Morgunblaðið - 18.11.1989, Side 43
.... SÍDJiGUNBI-AÐIÐ IÞROTTIR
NÓVÉMBIÍK 1089
48-
HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ
Héðinn Gilsson skoraði sex sinnum
í gær með þrumufleygum utan af velli.
Iþróttir
helgarinnar
Krafllyflingar
Bikarmót KRAFT '89 verður haldið i
dag í Garðaskóla í Garðabæ og hefst
kl. 12.30. Keppendur verða fleiri en
nokkru sinni fyrr á kraftlyftingamóti
hér á landi — 43 hafa skráð sig til
keppni. Að sögn mótshaldara má búast
við sþennandi keppni i mörgum flokk-
um, og er búist við að fjöldi íslands-
meta falli.
Pílukast
Undanúrslit og úrslit fslandsmótsins í
pílukasti fara fram í dag. Nánar ann-
ars staðar á síðunni.
Körfuknattleikur
1. deild karla
Laugardagur
Grundarfjörður, Snæfell-UMSB...kl. 14
Hagaskóli, UMFB-UÍA......kl. 14
Hagaskóli, Léttir-UMFL.kl. 15:30
Sunnudagur:
Digranes, UBK-ÍA..........kl.20
Hagaskóli, Víkvejji-ÍS...kl. 22
1. deild kvenna
Hafnaríjörður, Haukar-.UMFG ...,kl. 20
Hagaskóli, KR-UMFN.......kl. 19
Kennaraháskóli, ÍS-ÍR....kl. 20
Blak
Karlar
Laugardagur:
Neskaupst., ÞrótturN.-HK..kl.14
Akureyri, KA-ÞrótturR.....kl. 14
Sunnudagur:
Hagaskóli, ÍS-Fram........kl. 14
Konur
Laugardagur:'
Neskaupst., ÞrótturN.-Hk.kl. 15:15
Akureyri, KA-Þróttur R...kl. 15:15
Sunnudagur:
Hagaskóli, ÍS-Víkingur...kl. 15:15
Handknattleikur
2. deild karla
Mánudagur:
Selfoss, Selfoss-ValurB...kl. 20
Badminton
Unglingameistaramót Reykjavíkur
veröur haldið í TBR-húsum á
morgun, sunnudag. Keppni hefst
kl. 10. Keppt verður i öllum grein-
um og flokkum unglinga, en næg
þátttaka fæst.
Besti leikurinn
- en þótap, 21:23, gegn A-liðiTékka ísíðasta leiknum
„STRÁKARNIR léku sinn besta leik í ferðinni, voru mjög góðir.
Tóku vel á og með smá heppni og meiri ieikreynslu hefðu þeir
getað unnið. Það var slæmt í stöðunni 16:15 að missa eina línu-
mann okkar, Gunnar Beinteinsson, af leikvelli með rautt spjald
— og þá fór Sigurður Bjarnason einnig af velli í tvær mínútur.
Við lékum þá fjórir úti á vellinum gegn sex Tékkum, sem kom-
ust yfir 16:17, og héldu forystunni út leikinn" sagði Bogdan
Kowalczyk, landsliðsþjálfari íslands, eftir að A-lið Tékka hafði
sigrað ísland 23:21 í síðasta leik æfingamótsins í Tékkóslóvakíu
í gær.
SigmundurÓ.
Steinarsson
skrifar frá
Tékkósfóvakiu
Það var einnig mjög slæmt fyrir
íslenska liðið, þegar Óskar
Armannsson var útilokaður er fimm
mínútur voru eftir. 'Staðan var þá
19:21. Hann misnot-
aði þá vítakast; skot
hans fór f andlitið á
tékkneska mark-
verðinum. Góðir
dómarar leiksins, Anthonsen og
Schjerven frá Noregi, gátu ekki
annað en sýnt Óskari rauða spjald-
ið. Þijár sóknir íslensku leikmann-
anna runnu út í sandinn, áður en
Sigurður Gunnarsson minnkaði
ínémR
FOLK
H „ÞO það hafi verið deilt á þenn-
an stað, Stupava, væri gott að
vera á ámóta stað þegar í heims-
meistarakeppnina verður komið.
Það er gott að vera í rólegheitum
útaf fyrir sig, þegar Ieikmenn hugsa
eingöngu um handbolta,“ sagði
Bogdan landsliðsþjálfari um
smábæinn sem landsliðið hefu-r
dvalið í þessa viku.
■ SIGURÐUR Gunnarsson var
útnefndur besti maður íslenska
liðsins í leiknum í gær og fékk að
launum postulínsskál.
■ BOGDAN fyrirskipaði fyrir
leikinn að bannað væri að vippa
yfír markvörð, en það reyndist illa
í leiknum gegn b-liði Tékka. Jakob
Sigurðsson braut þessa fyrirskipun;
lét veija einu sinni frá sér en bætti
það upp síðar með því að skora —
er hann vippaði yfir markvörðinn
og í netið.
■ LEIKURINN í gær var sá eini
á mótinu, sem sjónvarpað var beint
um Tékkóslóvakíu.
I ÍSLENSKI hópurinn átti að
halda heim á leið í nótt; leggja átti
af stað kl. 3 frá Stupava. Fljúga
átti kl. 7 frá Vín og liggur leiðin
til Frankfurt, síðan til Luxem-
borgar og þaðan heim.
■ BOGDAN fer aftur á móti land-
leiðina. Ætlaði á Mazda-bifreið
sinni 1.000 kílómetra leið heim til
Varsjár í Póllandi.
■ ÖRN Eiðsson, heiðursformaður
Frjálsíþróttasambandsips, sendi
blaðinu eftirfarandi: „í frásógn af
ársfundi Evrópusambands
Olympíunefnda, sem fram fór í
Aþenu í síðasta mánuði og skýrt
var frá á íþróttasíðu Mbl. sl. laugar-
dag, gætti örlítillar_ónákvæmni.
A fundinum var Ágúst Ásgeirs-
son kjörinn í tækninefnd sambands-
ins eins og skýrt var frá. Skýrt var
einnig frá því, að Örn Eiðsson
hefði verið tilnefndur í vinnunefnd
um fjölmiðlun í fyrra, sem er rétt,
en þess láðist að geta, að hann var
endurkjörinn í nefndina á fundinum
í Aþenu.
■ STOFNAÐ hefur verið nýtt
sérsamband um körfuknattleik í
Bandaríkjunum, USA Basketball.
Svk. lögum FIBA, alþjóða sam-
bandsins, getur aðeins eitt sérsam-
band frá hveiju landi átt aðild að
því. ABA, bandaríska körfuknatt-
leikssambandið, hefur verið aðili að
FIBA, en stofnaði nýlega USA
Basketball ásamt NBA. Þetta þýðir
í reynd að leikmenn NBA-deildar-
innar geta leikið á Ólympíuleikum.
muninn í 20:21. Reynsluleysi ungu
leikmannanna bitnaði á þeim undir
lokin, og Tékkar stóðu uppi sem
sigurvegarar 21:23.
Þetta var besti leikur íslenska
iiðsins í ferðinni. Eftir að Tékkar
koipust yfir 0:2 fóru skytturnar
Héðinn Gilsson og Sigurður Gunn-
arsson að hrella tékknesku mark-
verðina; skoruðu samtals 11 mörk
með langskotum í leiknum. Héðinn
sex og Sigurður fimm. íslending-
arnir náðu að jafna 3:3 og komast
yfír 4:3, og 6:4. Síðan var jafnt á
öllum tölum frá 8:8 til 12:12, en
þannig var staðan í leikhléi.
Strákarnir höfðu frumkvæðið í
byijun séinni hálfleiks, eða þar til
Gunnari Beinteinssyni var vikið af
leikvelli og_ útilokaður í stöðunni
16:15 fyrir ísland, og 13 mín. bún-
ar af hálfleiknum. Valdimar
Grímsson tók stöðu hans, en honum
var síðan vikið af leikvelli þegar
staðan var 19:19. Alls voru íslensku
leikmennirnir færri í 8 mínútur í
seinni hálfleik og Tékkarnir nýttu
sér það vel.
Bestir voru skytturnar Héðinn
og Sigurður Gunnarsson og þá voru
Óskar og Bjarki mjög ógnandi.
Gunnar var sterkur í vörninni með-
an hans naut við, en aftur á móti
Jakob sér ekki á strik í horninu.
Mörkin: Héðinn Gilsson 6, Sigurður Gunn-
arsson 6/1, Óskar Ármannsson 4, Bjarki Sig-
urðsson 2, Gunnar Beinteinsson 2, Jakob Sig-
urðsson 1. Aðrir sem léku: Guðjón Ániason,
Konráð Olavson, Valdimar Grímsson, Guð-
mundur Hrafnkelsson og Einar Þorvarðarson,
sem stóð í markinu allan tímann. Hann varði
7 skot, þar af 4 þar sem Tékkar fengu knött-
inn aftur.
Bogdan með séræfingar
ÞAÐ hefur komið fram hér í Tékkóslóvakíu að margir landsliðsmann-
anna eru ekki í nógu góðri æfingu til að ná að einbeita sér í leikn-
um. Þá skortir liðið samæfingu. Bogdan landsliðsþjálfari ætlar að
bæta úr þessu eftir 1. desember. Þá hefur hann óskað eftir að lands-
liðsmennirnir komi saman einu sinni í viku á séræfingar hjá sér.
Bogdan kemur heim til íslands eftir viku og verður þar alveg þar
til farið verður til Tékkóslóvakíu á ný í heimsmeistarakeppnina.
Leikmenn hafa tekið vel í hugmynd Bogdans um aukaæfingar.
PILUKAST
Keppni um íslands
titla lýkur í dag
Urslit ráðast á íslandsmótinu í
pílukasti í dag. Keppt er í
Sportklúbbnum, Borgartúni 32.
Undanfarnar tvær helgar var háð
mjög hörð og spennandi keppni um
sæti í úrslitum, enda 43 sterkustu
pílukastarar landsins sem leiddu
saman hesta sína.
Þeir sem mætast í undanúrslitum
í dag eru ajinars vegar Óskar Þor-
mundsson frá Keflavík og Kristinn
Þ. Kristinsson úr Sandgerði og hins
vegar Guðjón Hauksson og Ægir
Ágústsson,_ báðir úr Grindavík.
Ægir var íslandsmeistari 1986 og
’87, Guðjón er núverandi íslands-
toém
FOLK
■ TVEIMUR leikjum milli Guate-
mala og E1 Salvador í riðlakeppni
HM í knattspyrnu hefur verið af-
lýst, vegna ástandsins í síðamefnda
landinu, en þar geysa nú bardagar.
■ EGYPTAR tryggðu sér í gær
þátttökurétt í úrslitakeppni HM á
Italíu næsta sumar. Þeir sigruðu
Alsírbúa 1:0 í síðari leik liðanna,
en hinn fyrri var markalaus.
120.000 áhorfendur sáu Hossam
Hassan gera eina mark leiksins
strax á 4. mín.
■ SOVÉTMENN hefndu í gær
fyrir tapið gegn Bandaríkjamönn-
um í úrslitaleik karla í blaki á
Ólympíuleikunum í Seoul. Heims-
meistarmótið hófst í gær í Japan,
og á fyrsta degi lagði sovéska liðið
það bandaríska að velli, 3:2 (16:14
5:15 15:11 4:15 15:13). í gær unnu
ítalir 3:0 sigur á Kamerún, Kúba
vann Brasilíu 3:0, og Suður Kórea
sigraði Japan 3:2.
meistari f tvímenning. Þeir eiga
allir sæti í landsliði íslands.
Nú er í fyrsta skipti keppt um
íslandsmeistaratitil kvenna. Anna
Kristín Bjarnadóttir frá Reykjavík
og Kolbrún Tobíasdóttir úr
Grindavík keppa til úrslita.
Hér er um að ræða eitt sterkasta
mót sinnar tegundar til þessa hér
á landi. M.a. má nefna að 22 sinn-
um sáust „180“ stig á píluborðinu.
Guðjón Hauksson Og Ægir Ágústs-
son kláruðu báðir leik á 14 pílum,
en til samanburðar er meðaltal at-
vinnumanna um 16-18 pílur í leik
(501). Hæsta útskot átti Þorsteinn
Jóhannsson, „tók út“ 134 stig.
Robson.
lan Crook.
Uf6m
FOLK
■ CHELSEA, sem færSout-
hampton í heimsókn í dag, hefur
ekki tapað síðustu 26 heimaleikjum
í deild og teflir fram sama liði og
sigraði Everton fýrir viku.
■ BRYAN Robson verður senni-
lega ekki með Manchester United
gegn Luton. Hann fór meiddur af
vellj í hálfleik í landsleik Englands
og Ítalíu á miðvikudaginn — og var
enn slæmur í nára í gær.
■ MAL Donaghy fær lækifærir
verði Robson ekki með.
■ COVENTRY, sem hefur ekki
fengið á sig mark í síðustu tveimur
leikjum, gegn Liverpool og Sout-
hampton, stefnir að fyrsta sigrin-
um á Villa Park, heimavelli Aston
Villa.
■ IAN Crook og Robert Rosario
verða með Norwich á ný, en liðið
fær Charlton í heimsókn.
H NIGEL Martyn, fyrsti mark-
vörðurinn í Bretlandi, sem seldur
er á milljón pund, leikur sinn fyrsta -
leik með Crystal Palace gegn
Guðna Bergssyni og félögum hjá
Tottenham.
■ COLIN Hendry, varnarmaður-
inn sterki hjá Blackburn, var í gær
seldur til Manchester City fyrir
700 þúsund pund.
■ LIVERPOOL og Millwall leika
á morgun og verður viðureignin
sýnt beint í sjónvarpi í Englandi.
■ ENGLENDINGAR hafa boðið
Argentínu og Uruguay að vera
með í Rous-keppninni í maí. Und-
anfarin ár hafa Brasilía, Chile og
Colombia tekið þátt auk Englands
og Skotlands. Verði Skotar ekki
með verður það í fyrsta sinn í 45
ár, sem Englendingar og Skota*#
leika ekki landsleik á þessum tíma.
H ARGENTÍNA lék síðast gegn
Englandi á Wembley 1980 og tap-
aði þá 3:1 en þjóðirnar mættust
næst í HM í Mexíkó 1986 og þá
vann Argentína 2:1, þar sem
Maradona gerði umdeilt mark.
Laugardagur kl. 14:55
46. LEIKVIKA- 18. nÓV. 1989 11 m m
Leikur 1 M’Gladbach - B. Uerdfnoen .
Leikur 2 Arsenal Q.P.R.
Leikur 3 Aston Villa - Coventry
Leikur 4 Chelsea - Southampton
Leikur 5 C.Palace - Tottenham
Leikur 6 Derby - Sheff. Wed.
Leikur 7 Everton - Wimbledon
Leikur 8 Luton • Man. Utd.
Leikur 9 Man. City - Nott. For.
Leikur 10 Norwich - Charlton
LeikurH Portsmouth - W.B.A.
Leikur 12 Wolves - Blackburn
Símsvari hjá getraunum er 91-84590 og LUKKULÍNAN s. 991002 Munið hópleikinn -84464. 11 Sillliili