Morgunblaðið - 05.01.1990, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 1990
19
Noregur:
Rannsakar út-
breiðslu hreftiu
Ósló. Frá Rune Timberlid, fréttaritara Morgunbladsins.
NORSKI vísindamaðurinn Arnoldus Schytte Blix hefur undanfarið
staðið fyrir athyglisverðum rannsóknum á útbreiðslu hrefiiu. Hann
hefur fundið hrefnu allt suður til hafsvæðisins á milli Vestur-Afiríku
og Grænhöfðaeyja.
Rannsóknirnar hafa tekið til haf-
svæðis sem nær 1400 sjómílum
lengra suður en fyrri hrefnurann-
sóknir. Schytte Blix, sem er próf-
essor við Tromsö-háskóla, hefur enn
fremur fundið langreyði 100 sjómíl-
um sunnar en staðfest hefur verið
í fyrri rannsóknum. Þá fann hann
vöðu með u.þ.b. 60 grindhvölum
ásamt kálfum rétt fyrir norðan
miðbaug.
Hvalirnir vora bæði taldir beinni
talningu með berum augum og
einnig með hlustunarduflum. Dufl-
unum var komið fyrir með jöfnu
millibili til að nema hljóð frá hvölun-
um neðansjávar.
Skoskir
bændur
stugga við
gæsunum
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari
Frímannssyni, fréttaritara Morgun-
blaðsins.
SKOTLAND er mikið grið-
land fugla af norðurslóðum á
vetrum. Bændur á Katanesi
og Suðureyjum reyna að fæla
gæsir frá löndum sínum, en
þær eru fjölmennar á þessum
tíma árs. Fjölmargar fiigla-
tegundir af norðurslóðum
hafa vetursetu í nyrsta hluta
Skotlands, Katanesi, og á
Suðureyjum.
Á Katanesi era grágæsir fyr-
irferðarmestar, en þar má líka
finna álftir frá íslandi, stara
og gráþresti. Með ströndum og
í árósum era sendlingar, tildr-
ur, sanderlur, skutulendur, há-
vellur og rauðhöfðar. Blesgæs
frá Grænlandi dvelst víða á
Suðureyjum á vetram.
Það eru ekki allir jafn hrifn-
ir af þessum gestum. Bændur
gera allt til að reka gæsir af
löndum sínum, en ströng nátt-
úraverndarlög koma víða í veg
fyrir að þeir fái mikið að gert.
Örfáir bændur á Suðureyjum
hafa fengið árleg leyfi til að
skjóta blesgæsir til að koma í
veg fyrir skaða, sem nemur
milljónum íslenzkra króna að
sögn bændanna. En þessi leyfi
hafa verið umdeild, því að bles-
gæsin frá Grænlandi er fágæt.
Nú hefur landbúnaðardeild
Skotlandsmálaráðuneytisins
ákveðið að veita nokkram
bændum á eyjunni Islay fjár-
styrk til að ráða menn í vinnu
til að vera fuglahræður í til-
raunaskyni. Veiðileyfi á ekki
að gefa út nema nauður reki
og helzt engin.
Á Katanesi eru reglur rýmri.
Þar hafa bændur skotið grá-
gæsir, ef þeir hafa séð ástæðu
til þess, en óheimilt er að skjóta
þar fágætar tegundir. En nú
hafa æ fleiri bændur tekið að
selja veiðileyfi í löndum sínum
til skotveiðimanna, sem aðal-
lega sækjast eftir grágæsinni.
Bændur leggjast eindregið
gegn öllum hömlum á sölu
veiðileyfa og segjast vera bezt
hæfir til þess að vernda þá
náttúru, sem þeir umgangist á
hveijum degi.
Norðmenn standa um þessar
mundir fyrir umfangsmiklum rann-
sóknum á hvölum og öðram sjávar-
spendýram og lýkur þeim á næsta
ári. Samkvæmt bráðabirgðaniður-
stöðum bendir allt til að norski
hrefnustofninn séu nú aftur kominn
upp í að minnsta kosti 50.000 dýr,
en talsmenn Norges Fiskarlag telja
nær sanni að dýrin séu yfir
100.000. Hærri talan hefur hins
vegar enn ekki verið staðfest í þess-
um rannsóknum.
Reuter
Leka, sonur Zog, fyrrum Albaníukonungs, gerir fréttamönnuin grein
fyrir áformum sínum um að heQa skipulega herferð gegn harðlínu-
kommúnistum í landinu.
Konungnrinn ókrýndi hyggst
grafa undan stjórn Albaníu
Jóhannesarborg. Reuter.
LEKA, hinn ókrýndi konungur Albaníu, hyggst hefja skipulega her-
ferð til að grafa undan harðlínukommúnistum þeim sem fara með
völdin þar i landi. Verður útvarpssendingum einkum beitt í þessu
skyni en Leka kveðst ekki búast við því að herferðin skili árangri
fyrr en eftir tvö til þijú ár.
Leka lét þessi ummæli falla í
viðtali við Reuters-fréttastofuna í
Jóhannesarborg í gær en hann býr
í Suður-Afríku. Konungurinn
ókrýndi er fimmtugur en föður hans
,Zog konungi, var steypt af stóli í
Albaníu er herir Þjóðveija og ítala
réðust inn í landið árið 1939. Leka
var þá nýfæddur, aðeins tveggja
daga gamall og hefur því búið í
útlegð allt sitt líf, í Evrópu, Mið-
Austurlöndum og Afríku.
í viðtalinu líkti Leka ástandinu í
Albaníu við ástandið í Rúmeníu
áður en Nicolae Ceausescu og
valdaklíku hans var steypt af stóli.
Hins vegar væri biturleiki alþýðu
manna í Albaníu og óttinn við yfir-
völd enn meiri í föðurlandi hans.
Leka hefur ítrekað kvatt þjóð
sína til að rísa upp gegn stalínistun-
um sem stjóma landinu. í viðtalinu
kvaðst hann líta á sjálfan sig sem
konung Albaníu en sagðist jafn-
framt reiðubúinn til að leggja sitt
af mörkum til að unnt reyndist að
innleiða lýðræði í landinu en þar
búa um þijár milljónir manna.
Leka sagði að tæpast væri unnt
að líkja Albaníu við neitt annað
land í Austur-Evrópu þar sem Sov-
étmenn hefðu þar engin ítök og
áhrif. Því gæti Míkhaíl S. Gorb-
atsjov, leiðtogi sovéskra .kommún-
ista, ekki beitt stjórnvöld þar þrýst-
ingi. Raunar hafa stjórnvöld í Al-
baníu fordæmt umbótastefnu Gorb-
atsjovs. Leka sagði fylgismenn sína
í Albaníu mynda stærstu skipulögðu
hreyfingu stjórnarandstæðinga í
landinu en að auki væru fjölmargir
Albanir hlynntir umbótastefnu og
hugmyndafræði núverandi valdhafa
í Sovétríkjunum.
Pakistan:
Mannskæðasta lestar-
slys í sögu landsins
Karachi. Reuter.
AÐ MINNSTA kosti 210 manns
fórust í fyrrakvöld í mesta lestar-
slysi í sögu Pakistans er far-
þegalest lenti í árekstri við flutn-
ingalest.
Pakistanskir embættismenn
sögðu að fleiri lík væra ef til vill
enn í flaki lestarinnar. Um 300
manns slösuðust, þar af að minnsta
kosti 25 alvarlega, og háir blóð-
skortur mjög hjúkrunarstarfinu.
Slysið varð skammt frá bænum
Sukkur, um 380 km norður af
Karachi. Flestir farþegarnir vora
sofandi þegar slysið varð. Lögregl-
an sagði að ekki væri útilokað að
um skemmdarverk hefði verið að
ræða en talsmenn samgönguráðu-
neytisins sögðu að bilun í merkja-
kerfi gæti hafa valdið slysinu.
■ GAUTABORG -Sænsku
kvöldblöðin Göteborgs Tidning-
en og Kvallsposten vora sam-
einuð á þriðjudag og heitir hið
nýja blað GT/Kvállsposten I
Dag. Aðstandendur nýja blaðs-
ins segja að það ætti að geta
keppt við tvö helstu kvöldblöð
Svíþjóðar, Expressen og Afton-
bladet..
■ PEKING - Ný samtök
mennta- og listamanna í Mong-
ólíu, Lýðræðisfylkingin, krefj-
ast umbóta og fjölflokkalýð-
ræðis í landinu, að sögn danska
blaðsins Jyllands-Posten. Um
1.000 manns hafa tekið þátt í
mótmælum gegn kommúnista-
stjórninni í höfuðborginni, Ulan
Bator, undanfarnar vikur. Út-
varp og sjónvarp hafa skýrt frá
aðgerðunum. Stjórnvöld hafa
lofað umbótum en leggja
áherslu á forystuhlutverk
kommúnista. Mongólía er á
milli Sovétríkjanna og Kína en
hefur áratugum saman verið
undir handaijaðri hins fyrr-
nefnda.
■ VÍNARBORG - Ramiz
Alia, leiðtogi Albaníu, sagði í
nýársávarpi til þjóðarinnar, að
lýðræðisbylgjan, sem bundið
hefði enda á einræði kommún-
ista í flestum austantjaldsríkj-
um að undanförnu, myndi ekki
ná til Albaníu og því engin
áhrif hafa þar. Hann sagði að
stefna albanska kommúnista-
flokksins hefði verið þjóðinni
til heilla og ástæðulaust að
breyta þar út af.
■ HAVANA - Fídel Castro,
forseti Kúbu, sagði í áramótaá-
varpi sínu að ekkert myndi fá
Kúbumenn til þess að sveigja
af braut sósíalismans.
■ NICE - Brotist var inn í
íbúð þar sem franski listmálar-
inn Henri Matisse bjó í Nice
og stolið þaðan átta málverk-
um, sem talin era að verðmæti
75 milljónir franskra franka,
jafnvirði 795 milljóna ísl. kr.
Dóttir Matisse hefur haft eftir-
lit með íbúðinni og uppgötvaði
hún þjófnaðinn á gamlársdag.
Hafði hún þá ekki farið í íbúð-
ina í röskan mánuð. Hefur þjóf-
urinn klifrað upp húsvegg og
brotið rúðu til að komast inn.
Enginn hefur búið í íbúðinni í
20 ár. Matisse ánafnaði erfingj-
um sínum íbúðina en þeir hafa
ekki getað komið sér saman
um hvemig arf inum skuli skipt.
STORÚTSALA
Vörumarkaður allft árið
(
Nýjar vörur
Opið frá kl. 12-18.30
Laugardaga frá kl. 10-16
VERSLUNARMIÐSTÖÐ VESTURBÆJAR, HRINGBRAUT 121
Samkort