Morgunblaðið - 31.12.1989, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 31.12.1989, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 1989 B 33 Morgunblaðið/Bjami Sigrún Sigmarsdóttir, hjúkrunarfræðingur, (t.v.) og Jórunn Sigur- jónsdóttir, deildarstjóri á sjúkra- og slysavakt Borgarspítalans. fólki, líkamlegt og andlegt. Áhyggj- ur og stress er þá mikið í stað þess að fólk njóti aðventunnar og slaki á. Mæðir þá mikið á stoðkerfi líka- mans, t.d. vegna snjómoksturs. Þá fjölgar beinbrotum í hálku eins og sl. miðvikudag, einkum hjá eldra fólki. Það er eins og allt þurfi að gerast í einu. Stundum er hér rólegt í lang- an tíma en síðan verða nokkur slys sama kvöldið. Þá er eins og einhver skammtalögmál gildi um slys því oft koma upp mörg tilfelli af sama áverkanum í sömu viku, t.d. handar- beinsbroti, en síðan sést hann ekki dögum saman. Menn hafa velt því fyrir sér hvort það tengist gangi himintungla eða jónahlutfalli í and- rúmsloftinu". Áramótaslysin annars konar „Áramótin eru frábrugðin öðrum dögum. Þá eru slys af völdum flug- elda og meðferð elds algengust, slæm brunasár og sjónskaðar. Ástæða er til að benda fólki á að fara vel eftir leiðbeiningum á um- búðum f lugelda og gæta fyllstu var- úðar. Sérstaklega að láta böm aldr- ei vera ein með flugelda og blys. Brenni menn sig er aðalatriði að kæla sárið strax. Kæling á fýrstu sekúndum eftir bruna skiptir sköp- um. Best er að stinga sárinu ofan í vatn, þó ekki ískalt, og hafa það ofaní þar til sviði er horfinn, jafnvel eina til tvær klukkustundir. Á allra síðustu árum hefur fjölgað slysum vegna svonefndra friðar- kerta, sem fólk hefur á gangstéttum og svölum. Dæmi eru um að fólk stigi ofan 1 þau og brennist, jafnvel börn á sokkunum einum. Brennheitt vaxið getur valdið djúpu brunasári. Ástæða er að brýna fyrir fólki að ganga vel og tryggilega frá þessum kertum. Brunasárum fylgir sýkingarhætta „Fólk verður að meta það sjálft hvort það telur ástæðu til að koma á slysadeildina vegna skaða sem það hefur orðið fyrir. Mikil sýkingar- hætta fylgir brunasárum og verður að ganga vei frá þeim. Ef um ann- ars og þriðja stigs bruna er að ræða er nauðsynlegt að leita sér hjálpar. Forðast ber að setja smyrsl á nýtt brunasár því þau halda hitanum í sárinu og auka sýkingarhættu," sögðu þær Jórunn og Sigrún. Um helgar er lögregluþjónn á vakt á slysadeildinni. Að sögn Jó- runnar og Sigrúnar er hann starfs- fólki til halds og trausts því þá kem- ur m.a. á deildina ölvað fólk sem er ekki alveg sjálfrátt gerða sinna inn á deildinni. „Okkur finnst sem stjómendur þjóðfélagsins þyrftu að beina augum sínum mun meira að slysarannsókn- um og þar af leiðandi að vinna af öllum kröftum að fyrirbyggingu slysa. Okkur virðist því miður sem slysum fjölgi frekar en að það dragi úr þeim,“ sagði Jórunn að lokum. Hræddari við ógnarreiði Ceausescus en byssurnar Bukarm Itortrr. Uuly TMrfnpk. RÚMENAR njótn (*■*» nú af lifi og sál að fa lok» IwkifieH «il «ð tjí fómarlömbum öryggisíveiU Ce*us- opimkill »koðanir»ínarcllir24 ára ógnar»«jóm Nieolaes Oauteacui. earu*. .Segðu nú heiminum að þú „Ekkl fara, ég vil tala. Við höfura ekki fengíð að nrða við útlendinga hafir séð sannleikann um kommún- i 24 ár og éK hef fri avo raörgu að aegja.” aagði raiðaldrm Búka- ismann,- sagði hann. .Hann elur rest-búi við fréttaritara Krulrn. aðeins af sér skrtmsli,- b*tti hann vtð. I L'ndir ógnarstjóm Ceaaescus gerð fyriraögn eftir fall einvaldsins. Þegar tilkynnt var I qónvarpi að I ára-ddu fáir Rúmenar að raeða við Blaðamenn voru furðu lostnir yfir Ceausescu hefði verið tekinn af Hfi 1 útlendingaafótl^iða^nissavinn-soillineunn^Mniafhjúpuð hcfur yppti Rúmcni ðxlum og sagði: „Það Rúmenar fagna frelsi: Fjálgleg skrif um Rúmeníu Til Velvakanda. Nú er síðasta vígi kommúnis- mans fallið og þjóðin er búin að gera upp reikninginn við kúgar- ann. Austur-Evrópa er orðin fijáls og allir fijálshuga menn fagna. Hvað hugsa þeir nú, stjórnmála- mennirnir hér, þessir sem fyrir nokkrum árum komu frá Rúmeníu og skrifuðu fjálglega um góða stjómarfarið þar? Var það þá ekki líka slíkt stjómarfar gott fyrir okk- ur? Er þeim trúandi ti.l að gæta hagsmuna almennings? Menn sem vilja mannréttindi sér og sínum til handa hljóta að muna þá í næstu kosningum og aftaníosa þeirra líka. Gömul kona. Hjálp- um bág- stöddum Tilefni þessarar greinar er grein sem ég las í Morgun- blaðinu 20. desember. Ég fékk fyrir hjartað er ég las greinina. Það var hjálparbeiðni frá fjögura barna einstæðri móður, sem aug- lýsti eftir hjálp svo að hún gæti haldið jól með börnunum sínum, líkt og aðrir heima hjá sér. Ég tek fram að konan er atvinnulaus. Ég dáist að þessari konu fyrir að gera þetta, því það skal bæði kjark og þor til að gera slíkt opinbert. En svörin sem hún fékk frá nokkrum óvönduðum dónum bera vott um hugarfar slikra manna. Sem betur fer voru þó nokkrir menn sem buðu fram aðstoð sína í al- vöru og er það þakkarvert. Því miður eru það fleiri sem eins er ástatt um en þeir vilja bara ekki láta vita af því. Hvað segir Hjálp- arstofnun kirkjunnar um þetta - hún sendir peningabauka á hvert heimili í landinu með kjörorðunum „Brauð handa hungruðum heimi“. Ef það á ekki við um þessi til- felli þá skil ég ekki þessi orð. Hve mikið af þessu söfnunarfé rennur til bágstaddra hér á landi, sem lifa við svipaðar aðstæður og þessi kona? Vonandi gleymir Hjálpar- stofnun kirkjunnar ekki þessu fólki. Við eigum fyrst og fremst að hugsa um bágstadda hér á landi áður en við snúum okkur annað. Eða hvað segja stjómendur þessa lands eða Tryggingastofnun ríkis- ins eða þeir sem eiga hlut að máli? Góðir íslendingar, hvemig myndi okkur líða ef við værum í spomm þessatar konu. Ég vil ekki hugsa þá hugsun til enda. Ég er sjálfur ellilífeyrisþegi en vil af heilum hug leggja mitt af mörkum til þessarar nauðstöddu konu. Vildi ég því fá að vita hvernig ég get orðið-að liði. Henrik Jóhannesson, Sandgerði. HEILRÆÐI Um áramótin er að jafnaði kveikt í miklu af allskonar f lug- eldum, stjörnuljósum og blys- um. Slíkt getur verið stór- hættulegt ef ekki er rétt að staðið og margir hafa slasast alvarlega þess vegna. Kynnið ykkur því vel allar leiðbeiningar um meðferð og notkun þessara skrautljósa. Farið í einu og öllu samkvæmt þeim ráðum sem þar eru gefin. Höldum gleðileg áramót með slysalausum dög- um. Fróðleikur og skemmtun fyrirháa semlága! JILSANDER JOOP! *Z?4stör ZANCASTER adidas^ Óskum viðskiptavinum okkar og landsmönnum öllum árs og friðar með þökk fyrir viðskiptin á árinu. STORHAPPDRÆTTI FLUGBIORGUNARSVEITANNA Vinningaskrá 1989: Sómi 660 sportbátur: 42479 Toyota 4Runner: 4241 -41457 Heimilispakkar: 21300-31817-55058-84386 142251 - 151523 EchoStar gervihnattadiskar: 55-2948-8566- 14838- 18605 42675 - 46258 - 49144 - 51458 52999 - 60009 - 66576 - 69202 71371 - 108795 - 124637 - 146009 150665- 151094- 155951 Mitsubishi farsímar: 808-3060-9242- 17466 20165-31080-33698-56150 73724-79351 -90133-93616 98731 - 109281 - 116787 - 123836 129340 - 129482 - 134824 - 143112 157020- 157140 Macintosh Plus tölvur: 3433- 16142- 16858-26225 29438-32609-41620-55730 57951 -59731 - 67980 - 72283 74335 - 86364 - 98780 - 110174 110645 - 115669 - 120164 - 137742 140258- 155912 Nordmende MS-3001 hljómflutningstæki: 5388 - 8509 - 11367 - 35841 - 41354 43860-48006-57804-75018 75695 - 77044 - 77760 - 80979 81519 - 95208 - 105240 - 107333 114630 - 115650 - 129167 - 132705 139366- 141670 Nordmende 20” Galaxy 51 sjónvarpstæki: 2775- 17692-27753-29905 31254-31418-39901 -40191 41209-42130-42716-57433 71036-74876-77518- 116442 120498 - 125440 - 126452 - 130411 134507- 140401 (Birt án ábyrgöar) Gleðilegt nýtt ár, þökkum veittan stuðning! Flugbjörgunarsveitin í Reykjavík Flugbjörgunarsveitin á Hellu Flugbjörgunarsveitin á Skógum Flugbjörgunarsveitin á Akureyri Flugbjörgunarsveitin í Varmahlíð Flugbjörgunarsveitin í Vestur-Húnavatnssýslu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.