Morgunblaðið - 18.11.1989, Page 18
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1989
Björg Einarsdóttir, formaður Bókrúnar, Valgerður Kristjónsdóttir,
ritstjóri minnisbókarinnar, Sigríður Guðmundsdóttir, framkvæmda-
sljóri Hjálparstofhunar kirkjunnar og Elísabet Cochran, hönnuður.
■ MINNISBÓK Bókrúnar fyrir’ ■ KIRKJUBÆJARKLA USTRI-
næsta ár er komin út. Minnisbókin
er eins konar holufylling í lítt
skráðri sögu kvenna, eins og Björg
Einarsdóttir, formaður útgáfufé-
lagsins Bókrúnar, orðar það. í
minnisbókinni er greint frá samtök-
unum ITC á íslandi, en slík kynn-
ing er fastur þáttur í bókinni. Sagt
er frá ritverkum kvenna á árinu
1985 og nafnaskrá gefin úr fyrri
minnisbókum. Fimm konur rita um
hugðarefni sín í minnisbókina; auk
Bjargar Einarsdóttur eru það
Kristín Jóhannesdóttir, kvik-
myndaleikstjóri, Sigríður Guð-
mundsdóttir, framkvæmdastjóri
Hjálparstofnunar kirkjunnar, Edda
Kr. Björnsdóttir, bóndi, Þóra
Hjaltadóttir, forseti Alþýðusam-
bands Norðurlands, og Jónína Mic-
haelsdóttir, blaðamaður. Ritstjóri
minnisbókarinnar er Valgerður
Kristjónsdóttir og hönnuður
Elísabet Cochran.
■ KVERIÐ Aðgát skal höfð, eft-
ir Helgu Sigurjónsdóttur kennara
við fornmámsdeild Menntaskólans
í Kópavogi, er komið út. Þar fjall-
ar höfundur um skólamál, einkum
um grunnskólann, sem stofnsettur
var 1974 og um þróun barna- og
unglingafræðslu á íslandi eftir
síðari heimsstyrjöld. Fyrsti kaflinn
er um Fornám í MK, þar sem rakin
er saga fomámsdeildar við Mennta-
skólann í Kópavogi. I öðrum kafla
er rætt um hugmyndir sem starf
kennaranna í deildinni byggir á og
í þriðja og síðasta kaflanum Skóla-
þróun í MK er fjallað um breyting-
ar á námsráðgjöf í skólanum síðustu
ár. Útgefandi kversins er Mennta-
skólinn í Kópavogi.
Þann 5. nóvember sl. setti Biskup
Íslands, herra Ólafúr Skúlason sr.
Sigurjón Einarsson inn í embætti
sem prófast Skaftafellsprófasts-
dæmis. Athöfnin fór fram við
messu í Prestbakkakirkju sem er
ein af kirkjum þeim sem sr. Sigur-
jón þjónar. Þetta mun vera í fyrsta
skipti sem prófastur er settur inn
í embætti annars staðar en í
Reykjavík, því allt þar til er Ólafur
Skúlason varð biskup var það venja
að setja prófasta inn í embætti í
Dómkirkjunni í Reykjavík við upp-
haf prófastafunda í byrjun mars ár
hvert. Að lokinni messu var síðan
settur héraðsfundur prófastsdæm-
isins, en í honum taka þátt um það
bil 30 manns, prestar, prófastur og
fulltrúar allra sóknarnefnda í um-
dæminu og að þessu sinni var bisk-
up íslands gestur fundarins.
- HFH
■ HÚSAVÍK-
Listviðburðir síðustu helgar á
Húsavík voru þrír. Píanóleikarinn
Vilberg Viggósson hélt tóníeika í
sal barnaskólans á sunnudag við
góðar undirtektir áheyrenda.
Bandalagsdagsins minntist Leik-
félag Húsavíkur með upplestri
ljóða eftir þingeyska höfunda eða
að þeir höfðu dvalið í sýslunni.
Framhaldsskólanemendur sýndu
sjónleikinn Spanskflugnna í
fimmta sinn í Samkomuhúsinu á
laugardagskvöldið. Aðsókn að þess-
um listviðburðum var minni en ætla
mætti, en fjölmenni var á tveimur
árshátíðum félaga, sem haldnar
voru á föstudags- og laugardags-
kvöld.
Fréttaritari
Starfsfólk Bónusverslunar Kaupfélagsins.
Morgunblaoio/Sigurgeir Jónasson
■ VESTMANNAEYJUM—
Fyrir skömmu opnaði Kaupfélagið
í Eyjum svokallaða Bónusverslun
í húsnæði sínu við Bárustíg. Kaup-
félagið hefur rekið matvörumarkað
í þessu húsi um áraraðir auk þess
að reka matvörumarkað við Goða-
hraun. Jón Karlsson, verslunar-
stjóri, sagði að tilgangurinn með
þessum markaði væri að bjóða
Eyjamönnum upp á lægra vöruverð
og auka með því verslun í byggðar-
laginu. - Grímur
■ HIÐ ÍSLENSKA sjóréttarfé-
lag heldur hádegisverðarfund
mánudaginn 21. nóvember um haf-
færi skipa í Víkingasal Hótels Loft-
leiða og hefst hann kl. 12.00. Frum-
mælandi verður Jón Finnbjörns-
son dómarafulltrúi og mun hann
fjalla um þýðingu haffæris við skoð-
un skipa, skipakaup og skipsrúms-
samning svo og um dóm Hæsta-
réttar Islands frá 13. apríl 1989
þar sem reyndi á 19. grein sjó-
mannaiaganna. Fundurinn er öllum
opinn.
■ UMRÆÐUFUNDUR á vegum
Rannsóknastofnunar uppeldis- og
menntamála um efni fyrirlestra
Þorvaldar Amar Árnasonar og
Stefáns Bergmanns verður hald-
inn þriðjudaginn 21. nóvember kl.
16.30 í Kennaraskólahúsinu við
Laufásveg. Umræðustjóri verður
Ólafur Guðmundsson æfinga-
kennari. Öllum er heimill aðgangur.
■ HIÐ ÍSLENSKA fornleifafé-
lag heldur aðalfund sinn þriðjudag-
inn 21. nóvember. Fyrir utan venju-
leg aðalfundarstörf verður fluttur
fyrirlestur. Margrét Hermanns-
Auðardóttir flytur fyrirlesturinn
og_ nefnist hann Upphaf byggðar
á Islandi í ljósi Herjólfsdalsrann-
sókna. Fundurinn verður haldinn á
Þjóðminjasafni íslands og hefst
kl. 20.30.
■ SÝNINGIN Lýsing fyrir aldr-
aða og sjónskerta verður haldin í
húsi Blindrafélagsins við
Hamrahlíð en ekki í húsi Blindra-
vinafélagsins eins og sagt var í
blaðinu í gær.
Oskar Vigfusson formaður Sjómannasambandsins:
Þurfiim tvímælalaust að
breyta síldarvinnslunni
Tilkostnaður allt of hár o g Rússar munu
ekki semja aftur á þessum kjörum
„EG TEL að við þurfúm tvímælalaust að breyta vinnslunni," segir
Óskar Vigfússon formaður Sjómannasambands íslands, en hann átti
sæti í samninganefnd þeirri sem samdi við sovéska fyrirtækið Sovryb-
flot um saltsíldarkaup sem nú bíða staðfestingar sovéskra yfirvalda.
Hann segii' fráleitt að Islendingar geti lengur haft vinnsluna með
þeim hætti sem hún er í dag. Staðan sé þannig að nú standi upp á
Sovétmenn að standa við gerða samninga, en í framtíðinni verði íslend-
ingar að söðla um, Rússar semji ekki á þessum nótum firamar. Til-
kostnaður okkar sé langt yfir því sem eðlilegt getur talist, á sama
tíma og síldarvinnslustöðvar með fjölda starfsfólks standi verkefnalaus-
ar í Sovétríkjunum.
„Þegar við hófum viðræður við
Sovrybflot, þá lá fyrir að þeir hefðu
gjaldeyrisheimild fyrir 120 til 130
þúsund tunnum," segir Óskar. „Hins
vegar lögðum við allt kapp á að
samið yrði um magn er væri eitt-
hvað í samræmi við það sem kæmi
fram í viðskiptasamningum þjóð-
anna. Það er áð segja 200 til 250
þúsund tunnur. Það lá fyrir þegar
staðið var upp úr þessum samninga-
viðræðum þar sem Sovrybflot sam-
þykkti að kaupa 150 þúsund tunnur
að þeir mundu Sækja um gjaldeyris-
heimild fyrir því magni og að þeir
Ieituðust við að afla frekara gjald-
eyrisleyfis fyrir 50 þúsund tunnum
til viðbótar."
Óskar kveðst teljá skynsamlegt
að menn haldi að sér höndum á
meðan samningamir fást ekki stað-
festir og að fráleitt sé að fara að
veiða upp á von og óvon.
Hann segir ekki vera hægt að
finna aðra markaði fyrir þessa síld,
ef Rússlandsmarkaðurinn tapist, þá
sé fátt til bjargar varðandi síld og
síldarsöltun. „Þetta er alstærsti
síldarmarkaður i heimi í dag.“
Óskar kveðst telja að úr því sem
komið er, sé síldarsalan að öllu leyti
í höndum stjórnmálamanna. „Við
töldum okkur vera búna að semja
við þá aðiia sem við höfum samn-
ingsumboð við, það er Sovrybflot."
Hann var spurður hvort hið sov-
éska kerfi væri orðið annað en áður
var, hvað varðar samninga sem
þessa. „Já, tvímælalaust. Þetta er í
sjötta skipti sem ég tek þátt í samn-
ingaviðræðum í Moskvu og þar hafa
orðið gífurlegar breytingar á
skömmum tíma og ég held að menn
séu famir að hugsa öðruvísi þar,
varðandi viðskiptin. Þetta eru orðnir
harðir bíssnissmenn og hugsa á þeim
nótum í dag.“
Þýðir það að við þurfum að fara
að hugsa einhvern veginn öðru vísi?
„Já, tvímælalaust. Ég tel að það
þurfi að stokka þetta allt upp hjá
okkur. Ég tel að við getum ekki
haldið áfram eins og hingað til.“
Hvemig á að breyta?
„Ég tel að þessu þurfi að breyta
þannig að sá tilkostnaður lækki sem
virðist vera fyrir hendi hér á landi
TÓB AKS.V ARN ARNEFND og
Krabbameinsfélag Reykjavíkur
efna um þessar mundir til sam-
keppni meðal grunnskólanema
um land allt í gerð myndefnis til
tóbaksvarna. Keppt er í þremur
aldursflokkum, 6—9 ára, 10—12
ára og 13—15 ára, og verða veitt
ein 20. þúsund króna verðlaun
og fern 10 þúsund króna verð-
laun í hverjum aldursflokki.
Efni myndanna á með einhveij-
um hætti að varða baráttuna gegn
og gerir það að verkum að við þurf-
um að sækja verð sem er að sumra
mati óraunhæft í dag. Rússarnir
hafa ýmislegt til síns máls þar sem
þeir segja að við séum ekki að selja
á heimsmarkaðsverði, verð okkar sé
langt umfram það. Að vísu verður
að taka það fram að þeir sem bjóða
síld, aðrir en við, á verði sem við
getum .ekki keppt við eru þær þjóðir
sem ríkisstyrkja sinn sjávarútveg og
þá sérstaklega síldariðnað. Ber þar
að. nefna fyrst til Kanadamenn og
Norðmenn sem eru að bjóða sannan-
lega á miklu lægra verði en við get-
um keppt við.
Hins vegar er ég sannfærður um
að hægt sé að breyta þessu hjá okk-
ur þannig að við séum samkeppnis-
færari heldur en við erum í dag,“
sagði Óskar Vigfússon.
reykingum og annarri tóbaks-
neyslu, og fyrir reyklausu samfé-
lagi. Ætlunin er að sýna verðlauna-
myndirnar og aðrar valdar myndir
í Reykjavík og víðar, og einnig kem-
ur til greina að nota úrvalsmyndir
til myndskreytinga í blöðum og
bæklingum, og við fræðslu í skól-
um. Fimm manna dómnefnd dæmir
myndirnar, en þeim þarf að skila á
skrifstofu viðkomandi skóla í
síðasta lagi 30. nóvember næstkom-
andi. (Úr firéttatilkynningu)
Tíu ára nemendur í Hjallaskóla í Kópavogi teikna myndir til tób-
aksvarna.
Samkeppni í grunnskólum um
gerð myndefnis til tóbaksvama
„Jákvætt átak“ í
Gerðubergi í kvöld
í kvöld liuga milljónir manna
um allan heim að koma saman
til að gera jákvætt átak til betra
lífs, þar sem um þessa helgi eru
sérstök tímamót, sem sögð eru
skipta sköpum í ríkjandi tíðar-
anda.
Þessi sérstöku tímamót nefnast
Tímahvörf (Time Warp) og
ganga yfir dagana 17. til 19. nóv-
ember, en hápunktur þeirra er
klukkan 23.23 í kvöld. í tilefni
af þessum tímamótum verður
haldin samkoma í Gerðubergi í
kvöld og hefst hún klukkan 22.30
og er áætlað að henni ljúki klukk-
an 24.00. Sérstakur gestur sam-
komunnar er dr. Paula Horan
mannúðarsálfræðingur frá
Bandaríkjunum og mun hún halda
fyrirlestur um þessi sérstöku
tímamót. Aðrir þátttakendur eru
Kristján Einarsson, miðill, Rafn
Geirdal, nuddfræðingur, Gunn-
laugur Guðmundsson, stjörnu-
spekingur, Diddú (Sigrún Hjálm-
týsdóttir) söngkona og Guðrún
Oladóttir, fyrsti reikimeistari á
íslandi, en hún stýrir samko-
munni.
Undirrituð átti stutt spjall við
þær Guðrúnu Óladóttur og Paulu
Horan til að fræðast nánar um
hvað hér væri um að vera. Þær
sögðu að samkvæmt tímatali
Maja, værum við nú á tímamótum
í sögu jarðarinnar og ættum,
þessa helgi, aðgang að mjög svo
magnaðri alheims- eða kosmos-
orku. „Við eigum kost á því að
nýta þessa orku til þess að heila
jörðina og okkur sjálf," sögðu þær
stöllur. „Síðastliðin ár hafa spá-
dómar Majana, og margra ann-
arra, ræst. Austur og vestur hafa
verið að mætast og er skýrasta
dæmið þar um opnun Berlínarm-
úrsins.
„1 tímatali Maja, sem byijar
3113 fyrir Kristsburð, eru þrettán
góð tímabil og níu slæm. Seinasta
slæma tímabilinu iauk 16. ágúst
1987 og þarmeð hófst hið þrett-
ánda góða tímabilið, eða það sem
við köllum þrettándi Baktum-
hringurinn, en hann stendur til
2012, sem er endir á tímatali
Maja. Árið 2012 er upphafið að
nýjum tíma á jörðinni, tíma friðar.
En núna um helgina verður
hámark þessa síðasta hrings í
tímatali Majana og við, jarðarbú-
ar, eigum kost á því að fram-
kvæma kraftaverk á okkur og
jörðinni, sökum þessarar mögn-
uðu orku sem við eigum aðgang
að.“
ssv