Morgunblaðið - 18.11.1989, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1989
29
og bindindismál. Að rækta landið og
þjóðina voru heitnar hugðarefni.
Taldi hún að af áfenginu stafaði
hvað mest hætta fyrir þjóðina og
brýndi hún okkur barnabörn sín mjög
í þeim efnum, og gerði lítið úr mál-
flutningi þeirra sem mæltu víninu
bót. Eins var með tqáræktina. Þar
vann hún ótrauð við að planta og
hlúa að plöntum og hafði ekki alltaf
erindi sem erfiði. Ef til vill hafa þó
þau frækorn sem hún náði að sá í
þessum málum ekki öll skotið rótum
ennþá, en eiga eftir að spíra landi
og þjóð til blessunar.
Þegar afi lést, fluttu amma og
Herdís systir hennar í Frostastaði til
Jórunnar dóttur ömrnu og manns
hennar, Frosta. Eyddu þær systur
ævikvöldinu þar og var amma þar
fram yfir 98. afmælisdag sinn, er
hún flutti á elli- og dvalarheimili á
Sauðárkróki, en Herdís lést vorið
1985, þá 93 ára gömul. Þar undu
þær systur við ptjónaskap, lestur og
ýmsa handavinnu og var merkilegt
að fylgjast með því að antma sem
aldrei hafði tekið í útsaum frá því á
Kvennaskólaárunum hóf nú að
sauma út komin um áttrætt. Rýja-
teppin urðu líka mörg og held ég að
hún hafi lokið við það síðasta á 98.
aldursárinu.
Frosta og Jórunni vet'ður aldrei
fullþakkað það erfiða hlutverk sem
þau þóku að sér þegar þær systur
fengu dvalarstað hjá þeim. Þolin-
mæði og þrautseigja var einstök og
það vita allir sem tii þekkja að aðrir
hefðu ekki leyst þetta hlutverk betur
af hendi.
Amma vat' södd lífdaga þegar hún
kvaddi þennan heint. Hún spurði Guð
sinn oft hátt og í hljóði síðustu árin
hví hann leyfði henni ekki að fara
frekar en að kalla héðan úr heimi
ungt fólk sem féll í valinn. Nú hefur
hún fengið hvíidina og einnig svörin.
Við höfum ekki svörin, en í hugum
okkar sem fengum að njóta hennar
á þroskaárum okkar, eru minningar
sem við geymum með okkur og þökk-
um fyrir. „Drottinn gaf og Drottinn
tók, lofað veri nafn Drottins."
G.I.L.
s
STÆRÐ: 107X127 CM. ATH! OKKAR VERÐ KR. 11.500.- I RAMMA
OPIÐ TIL
KL. 18 A LAUGARDÖGUM
SIGTUN 10 — SÍMI 25054
SERVERSLUN MEÐ
INNRÖMMUNARVÖRUR
PLAGGATA-
SÝNING
10% AFSLÁTTUR
LAUGARDAG
OG SUNNUDAG
FRÁ KL.13-18
RAMMA
MIÐSTOÐIN
• ÁLRAMMAR
• SMELLURAMMAR
• NÆG BÍLASTÆÐI
INNRUMMUN
NY SENDING
STÓRKOSTLEGT ÚRVAL
ALVAREZ
EDGAR
HOKNEY
KLEE
KANDINSKY
MIRO
O'KEEFFE
PICASSO
CHAGALL
O.FL.