Morgunblaðið - 05.01.1990, Síða 2
Y
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 1990
Kvennalistinn bíð-
ur flein álitsgerða
ÁKVEÐIÐ var á almennum fundi Kvennalistans í gær að bíða átekta
með ákvarðanir í máli fulltrúa Kvennalistans í bankaráði Lands-
bankans, Kristínar Sigurðardóttur, þar til álit liggja fyrir frá Laga-
stofnun Háskóla íslands og bankaeftirlitinu, um lögmæti setu Kristín-
ar í bankaráðinu. Sent hefúr verið bréf til forseta þingsins þar sem
þess er farið á leit að bankaeftirliti verði falið að gefa álit.
í samtali við Morgunblaðið sagði
Kristín Sigurðardóttir að þingmenn
Kvennalistans hefðu fengið skilaboð
um að bankaráðið yrði óstarfhæft
og að Kristínu yrði vikið af fundi,
mætti hún. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins berst forsetum
þingsins einnig bréf frá Kvennalist-
anum í dag, þar sem Guðrún Helga-
dóttir forseti Sameinaðs þings er
gagnrýnd fyrir að gera álit skrif-
stofustjóra Sameinaðs þings opin-
bert, áður en- álit annarra liggja
fynr.
í álitsgerð Friðriks Ólafssonar,
skrifstofustjóra Alþingis, sem for-
setar Alþingis fólu honum að semja
segir í niðurlagi: „Seta Kristínar
Sigurðardóttur í bankaráði Lands-
bankans getur að mínu mati ekki
talist andstæð lögum nr. 86/1985
um viðskiptabanka enda skortir þar
bein lagaákvæði um almennt hæfi
til setu í bankaráðum, svo sem áður
var lýst. Það verður hins vegar að
teljast óeðlilegt þegar virt eru al-
menn lagarök og þær reglur sem
taldar eru gilda um þessi efni hér
á landi að starf Kristínar hjá Kaup-
þingi geti samrýmst setu hennar í
bankaráði Landsbankans. Einungis
sú staðreynd að vera í aðstöðu til
að miðla upplýsingum, enda þótt
ekki séu bomar brigður á trúnað-
inn, hlýtur að vega þyngst í þessum
efnum.“
. Kristín Sigurðardóttir sagði í
samtali við Morgunblaðið að hún
væri undrandi á þessu áliti Frið-
riks; ekki væri útskýrt í hverju
hugsanlegur hagsmunaárekstur
gæti falist. Aðspurð um viðbrögð
sín sagði Kristín að ekki væri útilok-
að að hún segði af sér, sá mögu-
leiki hefði alltaf verið fyrir hendi.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Fulltrúar frá hollensku og sænsku álfyrirtækjunum Hoogovens Aluminium og GrSnges komu til Akur-
eyrar í gær með fúlltrúum iðnaðarráðuneytis og skoðuðu þá m.a. aðstæður á Dysnesi í Arnarneshreppi
skammt norðan Akureyrar, í fylgd með heimamönnum, þar sem þessi mynd var tekin.
Fulltrúar álfyrirtækjanna Hoogovens og Gránges:
Staðhættir kannað-
ir á þreinur svæðum
FULLTRÚAR frá hollensku og sænsku álfyrirtækjunum Hoogovens
Aluminium og Granges könnuðu í gær, í fylgd með fulltrúum frá
iðnaðarráðuneyti, aðstæður fyrir hugsanlegt álver við Eyjafjörð, á
Reyðarfírði og á Reykjanesi. Var rætt við forystumenn viðkomandi
sveitarfélaga og aðstæður kannaðar.
Það voru aðstoðarforstjórar fyr- Fyrir norðan skoðuðu þeir ásamt
irtækjanna, þeir J.G.D. van der Ros heimamönnum aðstæður á Dysnesi
Morgunblaðið/Sverrir
Kristín Sigurðardóttir bankaráðsmaður Kvennalistans og Kristín
Einarsdóttir formaður þingflokksins á fúndi Kvennalistans í gær.
frá Hoogovens og Ulf Bohlin frá
Gránges sem litu á aðstæður hér á
landi en með þeim í för voru Jón
Ingimarsson og Halldór J. Krist-
jánsson frá iðnaðarráðuneyti og
Garðar Ingvarsson forstjóri mark-
aðsskrifstofu Landsvirkjunar og
iðnaðarráðuneytis.
í Árnarneshreppi og einnig nýjan
stað sem ekki hefur áður verið í
umræðunni varðandi staðsetningu
hugsanlegs álvers við Eyjafjörð, en
hann er norðan Árskógssands við
Hámundarstaðaháls.
Sigurður P. Sigmundsson, fram-
kvæmdastjóri Iðnþróunarfélags
Kaup borgarinnar á landi Vatnsenda:
Þörf á samkomulagi milli
Reykiavíkur og Kópavogs
segir Davíð Oddsson, borgarstjóri
SIGRÚN Magnúsdóttir, borgar-
fulltrúi Framsóknarflokksins,
gagnrýndi málsmeðferð vegna
kauptilboðs Reykjavíkurborgar í
land Vatnsenda á fúndi borgar-
sfjórnar í gær. Sagði hún meðal
annars, að borgarráði hefði ekki
verið skýrt frá því að gera ætti
bindandi tilboð í jörðina. Borgar-
sljóri sagði ummæli Sigrúnar
byggð á misskilningi. Ekki væri
um bindandi tilboð að ræða held-
ur væru á því ýmsir fyrirvarar,
meðal annars um samþykki borg-
Hótel Loftleiðir:
170 millj.varið til enchir-
nýjunar gistiherbergja
HAFIN er vinna við algjöra endurnýjun 110 gistiherbergja á Hótel
Loftleiðum, og er gert ráð fyrir að breytingunum verði lokið um
miðjan mars. Aætlaður kostnaður við breytingarnar er um 170 millj-
ónir króna. Þar af er um 150 milljónum varið til húsbúnaðarkaupa
og vinnulauna innanlands, en um 20 milljónum til húsgagnakaupa i
Þýskalandi og Sviþjóð.
Að sögn Einars Sigurðssonar
blaðafulltrúa Flugleiða var við val
á innréttingum tekið mið af útliti,
mati á gæðum og verði. Þau hús-
gögn sem keypt væru frá Svíþjóð
og Þýskalandi væru aðallega í
svefnherbergi, en innréttingar á
baðherbergi væru fyrst og fremst
íslenskar. „Við erum að fjárfesta
þama í gjaldeyrisskapandi atvinnu-
tækjum, og teljum að íslensk hlut-
deild í þessu sé það veruleg að við
getum alveg verið sáttir við hana
þar sem lunginn af þessum pening-
um fer á íslenskan vinr.umarkað
og hluti af innréttingunni er íslensk-
ur.“
Sömu verktakar voru ráðnir til
verksins og sáu um endurnýjun
allra herbergja á Hótel Esju á
síðasta ári, og er yfirumsjón í hönd-
um Ingimars Hauks Ingimarssonar
arkitekts. Endurnýjun hótelanna er
þáttur í heildarendurnýjun tækja
og þjónustuþátta Flugleiða, sem
lokið verður á þrem árum.
arráðs Reykjavíkur og bæjaryfír-
valda í Kópavogi. Þörf væri á
samkomulagi milli sveitarfélag-
anna vegna málsins enda væri
landið í lögsögu Kópavogs og
kaupstaðurinn hefði forkaups-
rétt að því.
Á borgarstjómarfundinum urðu
nokkrar umræður um kauptilboð
borgarinnar í jörðina Vatnsenda.
Sigrún Magnúsdóttir sagði, að
skýrt hefði verið frá viðræðum við
eiganda-jarðarinnar utan dagskrár
á fundi borgarráðs 29. desember,
þar á meðal hugmyndum borgar-
yfirvalda um kaupverð og greiðslu-
tíma. Borgarráði hefði hins vegar
hvorki verið sagt frá því að um
bindandi tilboð væri að ræða né að
það stæði aðeins til 5. janúar. Borg-
arráðsmenn hefðu verið beðnir að
fara með þessar upplýsingar sem
trúnaðarmál.
Sigrún spurði borgarstjóra hvers
vegna jafn mikið hefði legið á að
gera bindandi tilboð í jörðina og
raun bæri vitni og hvers vegna eig-
anda jarðarinnar hefði verið gefinn
svona stuttur frestur til að svara
því. Jafnframt spurði hún borgar-
stjóra hvers vegna hann hefði brot-
ið trúnað með því að skýra frá við-
ræðunum í samtali við Morgun-
blaðið, sem greint'var frá í frétt
þann 30. desember. Hún sagði að
lokum, að hún hefði talið að þíða
væri komin í samskipti Reykjavíkur
og Kópavogs en hér væri um að
ræða yfirgang gagnvart Kópavogs-
kaupstað.
Davíð Oddsson, borgarstjóri,
sagði að í fyrirspurn Sigrúnar kæmi
fram reginmisskilningur. Tilboð
borgarinnar væri ekki bindandi
heldur væru í því fyrirvarar um
samþykki borgarráðs Reykjavíkur,
samþykki Kópavogskaupstaðar og
að söluheimildir væru fyrir hendi.
Hann sagði að ekki hefði verið
leyndarmál að viðræðurnar ættu sér
stað. Sér hefði ekki dottið í hug að
hægt væri að leyna þeim og hefði
hann skýrt frá þeim í því samtali,
sem frétt Morgunblaðsins 30. des-
ember byggðist á. Verðhugmyndir
borgarinnar hefðu hins vegar verið
trúnaðarmál og hefði hann ekki
gert grein fyrir þeim fyrr en í við-
tali í Morgunblaðinu 3. janúar, en
þá hefðu þær þegar verið komnar
fram í ýmsum fjölmiðlum. Hann
sagði að eiganda jarðarinnar hefði
verið gefinn vikufrestur til að svara
tilboðinu, og væri það venjulegur
frestur í tilviki sem þessu.
Borgarstjóri sagði að Vatnsenda-
land væri hagkvæmt byggingarland
bæði fyrir Reykjavík og Kópavog.
Það gæti orðið byggingarland fyrir
Reykjavík innan fárra ára en myndi
ekki nýtast Kópavogi fyrr en eftir
lengri tíma. Hann sagði samskipti
sveitarfélaganna vegna málsins
væru öll í góðu. Reykjavíkurborg
hefði alls ekki sýnt Kópavogskaup-
stað yfirgang, enda væri þörf á
samkomulagi milli þessara aðila,
bæði vegna lögsögu þeirra og for-
kaupsréttar Kópavogs að landinu.
Eyjafjarðar, sagði eftir fund sem
þessir aðilar áttu með viðræðunefnd
heimamanna að útlendu aðilarnir
hefðu talið sig fá jákvæða mynd
af svæðinu, en skilaboð þeirra til
heimamanna væru þó þau að gera
sér ekki of miklar vonir um að ál-
ver rísi í Eyjafirði í bráð. Það hefði
hins vegar einnig komið fram að
arðsemissjónarmiðin ein réðu ekki
eingöngu staðarvali nýs álvers hér
á landi heldur kæmi þar einnig
fleira til, svo sem eins og stöðug-
leiki vinnuafls, nálægð við önnur
samskonar fyrirtæki, sem ekki væri
heppilegt að væri of mikil og að
einhveiju leyti yrði tillit tekið til
byggðasjónarmiða.
Fulltrúar álfyrirtækjanna
tveggja og iðnaðarráðuneytis fóru
að loknum fundi með viðræðunefnd
Eyfirðinga til Egilsstaða, Þar var
rætt í hálftíma við bæjarstjóra Eg-
ilsstaða, Eskifjarðar og Reyðar-
fjarðar um staðhætti á Reyðarfirði
og aðstæður allar. Að sögn Jóns
Ingimarssonar hjá iðnaðarráðu-
neytinu voru viðræður þessar mjög
almennar, en um leið mjög gagnleg
og bein skoðanaskipti.
Að loknum fundum á Egilsstöð-
um var haldið til Reykjaness og
staðir skoðaðir, sem staðai'vals-
nefnd hefur vísað á undanfarin ár:
Vatnsleysuvík í Vatnsleysustrand-
arhreppi, Vogastapi í landi
Njarðvíkur og Helguvíkurland í
landi Keflavíkur.
Margeir vann
Beljavskí
Frá Gunnari Finnlaugssyni, fréttaritara
Morgunblaðsins á N-Ítalíu.
MARGEIR Pétursson vann skák
sína gegn Beljavskí í 63 leikjum
í sjöundu umferð áramótaskák-
mótsins í Reggio Emilia á Norð-
ur-ítalíu í gær.
Andersson og Georghiev gerðu
jafntefli í 41 leik, Ivantsjúk og
Gúrevits gerðu jafntefli í 19 leikj-
um, Ehlvest vann De Firmian í 26
leikjum og Ribli og Portisch gerðu
jafntefli í 15 leikjum.
Staðan á mótinu er nú þessi: í
1.-2. sæti eru Ehlvest og Ivantsjúk
með 4,5 vinninga af 6 mögulegum,
í 3.-4. sæti eru Ribli og Gúrevits
með 4 vinriinga af 7 mögulegum,
Karpov er í 5. sæti með 3,5 vinn-
inga af 6 mögulegum og Margeir
Pétursson er í 6. sæti með 3 vinn-
inga af 6 mögulegum.
Sjá skákþátt á bls. 23.