Morgunblaðið - 18.11.1989, Qupperneq 44
LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1989
VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR.
Faxaflói:
OVITAR A FERÐ
Morgunblaðið/Þorkell
Gráhærð böm og fullorðið fólk í stuttbuxum vöktu-
athygli í Kringlunni í gæE) Þegar betur var að gáð
reyndust þar vera á ferð leikarar frá Þjóðleikhús-
iriu, en sýningar. á leikriti Guðrúnar Helgadóttur,
Óvitum, hefjast að nýju í dag. Óvitar er vinsælasta
barnaleikrit sem sýnt hefur verið á íslandi, en um
46.000 áhorfendur hafa séð verkið í tveimur upp-
færslum. í þessu leikriti eru börn í hlutverki fullorð-
inna og öfugt. Þegar æfingar hófust í haust kom
upp einkennilegt vandamál: „Elstu“ leikararnir höfðu
vaxið upp úr búningum sínum, en þeir „yngstu"
höfðu frekar vaxið á þverveginn.
011 hlutabréf SIS í
.Olíufélaginu veðsett
SAMBAND íslenskra samvinnu-
félaga hefúr sett sem tryggingar
öll hlutabréf sín í Olíufélaginu,
en þar á Sambandið 44,53% eign-
arhlut. Sambandið setti bréfin
Heimsfrægir
kappaksturs-
menn hingað
MARIO Andretti og sonur
hans Michael eru væntanlegir
til íslands í dag. Þeir eru
báðir þekktir kappaksturs-
menn og Mario Andretti varð
t.a.m. heimsmeistari í Form-
úlu 1 kappakstri árið 1979.
Sonur hans hefur einnig náð
langt og þykir einn sá besti í
Bandaríkjunum.
Andretti-íjölskyldan er á leið
frá Bandaríkjunum til Ítalíu í
einkaþotu sinni og hyggst dvelja
í Reykjavík um helgina í boði
Sverris Þóroddssonar sem hefur
verið vinur íjölskyldunnar í
mörg ár.
Mario Andretti er 49 ára en
keppir enn. Sonur hans, Mic-
hael,, hefur unnið nokkur mót
undanfarin ár og er talinn besti
ökumaður Bandaríkjanna um
þessar mundir. Þeir keppa með
sama liði og er í eigu Pauls
Newman kvikmyndaleikara.
sem tryggingu fyrir lánum sem
Samvinnubanki Islands veitti fyr-
irtækinu. Þetta hefur Morgun-
blaðið samkvæmt áreiðanlegum
heimildum.
Nú er búist við því að á næst-
unni verði gengið frá kaupum
Landsbankans á Samvinnubankan-
um, eða þegar Ólafur Nilsson, end-
urskoðandi, hefur lokið við úttekt
sína á fjármálum Sambandsins, sem
hann er að vinna fyrir Landsbank-
ann. Verði kaupin frágengin, þá
flytjast ofangreind hlutabréf Sam-
bandsins í Olíufélaginu yfir í Lands-
bankann. Bréfin voru um síðustu
áramót metin á 1,1 milljarð króna.
Fram hefur komið að skuld SÍS í
Samvinnubankanum nemur um 1,6
milljörðum króna.
Landsbankanum mun vera það
nokkurt kappsmál að tryggingarnar
í hlutabréfum Olíufélagsins flytjist
til Landsbankans, þar sem þær eru
taldar mjög öruggar. Því er ekki
þannig farið með allar þær tiygg-
ingar sem Sambandið hefur sett að
veði, vegna lána frá Landsbankan-
um. Því lítur Landsbankinn svo á,
að ef illa fer hjá Sambandinu, þá
væri þarna um mjög örugga trygg-
ingu að ræða, sem myndi síður en
svo falla í vevði, þótt hún skipti um
eigendur.
Helsta niðurstaða fundar Sam-
bandsstjórnar, sem haldinn var á
þriðjudag og miðvikudag, var sú
að hraða beri eignasölu eftir megni,
til þess að reyna að greiða niður
skammtímaskuldir Sambandsins,
en heildarskuldir Sambandsins eru
nú talsvert á ellefta milljarð króna.
Heildareignir Sambandsins um
síðustu áramót voru 10,7 milljarðar
króna.
Sjá Af innlendum vettvangi: Sam-
bandið á heljarþröm á bls. 30.
Manns sakn-
að af smábáti
FLUGVÉL Landhelgisgæslunnar, TF SÝN, fann 10 tonna bát frá
Akranesi mannlausan 15 sjómílur frá Akranesi og 12,5 sjómílur frá
Garðskaga klukkan 21.40 í gærkvöldi. Einn maður var á bátnum og
er talið að hann hafi fallið útbyrðis.
Báturinn tilkynnti sig ekki á
venjulegum tíma í gærdag og svar-
aði heldgr ekki kalli Tilkynninga-
skyldunnar og var leit hafin um
klukkan 18. Leitinni var stjórnað
frá stjórnstöð Slysavarnafélags ís-
lands. Auk flugvélar Landhelgis-
gæslunnar tóku þátt í leitinni 10
björgunarsveitir, 7 björgunarbátar,
8 fiskibátar frá Akranesi og Akra-
borg. Leit að manninum hefst á ný
í birtingu í dag.
Til bátsins sást síðdegis í gær
og var hann þá á siglingu. Virtist
þá allt vera í lagi um borð.
Atakafiindur í Alþýðubandalaginu:
Steingrímur fram
gegn Svanfríði?
ALLT benti til þess í gærkvöldi
að kosið verði í embætti vara-
formanns Alþýðubandalangsins
milli Steingríms J. Sigfússonar
samgönguráðherra og Svanfríð-
ar Jónasdóttur núverandi vara-
formanns flokksins. Kosið verður
í flokkstjórn, framkvæmdastjórn
og miðstjórn á landsfundi flokks-
ins í dag.
Að sögn Ragnars Arnalds for-
manns kjörnefndar var þó ekki úti-
lokað að samkomulag næðist um
varaformannsefni og þannig yrði
komist hjá kosningum. Rætt hefur
verið um að reyna að ná samstöðu
um þriðja aðila í embættið. Einnig
er laust sæti gjaldkera flokksins en
Bjargey Einarsdóttir gefur ekki
kost á sér til endurkjörs.
Mjög hart hefur verið deilt um
stefnumál Alþýðubandalagsins á
landsfundinum og á tillögur forustu
flokksins í því sambandi. Syavar
Gestsson menntamálaráðherra og
fyrrum formaður flokksins sagði til
dæmis að Alþýðubandalagsfólki
fyndist að verið væri að færa flokk-
inn til. Svavar sagði síðan að Al-
þýðubandalagið stæði frammi fyrir
miklum vanda, þegar saman kæmu
þau vinnubrögð flokksforustunnar
að leggja fram tillögur án þess að
um þær hefði farið fram nein um-
ræða í flokknum, og tillögur á borð
við þá að Alþýðubandalagið gangi
í Alþjóðasamband jafnaðarmanna.
Sjá nánar miðopnu.
Hálsbólga
að ganga í
Reykjavík
SLÆM hálsbólga með háum
hita og hósta hefúr verið að
ganga meðal barna á höfúð-
borgarsvæðinu að undan
förnu og heimilislæknar hafa
haft óvenju mikið að gera.
Stefán Finnsson læknir á
læknavaktinni í Reykjavík segir
að óvenju annasamt hafi verið
hjá heimilislæknum í þessum
mánuði. Einnig hafi talsvert
verið um veikindi í október.
Einna mest hafi borið á háls-
bólgu í börnum. Mikið væri um
að eyrnabólga, bronkítis og
þess háttar fylgikvillar kæmu
á eftir.
Hæstiréttur:
Frávísun Hafskips-
málsíns var liafhað
HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær synjun Sakadóms Reykjavíkur við
frávísunarkröfum verjenda fimm sakborninga í Hafskipsmálinu. í
niðurstöðum Hæstaréttar segir að eins og mál þetta hafi legið fyrir
þegar ákærur voru gefnar út í nóvember á liðnu ári, hafi sérstökum
ríkissaksóknara verið heimilt að gefa út ákærur.
Veijendurnir fimm höfðu allir
haldið því fram að rannsókn máls-
ins hafi þá verið svo ábótavant að
málið hafi ekki verið ákænahæft.
Þá segir Hæstiréttur að ekki
hafi verið til úrlausnar fyrir réttin-
um hvernig haga skuli málsmeðferð
fyrir sakadómi í einstökum atriðum.
Verjendur og saksóknari höfðu
gagnrýnt það sem fram kom í úr-
skurði sakadóms að unnt væri að
bæta úr þeim göllum sem dómurinn
taldi vera á rannsókninni við dóms-
meðferð málsins, með aðstoð RLR.
Þrír veijendanna gerðu kröfur
um að þar sem Hallvarður Ein-
varðsson, ríkissaksóknari og fyrr-
um rannsóknarlögreglustjóri, sem
talinn var vanhæfur sem ríkissak-
sóknari í Hafskipsmálinu, hafi
stjórnað meginhluta frumrannsókn-
arinnar, yrði ekki á þeirri rannsókn
byggt við útgáfu ákæru. Um það
segir Hæstiréttur að af rannsóknar-
gögnum verði ráðið að sérstakur
ríkissaksóknari hafi tekið sjálf-
stæða afstöðu til þess, hvernig
rannsókn skuli haga. Það leiði því
ekki til frávísunar að lögð hafi ver-
ið fram gögn úr rannsókn sem
framkvæmd hafi verið undir stjórn
a^inars manns og ekk.i skipti máli
að sá hafi ekki mátt gefa út ákær-
ur í málinu.
Hæstaréttardómararnir Guð-
mundur Jónsson, Hrafn Bragason
og Þór Vilhjálmsson kváðu upp dóm
Hæstaréttar.