Morgunblaðið - 31.12.1989, Side 39

Morgunblaðið - 31.12.1989, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 1989 ísa Júlíusdóttir, en hún lést á Borg- arspítalanum 21. desember eftir skamma en þunga sjúkdómslegu. Lovísa fæddist í Reykjavík 21. júlí 1916, dóttir hjónanna Júlíusar Gottskálks Loftssonar múrara og Maríu Símonardóttur. Bæði voru þau ættuð úr Ölfusinu, Júlíus frá Krossi og María frá Bjarnastöðum. Lovísa var elst þriggja barna þeirra en á eftir henni er Óskar Kristinn húsasmíðameistari en yngstur er Alfreð vélfræðingur. Hún sleit bamskónum á Bergstaðastrætinu en síðar við Bragagötu. Seinna fluttist íjölskyldan á Sólvallagötu 7a. Við systurnar áttum því láni að fagna að búa fyrstu æviárin í kjallaranum hjá afa og ömmu og kynntumst því vel heimili þeirra og manngæskunni sem þau höfðu til að bera. Þessi manngæska endur- speglaðist í Lúllu frænku, eins og við kölluðum hana alltaf. Lúlla stundaði nám við Kvennaskólann í Reykjavik frá 1930 til 1933. Eftir það vann hún í mörg ár hjá Mjólk- ursamsölunni í mjólkurbúðum og síðan í verslunum hjá KRON. Þann 8. janúar 1944 giftist Lúlla eftirlifandi eiginmanni sínum Þór- arni Sigurgeirssyni, pípulagninga- meistara, sem í seinni tíð hefur starfað við Borgarspítalann. Þau bjuggu fyrst við Barónsstíg 78, í húsi móðurbróður Lovísu. Síðan fluttu þau í eigið húsnæði við Bú- staðaveg 61, en árið 1959 fluttu þau í nýbyggt hús að Skeiðarvogi 21 og hafa búið þar síðan. Þau eign- uðust þrjú myndar börn, Júlíus Má, véltæknifræðing, sem kvæntist Guðrúnu Siguijónsdóttur, en þau skildu og eiga þau þijár dætur, Maríu, sjúkraliða, gift Erni Þor- steinssyni, myndlistarmanni, og eiga þau einn son og tvær dætur, og Sigurgeir véltæknifræðing, kvæntur Charlottu Ingadóttur, fóstru, og eiga þau telpu og dreng. Við systurnar munum fyrst eftir Lúilu er við heimsóttum fjölskyld- una við Bústaðaveginn. Skemmti- legustu samverastundirnar voru þegar farið var í samfloti í ferðir um landið. Lúlla var mikill náttúiu- unnandi, hafði gaman af að ferðast um landið með fjölskyldunni og einnig naut hún þess að rækta garð- inn sinn bæði heima í Skeiðarvogi og í sumarbústaðnum við Elliða- vatn. Hún var mjög myndarleg húsmóðir eins og heimili hennar ber vitni um enda var mjög gott að heimsækja hana, alltaf svo vel tek- ið á móti okkur. Lúlla var lengi félagi í Húsmæðrafélagi Reykjavík- ur og einnig í Fríkirkjusöfnuðinum í Reykjavík. Síðustu árin fékk Lúlla áhuga á að mála myndir í frístund- um. Þau verk bera lika vott um þá listrænu hæfileika sem hún hafði. í sumar fór að bera á sjúk- dómnum sem er eins og hulinn eld- ur og varð Lovísu að aldurtila. En Lúlla var svo lánsöm að eiga yndis- lega fjölskyldu sem studdi hana í hennar veikindum. Lúlla var vel gerð kona, hjartahlý, góð móðir og amma. Hún gaf sér mikinn tíma með barnabörnunum og er söknuð- ur þeirra mikill. Minningu um Lovísu Júlíusdóttur munum við ávallt geyma. Elsku Tóti, Júlíus, María, Sigurgeir, tengdabörn og barnabörn. Við Blómastofa Friðfinns Suöuriandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099 Opið öli kvöld til kl. 22,- einnig um helgar. Skreytingar við öll tilefni. Gjafavörur. B 39" sendum ykkur okkar dýpstu samúð- arkveðjur og vonum að guð gefi ykkur styrk í ykkar miklu sorg. Guðbjörg, María Júlía, Ólöf og Kristín Gróa. Þann 21. desember síðastliðinn kvaddi okkar ástkæra amma, Lov- ísa-Júlíusdóttir, þennan heim, eftir stutta en erfiða sjúkralegu. Það var reiðarslag fyrir okkur því ekki voru nema þrír mánuðir síðan hann veiktist. Þegar sjúkdómur hennar uppgötvaðist tók hún því með jafn- aðargeði og í stað þess að leggja árar í bát ákvað hún að lifa lífinu á meðan hún gæti. Þessi afstaða ömmu var dæmigerð fyrir hana, því að hún gafst ekki upp þó að á móti blési. Það var alltaf gott að koma heim til ömmu og afa því að heimili þeirra var alltaf ríkt af hlýju og ástúð. Þar áttum við krakkarnir margar gleðistundir. Eitt af því sem einkenndi ömmu var að hún var alltaf svo glaðlynd og tókst ætíð að sjá björtu hliðamar á öllu. Amma var alltaf boðin og búin að hjálpa okkur og áttum við alltaf vísan samastað í Skeiðarvogirmm hjá ömmu og afa ef það þurfti að passa okkur. Hún var ekki aðeins amma okkar heldur góður félagi og veitti okkur ætíð ást og um- hyggju. Allur tími hennar og ást fór til fjölskyldunnar og var heimili þeirra alltaf opið okkur. Þrennt var það sem amma hafði mesta unun af. Ferðalög um landið okkar, garðyrkja og myndlist. Amma ferðaðist mikið um landið með fjölskyldunni og var sama hvert var farið, hún kunni skil á flestu sem fyrir augu bar í náttúr- unni. Og það var á þessum ferðalög- um sem hún kenndi okkur að meta landið okkar að verðleikum. Amma átti einnig mjög fallegan garð þar sem allt virtist blómstra í höndunum á henni. Alltaf var garðurinn henn- ar jafn fallegur og allt undir það síðasta var hún að fegra hann og bæta. Ömmu hafði ætíð dreymt um að læra að mála og haustið 1987 lét hún loks verða af því. Hin mikla ást ömmu á náttúrunni kom glögg- lega í ljós í myndum hennar sem nú prýða alla veggi á heimilum fíöl-v skyldumeðlima. / í hjörtum okkar ríkir sorg vegna fráfalls góðrar konu, konu sem okk- ur þótti öllum vænt um og litum upp til. Minningin um ömmu mun ætíð lifa í hjörtum okkar. Megi guð styrkja afa og aðra ástvini hennar í sorg þeirra. Bamabörnin NU GILDIR ENGIN AFSÖKUN LENGUR! 25% VERDUEKKUN af leikfimi og líkamsrækt (undanþegin viriisaukaskatti) NU GETA ALLIR VERIÐ MEÐ Þessi tafla gengur í gildi 4. janúar 1990 MÁNUD./MIÐVIKUD. ÞRIÐJUD./FIMMTUD. LAUGARD. SUNNUD. 9.00-10.00 ERÓBIKK 10.00-10.50 MR&LT 11.00-11.50 MÆÐURM/B 12.07-13.00 ÞREK&ÞOL 14.00-15.00 ÞR.HR. 15.00-15.50 MR&LT 16.30-17.20 MR&L 17.10- 18.10ÞR.HR. 17.20- 18.20 ERÓBIKK 18.10- 19.10ÞR.HR. 18.20- 19.50 PÚLTlMI 19.10- 20.00 MR&LT 19.50-20.40 MR&L 20.00-21.15 ÞR.HR.* 20.40-21.40 FITUBR./MJÚK OPNAÐ KL. 1 12.07-13.00 16.15-17.05 16.30- 17.30 17.10- 18.10 17.30- 18.20 18.10- 19.10 18.20- 19.20 19.10- 20.00 19.20- 20.20 20.00-20.50 20.20- 21.20 1.30 KARLAR BARNSH. ERÓBIKK ÞR.HR. MR&L ÞR.HR. ERÓBIKK MR&LT FITUBR./MJÚK START MR&L 9.00-10.00 ÞREK&ÞOL 12.07-13.00 ÞR.HR. 16.30-17.20 MR&L 17.10-18.10ÞR.HR. 17.20- 18.20 ERÓBIKK 18.20- 19.20 ÞR.HR.* 18.20-19.20 FUNK 10.30- 11.30 KARLAR 11.00-12.00 ÞR.HR. 11.30- 13.00 PÚLTÍMI 12.00-12.50 BARNSH. 13.00-14.00 ERÓBIKK 13.00-14.15 ÞR.&ÞOL 14,00-14.50 MR&L 14.15-15.05 MR&LT HVÍLDARDAGUR START=FYRIR ALGJÖRA BYRJENDUR. FUNK=MJÚKT ERÓBIKK í FUNK STÍL, FUNK TÓNLIST OG „FUNKY MOOD". Fitumællngar, þolmælingarog lið- ieikamælingar. *=KILLER=ERFIÐIRTÍMARÆTLAÐ- IRFÓLKIÍGÓÐU FORMI. Barnagæsla mán. og mið. kl. 10.00-12.00 og kl. 14.00-16.00 þri.ogfim.kl.14.00-16.00 RÓLEGT - NÁKVÆM TILSÖGN. FITUBR/MJÚKT=MJÚKT ERÓBIKK í 45 MÍN. MIKIL FITUBRENNSLA- EKKERT HOPP. ÞREK & ÞOL= TÆKJAÞJÁLFUN, ÞOLÞJÁLFUN OG FITUBRENNSLA í SAMATÍMANUM. FJÖR, HVATN- INGOGAÐHALD. MR&L=MAGI, RASS OG LÆRI: Styrkjandl og vaxtamótandi timar fyrir byrjendur - ekkert hopp. PÚLTlMAR=90 MIN. TIMAR FYRIR FÓLK í TOPPFORMI. Mikil fitu- brennsla, 45-50 mfn. stöðug hreyf- ing, m)úkt og hart eróbikk, mikið um samsett spor. Áhersla lögð á rass og læri. MR&LT=MAGi, RASS OG LÆRI: Magi, rass og læri ítækjum. Styrkj- andi æfingar ítækjasal fyrir byrjend- ur. Leiðbeinandi stýrir hópnum allan tímann. KARLAR=T(mar fyrir karlmenn 40 ára og eldri. Halldóra Björnsdóttir íþr.f ræðingur stjórnar stöðvaþjálf- un. Styrkjandi og þolaukandi timar. ÞR.HR.=ÞREKHRINGURINN: Eró- bikk og tækjaleikfimi í sama tfman- um (stöðvaþjálfun), hörkutímar, fjör, hvatning og aðhald. Leiðbeinandi stýrir hópnum, skemmtileg tónlist. ERÓBIKK=MEIRI HREYFING, MEIRI FITUBRENNSLA. Mjúkt og hart eró- bikk fyrir þá sem eru komnir aðeins lengra. HEILBRIGÐ SALIHRAUSTUM LIKAMA BARNAGÆSLA kl. 10-12 kl. 14-16 STUDIO JONINU & AGUSTU Skeifan7, 108 Reykjavík, S. 68 9868 Þarsem líkamsþjálfun er skemmtileg og árangursrík.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.