Morgunblaðið - 18.11.1989, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1989
Hjörtur O.
Aðalsteins-
son skipað-
ur saka-
dómari
FORSETI íslands hefur skip-
að Hjört O. Aðalsteinsson í
embætti dómara við saka-
dóm Reykjavíkur I stað Ár-
manns Kristinssonar sem lát-
ið hefur af störfum fyrir ald-
urs sakir.
Hjörtur 0. Aðalsteinsson
fæddist 27. febrúar 1952. Hann
lauk embættisprófi í lögfræði frá
Háskóla íslands 1977 og hefur
síðan starfað við sakadóm
1
Hjörtur O. Aðalsteinsson
Reykjavíkur, síðast sem aðalfull-
trúi yfirsakadómara.
Hjörtur 0. Aðalsteinsson er
kvæntur Hafdísi Sigurbjöms-
dóttur, fulltrúa við Sparisjóð
Kópavogs. Þau eiga tvær dætur.
Fækkun fiskvinnslu-
fyrirtækja hlýtur að
verða á næstu árum
- segir Arnar Signrmundsson formaður Sambands fiskvinnslustöðva
„SAMTÖK fískvinnslustöðva hafa lagt á það áherslu að ekki sé
verið að veita stofnlán til nýrra fiskvinnslufyrirtækja, og á næstu
misserum og árum hlýtur að eiga sér stað veruleg fækkun fisk-
vinnslufyrirtækja, ýmist með samruna þeirra, eða þá að þau hætta
rekstri," segir Arnar Sigurmundsson, formaður sljórnar Sambands
fiskvinnslufyrirtækja.
Kristján Ragnarsson, formaður
LIU, sagði í ræðu sinni við upphaf
aðalfundar LÍÚ á fimmtudaginn,
að ekki væri úr vegi að velta því
fyrir sér hvort æskilegt sé að
fækka fiskvinnslustöðvum og auka
með því arðsemi vinnslunnar. Arn-
ar sagðist vilja benda á að á þessu
ári hefði aðilum í saltfiskvinnslu
fækkað um rúmlega 80, og væru
saltfiskverkendur nú um 300 tals-
ins í stað tæplega 400 í fyrra.
„Þau fyrirtæki sem hætt hafa
störfum eru flest lítil fyrirtæki, og
hafa getað hætt vegna þesS að þau
skulda ekki mikla peninga. Það
hefur einnig orðið dálítil fækkun i
frystingunni, og þá annað hvort
hreinlega með lokun einstakra fyr-
irtækja eða samruna þeirra. Þess-
um hefðbundnu frystihúsum mun
án efa fækka töluvert á næstu
árum, en við leggjum á það áherslu
að víða á stöðum úti á landi er
aðeins eitt frystihús, þannig að
málið snýst ekki eingöngu um það
hvort fækka eigi frystihúsum á
þeim stöðum, heldur snýst það um
byggðastefnu. Þess vegna getum
við ekki séð að þar geti átt sér
stað fækkun heldur annars staðar
þar sem fleiri hús eru til staðar.
Ég vil því ekki meina að við höfum
neitt verið að draga úr því að fisk-
vinnslustöðvum fækki, og í álykt-
unum frá okkur höfum við lagt
áherslu á að þetta muni gerast,“
sagði Arnar Sigurmundsson.
VEÐUR
/ DAG kl. 12.00:
Heimild: Veðurstofa Islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær)
VEÐURHORFUR ÍDAG, 18. NÓVEMBER.
YFIRLIT í GÆR: Um 900 km suðsuðvestur af landinu er 979 mb
djúp og víðáttumikil lægð sem þokast suðaustur en heldur vax-
andi 1025 mb hæð yfir Grænlandi hreyfist austur. Veður fer kóln-
andi.
SPÁ: Norðaustan kaldi eða stinningskaldi um allt land, él norðan-
lands og austan en léttskýjað sunnan til. Kólnandi veður.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG OG MÁNUDAG: Vestan eða norövestan
strekkingur og él við norðurströnding, einkum á sunnudag, en
annars hæg breytileg átt og léttskýjað um alit land. Frost 0-10
stig, mest í innsveitum.
TÁKN:
G
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
s, Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrimar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
■J0 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
ý Skúrir
= Þoka
= Þokumóða
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
’, ’ Súld
OO Mistur
—J- Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hiti veður
Akureyri ri-0 hálfskýjað
Reykjavík 1 úrkoma í grennd
Bergen 8 léttskýjað
Helsinki 2 súld
Kaupmannah. 7 léttskýjað
Narssarssuaq +10 léttskýjað
Nuuk +7 léttskýjað
Osló 2 léttskýjað
Stokkhóimur 5 léttskýjað
Þórshöfn 8 skýjað
Algarve 13 þrumuv.á s.klst.
Amsterdam 6 léttskýjað
Barcelona 16 skýjað
Berlfn 5 heiðskírt
Chicago +9 skýjað
Feneyjar 9 léttskýjað
Frankfurt 6 heiðskirt
Glasgow 8 skýjað
Hamborg 5 heiðskirt
Las Palmas vantar
London 6 mistur
Los Angeles 12 heiðskirt
Lúxemborg 5 léttskýjað
Madríd 14 alskýjað
Malaga 16 rigning á sfð.klst.
Mallorca 20 skýjað
Montreal +0 urkoma i grennd
New York 3 léttskýjað
Orlando 8 skýjað
Parfs 7 léttskýjað
Róm 12 rigningásíð.klst.
Vín 2 léttskýjað
Washington 2 léttskýjað
Winnipeg +16 snjókoma
Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs:
Tranströmer o g
Nordbrandt í
hópi tilneftidra
Kaupmannahöfn. Frá NJ.Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins.
NÚ HEFUR verið skýrt írá hverjir hafa verið tilnefhdir til Bók-
menntaverðlauna Norðurlandaráðs á árinu 1990. Verður verðlaun-
unum, rúmlega 1,3 millj. ísl. kr., úthlutað á fúndi Norðurlandaráðs
í Reykjavík 28. febrúar nk.
Svíar tilnefna tvö ljóðskáld,
Ragnar Thoursie fyrir ljóðasafnið
„Krákorna skrattar" o'g Tomas
Tranströmer fyrir ljóðasafnið „För
levande- och o döda“. Norðmenn
nefna til Tor Áke Bringsværd fyr-
ir skáldsöguna „Gobi“ og Bergljot
Hobæk Haff fyrir skáldsögu, sem
nefnist „Den_ guddommelige tra-
gedie“. Frá íslandi koma rithöf-
undurinn Svava Jakobsdóttir og
skáldið Matthías Johannessen og,
frá Finnlandi rithöfundurinn Rosa
Liksom og ljóðskáldið Solveig von
Schoulz. Samar tefla sínum eigin
manni fram og heitir hann Nils-
Aslak Valkeapáa. Rithöfundurinn
Peer Hultberg og ljóðskáldið Hen-
Bærinn
er á Snæ-
fellsnesi
Á miðvikudaginn birti Morgun-
blaðið frétt um auglýsingu
bandaríska símafyrirtækisins
AT&T, þar sem ísland var notað
til að auglýsa þjónustu félagsins.
í auglýsingunni voru mynd af
sveitabæ og nafn og símanúmer,
sem áttu að vera í Vík í Mýrdal.
Bærinn á myndinni er hins vegar
ekki í Mýrdalnum frekar en síma-
númerið, heldur er þar um að ræða
bæinn Lágafell - Syðra í Mikla-
holtshreppi á Snæfellsnesi, sem nú
er í eyði. Fjallið, sem bærinn stend-
ur undir, heitir Elliðahamar.
rik Nordbrandt verða fulltrúar
Dana.
Innlend tilboð í
Arna Friðriksson:
I athugun
að greiða
það sem á
vantar
Hafrannsóknastofhun hef-
ur ekki næga peninga til að
taka íslensku tilboði í breyt-
ingar á rannsóknaskipinu
Árna Friðrikssyni, að sögn
Halldors Ásgrímssonar sjáv-
anitvegsráðherra. Hann
segir að í athugun sé að
greiða það sem á vantar svo
að taka megi innlendu til-
boði.
Gert var ráð fyrir að Ha-
frannsóknastofnun hefði 64
milljónir króna til að greiða
allmiklar breytingar á Áma
Friðrikssyni. Halldór Ásgríms-
son segir að um það bil 26
milljónir vanti á þessa upphæð
til að taka lægsta íslenska til-
boðinu í verkið. Innlendu til-
boðin séu mjög áþekk, en sam-
kvæmt lauslegu mati sé lægsta
erlenda tilboðið um 13 milljón-
um lægra, eða nálægt 77 millj-
ónum kr. Fram hefur komið í
Morgunblaðinu að ákvörðun
um hvaða tilboði verði tekið
muni að líkindum tekin nú um
helgina.