Morgunblaðið - 05.01.1990, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 05.01.1990, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 1990 Minninff: Þórhallur Bjarna- son Hvammstanga Fæddur 24. október 1899 Dáinn 23. desember 1989 í dag fer fram útför Þórhalls Bjarnasonar, tengdaföður míns. Hann lést þann 23. desember á elli- og hjúkrunarheimilinu á Hvamms- tanga en þar dvaldi hann að mestu síðustu árin. Áður bjó Þórhallur að Brekku, sem nú heitir Lækjargata 1, ásamt konu sinni, Þóru Sigvalda- dóttur. Foreldrar hans voru Astríður Magnúsdóttir og Bjarni Guðmunds- son og fæddist Þórhallur að Mold- haugum í Eyjafirði þann 24. október 1899 og var því liðlega níræður er hann lést. Eins og að Iíkum lætur var þrek hans mjög tekið að dvína. Þó hafði hann allt undir það síðasta fótavist og var jafnan hress og glað- ur í bragði. Aldrei heyrði ég hann bera sig illa undan glímunni við Elli kerlingu er sótti þó hart að honum í seinni tíð. Alltaf lét hann vel af líðan sinni enda aldrei verið kvartsár um dagana. Hann gekk þráðbeinn í baki allt til loka, ætíð léttur í lund og með gamanyrði á vörum. Þór- hallur var og raunar heilsugóður mestan hluta ævinnar og rúmlegu- dagamir að leiðarlokum vora ekki margir. Á Þorláksmessu bárast ættingjum Þórhalls, vinum og velunnurum, jóla- og nýárskveðjur frá honum á öldum ljósvakans. Fáeinum klukkustundum síðar var hringt til okkar að norðan og við látin vita að hann væri þá þegar allur. Þetta kom okkur dálítið á óvart. Að vísu vissum við að hann hafði þá tvo til þtjá síðustu daga legið all þungt haldinn en virtist að morgni laugardags heldur hressari og því von til að hann kæmist yfir þetta. Sú varð þó ekki raunin. Hinsta kallið var komið og því getur enginn undan vikist, því öll eram við dauð- leg mannanna börn. Mér finnst nú eftir þennan atburð að ég skynji kveðju hans á þessu heilags Þorláks með formála eitthvað á þessa leið: Ég-gerist þreyttur og svefn sækir á mig fastar en fyrr, því skal til sæng- ur ganga og sofna svefninum langa. Þann veg hljómar í mínum eyrum hinsta kveðja Þórhalls, svanasöngur hans hér í heimi. Ég hlýt að láta hugann reika þijátíu og níu ár aftur í tímann. Þá átti ég jól á heimili þeirra hjóna, Þóra og Þórhalls á Hvammstanga. Sá hátíðleiki og hlýja. er umlukti allt og alla á þessari hátíð ljóssins mun mér aldrei úr minni líða. Áuðvit- að vissi ég að ég var heitbundinn góðri konu, Elludís dóttur þeirra, en kynni mín af tilvonandi tengdafor- eldram höfðu þá ekki verið mikil eða öðrum innan fjölskyldunnar. En þarna varð mér ljóst að ég var tengd- ur og venslaður einu því ágætasta fólki og fjölskyldu er ég hafði fyrir hitt. Síðar áttu kynnin eftir að verða meiri og nánari. Og aldrei hefur sú ímynd dvínað heldur fékk ég það betur staðfest eftir því sem árin liðu að þetta hugboð mitt á jólunum 1950 var rétt. Þórhallur kvæntist þann 11. sept- ember 1920 Þóra Sigvaldadóttur. Þau vora jafnaldra. Hún fæddist aðeins fyrr á árinu eða 3. maí. Þóra lést fyrir átta árum annan dag jan- úarmánaðar 1981. Þegar þau gengu í hjónaband Þóra og Þórhallur, var enginn leikur að komast yfír jarðnæði og það lá VINKLAR Á TRÉ O.WBfiBlMSSON&CO ÁRMÚLA29, SÍMI 38640 ekki á lausu eignalitlu fólki. Þetta fengu þau að, reyna ungu hjónin og máttu því una þeim kosti fyrstu árin að hrekjast nokkuð á milli bæja norð- ur á Vatnsnesi í ótryggri aðstöðu húsmennskufólks. Lengsta og sam- felldasta ábúð þessara ára áttu þau á Stöpum á Vatnsnesi eða fimmtán ár alls. Þar er rómuð fegurð og finnst mörgum að þar beri hún hæst á Vatnsnesinu öllu og er þá talsvert mikið sagt. í mínum huga orkar þetta ekki tvímælis en ég verð þó að taka fram að þar kann að gæta áhrifa frá konu minni. Að vísu segir hún það aldrei beram orðum. En viðbrögð hennar öll þegar við höfum ekið Vatnsneshringinn era með þeim hætti að ekki leynir sér hvar hún á sterkastar rætur. Fyrir kom það að við báram gæfu til að fá Þórhall með í för og þá var jafnan ekið hægt og stans gerður á í námunda við Stapa. Ég held að fjölskyldan öll beri mjög sterkar kenndir til Vatnsnessins og þangað stefnir hún för oft sumar hvert og jafnvel oftar á stundum. Ég hygg og að þeim hjónum báð- um, Þóru og Þórhalli, hafi fundist að þar ættu þau blóma ævi sinnar. Árið 1945 festu þau kaup á Hamri, litlu býli rétt fyrir norðan Hvammstanga. Þar höfðu þau lítils- háttar búskap en Þórhallur gekk í hverja þá daglaunavinnu er til féll í þorpinu og gerði svo æ síðan. Vorið 1950 festu þau svo kaup á húsinu að Lækjargötu 1 er áður hét Brekka, og þar bjuggu þau síðan allt til þess að Þóra féll frá. Eftir fráfall hennar bjó Þórhallur þar einn um skeið og naut þá styrks dætra sinna, þeirra er best náðu til hans sökum fjarlægðar. Á elli- og hjúk- ranarheimilinu var hann svo meira og minna viðloða tvö til þrjú síðustu árin. Heimili Þóru og Þórhalls kynntist ég fyrst sem'áður segir 1950. Þar var gestkvæmt og segja mátti að þar stæði opið hús hvetjum þeim er koma vildi. Bæði var kunningja- og vinahópurinn stór og frændgarður- inn mikill. Öllum var tekið opnum örmum og þess vora dæmi að skotið væri skjólshúsi yfir þá er í fá hús áttu að venda fyrir einhverra hluta sakir, oft um lengri eða skemmri tíma. Þá þtjá vetur er við hjónin áttum búsetu á Hvammstanga kom- um við oft til þeirra. Næstum alltaf voru gestir og frekar spurning hve margir hvetju sinni. Og ætíð vora borð hlaðin veislukosti og húsráð- endum sérstaklega lagið að halda uppi glaðværð og góðum heimili- sanda. Stundum leit ég inn hjá þeim á þessum áram að kvöldlagi. Oft bar þá svo við væri ekkert í útvarpi er freistaði, að þá sæti Þórhallur að lestri og læsi upphátt fyrir konu sína en hún var þá við hannyrðir ýmis konar, enda féll henni sjaldan eða aldrei verk úr hendi. Þama bar mér fyrir augu bænda- menningin eins og hún hafði verið allar götur meðal kynslóðanna. Þar ófust saman þættir bókmennta, verk- og listsköpunar í margs konar myndum. Aldrei áttu þau Þóra og Þórhallur miklar lendur né lausa aura og í bytjun búskapar munu þau hafa verið snauð af þessa heims gæðum. Seinni árin voru þau, að ég held, sæmilega bjargálna. Og af góðvild og hjartagæsku vora þatl auðugri en almennt gjörist. En kannski var sú auðlegð þeirra þó mest að eiga hvort annað í blíðu og stríðu á með- an samvistanna naut. Það var vissu- lega Þórhalli mikið áfall að sjá á bak Leiðrétting* Nafn greinarhöfundar minningar- greinar um Hólmfríði Ingimundar- dóttur, sem birtist í blaðinu í gær misritaðist. Nafn höfundar er Birg- ir Steinþórsson, en ekki Birgir Steinn Þórsson. Þetta leiðréttist hér með. konu sinni en þá sýndi hann að hann var sá sterki stofn er hvorki bognar né brotnar þótt á móti blási. Og vissulega var Þórhallur gæfumaður. Hann hlaut í vöggugjöf góðar gáf- ur, létta lund og starfsgleði í ríkum mæli. Lífsförunauturinn var hans heilladís í rösklega sextíu ára hjóna- bandi. Þau áttu barnaláni að fagna og þeim varð fjögurra dætra auðið en þær eru Ingibjörg, var gift Þor- móði Eggertssyni, bónda á Sauða- dalsá. Hann er látinn fyrir nokkram áram; Sigríður Sigurbjörg, hennar maður er Ari Guðmundsson frá Yaldalæk. Þau hjón og einnig Ingi- björg era búsett á Hvammstanga; Elín Þórdís, gift þeim er þessar línur ritar, nú búsett í Reykjavík; Ástríður Bjarnveig, gift Jóni Ágústssyni frá Gröf og búa þau á Hvammstanga. Allar bera þær systur merki góðr- ar heimanfylgju og eiga þá fjársjóði í ríkum mæli er þær fengu í arf frá foreldrunum og hvorki mölur né ryð fá grandað. Barnabörnin eru átján talsins og barnabarnabörnin nokkuð á þriðja tuginn. Því má segja að þau hafi kynsæl orðið, Þóra og Þórhallur. . Nú er hinsta kveðjustundin upp rannin og vissulega gætir nú bæði saknaðar og trega og þó mest hjá þeim er stóðu honum næst og þekktu hann best. Þá er ekki síst ástæða að tilgreina barnabörnin, er öll voru svo hænd að honum og ömmu sinni að með afbrigðum var. En þó söknuðurinn sé sár ber og á hitt að líta að níræðum manni verður örðug glíman við Elli kerlingu er æ sækir fangbrögðin fastar og án vægðar uns yfir lýkur. Nú við leiðarlokin þökkum við vin- ir hans allir og vandamenn honum heilshugar samfylgdina. Minningin um hann er geymd en ekki gleymd því eins og segir í Hávamálum: Deyr fé, deyja frændr deyr sjalfr it sama en orðstírr deyr aldregi hveim sér góðan getr. Nánustu ættingjum og vinum votta ég innilega samúð. Guð blessi minningu Þórhalls Bjamasonar. Jónas R. Jónsson frá Melum. Þeir eru nú orðnir fáir á lífi bændurnir sem háðu lífsbaráttuna á Vatnsnesinu fyrrihluta þessarar aldar. Og enn hefur fækkað í þeim hópi því 23. des. sl. andaðist á sjúkrahúsinu á Hvammstanga Þór- hallur Bjarnason, fyrram bóndi í Stöpum. Þórhallur var fæddur að Mold- haugum í Eyjafjarðarsýslu 24. okt. 1899, sonur hjónanna Ástríðar Sigfúsdóttur og Bjarna Guðmunds- sonar. Börn þeirra voru sex, tveir drengir og fjórar stúlkur. Þau Ástríður og Bjarni bjuggu á ýmsum stöðum í Eyjafirði, sjálfsagt við fremur þröngan kost eins og títt var hjá alþýðufólki á þeim tíma. Þórhallur yar ekki lengi með for- eldrum sínum því ungur að áram var hann sendur vestur að Flatnefs- stöðum á Vatnsnesi til Þorláks föð- urbróður síns, sem þar bjó. Hann dvaldi síðan að mestu á Flatnefs- stöðum hjá föðurbróður sínum þar til hann var orðinn fulltíða maður. Þar á Vatnsnesinu kynntist hann konu sinni, Þóru Sigvaldadóttur. Þau bjuggu fyrst í Tungu á Vatns- nesi nokkur ár en fluttu síðan að Stöpum í sömu sveit og við þann bæ hefur Þórhallur löngum verið kenndur. í Stöpum bjuggu líka Elín Þorláksdóttir og Sigfús Árnason. Og þar dvaldi Þorlákur fóstri Þór- halls og faðir Elínar húsfreyju síðustu árin sem hann lifði. Hann náði háum aldri og var næstum blindur siðustu æviárin. Þorlákur var hagur vel í höndum og stund- aði smíðar þótt sjónin væri að mestu farin. Því var við brugðið hve gam- an væri að koma að Stöpum á þess- um árum. Hjónin gestrisin með af- brigðum og fólkið allt skemmtilegt og glaðvært. Þórhallur og Þóra eignuðust fjór- ar dætur sem allar era á lífi. Þær eru taldar í aldursröð: Ingibjörg, hún giftist Þormóði Eggertssyni, bónda á Sauðadalsá. Þormóður er nú látinn; Sigríður, hennar maður er Ari Guðmundsson. Þau búa á Hvammstanga; Elín Þórdís, hún er gift Jónasi R. Jónssyni, bónda á Melum. Þau búa nú í Reykjavík; Ásta, hún er gift Jóni Ágústssyni. Heimili þeirra er á Hvammstanga. Allar hafa þær systur erft í ríkum mæli hjartahlýju og glaðværð for- eldra sinna. Þórhallur og Þóra brugðu búi í Stöpum árið 1945 og fluttu til Hvammstanga. Eftir að þau settust þar að stund- aði Þórhallur ýmis störf sem til féllu þar í þorpinu en Þóra tók þar mik- inn þátt í félagsstarfsemi. Hún átti mjög gott með að starfa með fólki. Og með sínum létta og smitandi hlátri fékk hún marga til að gleyma daglegu amstri um stund og leggja sig fram við félagsstörfin. Hjónaband þeirra Þóra og Þór- halls var einstaklega gott og far- sælt. Og ég held að þau hafi unað sér vel í litla húsinu sunnan við ána. En árin liðu hvert af öðra og einn daginn var Þórhallur orðinn einn í húsinu. Þóra var horftn þang- að sem við öll föram að lokum. Það var ekki mikla breytingu að sjá á honum Þórhalli. Qg þegar hann var spurður hvernig honum liði sagðist hann ekki hafa yfir neinu að kvarta, allir væru sér svo framúrskarandi góðir. Ég sem þessar línur rita kynntist Þórhalli Bjarnasyni ekki mikið með- an hann bjó úti á Vatnsnesinu. Mér er þó minnisstætt frá mínum æskuárum hve hann var snyrtilegur og viðfeltdinn maður og gaman að eiga við hann viðræður. En eftir að þau hjónin voru sest að á Hvammstanga og ég giftur Hall- dóru, systurdóttur Þórhalls, urðu samfundir fleiri. Við eigum margar ógleymanlegar minningar um góðar stundir á heimili þeirra. Þá var tíminn fljótur að líða við glaðværar samræður. Þórhallur var góður sögumaður og minnugur á gamla tímann. Eitt sinn þegar hann var orðinn ekkjumaður var hann að segja mér frá atburðum sem gerst höfðu þegar hann bjó úti á Vatns- nesinu. Mér fannst ótrúlega bjart yfir frásögninni og spurði: „Var eiginlega alltaf sólskin meðan þú dvaldir þama á nesinu?“ Þórhallur svaraði af sinni alkunnu hógværð: „Nei, ekki var það nú alltaf, en mér er eiginlegra að muna björtu hliðarnar á því sem gerðist." Þetta svar finnst mér lýsa Þórhalli vel, hann vár fyrst og fremst maður hins bjarta og jákvæða. Við hjónin hittum Þórhall í júlímánuði sl. sum- ar. Það urðu okkar síðustu sam- fundir. Þá var hann orðinn vistmað- ur á sjúkrahúsinu á Hvammstanga. Hann var þá furðu hress og hafði gamanyrði á vöram. Samt duldist okkur ekki að stutt gæti orðið til vistaskiptanna. Enn liðu þó nokkrir mánuðir þar til hann var allur. Þá er lokið æfi þessa glaðværa og æðrulausa manns, sem marga gladdi á lífsleiðinni, en engum vildi verða til meins. Við hjónin þökkunt honum tryggð og vináttu á liðnum árum og biðjum honum fararheilla til nýrra heimkynna. Dætrum hans og öðrum vandamönnum sendum við samúðarkveðjur. Ólafur Þórhallsson Óðum hverfur það fólk yfir móð- una miklu er bar hita og þunga dagsins á þeim tíma sem ég var að vaxa úr grasi. Það fer ekki hjá því að minningamar koma fram í hugann þegar löngu spunnir streng- ir vináttu og samstarfs bresta og minnst er á hverfulleika þessa lífs. Þórhallur Bjamason, Hvamms- tanga, fyrrum bóndi að Stöpum á Vatnsnesi, andaðist 23. des. sl. á Sjúkrahúsinu á Hvammstanga, ní- ræður að aldri. Þann dag barst okkur á öldum ljósvakans jóla- kveðja frá honum skammri stundu áður en hann lést. Þórhallur var fæddur 24. október 1899 að Mold- haugum, Glæsibæjarhreppi, Eyja- firði, sonur hjónanna Ástríðar Sig- fúsdóttur og Bjarna Guðmundsson- ar og voru systkinin sex. Barn að aldri fluttist Þórhallur til föðurbróð- ur síns, Þorláks Guðmundssonar, og konu hans, Ingibjargar Bjöms- dóttur, er þá bjuggu á Flatnefsstöð- um og ólst hann upp hjá þeim. Þórhallur kvongaðist 11. september 1920 Þóru Sigvaldadóttur en hún. var dóttir hjónanna Sigríðar Jósefs- dóttur og Sigvalda Sveinssonar. Fyrstu árin vora ungu hjónin í hús- mennsku í Hindisvík og á Flatnefs- stöðum, bjuggu 6 ár í Tungu en árið 1930 fluttu þau að Stöpum og bjuggu þar á móti Sigfúsi Árnasyni og Elínu Þorláksdóttur, uppeldis- systur Þórhalls. Þau keyptu býlið Hamar við Hvammstanga árið 1945 og voru með búskap að hluta en jafnframt stundaði Þórhallur vinnu á Hvammstanga. Síðar keyptu þau húsið Brekku af aldraðri ekkju og önnuðust hana á meðan hún þurfti á að halda. Á Hvammstanga vann Þórhallur lengst af hjá Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga. Góð vinátta var á milli Þóru og móður minnar og síðan heimilanna og féll þar aldr- ei skuggi á. Það var alltaf hlýlegt og notalegt að koma til Þóru og Þórhalls. Heimilið var gott, vel var tekið á mótið gestum og bæði hjón- in létt í lund og jákvæð í hugsun og tali. Þórhallur var snyrtimenni í orði og verki og gekk vel um bæði innan húss og utan. Auður var ekki í garði enda þurfti hann eins og aðr- ir á þeim tíma að takast á við lækk- andi verð sauðfjárafurða eftir fyrra stríð en þá var fyrst og fremst um útflutning að ræða. Gengishækkun á þriðja áratugnum bætti ekki úr og svo varð að mæta erfiðleikum kreppuáranna upp úr 1930. Lífsbar- áttan var því hörð og þurfti atorku, dug og útsjónarsemi til þess að standast það að geta framfleytt stórri Ijölskyldu. Að mestu leyti varð að treysta á handaflið og nýta þurfti hverja stund langan og strangan vinnudag. Það var líka gert til hins ýtrasta af þeim hjónum báðum. Þórhallur var minnugur á fólk og gat ættfært margan mann- inn. Hann var gamansamur og kunni m.a. frá ýmsu að segja í þeim dúr. Þegar Þóra og Þórhallur fluttu til Hvammstanga vora þau komin í þjóðbraut. Það var því oft gest- kvæmt hjá þeim enda gestrisni, greiðvikni og hjálpsemi í hávegum höfð. Vel var um allt hugsað og margri stundinni eytt í að rækta og hlúa að blómum innan húss og utan. Barnaláni áttu þau hjón að fagna. Þau eignuðust íjórar dætur sem allar komust vel til manns, giftust og eiga stóran barnahóp. Og börnin vora kærkomin ömmu og afa enda bæði barngóð. Þóra lést 2. janúar 1981. Fyrstu árin á eftir var Þórhallur áfram í húsi sínu og naut þá aðstoðar dætra sinna. En síðustu árin dvaldi hann á ellideild sjúkrahússins á Hvamms- tanga og deildi síðast herbergi með fóstra mínum og fór vel á með þeim. Með Þórhalli er góður, grandvar og heilsteyptur maður genginn. Einn þeirra ntanna sem skilaði í hógværð farsælu lífsstarfi, lagði meira upp úr því að vinna vel en að gera kröfur. Hann var skyldum sínum trúr og mátti ekki vamm sitt vita. Við kveðjum Þórhall með þökk í huga og biðjum honum Guðs bless- unar á nýjum vegum. Aðstandend- um flytjum við samúðarkveðjur, Páll V. Daníelsson Fleirí minningargreinar um Þórhall Bjarnason munu birtast á næstunni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.