Morgunblaðið - 31.12.1989, Qupperneq 12
12 B
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 1989
ERLEIMD ERLEND ERLEND ERLEND ERLEND ERLEND ERLEIMD ERLEND ERLEIMD ERLEND ERLE
32
Sosuke Uno
sagði af sér
sem forsætisráð-
herra Japans í
sumar vegna
hneykslismáls.
Hvað varð honum
að falli?
a) Aðild hans að
fjármála-
hneyksli, sem
kennt er við
Recruit-fyrir-
tækið.
b) Upplýst var
að hann hefði
tekið þrjár kon-
ur frillutaki.
c) Upp komst
um óhófleg
áfengiskaup
hans.
d) Hann viður-
kenndi grátandi
í sjónvarpsvið-
tali að hafa
neytt eiturlyíja
á háskólaárum
sínum.
26
Hinn 16. nóvember tók Gorb-
atsjov Sovétleiðtogi af ska-
rið gagnvart Þjóðveijum:
a) Bannaði þeim að kaupa
fleiri sovéskar Lödur.
b) Sagði yfirburði þeirra í
knattspyrnu ekki jafn mikla
og Þjóðverjar teldu.
c) Sagði sameiningu þýsku
ríkjanna ekki á dagskrá.
d) Hét því að koma á sa-
myrkjubúskap í öllu Þýska-
landi þegar þýsku ríkin hefðu
verið sameinuð.
27
Nancy Reagan, fyrrum for-
setafrú í Bandaríkjunum,
gaf út endurminningar sínar á
árinu og vöktu þær mikla at-
hygli því að:
a) Nancy sagðist í reynd hafa
sljórnað landinu seinna
kjörtímabil eiginmannsins.
b) Hún sagðist vilja setjast að
í Vestmannaðyjum.
c) Hún kvartaði sáran undan
lélegum mat og húskulda í
Hvíta húsinu.
d) Forsetafrúin sagði Raisu
Gorbatsjovu hafa malað stans-
Iaust þegar þær hittust og sjálf
hefði hún varla getað skotið
að orði.
28
Todor Zhívkov var hrundið
af forsetastóli í Búlgaríu 17.
nóvember og var gagnrýndur af
öðrum ráðamönnum fyrir ýmiss
konar misferli:
a) Zhívkov átti alls 30 heimili
og sumarhús í landinu.
b) Hann let búlgörsk stórfyrir-
tæki bjóða sér I ókeypis lax-
veiðar nokkrum sinnum á ári.
c) Hélt uppi ungum ástmeyjum
i helstu höfuðborgum Evrópu
á kostnað ríkissjóðs og neitaði
að deila þeim með öðrum ráða-
mönnum.
d) Smyglaði guliforða rikisins
úr landi með því að fela hann
uppi í íslenskum ferðamönnum
sem fengu búlgarskar heimil-
istölvur að launum fyrir greið-
ann.
29
Leikstjóra og framleiðendur
kvikmyndarinnar Batman
rak í rogastans þegar leikkonan
Kim Basinger, sem fór með hlut-
verk lagskönu leðurblökumanns-
ins, stakk upp á því að:
a) Hún yrði látin lifa á skor-
dýrum í nokkrar vikur til að
öðlast betri skilning á leður-
blökum og öllu hátterni
þeirra.
b) Hún færi úr hverri spjör í
svefnherbergisatriði með
Michael Keaton.
c) Myndin yrði svarthvít og
öll tekin á nóttunni þegar leð-
urblökur eru helst á ferli.
d) Engin kvenhlutverk yrðu í
myndinni.
30
Vamarmálaráðherra Austur-
Þýskalands kynnti óvæntar
breytingar:
a) Gæsagangur yrði aflagður
í hernum.
b) Fækkað yrði í heraflanum
niður í 20.000 manns á næsta
ári.
c) Gufuvélar yrðu settar í
skriðdreka hersins til að nýta
brúnkolin, sem gnægð er af í
landinu, og spara jafnframt
olíu og bensín.
d) Hermenn yrðu að klæðast
strigaskóm til að minnka háv-
aðann af heræfingum í þétt-
býli.
31
Hinn 9. desember flutti
Corazon Aquino Filipps-
eyjaforseti ræðu á útifundi í
Manila og krafðist þess að:
a) Bandaríkjamenn legðu nið-
ur allar herstöðvar sínar í
landinu þegar í stað.
b) Salvador Laurel varaforseti
segði af sér embætti vegna
meints stuðnings við uppreisn-
armenn í hernum.
c) Hún fengi umráð yfir helstu
eignum Marcosar-hjónanna á
Filippseyjum, einkum 3000
skópörum sem Imelda skildi
eftir.
d) Þingmenn hylltu forsetann
í upphafi hver þingfundar með
húrrahrópum.
33
Hinn 20. desember tóku
kommúnistar í Litháen
merka ákvörðun:
a) Þeir ákváðu, allir sem einn,
að flýja til Svíþjóðar.
b) Samþykkt var að leggja
gamla flokkinn niður og stofna
nýjan kommúnistaflokk, sem
yrði óháður Moskvu.
c) Ákveðið var að sækja um
inngöngu í Alþjóðasamband
jafiiaðarmanna með vorinu.
d) Flokkurinn ákvað að beita
sér fyrir lögum sem kvæðu á
um bann við því að minnast
einu orði á fortíðina að við-
lagri dauðarefsingu.
34
David Dinkins var kjörinn
borgarstjóri New York á
árinu og er hann fyrstur blökku-
manna til að gegna því háa
embætti. Dinkins fékk meira
fylgi en Rudolph Giuliani, fram-
bjóðandi Repúblíkanaflokksins.
En sigur Dinkins í forkosningum
Demókrataflokksins vakti ekki
síður athygli því þar náði hann
að velta úr sessi manni er gegnt
hafði embætti borgarstjóra New
York í 12 ár og var í huga
margra lifandi tákn þeirra ágætu
borgar. Maðurinn sem Dinkins
sigraði í forkosningunum heitir:
a) Edward Koch
b) Joe Suzu
c) Jesse Jackson
d) Elias Bankrupt
35
Flugvél hrapaði við Oskars-
hamn í Svíþjóð 9. maí. 16
manns fórust í slysinu, þar á
meðal þrír þingmenn og borgar-
fulltrúi í Stokkhólmi. Hvað olli
slysinu?
a) Sprengju hafði verið komið
fyrir í útvarpstæki.
b) Ofhleðsla í farangursrými.
c) Of margir þungir farþegar
voru í afturhluta vélarinnar.
d) Eldur kviknaði í öðrum
hreyfli vélarinnar.
36
27 ára gömul ítölsk kona, Ste-
fania Pollini, dvaldist í fjóra
mánuði í algjörri einangrun í ein-
um af hellum Nýju Mexíkó. Hell-
irinn er tíu metrum undir yfir-
borði jarðar og dvaldi konan þar
í myrkrinu, án klukku og daga-
tala. Hvers vegna dvaldi konan
í hellinum?
a) Til að sanna þá kenningu
sína að fóstur dafhi betur haldi
móðirin sig í myrkri síðustu
mánuði meðgöngutímans.
b) Til að kanna samdrátt leð-
urblakna.
c) Til að auglýsa nýja bók
sína, „Megrun án streitu“.
d) Til að kanna hvaða áhrif
langvarandi einangrun hefur
á menn.
37
Ef ég væri hryðjuverkamaður
hefði ég getað þurrkað þing-
heim út,“ sagði Stephan d’An-
tal, blaðamaður á Sunday Mirr-
or, í lok maí. Hvers vegna sagði
hann þetta?
a) Vegna þess að Margaret
Thatcher, forsætisráðherra
Bretlands, hafði lagt fram
firumvarp, sem bannar fjöl-
miðlum að skýra frá aðgerðum
lögreglu og hers gegn Irska
lýðveldishernum (IRA).
b) Vegna þess að honum
blöskraði hversu auðvelt það
reyndist að smygla sér inn í
breska þingið og vinna þar
sem þjónn í þijár vikur.
c) Vegna þess að hann hafði
falið sprengju í þinghúsinu til
að sýna fram á að öryggis-
gæslunni væri óbótavant.
d) Vegna þess að þingið taldi
ekki stætt á því að bændur
gætu fengið styrk úr stofn-
lánasjóði landbúnaðarráðu-
neytisins til að kaupa hey-
þurrkara vegna þess hve
öflugur hann er.
38
Hjátrúarfullir Bretar drógu
andann léttar í byijun júní
er þeir þóttust sjá sönnun þess
að engin hætta væri á því að
breska konungdæmið liði undir
lok. Hvers vegna létti þeim?
a) Vegna þess að Neil Kinnock,
leiðtogi Verkamannaflokksins,
lýsti því yfir að ekki bæri að
fækka kjarnorkuvopnum
Breta einhliða.
b) Vegna þess að svissneskur
sérfræðingur lýsti því yfír að
klukkan á Big Ben-turninum
gæti gengið án viðgerða í tvær
aldir.
c) Fyrsti hrafhinn, sem klakist
hefur út í Lundúnaturni í þrjár
aldir, var sýndur almenningi.
d) Margaret Thatcher kvaðst
ekki á þeim buxunum að hætta
heldur ætla að gefa kost á sér
fjórða kjörtímabilið í röð.
39
Frá og með 10. júní verður
bruggun og neysla bjórs að
leggjast niður,“ sagði þjóðhöfð-
ingi nokkur og lýsti því yfir að
að hann hefði ekki áhuga á því
að rikja yfir þjóð fyllirafta. Hver
er maðurinn?
a) Jonathan Motzfeldt, formað-
ur grænlensku landsljórnar-
innar.
b) Daniel Arap Moi, forseti
Kenýu.
c) Muammar Gaddafí, Líbýu-
forseti.
d) Khomeini erkiklerkur í ír-
an.
40
Að morgni mánudags 11. des-
ember var kirkjuklukkum
hringt um alla Tékkóslóvakíu í
tilefni af því að:
a) Jólasveinar höfðu ákveðið
að gefa kommúnistum engar
gjafír í þetta sinn.
b) Kirkjusöfnuðir landsins
höfðu fengið fullt frelsi til að
starfa.
c) Iðnaðarframleiðslan hafði
farið fram úr björtustu vonum
harðlínumanna og aðeins
minnkað um 11% á árinu.
d) Þetta var fyrsti starfsdagur
nýrrar ríkissljórnar, þeirrar
fýrstu í 40 ár þar sem komm-
únistar voru ekki í meirihluta.
Sjá svör á bls 34B.