Morgunblaðið - 31.12.1989, Blaðsíða 20
20 B
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 1989
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 1989
B 21
+
CHÍCAM
msKVA1
NEN YOKK}
HAMBoRb
AMSTEKCVW
hanhovek
ÞRUUEL
PHSSELOORF
'srumfíRn.
FRANKFURf]
H’ \PeKiNG
MIÁNCHC.N VÍN
'ZURiCH\\
MILANO,
BAFXELONA
/Uo oe Muemo
ISrAN&UL
MADRÍO
ESfíNtyROK}
SAo Pfíuvo
AAENA
LÍSSAI30N
NIALA6A
[siNEAPoRe]
montevídeo'
SANTÍAAO D£ CHÍLE
mála á staðnum. Sjálf er ég hjúkrun-
arfræðingur hér á Bíldudal og sé
um heilsugæslu íbúanna og á árinu
höfum við fengið bætta læknisþjón-
ustu, nú kemur læknir frá Patreks-
firði tvisvar í viku, í stað einu sinni
áður og er það mjög til bóta.
Af erlendum vettvangi eru mér
minnisstæðastir jarðskjálftarnir í
San Fransiskó, líklega vegna þess
að hér á landi getum við átt von á
jarðskjálftum eins og þar. Einnig
þykja mér stórkostlegar þær breyt-
ingar sem hafa orðið í átt til lýðræð-
is í austantjaldslöndunum. En þó
þykir mér ekki lofa góðu aftakan á
fyrrum forsetahjónum Rúmeniu á
sjálfan jóladag. Slikt hefði ég haldið
að tilheyrði algjörri fomeskju, en
ekki þjóð sem vill framfarir og lýð-
ræði.
Að lokum sendi ég héðan frá
Bíldudal bestu óskir um gleðilegt og
gott nýtt ár 1990.
GUNNAR HALLSSON,
BOLUNGARVÍK:
Veðurfarið
kom mönnum
áóvart
Þ AÐ SEM ég held að verði mér
minnisstæðast frá árinu sem er
að líða er það að nánast allt árið
var veðurfarið svolítið afbrigði-
legt. í byijun þorra setti niður
mikinn siyó, sérstaklega á norð-
anverðu landinu, og var veturinn
hér á Vestfjörðum mjög siyóþung-
ur, með langvarandi hríðarhret-
um, allt fram á hvítasunnu.
Og veturinn tók sinn toll að þessu
sinni, því tveir menn fórust í snjó-
flóði í Óshlíð og sjóslys og mann-
skaði varð í ísafjarðardjúpi. En svo
kom sumarið sem sumum fannst
aðeins koma á almanakinu og í haust
og fram á miðja aðventu voru
ríkjandi suðlægir vindar og sum-
artið, en rétt utan við djúpkjaftinn
lónaði landsins forni fjandi, á leið
upp að landinu.
Líkt og árið verður minnisstætt
fyrir sérkennilegt veðurfar, þá verð-
ur það einnig minnisstætt fyrir sér-
kennilegar uppákomur í stjórnarfar-
inu. Fyrir Bolvíkinga held ég að árið
hafi verið allþokkalegt. Þrátt fyrir
minni veiðikvóta til handa sjávarút-,
veginum og samdrátt í öllu atvinn-
ulífi hefur full atvinna haldist og
skráð atvinnuleysi verið lítið sem
ekkert.
Af öðrum atburðum sem mér eru
minnisstæðir frá árinu, má nefna
sigur íslenska landsliðsins I hand-
knattleik ( B-keppninni í Frakk-
landi, og fékk landsliðið þar uppreisn
æru eftir hrakfarirnar í Seoul.
Af erlendum vettvangi má nefna
hin óvæntu og ótrúlegu umskipti
sem urðu í Austur-Evrópu á síðari
hluta ársins. Það er mér hins vegar
íhugunarefni hvort svona snögg
umskipti dragi einhvern dilk á eftir
sér, það gerist vonandi ekki, en kem-
ur í þ'ós er líður á næsta ár.
í það heila tekið er árið 1989 mér
minnisstæðast fyrir það hve veður-
farið kom mönnum á óvart á öllum
árstímum.
SIGURÐUR BJARNA-
SON, SANDGERÐI:
Páfinn kyssti
Miðneshrepp
Þ AÐ SEM mér flnnst markverð-
ast á árinu sem er að liða af
erlendum vettvangi, er fall Berlín-
armúrsins og þær miklu breyting-
ar, sem orðið hafa í austantjalds-
ríkjunum á þessu ári, það hlýtur
að vera stórt spor til batnandi
ástands f öllum heiminum ef svo
heldur fram sem horfir. Það setur
þó að manni dapurleika að heyra
um þær miklu blóðsúthellingar
sem átt hafa sér stað f Rúmeniu
sí ðustu dagana fyrir hina miklu
hátfð jólanna.
V ið íslendingar, sem vafalaust
búum við mesta frelsi sem fyrir-
finnst í veröldinni, eigum erfitt með
að trúa því, að enn sé til fólk sem
ekki fær að hitta sfna nánustu ætt-
ingja sem og það hefur ekki séð í
fleiri áratugi, vegna ferðatakmark-
ana stjómvalda í viðkomandi löndum
og að lífskjörin séu svo léleg að fólk
þurfi að bíða í fleiri ár til að fá rúm
til að sofa í, svo ekki sé talað um
eitthvað af þeim munaði sem við
höfum hérlendis.
Hér heima í héraði finnst mér
bera hæst koma Jóhannesar Páls
páfa, það er að segja sá atburður
er hann kraup á kné og kyssti Mið-
neshrepp og að Miðneshreppur skuli
hafa verið eina sveitarfélagið á
landinu sem hlotnaðist sú mikla virð-
ing. Ekki veit ég hvort það hafi
haft þau áhrif að gera Miðnesinga
kirkjuræknari en þeir voru áður, en
a.m.k. hefur kirkjusókn verið fá-
dæma góð hér í Hvalsneskirkju á
þessu ári, að sögn okkar ágæta
sóknarprests, Hjartar Magna
Jóhannssonar, en sjálfsagt eiga þeir
báðir sinn þátt 1 því, það er að segja
páfinn og sóknarpresturinn.
Við Miðnesingar erum stoltir af
því að búa hér við dyr alheimsins,
því fáir ferðalangar geta farið frá
eða komið til landsins flugleiðis, án
þess að stíga fæti sínum í hreppinn,
en þó svo að við Miðnesingar séum
stoltir af hreppnum okkar, ætlumst
við ekki til að allir ferðalangar fari
að eins og páfinn.
OÞjóðhátídarsjóður
auglýsir eftir umsóknum um styrki úr
sjóðnum á árinu 1990.
Samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins nr. 361 30. september 1977 er
tilgangur sjóðsins „að veita styrki til stofnana og annarra aðila, er
hafa það verkefni að vinna að varðveislu og vemd þeirra verðmæta
lands og menningar, sem núverandi kynslóð hefur tekið í arf.
a) Fjórðungur af árlegu ráðstöfunarfé sjóðsins skal renna til Friðlýs-
ingarsjóðs til náttúruvemdar á vegum Náttúruvendarráðs.
b) Fjórðungur af árlegu ráðstöfunarfé sjóðsins skal renna til varð-
veislu fomminja, gamalla bygginga og annarra menningarverð-
mæta á vegum Þjóðminjasafns.
Að öðru leyti úthlutar stjóm sjóðsins ráðstöfunarfé hverju sinni i
samræmi við megintilgang hans, og komi þar einnig til álita við-
bótarstyrkir til þarfa, sem getið er í Iiðum a) og b).
Við það skal miða, að styrkir úr sjóðnum verði viðbótarframlag til
þeirra verkefna, sem styrkt eru, en verði ekki til þess að lækka önn-
ur opinber framlög til þeirra eða draga úr stuðningi annarra við þau.“
Stefnt er að úthlutun á fyrri hluta komandi árs. Umsóknarfrestur
er til og með 28. febrúar 1990. Eldri umsóknir ber að end-
umýja. Umsóknareyðublöð liggja frammi í afgreiðslu Seðlabanka
íslands, Kalkofsvegi 1, Reykjavík. Nánari upplýsingar gefur ritari
sjóðsstjómar, Sveinbjörn Hafliðason, í sfma (91) 699600.
Reykjavík, 27. desember 1989,
Þ J ÓÐHÁTÍÐ ARS J ÓÐUR
ARMOTABRENNUR1989
Vlft Hrísbrú «
Áramóta-
brennunum
fækkar sífellt
BRENNUR I tilefhi áramó-
tanna verða að þessu sinni
aðeins átta talsins í Reykjavík
og á Seltjarnamesi sam-
kvæmt upplýsingum lögregl-
unnar í Reykjavík. Flestar
vom brennumar um 60 tals-
ins fyrir 20 árum og 12 um
síðustu áramót. í Mosfellsbæ
em Qórar brennur, tvær í
Garðabæ, ein í Bessastaða-
hreppi, þrjár í Kópavogi og
þrjár í Hafharfirði.
Guðmundur Hermannsson, sem
undanfarin ár hefur haft yfirumsjón
með eftirliti lögreglunnar með brenn-
um í Reykjavík, sagði í samtali við
Morgunblaðið að upphaf lega hefði til
brennanna verið stofnað, þannig að
fólk hefði eitthvað annað fyrir stafni
en skemmdarverk og læti. Hefði lög-
reglan og borgaryfirvöld fagnað þeim
og tekið þátt í undirbúningi.
Guðmundur sagði að þróunin und-
anfarin ár hefði öll verið í sömu átt-
ina, sjónvarpið héldi fólki meira
heima við en áður, auk þess sem
byggð hefði þrengst víða og tijám
plantað. Guðmundur taldi og ekki
útilokað að versnandi hráefni ætti
einhvem þátt I fækkun brenna; áður
hefðu heilu bátarnir verið brenndir
og nóg af timbri. Nú væri hins vegar
ailt úr plasti.
Við Brekkutanga i
Sunnan Telgahverfia
Á Valhúsahæð
Vlft Hafravatnsveg
Viö Ægissíðu
Vift Skildinganes
4
Vatnsmýrl
Neftan Fossvogskirkjugarðs
A Kðrsnesi
Vift Iþróttasvæftl Fjölnis
t Vift Fylklsvöll
Vlft Barðann, j)j
frystihús x
Gesthúsalandi
Upp af Lelrubakka
Krókamýrl
Norftan Hrafnlstu
I Vatnsendahverfi
Vlft Vffllsstaði
Við Reykjanesbraut
Sunnan vlð Klrkjugarö
Morgunblaðið/ KG
LIF MEÐ LJOÐI
Bókmenntir
Sigurjón Björnsson
Sveinn Skorri Höskuldsson:
Ljóðarabb. Bókaútgáfa Menning-
arsjóðs. Reykjavík 1989.109 bls.
HauBtið 1986 og fram yfir ára-
mót 1987 flutti Sveinn Skorri Hös-
kuldsson, prófessor f fslenskum
bókmenntum við Háskóla íslands,
eina tylft erinda í Ríkisútvarpið.
Með erindaflutningi þessum setti
hann sér það mark að rabba við
hlustendur um ijóð Bem honum hafa
orðið hugleikin á ýmsum tímum
ævinnar og lifað hafa með honum.
Þessi útvarpserindi hefur nú höf-
undur búið til birtingar, án þess að
breyta um efni, í lítið og fallegt
kver sem líklega fer ekki mikið fyr-
ir á jólabókamarkaðinum 1 ár. Þeim
mun hugljúfara er það væntanlega
og eftirminnilegra ijóðelskum les-
endum. Þetta er a.m.k. ein þeirra
bóka sem ég hefði ógjarnan viljað
láta fram hjá mér fara.
Höfundur segir f upphafi fyrsta
erindis að hann ætli sér „hvorki að
flytja stormandi kenningar né beita
margslunginni og djúpstæðri lær-
dómssundurgreiningu. Ég ætla ein-
faldlega að rabba um nokkur Ijóð
frá ýmsum tímum sem í áranna rás
hafa veitt mér gleði og mér hefur
þótt hamingja að þekkja og geta
leitað til“.
Það er rétt að Sveini Skorra hef-
ur tekist að láta einfaldleikann njóta
sín í þessum pistlum, en engu að
síður dylst það ekki að um efnið
er fjallað af miklum kunnáttumanni
og manni sem er einstaklega hand-
genginn Ijóðum og smekkvís í besta
lagi. Hann virðist eiga auðvelt með
að feta sig frá einu ljóðinu til ann-
ars án þess að ijúfa samhengi frá-
sagnarinnar. Og það er oftar en
hitt að hann lýstir upp nýja fleti í
ljóðskilningi manns, þannig að ljóð,
sem maður hefur þó talið sig
þekkja, lýkst upp á nýjan leik. Og
oft rýnir hann býsna djúpt í ætlan
skáldanna.
Enda þótt mér þætti frásögn
hans og umfjöllun áhugaverð að
þessu leytinu, var það samt ekki
aðallega þess vegna sem ég naut
bókarinnar. Hún kom í miðri jólaös
og önn, þegar allt var á fleygiferð
og ótal verkum ólokið. Kvöldstund
með þessari litlu bók veitti einhvers
konar óskilgreinanlega kyrrð, íhygli
og Mnautn. Líkt og allt amstur
heimsins hyrfi um sinn. Frásögnin
og þau ijóð sem henni fylgdu voru
bæði vitsmunaleg og listræn nautn.
í raun hef ég ekki miklu við þetta
að bæta. Hvet einungis ljóðelskt
fólk til að veita sér þennan sama
munað I kyrrð og næði. Sveinn
Skorri mætti gjarnan halda áfram
Sveinn Skorri Höskuldsson
að lesa með okkur Jjóðperlur og
hugsa um þau upphátt eins og hann
gerir hér, því að samfylgd hans er
okkur þungfærari mönnum mikil ,
upplyfting.
GETTU NU
Sigurkarl Stefánsson: Gátuvís-
ur. Skákprent. Reykjavík. 1989.
Sigurkarl Stefánsson, fyrrum
stærðfræðikennari við MenntaBkól-
ann í Reykjavík, er af mörgum
kunnur sem snjall hagyrðingur.
Hann hefur áður gefið út safn af
gátum þar sem hver gáta er fer-
skeytla. Sryall skákmaður hefur
hann þótt og slunginn krossgátu-
smiður.
Sigurkarl er fæddur árið 1902
og því 87 ára gamall. Gátur þær
sem hér birtast eru 76 talsins og
læt ég mér þv( detta I hug að höf-
undur hafi ákveðið að hafa gáturn-
ar jafnmargar æviárunum, hafi
hann gengið frá handriti sínu árið
1988.
Guðmundur Amiaugsson, fyrr-
um rektor, ritar í upphafi bókar
\TQHro\
Þétt áætlananet SAS minnir á
stórkostlega flugeldasýningu
Starfsfólk SAS á fslandi óskar landsmönnum
öllum gleðllegs árs.
Um lelð og vlð þökkum þeim 18.100
farþegum okkar sem keyptu mlða
á íslandl árið 1989 fyrir viðskiptin,
vlljum vlð mlnna á okkar ódýru
sérfargjöld um allan heim.
Hafðu samband við SAS
eða ferðaskrifstofuna þfna.
Reykjavik — Kaupmannahöfn 26.850
Reykjavfk — Osló 25.750
Reykjavik — Bergen 25.750
Reykjavík — Stokkhólmur 31.520
Reykjavfk — Gautaborg 26.850
* Öll fargjöld mlða vlð flug fram
og til baka frá Reykjavfk
Meðviðdvöl I Kaupmanna- höfn An vlðdvalar 1 Kaupmanna- höfn
Amsterdam 36.940
Aþena 53.330 53.330
Barcelona 51.240 51.240
Belgrad 47.600 47.600
Brussel 35.500 34.970
Budapest 42.220 42.220
Dusseldorf 34.200 28.210
Frankfurt 34.200 27.290
Genf 39.690 39.690
Hamborg 34.200 25.870
Hannover 34.200 28.210
Istanbul 53.330 53.330
Ussabnn 53.330 46.750
Madrld 53.330 53.330
Malaga 53.330 45.850
Mílano 47.600 47.600
Moskva 47.600 47.600
Munchen 39.690 31.560
Nlce 47.600 47.600
París 36.740 29.290
Róm 51.240 51.240
Stuttgart 39.680 30.180
Varsjá 39.680 39.680
Vfnarborg 39.680 39.680
47.600 47.600
Zurich 39.690 39.690
Kalro 54.640
Tel Aviv 54.640
Bangkok 70.570
Singapore 76.370
Tokyo 8?..920
Hong Kong 92.700
Seoul 100.600
Taipei 107.570
Peklng 82.920
Rio de Janeiro 82.920
Sao Paulo 85.330
Montevideo 89.320
Santiagode Chile 95.730
Buenos Aires 89.320
New York 51.510
Chlcago 51.510
Seattle 54.870
Los Angeles 63.570
/////SAS
Laugavegi 3, simi 62 22 11
ágætis inngang um höfundinn. Þar
vitnar hann í ummæli Jóns Hnefils
AðaÍBteinssonar um fyrra gátukver-
ið (í íslensk Þjóðmenning VI. bindi);
„Gátur Sigurkarls sýna glögg-
lega hve lifandi gátuíþróttin er enn
hér á landi. Þær gefa hugmynd um
hagleik höfundar við gátusmíðina,
en allt kverið er með sérstöku snilld-
arbragði. Þá eru gátur Sigurkarls
mátulega þungar til þeBS að góð
dægrastytting geti verið að gl(ma
við ráðningu þeirra."
Gátur hafa verið með ýmsum
hætti á liðnum öldum. Stundum
voru þær órímaðir orðaleikir, s.s.
Það var fyrir fiski að þessi garðui
var ull eða Hvað hét hundur
karls...? í öðrum tilvikum voru
þær rímaðar og var það rím margra
gerða. Allar gátur Sigurkarls eru
með sama sniði. Formið er ferhenda
og felur hver hending í sér eina
merkingu orðs. Vísan öll gefur þvi
fjðrar merkingar sama orðs. Dæmi:
Verkamannsins umbun er
Oft á vinnuflíkum sér
Fundarlokum lýtur að
Læknast við að sauma það.
Ráðning þessarar gátu er slit.
Ég hygg að fullyrða megi að
áður tilgreind orð Jóns Hnefils gildi
ekki síður um þetta gátukver en
hið fyrra. Vísumar eru ágætlega
haglega ortar og bera vitni hug-
kvæmni og smekkvísi. Ekki get ég
þó sagt að alltaf sé auðvelt að ráða
þær, en raunar hef ég alltaf verið
ónýtur við þess háttar iðju.
Mest er þó kannski um vert að
gátur þessar eru aldrei nein vitleysa
eins og stundum vildi við brenna (
gömlum gátum, heldur stuðla þær
að því að menn skilji betur merk-
ingu orða. Að vísu þarf stundum
að seilast nokkuð langt til lokunnar.
Ekki er ég alveg viss um að gátu-
íþróttin sé svo lifandi meðal alls
almennings og Jón Hnefill gefur (
skyn, en víst er þó að gátur Sigur-
karls eru vel fallnar til að lífga við
þessa gömlu skemmtan ef farið er
að dofna yfir henni.
HARVEY
Skjalaskáparog
skjalabúnaður
Verð frá
kr. 17.200,- stgr.
Gæða vörur
á góðu verði
Faxafeni 12,
sími 38000.