Morgunblaðið - 31.12.1989, Síða 22
22 B
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 1989
Minning:
Oskar Jónsson
Fæddur 22. nóvember 1927
Dáinn 21. desember 1989
Betri er lítil eign réttláts raanns
en auðlegð margra óguðlegra,
því að armleggur óguðlegra verður brotinn,
en réttláta styður Drottinn.
Drottinn þekkir daga ráðvandra
og arfleifð þeirra varir að eilífu.
(Sálmarnir 37,16-18.)
Það er svo erfitt að trúa því að
Óskar frændi minn sé dáinn. Hann
var svo stór hluti af lífi mínu, því
hann er ég búinn að þekkja og
umgangast síðan ég man eftir mér
og ég á margar góðar æskuminn-
ingar frá Rauðarárstígnum með
honum og langömmu. Eftir lát
langömmu kynnist ég honum ennþá
betur og reyndist hann mér sem
besti faðir en hann var barnlaus
og ég föðurlaus. Þannig myndaðist
góð vinátta og væntumþykja sem
hélst alla tíð.
Það voru ófá skiptin sem Óskar
frændi sótti mig á „skóló“ og kenndi
hann mér þá m.a.: að telja, skrifa
nafnið mitt, byggja hús úr spilum,
litaði með mér, bjó til bréfaskutlur,
fara yfir götuna og þannig mætti
lengi telja. Svo sagði hann mér líka
fuilt af sögum úr útlöndum en hann
hafði gaman af að ferðast. Þegar
ég stækkaði gaf hann mér ótal ráð-
leggingar um lífið og tilveruna en
hann var mjög spaugsamur og kát-
Lokað Gamlársdag
Opnum kl. 17.30 á Nýársdag
Engín hækkun , „ £
A 1/HIINGflHöS BAR RÍSTAURAMT
LAUGAVEGI 10 101 REVKJAVIK SIMI 626210
" Kinverska veitingahusið
Laugavegi 28b • Simi 1651
ifuTTHiT
mIHuÍjS" niWii” SmniKllfiTí i BMI wB
ur og höfðum við mikið gaman af
að spjalla saman. Aldrei man ég
eftir að okkur hafi orðið sundurorða
eða ósammála. Óskar frændi minn
dekraði við mig á allan hátt og var
alltaf tilbúinn að keyra mig eða
skutla út um allan bæ hvenær sem
var. Ekki datt mér það í hug þegar
hann keyrði mig á jólaballið í skól-
anum svo sæll og glaður að þetta
væri okkar síðasta skipti. Honum á
ég svo mikið að þakka.
Óskar frændi minn var stórmenni
og þannig mun ég minnast hans.
Ég veit líka að honum líður vel
núna, því hann er hjá langömmu.
Utför hans verður gerð frá Foss-
vogskirkju þriðjudaginn 2. janúar
nk. kl. 13.30.
Blessuð sé minning hans.
Auður Margrét
Þegar Óskar frændi lést, urðu
allir í fjölskyldunni harmi slegnir.
Enginn bjóst við svo skjótum
dauðdaga og því er sorgin og sárs-
aukinn enn meiri hjá okkur.
Óskars minnumst við fyrir hóg-
værð og ljúfmennsku. Hann var
léttlyndur og hafði góðlynda
kímnigáfu. Sérstaklega átti hann
gott með að sjá skoplegu hliðar
lífsins, og gerði ávallt að gamni
sínu án þess að særa aðra.
Hann var ákaflega hjálpsamur
og greiðvikinn og lá aldrei á liði
sínu, þegar hann vissi, að ættingjar
þurftu á hjálp að halda.
Kannski minnumst við Óskars
þó einkum og sér í lagi fyrir barn-
gæsku hans. Hún var svo hrein og
tær og umvafin hlýju og vináttu,
sem byggði upp hjá okkur krökkun-
um óbilandi traust og væntumþykju
til hans.
Heimili ömmu og Óskars á Rauð-
arárstíg var eins konar miðpunktur
móðurfjölskyldu okkar, og þó svo
að samgangurinn minnkaði þegar
amma dó, var alltaf gott að sækja
Óskar heim. Það var alltaf hægt
að tala við hann um allt á milli him-
ins og jarðar og ógleymanlegar eru
þær stundir, þegar frásagnargleði
hans naut sín sem mest.
Nú þegar við kveðjum kæran
frænda með virðingu og þakklæti
fyrir allt og allt, vottum við systkin-
um hans og ættingjum dýpstu sam-
úð okkar.
Guð blessi og geymi góðan dreng.
Að eilífðarljósi bjarma ber,
sem brautina þungu greiðir.
Vort líf sem svo stutt og stopult er
það stefnir á æðri leiðir.
Og upphiminn fegri en auga sér
mót öllum oss faðminn breiðir.
(Einar Benediktsson)
Helgi, Jón og Páll
Snorrasynir.
Kristur segir: „Sjá, ég stend við dymar og
kný á. Ef einhver heyrir raust mína og lýk-
ur upp dyrunum, þá mun ég fara inn til
hans." (Opinb. Jóh. 3,20).
Kallið hans Óskars föðurbróður
okkar barst honum þann 21. desem-
ber sl. en hann lést á heimili sínu
eftir-mjög stutt veikindi.
Óskar var fæddur þann 22. nóv-
ember 1927 á Borgarfirði eystra,
sonur hjónanna Jóns Stefánssonar,
kaupmanns og Kristbjargar Helgu
Eyjólfsdóttur. Hann var næst
yngstur af systkinum sínum en hin
eru Ragnar, Þórdís Todda og Egill
faðir okkar. Er Óskar var 4 ára
fluttist fjölskyldan til Seyðisfjarðar
og ólst hann þar upp fram undir
tvítugt er fjölskyldan fiuttist öll til
Reykjavíkur.
Óskar vann margvísleg störf til
+
Útför
ODDNÝJAR S. EINARSDÓTTUR
frá Árnesi
verður frá Langholtskirkju miðvikudaginn 3. janúar kl. 13.30.
Benedikt Valgeirsson.
t
ÓSKAR JÓNSSON,
Rauðarárstíg 38,
verður jarðsettur í Fossvogskapellu þriðjudaginn 2. janúar kl.
13.30.
Ragnar Jónsson,
Þórdi's Todda Jónsdóttir,
Egill Jónsson.
+
Móðir okkar,
LILJA JÓHANNESDÓTTIR,
er andaðist á Sólvangi 23. desember verður jarðsungin í Þjóðkirkj-
unni í Hafnarfirði 3. janúar kl. 13.30.
Rúnar Benediktsson,
Hrefna Sigurðardóttir,
Þorvaldur Benediktsson,
Ingi Lárusson.