINGAR Magnús Ver Evrópumeistari Magnús Ver Magnússon hefur verið úrskurðaður Evrópu- meistari í kraftlyftingum, í 125 kg flokki. Hann varð í öðru sæti í flokknum þegar Evrópumótið fór fram í Finnlandi 7. maí síðastliðinn, en Vestur-Þjóðverjinn Ralph Giers, sem sigraði, féll á lyfjaprófi á mót- inu og hefur Magnús því verið færð- ur upp í fyrsta sætið. „Við vorum að fá þessar upplýs- ingar. Þær koma seint og því erfitt að vera með eitthvert „húllumhæ" í tilefni af árangrinum. Þetta er þó auðvitað mjög skemmtilegt, Magn- ús fær verðlaunin og við fögnum árangrinum. Þetta er í fyrsta skipti sem íslenskur kraftlyftingamaður hlýtur Evrópumeistaratitil. Þeir hafa náð að setja Evrópumet, en aldrei unnið þennan titil fyrr,“ sagði Oskar Sigurpálsson, formaður KRAFT, í samtali við Morgunblaðið í gær. Magnús Ver lyfti samanlagt 885 kg á Evrópumótinu, en Vestur- Þjóðverjinn 920 kg. Magnús Ver Magnússon. BLAK/ HMKVENNA Kúba heimsmeistari Lið Kúbu varð heimsmeistari kvenna i blaki. Keppnin hefur staðið yfir í Japan að undanfömu. Síðasti keppnisdagur var í gær og urðu úrslit þá sem hér segir: Sovétrikin sigruðu Kanada 3:1 (15:8 13:15 15:9 15:2), Kúba vann Suður Kóreu 3:0 (15:8 15:12 15:4), Austur-Þýskaland vann Perú 3:2 (9:15 6:15 15:7 16:14 15:13) og Kína sigraði Japan 3:0 (15:13 15:4 15:7). Kúba hlaut 14 stig, Sovétríkin hlutu 13, Kína 12, Japan 11, Perú, Austur-Þýskaland og Suður Kórea 9 og Kanada rak lestina með 7. Gefin voru tvö stig fyrir sigur og eitt fyrir tap. BESTA HVAÐ? fBisíÁl er fyrirtæki sem sérhæfir sig í hreinlætisvörum. íbestái iivóiif öll efni og áhöid til ræstinga og hreinlætis. ÍBESÍÁ) VERÐIÐ (BÉSTÁ) þJONUSTAN Öll hreinsiefni, bón, sápur, hand- þvottakrem og sérefni til hreinsunar. Ræstivagnar og séráhöld. Jani-Jack Moppuvagnar. Teppahreinsivélar, vatnssugur og ryksugur. Einnig snúningsburstavélar. IBESTAI Hýbýlavegi 18, Kóp. Sími 91-641988 opið 9-18. (SÍSTÁ) Hafnargötu 61, Keflavík, Sími 92-14313 opið 13-18. HANDBOLTI / FELAGASKIPTI Dagur vonar FYRIR skömmu var íslenskur handknattleiksmaður, sem skipti um félag, dæmdur í sex mánaða leikbann hjá Dómstóli HKRR og Dómstóli HSI vegna þess að félögin, gamla félag viðkom- andi leikmanns og hið nýja, komust ekki að samkomuiagi um félagaskiptin. Málinu var áfrýjað tii Dómstóls ÍSÍ, sem vísaði þvífrá. Dæmt var samkvæmt lögum HSÍ, en bæði Dómstóll HSÍ og ÍSÍ gagnrýndu harðlega þau reglugerðarákvæði, sem í gildi eru og farið var eftir. HSÍ segir m. a. í sinni greinar- gerð um málið að stöðugt sé verið að vinna að endurskoðun á starfsreglunum. „í dag gilda AF ákveðnar reglur innlendum um félagaskipti VETTVANGI sem félögin hafa ^ sett sér, að vissu leyti taka þær niið að handbolti á ís- landi er á „heims- mælikvarða" og stefna hefur verið tekin á „hálf- atvinnumennsku“ Steinþór Guðbjartsaon skrifar framtíðinni“ Frelsi einstaklingsins HSÍ fer þarna undan í flæm- ingi. Sambandið er með áhuga- mannareglur í gildi hvað sem allri hálfatvinnumennsku líður og menn hljóta að leggja þann skiln- ing í áhugamennsku að ieikmanni sé í sjálfsvald sett með hvaða fé- lagi hann leikur, sé vissum grund- vallarskilyrðum uppfyllt sbr. ákvæði 5. gr. 2. c og d í lögum ÍSÍ um réttindi og skyldur. Reglu- gerðin um félagaskipti í dag á kannski rétt á sér í háifatvinnu- mennsku á morgun, en það er alit annar handleggur. „Leikmaður sem óskar eftir félagaskiptum skal fá undirskrift hins nýja svo og síns gamla félags á félagaskiptaeyðublað HSÍ. Séu félögin ekki sammála um félaga- skipti viðkomandi leikmanns fyrir 1. ágúst skal ieikmaður sæta leik- banni með sinu nýja félagi í 6 mánuði frá 1. ágúst að telja.“ Þannig er sá hluti 3. gr. B.4 reglu- gerðar HSÍ um handknattleiks- mót, sem málið snýst fyrst og fremst um. Dómamir bera þess augljós merki að reglugerðin um félaga- skipti innaniands er út í hött og henni verður að breyta. „Það verður að teljast að- finnsluvert að við setningu þessa reglugerðarákvæðis skuli ekki hafa verið veittur frestur á gildis- töku leikheimildar, eða leikbanns eftir atvikum til þess að gefa fé- lögunum færi á að ræðast við og ná samkomulagi um félagaskiptin eða krefjast rökstuddrar neitunar fyrir félagaskiptum“, segir m. a. í rökstuðningi dómstóls HSÍ. „Ákvæði þetta heggur nærri gmndvallarreglum laga ÍSÍ, sbr. 5.gr. 2. c og d, um ftjálsa félags- aðild, þátttöku í félagsstarfi og jafnrétti félagsmanna, og getur bersýnilega leitt til ósanngjarnar niðurstöðu fyrir einstaka félags- menn...Þrátt fyrir ágalla hins umdeilda ákvæðis í mótareglu- gerð HSÍ telur Dómstóll ÍSÍ sig ekki hafa nægilega heimild í lög- um ÍSf til að víkja þvi til hliðar“, segir m. a. í dómi dómstóls ÍSÍ. „Grundvaliaratriðið er að regl- urnar eru ekki nógu góðar. Það er búið að hræra svo oft í þeim að þær era ónothæfar og það er skitalykt af þessu máli,“ sagði Kjartan Steinbach, formaður dómaranefndar HSÍ og í laga- nefnd, aðspurður um þetta mál og margir aðrir tóku í sama streng. Spurningar Ýmsar spurningar hljóta að vakna. Getur félag neitað að sk,rifa undir félagaskipti, þegar áhugamaður er skuldlaus ( al- mennt átt við félags- og æfinga- gjöld ) við það? Hafa áhuga- mannafélög yfir höfuð nokkurn rétt til að skipta sér af og semja um félagaskipti áhugamanns? Er hægt að binda áhugamenn í átt- hagafjötra? Og svo má lengi halda áfram. Umræddum dómi verður ekki breytt, en meðan á málinu stóð fékk HSÍ bakþanka og skipaði nefnd til að endurskoða félaga- skiptalögin. Mistök hafa verið við- urkennd, reglunum verður breytt, en til þess varð að gera áhuga- mann að fórnarlambi. Er það ekki of langt gengið?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.