Morgunblaðið - 31.12.1989, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 1989
B 27'
Beitingamenn
Beitingamenn vantar á mb. Halldór Jónsson
SH-217, mb. Steinunni SH-167 og mb.
Matthildi SH-67.
Upplýsingar í símum 93-61171 og 93-61128.
Stakkholt hf.,
Ólafsvík.
Hjúkrunarheimilið
Sólvangur
auglýsir eftir starfsfólki í eftirtaldar stöður:
• Stöðu sjúkraliða, fullt starf - hlutastarf.
• Stöðu starfsfólks við aðhlynningu, fullt
starf - hlutastarf.
Nánari upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í
síma 50281.
Áramót 1989/1990
Laus störf
Verslunarstjóri (302)
Fyrirtækið er stór deildaskipt verslun úti á
landi.
Starfssvið: Dagleg stjórnun, lagerstýring,
gerð innkaupa- og söluáætlana og innkaup.
Við leitum að manni með reynslu af verslun-
arstjórn. Viðkomandi þarf að vera stjórnsam-
ur, en jafnframt þjónustulipur.
Starfið er laust strax. Húsnæði til staðar.
Sölumaður (387)
Fyrirtækið er traust iðnfyrirtæki á Stór-
Reykjavíkursvæðinu. Starfið er laust frá og
með 15. janúar nk.
Starfssvið: Sala og kynning á framleiðsluvör-
um fyrirtækisins til m.a. stórmarkaða, stofn-
ana á höfðuðborgarsvæðinu og úti á landi.
Við leitum að sjálfstæðum sölumanni, sem
hefur þekkingu og reynslu af sölumennsku
og er tilbúinn að takast á við krefjandi sölu-
starf. Framtíðarstarf.
Tölvudeild (429)
Fyrirtækið, sem er stórt deildaskipt verslun-
arfyrirtæki í Reykjavík, óskar að ráða sölu-
mann í tölvudeild.
Starfssvið: Kynning og sala á tölvum og
hugbúnaði til fyrirtækja og einstaklinga.
Við leitum að manni með þekkingu og áhuga
á tölvum, reynsla af sölumennsku æskileg.
Æskileg menntun t.d. tölvunarfræði, raf-
magnstæknifræði, rafeindavirkjun, raf-
magnsiðnfræði____________
Tölvudeild (415)
Fyrirtækið, sem er eitt af stórfyrirtækjum
landsins, óskar að ráða starfsmann í tölvu-
deild.
Starfssvið: Kerfissetning, forritun, uppsetn-
ing og viðhald á tölvukerfum.
Við leitum að tölvunarfræðingi eða manni
með aðra haldgóða tölvumenntun og þekk-
ingu á IBM System 36.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. á eyðu-
blöðum, sem liggja frammi á skrifstofu okk-
ar, merktar númeri viðkomandi starfs.
Enska
Fyrirtæki í Reykjavík óskar að ráða starfs-
mann, sem getur séð um skrif í fréttabréf á
ensku. Æskilegt væri að viðkomandi hafi
ensku að móðurmáli og staðgóð þekking á
íslensku atvinnulífi er skilyrði.
Umsóknir, er tilgreini reynslu og fyrri störf,
sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 6. janúar
nk., merktar: „Enska - 7604“.
Háseti
Óskum að ráða háseta með skipstjórnarrétt-
indi til starfa strax á bv. Sólberg ÓF-12.
Upplýsingar í síma 96-62414.
Saeberg hf.,
Ólafsfirði.
1. flokks sölumaður
Ég er 39 ára gamall og óska eftir atvinnu
strax. Er vanur tölvum og stjórnunarstörfum.
Frábær enskukunnátta. Góð meðmæli.
Vinsamlegast hafið samband í síma 34685,
Davíð.
„Au pair“
Sænsk stúlka óskar eftir starfi sem
„au pair“. Getur byrjað í janúar.
Nánari upplýsingar í síma 16568 eftir kl. 18.
Fósturheimili
Gott heimili óskast fyrir 11 ára stúlku.
Upplýsingar hjá Hildi Sveinsdóttur, félags-
ráðgjafa, Félagsmálastofnun Kópavogs, sími
45700.
Fjölbreytt starf
einkaritara, tengt ferðaþjónustu er laust á
næstunni. Góð almenn menntun, þ.m.t.
tungumálakunnátta og reynsla af tölvu-
vinnslu, ásamt aðlaðandi framkomu, eru skil-
yrði, reynsla af ferðaþjónustu æskileg.
Greinargóðar upplýsingar, ásamt mynd,
sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 5. janúar,
merktár: „FYRST - 7603“.
Spennandi starf við
nýstárlegan fjölmiðil
Starfsmaður óskast í spennandi og krefjandi
starf. Verkefnið felst í að draga saman heim-
ildir og skrifa vandaðan og auðfluttan texta.
Nokkur þekking á útvarps- og upptökutækni
er æskileg. Reynsla af dagskrárgerð og flutn-
ingi fyrir útvarp kemur að góðum notum.
Starfsmaðurinn þarf að vera tilbúinn að
leggja á sig mikla vinnu, takast á við ábyrgð
og vinna sjálfstætt.
Umsækjendur eru beðnir að leggja inn um-
sóknir á auglýsingadeild Mbl. merktar:
„M - 9931“ fyrir föstudaginn 5. janúar.
Álftanes
- blaðberar
Blaðbera vantar á vesturnesið.
Upplýsingar í síma 652880.
Sölumenn óskast
Rótgróið fyrirtæki í Kópavogi óskar að ráða
reynda sölumenn. Æskilegt er að umsækj-
endur sé ekki yngri en 25 ára og hafi bifreið
til umráða.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
15. janúar 1990 með upplýsingum um
menntun og fyrri störf merktar: „K- 6230“.
Iðnfræðingur
Byggingaiðnfræðingur með meistararéttindi
sem blikksmiður og 10 ára reynslu, óskar
eftir vinnu við eftirlit og aðstoðarhönnun loft-
ræstikerfa. Ýmislegt annað kemur til greina.
Upplýsingar í síma 76753.
Aramót 1989/1990
Laus störf
Ritarastarf (425)
Fyrirtækið er útflutningsfyrirtæki í Reykjavík.
Starfið krefst kunnáttu í ritvinnslu, ensku
(tala/skrifa), einu Norðurlandamáli, áhuga á
sölumennsku og erlendum samskiptum, vilja
og getu til að leysa verkefni sjálfstætt. Starfs-
reynsla nauðsynleg.
Ritarastarf (432)
Fyrirtækið er öflugt þjónustufyrirtæki í
Reykjavík. Starfið krefst kunnáttu í ritvinnslu,
ensku og hæfni til að leysa sérhæfð ritara-
störf. Starfsreynsla, sjálfstæði og dugnaður
skilyrði.
Ritarastarf (433)
Fyrirtækið er traust þjónustufyrirtæki í
Reykjavík. Starfið er fólgið í símavörslu (mik-
il), ýmsum skrifstofustörfum, kaffiumsjón og
léttum sendiferðum. Starfinu fylgir erill og
talsvert álag.
Ritarastarf (427)
Fyrirtækið er þekkt innflutningsfyrirtæki í
Reykjavík. Vinnutími eftir hádegi. Starfið er
í innflutningsdeild og felst í frágangi og gerð
tollskýrslna, ritvinnslu og skyldum störfum.
Enskukunnátta nauðsynleg.
Ritarastarf (434)
Menntastofnun óskar að ráða ritara til að
sinna móttöku, símavörslu, skráningu og al-
mennum skrifstofustörfum.
Ritarastarf (405)
Fyrirtækið er opinber stofnun í Reykjavík.
Starfið er fólgið í ritvinnslu, tölvuinnslætti
og almennum skrifstofustörfum o.fl.
Nánari upplýsingarveitir Katrín S. Óladóttir.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. á eyðu-
blöðum sem liggja frammi á skrifstofu okkar
merktar númeri viðkomandi starfs.
Nemi íbakarí
Vantar duglegan og reglusaman nema eða
aðstoðarmann í bakarí strax.
UpplýB'mgar í símum 92-68554 og 68130.
Bakaríið Gerðavöllum 17,
Grindavík.
Hagva ngurhf
Grensósvegi 13 Reykjavík 1 Sími 83666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir