Morgunblaðið - 31.12.1989, Page 40

Morgunblaðið - 31.12.1989, Page 40
40 B MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 1989 Starfsfólk Fálkans Óskar landsmönnum árs og friðar. Þökkum viðskiptavinum gott samstarf á árinu. . . . . að lokum þetta .... Fyrir alla muni farið varlega í kvöld því við viljum sjá ykkur heil á nýja árinu FÁLKINN ÞEKKING - REYNSLA - ÞJÓNUSTA Nýttjafii- réttisráð skipað SKIPAÐ hefur verið nýtt jaíii- réttisráð. Ráðið er nú þannig skipað: Ragnhildur Benediktsdóttir skrifstofustjóri, skipuð af Hæstarétti, formaður ráðsins, vara- maður Sigurður H. Guðjónsson hæstaréttarlögmaður. Árni Gunnarsson alþingismaður, skipaður af félagsmálaráðherra, varaformaður ráðsins, varamaður Magnús Jónsson veðurfræðingur. Þórunn Sveinbjörnsdóttir, for- maður starfsmannafélagsins Sókn- ar, skipuð af Alþýðusambandi ís- lands, varamaður Lára V. Júlíus- dóttir framkvæmdastjóri. Sigurveig Sigurðardóttir hjúkr- unarfræðingur, skipuð af Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, vara- maður Margrét Ríkharðsdóttir þroskaþjálfi. Ingibjörg Magnúsdóttir húsmóð- ir, skipuð af Kvenfélagasambandi íslands, varamaður Drífa Hjartar- dóttir bóndi. Guðrún Árnadóttir skrifstofu- stjóri, skipuð af Kvenréttindafélagi Islands, varamaður Ragnhildur Hjaltadóttir skrifstofustjóri. Hrafnhildur Stefánsdóttir lög- fræðingur, skipuð af Vinnuveit- endasambandi Islands, varamaður Guðrún Lárusdóttir útgerðarmaður. Skipulags- breytingar í mennta- málaráðuneyti KNÚTI Hallssyni, ráðuneytis- stjóra menntamálaráðuneytisins, hefiir verið veitt orlof frá starfi um eins árs skeið frá 1. janúar 1990. í Qarveru Knúts mun Árni Gunnarsson, skrifstofustjóri há- skóla- og menningarmálaskrif- stofú ráðuneytisins, gegna starfi ráðuneytisstjóra, en Stefán Stef- ánsson deildarsérfræðingur mun gegna starfi skrifstofústjóra há- skóla- og menningarmálaskrif- stofú. Undanfarið hefur verið unnið að athugun á skipulagi ráðuneyt- isins og í framhaldi af því hefur verið ákveðið að stofna skrifstofu í ráðuneytinu er nefnist „almenn skrifstofa" og fjalli um rekstur ráðuneytisins og sameiginlega þjón- ustu. Staða skrifstofustjóra almennu skrifstofunnar verður auglýst laus til umsóknar á næstunni. Frekari skipulagsbreytingar eru til athugunar og verður greint frá þeim síðar, segir í frétt frá mennta- málaráðuneytinu. Eljaveður eftir jólin Stykkishólmi. HÉR hefir um jólin gengið á með éljum og stundum hafa þau verið það hörð að erfitt hefir verið að komast leiðar sinnar, en lítil óhöpp orðið svo vitað sé. * Afimmtudag gerði hvas- sviðri og rigningu og því sleipar götur. í Álftafirði var mikið rok og menn sneru þar við enda höfðu þá bílar fokið út fyrir veg. Símamenn sem voru að fara inn á Skógar- strönd sneru við þegar þeir sáu bíla fyrir utan veg og erfitt að ráða við bíla í verstu hvið- unum. - Ami

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.