Morgunblaðið - 31.12.1989, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 31.12.1989, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 1989 B 19 Jón Bjarnason Ragnhildur Jónasdóttir Sigurður Bjarnason THEODÓR KR. ÞÓRÐ- ARSON, BORGARNESI: Berlínarmúr- inn hrynur Fyrir mér rísa lýðræðishrær- ingarnar í Austur-Evrópu hæst atburða ársins 1989. Táknrænast fyrir þessa þróun mála er hrun Berlínarmúrsins, þessa 45 kíló- metra langa fleygs í hjarta borg- arinnar. Berlínármúrinn var sýni- legt hluti járntjaldsins á milli austurs og vesturs og mjög tákn- rænn fyrir þá stefnu stjómvalda í Austur-Evrópu að halda bæri þegnunum innan landamæranna með öllum tiltækuin ráðum, hvað sem það kostaði. Kannski höfðu fréttirnar um Berlínarmúrinn og ferðafrelsið sterkari áhrif á mig vegna þess að ég kom til Berlínar 1986 og fór þá einn dag yfir í grámann og drungann í Austur- Berlín og síðan í gegnum Austur- Þýskaland með lest til Kaup- mannahafnar. Þá upplifði ég ítrekað þetta þrautskipulagða eft- irlitskerfí þeirra á landamærun- um. Annars er það undarlegt hvernig perestrojka Gorbatsjovs virðist virka betur til lýðræðisumbóta í flestum ríkjum Austur-Evrópu, öðrum en Bára Sævaldsdóttir Gunnar Hallsson Sovétríkjunum, hvað svo sem síðar verður. Það sem einkennir þessar hræringar er hvað þær gerast ótrú- lega hratt miðað við þá stöðnun sem ríkt hefur í þessum löndum í ára- tugi. Þegar þetta er skrifað er séð fyrir endann á byltingu fólksins í Rúmeníu og einræðisherrann og harðstjórnin til 24 ára hefur verið líflátinn. Ljóst er að þúsundir óbreyttra borgara hefur látið lífið í þessari baráttu þegnanna fyrir lýð- ræði og frelsi. Þá eru ofarlega í huga grimmilegar aðfarir stjórn- valda í Kína þann 4. júní gegn um- bóta- og lýðræðissinnum á Torgi hins himneska friðar, sem sumir hafa síðan nefnt „Torg hins blóðuga friðarr". Umdeild innrás Bandaríkja- manna í Panama var ein af stórfrétt- unum í lok ársins. Vonandi verður kjarkmikil ákvörðun nóbelsverðlaunanefndar um að veita Dalaí Lama friðarverð- launin í ár, til góðs fyrir Tíbetbúa. Gleðilegur var gullfundurinn á Grænlandi og óskandi að hann verði til þess að ekki þurfi að vinna olíu á þessum norðlægu slóðum, vegna mengunarhættu og sameiginlegra fiskimiða okkar. Koma Jóhannesar Páls páfa II í júní var eftirminnileg, annars ein- kenndust innlendar fréttir helst af gjaldþrotum stórra og smárra fyrir- tækja og samruna annarra, ásamt vaxandi atvinnuleysi. Enginn rekst- ur virðist ganga lengur, ekki einu sinni fiskeldið sem þótti þó vera gulltryggð atvinnugrein til skamms tíma. Óneitanlega er það kaldranaleg staðreynd að á sama tíma og lýðræð- inu vex ásmeginn austan hins fall- andi járntjalds hefur fólksflótti frá íslandi ekki verið meiri síðan um 1970. Getur verið að kominn sé tími tl að auka lýðræðið á íslandi, er það ekki nógu virkt? Borgfirðingar hafa ekki farið var- hluta af þeim samdrætti sem ein- kennt hefur atvinnulífið hérlendis að undanförnu með tilheyrandi gjaldþrotum. Ekki er þó allt á hausn- um og ýmislegt gengur mjög vel. Má þar nefna framleiðslu Mjólkur- samlags Borgfirðinga, MSB, á ICY vodka fyrir Sporta hf. og mjólkur- þykknið sem MSB hefur nýlega haf- ið framleiðslu á og hefur slegið í gegn á landsvísu. Þá eru bundnar miklar vonir við endurreisn Eðalf isks hf. og er vel að laxinn sé hafinn til vegs og virðingar í Borgarfirði. Fyr- ir flugáhugamenn í Borgarnesi voru það gleðitíðindi að á árinu var veitt fé til Kárastaðaflugvallar og hann settur á flugmálaáætlun. Nokkur ný fyrirtæki hafa verið stofnuð í Borg- arnesi á árinu og má þar nefna Rafverkafyrirtækið Lúx hf., Fram- köllunarþjónustuna og Snyrtistofu Jennýjar Lind. Segja má því að bjart- sýni ríki hjá ungu fólki í Borgarnesi í dag, þrátt fyrir allt. INGVELDUR ÁRNA- DÓTTIR, HRAUN- BRÚN, KELDUHVERFI: Framfarir í líflfæraflutn- ingum Þegar ég fer að velta því fyrir mér hvað efst sé í huga mér þeg- ar árið er að líða í aldanna skaut fínnst mér raunar að þetta sé með viðburðasnauðari árum, sér i lagi á innlendum vettvangi. Þó vil ég nefna þær stórkostlegu framfarir sem orðið hafa í sambandi við líffæraflutninga og að íslending- ar skuli nú eiga þess kost að fá ígrædd líffæri, til dæmis hjarta og lifur, á erlendum sjúkrahúsum. Ég hef fylgst með frásögnum af ungu fólki sem hefur farið í slíkar aðgerð- ir og lifir í dag góðu lífi eftir oft á tíðum margra ára sjúkleika og finnst mér þetta vera algjört kraftaverk. Af erlendum vettvangi er ekki hægt annað en að nefna stjórnar- farsbreytingar í Austur-Þýskalandi og víðar. Eg hef reynt að fylgjast með þessum breytingum og oft á tíðum hef ég ekki trúað því að þetta væri í raun og veru að gerast, svo hratt gerast hlutirnir. í mínum huga er þó svolítill beygur. Ég er svolítið hrædd um að ef of mikið verður þrýst á stjórnvöld í þessum löndum, og þá sér í lagi um sameiningu þýsku ríkjanna, muni þau kippa að sér hendinni og ástandið þá færast í fyrra horf á ný. En vonandi fá hlut- irnir að þróast .á eðlilegan hátt með lýðræðislegra stjómarfari. Úr heimabyggð er nú ekki sérlega margs að minnast, en mig langar þó að nefna eitt atriði. Þegar þetta er skrifað biasir við lokun á laxeldis- fyrirtækinu Árlaxi, en þar hafa einar fimm fjölskyldur í sveitinni sitt lifi- brauð. En vonandi færir nýtt ár okkur nýjar lausnir svo að fólk þurfi ekki að flytjast héðan ef það vill búa hér áfram. Með óskum um gleðilegt nýtt ár. HRAFNKELL A. JÓNS- SON, ESKIFIRÐI: Atburður sem breytir heims- mynd okkar ÞEGAR beðið er um minnisstæða viðburði líðandi árs þá er mér eitt atvik öðru minnisstæðara. Ef tU vill vegna þess hvernig ég skynjaðiþaðfyrst. * Eg var í svefnrofunum morgun fyrir nokkru, útvarpið var í gangi og það var verið að lesa fréttayfirlit kl. 7.30, fréttamaðurinn sagði frá því að umferð um Berlínarmúrinn hefði verið opnuð öllum almenningi í Austur-Berlín kvöldið áður og fólk hefði þúsundum og tugþúsundum saman streymt á milli borgarhlut- anna. Þarna sem ég í svefnrofunum var að átta mig á því hvort þetta væri draumur eða veruleiki þá skynj- aði ég að ég var að upplifa atburð í mannkynssögunni sem ætti eftir að breyta allri okkar heimsmynd. Þessi atburður ásamt hinum stórstígu breytingum sem orðið hafa í Austur-Evrópu á síðustu vikum og mánuðum eru tvímælalaust þeir at- burðir sem mér verða minnisstæð- astir frá árinu 1989. Sem áhugamanni um stjómmál þá verða mér ýmis atvik úr inn- lendri stjórnmálabaráttu minnis- stæð, ég horfi með vaxandi ugg á hvernig forystumenn þeirrar ríkis- stjórnar sem við völd er í dag beita sífellt ómerkilegri og rætnari bar- áttuaðferðum í stjórnmálaumræðu dagsins. Slík þróun veldur kvíða um pólitískt siðgæði og vaxandi lítils- virðingu gagnvart mannlegu þáttun- um í pólitískum samskiptum. Mér verður landsfundur Sjálf- stæðisflokksins á síðasta hausti minnisstæður,- m.a. vegna drengi- legra viðbragða Friðriks Sóphusson- ar alþingismanns við kröfu lands- fundarfulltrúa, m.a. mín, um að hann viki úr sæti varaformanns flokksins, hann óx af mótlætinu og tók því með þeim hætti sem sæmir foringjum, Friðrik Sóphusson er ótvírætt einn af helstu forystumönn- um flokksins og að mínum dómi langt frá því að hafa sagt sitt síðasta orð. Hann er einn af þeim sem til greina koma sem formaður Sjálf- stæðisflokksins á næsta áratug. Af þeim verkefnum sem hafa ver- ið inni á borði bæjarstjómar Eski- fjarðar þá er mér minnisstæð opnun dvalar- og hjúkrunarheimilisins Hulduhlíð, en þessi fyrsti áfangi í uppbyggingu öldrunarmála á Eski- firði var tekinn í notkun 18. ágúst sl. Á sama hátt hefur uppbyggingu í neysluvatnsmálum á Eskifirði þok- að áfram en þar var lokið við bygg- ingu miðlunartanks á sl. hausti. Ef ég lít á þann vettvang sem ég vinn á hjá verkamannafélaginuu Árvakri þá eru flest tíðindi þaðan dapurleg, • kaupmáttarhrap, og versnandi lífskjör hafa leitt til þess að umtalsverðar fjárhagslegir erfið- leikar og yfirvofandi gjaldþrot hjá launafólki em í vaxandi mæli við- fangsefni starfsfólks verkalýðsfé- laga. JÓN BJARNASON, TÁLKNAFIRÐI: Snjóþyngsli og samgönguerf- iðleikar ÞEGAR litið er yfir árið, sem nú er að kveðja, koma fyrst í hugann hin gífúrlegu snjóþyngsli og þar af leiðandi samgönguerfiðleikar síðastliðins vetrar, en í þau 22 ár, sem undirritaður hefúr búið hér, hafa snjóalög og ófærð aldrei ver- ið slík sem þá, enda svæðið talið fremur snjólétt. Það má velta því fyrir sér, hvort brottflutningur fólks af svæðinu á ekki að hluta til rætur að rekja til svona tíðar- fars, þar sem þó er nóg að starfa og húsnæði fyrir hendi, reyndar má segja, að maður komi í manns stað, þar sem alltaf flyst töluvert af nýju fólki til staðarins. Það má segja að Tálknafjörður byggist á öflugum fyrirtækjum og dugmiklu fólki, sem hefur gert sveit- arfélaginu mögulegt að standa í framkvæmdum og veita nokkuð góða þjónustu. í framhaldi af þessu er ekki annað hasgt en að vera bjart- sýnn á framtíðina, þrátt fyrir óáran og stjórnleysi í landsmálunum. Þó undrast maður, miðað við vinnuframlag íslendinga, að lífskjör- in skuli ekki vera hér sambærileg við nágrannaþjóðirnar, og stöðugt hallar undan fæti. Hin opinbera „for- sjá“ vex stöðugt á öllum sviðum og leggst sem dauð hönd á einstalings- framtakið. Það fer kaldur hrollur um mann við fréttir erlendis frá, þar sem fólk leggur lífið að veði fyrir frelsið, að á sama tíma eru stjórn- völd hér að vinna í anda fyrrum valdhafa þessara þjóða, með hafta- stefnu sinni og ríkisforsjá. Þrátt fyr- ir allt eru ráðamenn sjálfsagt alltaf að vinna eftir bestu samvisku, og mikið leggja þeir á sig í ferðalögum út um allan heim, sem hljóta öll að vera alveg bráðnauðsynleg, enda kostnaðarsöm mjög fyrir þjóðina, en „sparnaðurinn" felst í því að skera niður í framkvæmdum og lækka framfærslueyri heimilanna með auk- inni skattheimtu. Eini hugsanlegi skatturinn, sem eftir er að nýta, virð- ist vera. gluggaskattur, sbr. Vilhjálm III Englandskonung 1696. Að lokum óska ég landsmönnum góðs og heillaríks árs. BÁRA SÆVALDS- DÓTTIR, GRÍMSEY: Sundlaugin vígð við mik- inn fögnuð VETURINN var erfíður og sryó- þungur framanaf og gæftaleysið háði sjómönnum. En þegar vorið nálgaðist rættist úr þessu. Mannlíf var gott og félagsstarf nokkuð, aðallega á vegum Kiwanisklúbbs- ins Gríms og kvenfélagsins Baugs. Eggjataka í vor var með svipuðum hætti og undanfarin ár, tekin voru nokkur þúsund egg, svona rétt til að gefa vinum og kunningjum. Hin langþráða sundlaug okkar var vígð af séra Pálma Matthíassyni þann 2. júlí við mikinn fögnuð eyjabúa og eru Grímseyingar stoltir af því mannvirki, enda laugin öll hin glæsilegasta. í byijun ágúst komu hingað verktakar frá Sauðárkróki og hófu framkvæmdir við flugbraut- ina. Var hún lengd um 400 metra til norðurs. Okkur fjölgar hér hægt og bítandi, allavega karlpeningnum, því á árinu fæddust þrír drengir og hafa þá á síðustu sex árum fæðst 14 drengir en engin stúlka. Er það von okkar sem hér búum að stjómvöld búi þannig um hnútana að þegar þessir drengir verða orðnir að mönn- um geti þeir lifað og séð fyrir fjöl- skyldum sínum eins og Grímseyingar hafa gert hingað til, það er að segja dregið fisk úr sjó, en það virðist ekki vera stefnan nú. Samþykkt hefur verið að ráðast í hafnarframkvæmdir hér í vor og eru það einhver mestu gleðitíðindi sem við höfum fengið um árabil því bátum hefur fjölgað og þeir stækkað og vantar mikið á að þeir séu örygg- ir hér eins og höfnin er núna. Nýj- ustu bátar okkar komu í haust, Bjargey II sem er 9 tonna og Haf- liði 6 tonna. Önnur gleðitíðindi eru þau að von er á feiju sem á að þjóna Hríseyingum og Grímseyingum. Er það von manna að hún verði komin í notkun snemma á næsta ári. RAGNHILDUR JÓNAS- DÓTTIR, BÍLDUDAL: Haldið áfram uppbyggingu og fegrun MÉR HEFUR liðið vel hér á Bíldudal undanfarin ár. Þrátt fyir siyóþungan vetur var árið gott, þegar á heildina er litið, og eink- um góðir nýliðnir vetrarmánuðir. Ég hef lært að meta sólina og hugsa meira um veðurfar og at- vinnuástand en áður, því eftir 3 ár úti á landi er maður í nánari tengslum við hlutina, en þegar búið var á höfúðborgarsvæðinu. Afiabrögð hafa verið mjög góð, bæði hjá rækjubátum og dragnóta- bátum og nú á rækjuvertíð er heim- ilt að veiða 500 tonn hér í Arnar- firði. Aflakvóti Söiva Bjarnasonar, togarans okkar, dugði til jóla, svo atvinna hefur verið jöfn á árinu fyr- ir meginhluta íbúanna, sem allflestir starfa að fiskvinnslu. Hér á Bíldudal hefur verið haldið áfram uppbygg- ingu og fegrun staðarins og m.a. eigum við nú eitt besta íþróttasvæði á Vestfjörðum, grasvöll, með hlaupa- brautum og ágætustu aðstöðu til íþróttaiðkana og einnig var hafin nú í haust bygging íþróttahúss við grunnskólann. Hafnargarðurinn hér hefur verið byggður upp og end- urnýjaður og ný smábátabryggja hefur verið tekin í notkun. Og almennt finnst mér Bíldudalur orðinn fallegri og snyrtilegri, við höfum fengið útitorg við félags- heimilið, góða veitingaaðstöðu og þjónustu við ferðamenn og kirkjan er að endurbyggja gamla barnaskól- ann, í samvinnu við verkalýðsfélag- ið, o g eykst þá enn aðstaða til félags- SJÁ NÆSTU SÍÐU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.