Morgunblaðið - 05.01.1990, Blaðsíða 31
/
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 5. JANUAR 1990
31
Gunnar Ásgeirsson
verksijóri — Minning
Fæddur 7. ágúst 1904
Dáinn 1. janúar 1990
Hann afi okkar, Gunnar Ásgeirs-
son, verkstjóri, hefur fengið
hvíldina og er farinn til hennar
ömmu. Hann var fæddur í Vor-
húsum á Vatnsleysuströnd, sonur
hjónanna Ásgeirs Stefánssonar og
Þóru Jónsdóttur er þar bjuggu. Á
þeim tíma var stopul atvinna á
Suðurnesjum en ástandið eitthvað
skárra á Austfjörðum. Þangað
fluttu foreldrar hans í atvinnuleit
og ílengdust þar, en hann varð eft-
ir í Hausthúsum hjá afa sínum og
ömmu, Jóni Kjartanssyni og Ingi-
björgu Sigurðardóttur, og ólst upp
hjá þeim.
Afi kom til Hafnarfjarðar um
tvítugt og fór að vinna við fisk-
vinnslu og varð það hans ævistarf.
Afi kvæntist ömmu okkar, Mar-
gréti Bjömsdóttur, 14. apríl 1927.
Hún var frá Norðurkoti á Vatns-
leysuströnd. Hún fæddist 1. október
1901. Þau fóru að búa í húsi for-
eldra hennar á Krosseyrarvegi 11
og var þar heimili þeirra alla tíð
síðan. Amma lést 6. febrúar 1980.
Frá þeim tíma bjó afi einn í gamla
húsinu sínu þar til 16. september í
haust að hann fór á St. Jósepsspít-
ala hér í bæ og átti ekki aftur-
kvæmt þaðan. Þau eignuðust tvær
dætur, sem báðar em búsettar hér
í Hafnarfirði, Hallbjörgu, gifta
Guðna V. Björnssyni, vömbílstjóra
og eiga þau fimm syni og eina dótt-
ur; Erlu, gifta Guðmundi Jafetssyni
vélstjóra og eiga þau þijár dætur.
Barnabarnabömin em orðin átján.
Afi Gunnar var fyrsti verkstjóri
Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar en
starfaði þar aðeins í rúmt ár. Síðan
vann hann hjá ýmsum fyrirtækjum
hér í bæ og víðar. Þegar síldarævin-
týrið stóð sem hæst norðanlands
var hann verkstjóri við síldarsöltun
í Hrísey, á Siglufirði og víðar.
Stundum fylgdi amma honum og
vann við síldarsöltun. Annars vom
hin ýmsu störf vjð fiskvinnslu hér
í bæ starfsvettvangur hennar.
Síðustu átján starfsárin unnu þau
hjá íshúsi Hafnarfjarðar. Afi hætti
að vinna er amma veiktist til að
geta annast hana heima og gerði
það af stakri alúð.
Afi og amma höfðu yndi af ferða-
ur.
lögum. Þau ferðuðust nánast um
allt land, ýmist með vinnufélögum
og vinum eða á eigin bíl. Þau vom
einnig mjög félagslynd og höfðu
yndi af dansi, spilum og söng. Á
yngri árum spilaði afi á harmoníku
á böllum á Ströndinni* og víðar.
Hann átti harmoníku alla tíð og
stytti sér stundir í ellinni við að
spila fyrir barnabörnín og barna-
barnabörnin. Einnig spilaði hann í
orlofsferðum aldraðra Hafnfirð-
inga, í Bifröst, á Þingvöllum og
víðar.
Afi Gunnar átti tvær systur,
Margréti og Ingibjörgu. Margrét
var gift Siguijóni Sigurðssyni
bónda í Traðarkoti á Vatnsieysu-
strönd, en hann er látinn. Áttu þau
fimm börn. Margrét dvelst nú á
heimili aldraðra, Garðvangi, í Garði.
Ingibjörg var gift Jóni Björnssyni
fyrrum frystihússtjóra á Kirkjubæj-
arklaustri og áttu þau fjóra syni.
Hún lést 1983.
Afi var áhugasamur um heimili
okkar og störf. Hann kom oft í
heimsókn. Nú í seinni tíð sat hann
við gluggann sinn á Krosseyrarvegi
og fylgdist með umferðinni um
höfnina og næsta nágrenni.
Afi var einstaklega ljúfur við
börnin okkar sem kölluðu hann oft-
ast gamla afa. Sást það best nú
um jólin sem endranær að hann sá
svo um að við fengjum öll jólapakka
frá honum, en hann var þá helsjúk-
Megi algóður Guð geyma hann.
Blessuð sé minning hans.
Barnabörn
Nú er hann elsku gamli afi dá-
inn. Gamla afa eins og við langafa-
börnin kölluðum hann alltaf, sá ég
síðast á aðfangadag jóla. Þá sagði
LAlUI S B LAÐA-
MÖPPUR
frá Múlalundi... í
.. þær duga sem besta bók. ^
Múlalundur I
ég við mömmu: Þetta er áreiðanlega
síðasta skiptið sem ég sé hann
gamla afa því hann er svo lasinn
og sú varð raunin.
Gamla afa kynntisl ég best þegar
við fluttum í Vesturbæinn. Þá
keyrði afi og kom oft til okkar og
fékk sér kaffisopa og mola. Þá sat
ég oft hjá honum og afi flautaði
fyrir mig og ég fékk líka mola. Ég
fékk nefnilega aldrei mola nema
þegar gamli afi kom.
Svo þegar afi hætti að keyra var
hann meira einn. En hann gat nátt-
úrlega ekki verið einn svona lengi
nema af því að hún Guðríður í
næsta húsi leit eftir honum. Við
þökkum henni fyrir það.
Þegar komið var á Krosseyrar-
veginn var alltaf farið að skápnum
með namminu og auðvitað fengum
við alltaf nammi.
Verst þykir mér að afi skyldi
ekki sjá hann litla bróður minn
nema á mynd.
Við systkinin Erla, Dagný og
Andri biðjum Guð að geyma elsku
gamla afa og varðveita hann.
Við þökkum honum allt.
Erla litla
Hringdu!
Upplýsingasíminn er (91)
►
►
+
innilegar þakkir fyrir samúð og vináttu við andlát og útför systur
okkar,
ELÍSABETAR ÞÓRÐARDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til Jóns Atla Árnasonar læknis og starfsfólks
Hafnarbúða. Guð blessi ykkur öll.
Fyrir hönd aðstandenda,
Karl Þórðarson,
Viktor Þórðarson.
í þessu númeri getur þu fengið upplýsingar og
svör við spurningum þínum um íslandsbanka.
Upplýsingasíminn er opinn virka daga
kl. 9.00-16.00.
Ef þú ert með spurningu, hringdu!
ISLAN DSBANKI
■ í takt viö nýja tíma!
Innritun fyrir alla kennslustaði er í símum (91) 31360
og656522 '
alla þessa viku frá kl. 13-19.
Kennsla hefst
mánudaginn 8. janúar.
0/USS
íSmi Lœrdir kennarar — Betri árangur F.Í.D. Jl
ML
m
Dansskóli Auðar Haralds
„LAMBADA“ fyrir byrjendur
- ný músík - ný spor
Nýi dansinn „LAMBADANCA“ -
10 tíma námskeið fyrir 10-12 ára,
13-15 ára og 16 ára og eldri.
Barnadansar: Yngst 3-5 ára.
Samkvæmisdansar: Suður-amerískir
latíndansar og standard dansar. Einnig
gömlu dansarnir.
Einstaklings- og parahópar.
ATH!
Tökum einnig að okkur kennslu úti á
landi þar sem þess er óskað.
10 tíma námskeið eða eftir samkomulagi.
Rock’n roll: Eldhressir 10 tíma nám-
skeið: Barna- (yngst 10 ára), unglinga-
og hjónahópar.
Kennslustaðir:
Reykjavík: Skeifan 17 (Ford-húsið)
Gerðuberg, Breiðholti
KR-heimilið v/Frostaskjól
Garðabær: Garðalundur
Keflavík: Hafnargata 31
Vogar: Glaðheimar