Morgunblaðið - 31.12.1989, Side 8
8 B
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 1989
4
1
Iársbyijun létu sovésk hjón skíra
tvíbura í höfuðið á þekktum
stjórnmálaleiðtogum, þeim:
a) Rajiv Gandhi og Muhammar
Gaddafi.
b) Steingrími Hermannssyni og
Jóni Baldvin Hannibalssyni.
c) Lech Walesa og Neil
Kinnock.
d) Ronald Reagan og Míkhaíl
Gorbatsjov.
2
Gífurlegt umferðaröngþveiti
skapaðist í Miðausturlöndum
í fyrstu viku janúarmánaðar.
Astæðan var:
a) Óvenjustríður straumur
pílagríma á leið til Mekka.
b) Hrikaleg jarðskjálftahrina í
Khur-eyðimörkinni.
c) Fannfergi.
d) Stjórnmálaspenna vegna
Iandamæradeilna írana og
Jórdaníumanna.
4
INoregi gerðist nokkur kurr-
vegna gamals samnings við ís-
lendinga, sem valdið hafði frænd-
um vorum miklum búsifjum. Þar
var um að ræða:
a) Gamla sáttmála, sem aldrei
hafði verið sagt upp formlega
og skyldaði Norðmenn til að
halda uppi siglingum til Islands.
b) Samning um kindakjötskaup,
sem olli Norðmönnum tugmillj-
ónatapi árlega.
c) Samning um að niðjar Snorra
Sturlusonar hefðu einkaútgáfu-
rétt á Noregssögunni fram und-
ir 1200.
d) Samning, sem skyldaði Norð-
menn til að eiga stóran hlut í
íslenskum laxeldisfyrirtækjum.
3
Hvaða gestur er hér á ferð hjá Mitterrand
Frakklandsforseta?
a) Fulltrúi markaðsátaks íslenskra alifugla-
bænda.
b) Leiðtogi Sioux-indíána.
c) Hausaveiðari frá Borneó.
d) Suður-Amerískur indíánaleiðtogi að mót-
mæla eyðingu regnskóganna.
5
rír danskir prestar stofnuðu
með sér félag til að vinna að
áhugamálum sínum. Þau voru að:
a) Vinna að útbreiðslu fagnaðar-
erindisins.
b) Auka almenna bindindissemi
í hinni bjórsollnu Danmörk.
c) Greiða fyrir magnafslætti á
frönskum og ítölskum vínum til
presta.
d) Taka upp „gammel dansk“
eða íslensku við messugjörð.
6
Embættismenn í finnska heil-
brigðisráðuneytinu lögðu til
að stjórnvöld réðust til atlögu gegn
streitu í þjóðfélaginu og styrktu
fólk fjárhagslega til að fara í:
a) Ástarorlof.
b) Hugleiðslunám.
c) Sólarlandaferðir.
d) Nudd.
7
Arleg úthlutun dönsku Sonn-
ing-verðlaunanna fór fram í
Kaupmannahöfn í febrúar. Verð-
launahafinn að þessu sinni var:
a) Hrafti Gunnlaugsson.
b) Bille August.
12
Margaret Thatcher, forsætis-
ráðherra Bretlands, er
þekkt fyrir að vera kona staðföst
og um siðferðisvitund hennar og
þroska efast víst fáir. Mönnum
þótti því tilhlýðilegt er hún lagð-
ist opinberlega gegn því að gerð
yrði könnun ákynhegðun breskr-
ar alþýðu sem Gallup stofnunin
hugðist rannsaka. Breski forsæt-
isráðherrann taldi:
a) Óhæft að könnunin yrði
gerð þar sem hún og eigin-
maður hennar, Dennis, höfðu
lent í úrtakinu.
b) Fullvíst að könnunin ryfi
friðlielgi einkalífsins.
c) Að könnunin gæti rýrt álit
Breta á alþjóðavettvangi
d) Að lausgyrtar og atvinnu-
lausar gálur sunnan úr álfu
myndu flykkjast til Bretlands
er þær fréttu af hamslausri
kynorku breskra karlmanna.
c) Klaus Rifbjerg.
d) Ingmar Bergman.
8
Hinn 30. júní steypti stjórnar-
herinn ríkisstjórn Súdans.
Forsætisráðherrann, sem settur
var af, heitir:
a) Omar Hassam Ahmed al Bas-
hir.
b) Sadeq al-Mahdi.
c) Svaki Svakalegi.
d) Mústafa Khalil.
9
>
Ibyijun júlí mynduðu grískir
íhaldsmenn ríkisstjórn með
kommúnistum. Ákvað hún strax
að sitja stutt og hafa það að meg-
inhlutverki að:
a) Haftia því að Grikkir haldi
Ólympíuleikana 1996.
b) Semja bók um kvennafar
Andr easar Papandreous for-
sætisráðherra sósíalista.
c) Reisa minnisvarða um Pap-
andreou á Akrópólishæð.
d) Rannsaka spillingu sósíalista-
stjórnarinnar.
10
Iöndverðum júlí brotlenti mann- -
laus sovésk orrustuþota á húsi
í þorpinu Belegem í Belgíu. Það
var nokkuð óvenjulegt því:
a) Flugmaðurinn hafði ekki nóg
eldsneyti til að komast til næsta
flugvallar.
b) Flugmaðurinn ýtti á rangan
hnapp er hann ætlaði að setja
niður hjólin fyrir lendingu á
flugvelli í grenndinni. í staðinn
skaut hann sjálftim sér út úr
þotunni sem tók sveig og lenti
á næstu húsum.
c) Þotan hafði flogið mannlaus
rúma þijú þúsund km yfir fjög-
ur lönd því flugmaðurinn skaut
sér út í fallhlíf yfir Póllandi.
d) Ekkert af þessu er rétt því
siglingatæki þotunnar biluðu er
flugmaðurinn hugðist stýra
henni niður á sovéskt flugmóð-
urskip á Norðursjó með þeim
afleiðingum að hún hrapaði nið-
ur í belgíska þorpið.
11
Isumar voru kínverskir ríkis-
starfsmenn sviptir sumarleyfi
vegna:
a) Uppreisnar stúdenta.
b) Mótmæla á Torgi hins him-
neska friðar.
c) Leti og lítilla afkasta.
d) Onugleika aldraðra lands-
feðra.