Morgunblaðið - 05.01.1990, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 05.01.1990, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 5. JANUAR 1990 Flutningar Eimskips jukust um 6% 1989 Heildarflutningar Eimskips á síðasta ári voru 966 þúsund tonn, sem er 6% aukning frá árinu á undan. Um 3% minnkun varð í innflutningi stykkjavöru, Sleipnir boð- ar þriggja daga verkfall SLEIPNIR, félag langferðabíl- sljóra, hefur boðað verkfall frá og með mánudeginum 15. jan- úar í þijá daga eða til miðnætt- is miðvikudaginn 17. janúar. Félagið hefur verið með lausa samninga frá síðustu mánaðamót- um. Deilan er hjá ríkissáttasemj- ara og hafa verið tveir fundir með deiluaðilum til þessa. Óvíst er að boðað verði til næsta fundar fyrr en eftir helgi. VEÐUR en nokkur aukning í útflutn- ingi, stórflutningi, strandflutn- ingi og flutningi erlendis. í frétt frá Eimskipafélaginu seg- ir, að um vöruafgreiðslu félagsins í Sundahöfn hafi verið fluttar 102 þúsund gámaeiningar, sem sé 3% aukning frá árinu á undan. Það er í fyrsta sinn sem gámafjöldinn fer yfir 100 þúsurid einingar. Rekstrartekjur félagsins á árinu 1989 námu um 6 milljörðum króna, sem er 24% aukning frá árinu á undan. Hækkun byggingarvísitölu milli áranna 1988 og 1989 var 22% og hafa því tekjur aukist að raun- gildi um tæplega 2%. Eimskip var í árslok með 15 skip í föstum rekstri. Níu skip eru í eigu félagsins og dótturfyrirtækja þess, fimm eru á þurrleigu með íslenskum áhöfnum og eitt er á tímaleigu með erlendri áhöfn. Þijú af skipum félagsins voru rekin er- lendis á árinu, en eitt þeirra var selt í desembermánuði. Morgunblaðið/Auðunn/Theodór Myndin er tekin rétt eftir að hlaupið varð í Flóku og jakahrönglið kaffærði brúna. Jón Ólafsson, verk- stjóri Vegagerðarinnar í Borgarnesi, kannar ástandið. Hann stendur fyrir enda brúarinnar og vinstra megin við hann má grilla i brúarleiðara. Borgarnes: Klakastífla brast í Flóku Borgarnesi. Það fór betur en á horfðist þegar klakastífla brast, sem hafði myndast við brúna yfír VEÐURHORFUR I DAG, 5. JANUAR. YFIRLIT í GÆR: Skammt suður af Hvarfi á Grænlandi er víðáttumik- il 965 mb. lægð sem grynnist og þokast austnorðaustur. Heldur kólnar í veðri og sums staðar verður vægt næturfrost. SPÁ: Sunnangola eða kaldi, skúrir eða slydduél um sunnan- og vestanvert landið en léttir til norðanlands. Heldur kólnandi. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á LAUGARDAG: Hæg breytileg átt eða vestangola. Frem- ur hlýtt á Norðaustur- og Austurlandi en svaiara á Suðvestur- og Vesturlandi. Skúrir eða slydduél á Vesturlandi. HORFUR Á SUNNUDAG: Suðvestanátt og kólnandi veður. Él á Suður- og Vesturlandi en þurrt og víða léttskýjað á Norður- og Austurlandi. Flóku milli Varmalækjar og Steðja i Borgarfirði nýverið. Starfsmenn Vegagerðarinnar í Borgarnesi voru ásamt traktors- gröfumanni úr sveitinni að hreinsa af brúargólfinu klakahröngl sem borist haiði þangað. Þar sem þeir voru þarna við störf sín ruddi áin sig skyndilega með braki og brest- um. Hlaupið æddi fram, skall á brúnni og færði hana í kaf. Jón Ólafsson, verkstjóri, sagði þetta hafa gerst svo snöggt að ekki hefði náðst að vara gröfu- manninn við sem var að hreinsa brúargólfið. Klakahlaupið hefði fært brúna og traktorsgröfuna í kaf. Gröfumanninn hefði ekki sak- að og hefði hann verið dreginn í land með kaðli. Sagði Jón að klakahrönglið hefði hæst verið um þrjá metra upp af brúargólfinu. Væri talið að þetta væri mesta klakahlaup sem komið hefði upp síðan brúin var byggð um 1933. Ekki er talið að skemmdir hefðu orðið á brúnni sjálfri en leiðarar hefðu eyðilagst. - TKÞ. Þrem verslunum í Kringlunni 4 lokað ÞRJÁR verslanir í Kringlunni 4 hætta starfsemi á næstunni. Verslan- irnar sem um ræðir eru Sparta, Herradeild P&Ó og Endur og hend- ur. Að sögn Guðjóns Hilmarssonar, kaupmanns í Spörtu, var gert samkomulag við eigendur nýs hlutafélags sem keypt hefur Kringl- una 4 og Kringluna 6, um að eigendur þeirra verslana í Kringlunni 4, sem reka verslanir annars staðar í borginni, hættu rekstri þeirra á meðan framkvæmdir í húsunum stæðu yfír. * ^ ði mk* W í ð w w V ▼' VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 fgær að ísl. tíma hltl veftur Akureyri 3 skýjað Reykjavík 3 skýjað Björgvin 2 rigning Helsinki 42 snjókoma Kaupmannahöfn +1 skýjað Narssarssuaq vantar Nuuk vantar Ósló 4-2 þokumóða Stokkhólmur -:-1 skýjað Pórshöfn 7 skýjað Algarve 14 léttskýjað Amsterdam þokumóða Barcelona 14 hálfskýjað Berlín *1 skýjað Chicago 7 rlgning Feneyjar 4 þokumóða Frankfurt 0 alskýjað Glasgow 3 þokumóða Hamborg 42 mistur Las Palmas 19 skýjað Lundúnir 7 mlstur Los Angeles 7 heiðskírt Lúxemborg 42 þokumóða Madríd 8 léttskýjað Malaga 12 léttskýjað Mallorca vantar Montreal vantar New York vantar Orlando vantar París vantar Róm 9 skýjað Vín *1 mistur Washlngton 1 skúr Winnipeg 426 heiðskírt „Við teljum okkur ek;ki geta ver- ið þama inni á meðan verið er að vinna við húsnæðið, en þær fram- kvæmdir hefjast í þessum mánuði. Það stendur til að ljúka fram- kvæmdunum á þessu ári, og þá verða þessar verslanir opnaðar á nýjan leik,“ sagði Guðjón. Hann sagði að sex af níu verslunum í Kringlunni 4 yrðu opnar áfram, en gengið yrði inn í þær beint frá göt- unni, þar sem aðalinngangi hússins yrði lokað á meðan á framkvæmd- um stæði. LaxaJind kaupir lax Lindarlax og gerir tilboð í mannvirki Iðnaðarbankanum og Den Norske Kreditbank var skömmu fyrir áramót seldur allur fiskur í fiskeldisstöð Lindarlax við Vatnsleysu- strönd fyrir um 368 milljónir króna. Samdægurs keypti Laxalind, hluta- félagið sem annast nú rekstur stöðvarinnar, fiskinn af bönkunum við sama verði. Samþykki þrotabúsins fyrir yfirtöku veðhafa á laxinum er bundið því skilyrði að samningar takist um kaup á mannvirkjurn Lindarlax. Laxalind heíur nú einnig gert tilboð í mannvirki og tæki upp á 318 miHjónir. Ástæða þess að laxinn í keijum Lindarlax og mannvirki eru seld sitt í hvoru lagi er sú að ekki er um sömu veðhafa að ræða. Þrotabúið samþykkti tilboð bankanna í laxinn, með því skilyrði að jafnframt tæk- just samningar um mannvirki þrota- búsins. Ekki hefur verið tekin af- staða til tilboðs Laxalindar, en að sögn Ásgeirs Thoroddsen, stjórnar- formanns Laxalindar felst í tilboðinu að þrotabúið hefur tvo mánuði til þess að auglýsa stöðina til sölu og leita betri tilboða. Fram að þeim tíma yrði ekki um bindandi samning að ræða fyrir þrotabúið. Að sögn Ragnars Önundarsonar, bankastjóra íslandsbanka og áður Iðnaðarbanka, þótti það eðlilegt með tilliti til gjaldþrots Lindarlax að bankarnir sem veð ættu í fiskinum fengju hann leystan til sín. Það hafi þó nánast verið til málamynda, eigin- legur kaupandi hafi verið Laxalind. Ragnar sagði að yfirvofandi aðild Iðnaðarbankans að Islandsbanka hefði engin áhrif haft á kaup bank- ans á fiskinum. Við gjaldþrot Lindarlax í síðasta mánuði var talið að um 560 tonn af fiski væru í stöðinni en þyngd hans er talin aukast um allt að 20% á mánuði. Den Norske Kreditbank á stærstan hlut í Laxalind sem stofn- að var þegar gjaldþrot Lindarlax þótti fyrirséð til að tryggja áfram- haldandi ræktun fisksins í stöðinni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.