Morgunblaðið - 05.01.1990, Page 38

Morgunblaðið - 05.01.1990, Page 38
38 MORGÚNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 1990 HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ KNATTSPYRNA Island — Tékkóslóvakía Þijár breytingar frá leikjunum gegn IMoregi GeirSveinsson, Guðmundur Hrafnkelsson og Guðmundur Guðmundsson koma aftur inn í liðið ÞRJAR breytingar verða á íslenska landsliðinu, sem mæt- %Tékkum þrívegis ílandsleikj- um í handknattleik um helgina, frá leikjunum við Norðmenn fyrir skömmu. Guðmundur Guðmundsson og Guðmundur Hrafnkelsson, sem hafa verið meiddir, eru orðnir góðir og koma inn í liðið. Eins verður Geir Sveinsson með á ný. ékkar koma hingað með sitt sterkasta lið og leika þrjá leiki. Fyrsti leikurinn verður í Digranesi í kvöld kl. 20.00. Síðan verður Ieik- ið í Laugardalshöll á laugardag kl. 16.00 og sunnudag kl. 20. „Tékkar eru með mjög öflugt lið og ég hef trú á því að þeir verði í einu af fjór- vum efstu sætunum á heimsmeist- aramótinu í Tékkóslóvakíu í febrú- ar,“ sagði Guðjón Guðmundsson, liðsstjóri landsliðsins í samtaliði við Morgunblaðið. Sigurður Sveinsson er farinn til Vestur-Þýskalands þar sem hann leikur með Dortmund og verður því ekki með gegn Tékkum. Óskar Ármannsson er ineiddur - fingur- brotnaði á landsliðsæfingu fyrir skömmu. Bogdan hafði ekki gefið út liðið í gærkvöldi, sem leikur í kvöld, en reiknað er með að það verði skipað eftirtöldum leikmönn- um: Markverðir: ' Einar Þorvarðarson, Val Guðmundur Hrafnkelsson, FH Hornamenn: Jakob Sigurðsson, Val GuðmundurGuðmundsson, Víkingi Valdimar Grímson, Val Bjarki Sigurðsson, Víkingi Línumenn: Þorgils Óttar Mathiesen, FH Geir Sveinsson, Granollers Gunnar Beinteinsson, FH Aðrir leikmenn fyrir utan: Héðinn Gilsson, FH Júlíus Jónasson, Asnieres Alfreð Gíslason, Bidasoa Sigurður Gunnarsson, ÍBV Kristján Arason, Teka Við stöndum frekar höllum fæti gagnvart Tékkum hvað varðar úr- slit leikja. íslendingar hafa aðeins sex sinnum unnið, sjö sinnum gert jafntefli en Tékkar hafa 22. unnið. Það er því kominn tími til að laga stöðuna örlítið. Síðast lék Island gegn Tékkóslóvakíu á móti í Brat- islava í nóvember og tapaði með tveggja marka mun, 23:21. Tékkar koma hinga með 17 leik- menn. Þeir verða án markvarðarins fræga, Michal Barda, sem kemst ekki með liðinu hinað þar sem hann leikur með Dusseldorf í Vestur- Þýskalandi um helgina. Flestir ték- nesku leikmannanna leika með Dukla Prag. Með lðinu leikur einn besti línumaður heims í dag, Jiri Kotric. Eins eru fyrirliðinn Jan Novak og Jiri Barton geysilega sterkir. Lið Tékka er skipað eftirt- öldum leikmönnum: Jaroslv- Sicha, Jiri Barton, Zoltan Berg- enni, Milan Folta, Jiri Kotrc, Vaclav Lanca, Martin Liptak, Peter Mesiarik, Jan Novak, Ludovit Dara, Jan Sedlacek, Libor Sovad- ina, Martin Sellik, Lubomir Svavlen, Michal Tonar, Jarolav Velisek og Bumann. Geir Sveinsson leikur með íslenska liðinu gegn Tékkum. Hetjan I Nottingham Þorvaldurfærgóða dóma í enskum blöðum orvaldur Örlygsson hefur stað- ið sig vel með Nottingham Forest og fengið góða dóma í ensk- um blöðum. Kvöldblaðið Notting- ham Evening Post fjallar um hann á baksíðu blaðsins í gær og kallar hann „Hetjuna í Nottingham" vegna frammistöðu hans í síðustu leikjum liðsins. „Hann er ótrúlegur, sérstaklega ef haft er í huga að hann hefur ekki leikið knattspyrnu síðan í okt- óber,“ segir Ron Fenton, aðstoðar framkvæmdastjóri Forest. „Hann er duglegur og kjarkmikill í leikjum og vinnur mjög vel fyrir liðið. Það er sérstaklega gaman að sjá hvern- ig hann lyftir boltanum framhjá bakvörðunum og það er reyndar ein ástæðan fyrir því að við sóttumst eftir honum,“ segir Fenton. Þorvaldur segir í viðtali við blað- ið, að enska knattspyrnan sé hrað- ari en hann óraði fyrir. „Eg er allt- af að læra eitthvað nýtt og í leikn- um gegn Liverpool sá ég hve hættu- legt er að missa boltann. Ég gerði það og það kostaði mark,“ sagði Þorvaldur. Hann bætti því að hann hefði nógan tíma til að læra „enda er knattspyrna örugglega fullt starf,“ sagði Þorvaldur. ítf&mR ■ FOLK ■ SNJÓLEYSI í Evrópu hefur háð keppni í heimsbikarnum að undanförnu. í gær var ákveðið að færa brun og svig karla sem fram átti að fara í Garmisch-Partenk- irchen í Vetur-Þýskalandi 13. og 14. janúar yfír til Schladming í Austurríki vegna snjóleysis i Garmisch. ■ NBA-DEILDIN hefur höfðað mál gegn fylkislottóinu í Oregon fyrir að nota leiki deildarinnar á lottóseðlinum án leyfis. Leikir í NFL-deildinni eru á lottóseðlinum •*" og er áætlað að leikir í NBAA- deildinni taki við er keppnistíma- bilinu lýkur í fótboltanum. David Stern, framkvæmdastjóri NBA- deildarinnar, sagði að deildin gæti aldrei tengst veðmálum enda gæti það haft alvarlegar afleiðingar í för með sér. ■ MIKLAR deilur standa um PING golfkylfur og eru banda- rískir kylfingar óhressir með dóm er leyfði notkun kylfanna að nýju eftir að þær höfðu verið bannaðar í lögum sambands bandarískra at- vinnukylfinga frá 1. janúar 1990. Kylfurnar, PING Eye 2, auka snúninginn á boltanum, sérstaklega ^ í blautu grasi og rákirnar á kylf- ' unni eru mjög þéttar. Flestir héldu að málið væri úr sögunni þegar búið var að banna kylfurnar með lögum en í gær ákvað dómstóll í Phoenix að leyfa kylfurnar að nýju, þrátt fyrir mótmæli golfsambands- ins. Golfsambandið mun gera hvað það getur til að hnekkja þessum dómi en ekki er búist við að það takist. KNATTSPYRNAÍ Ásgeir aðstoðar- þjálfari hjá Stutt- gart? Dagblaðið „Stuttgart Bild“ sem gefið er út í Stuttgart skýrði frá því í gær að forráða- menn Stuttgart vildu halda Ás- ■■■■■■ geiri Sigurvins- FráEinari syni og fá hann Stefánssyni til að starfa / Þýskalandi áfram hjá félag- inu eftir að samningur hans rennur út næsta vor. Látið er að því liggja að félagið vilji fá hann sem að- stoðarþjálfara, en Ásgeir ver'ður ekki aðstoðarþjálfari hjá Arie Haan því þeim hefur ekki verið vel til vina síðustu mísseri. Það er því spurning hvort Haan verði látinn fara eftir þetta tímabili og nýr þjálfari ráðinn með Ás- geir sem aðstoðarmann. Ásgeir hefur verið töluvert í sviðsljósinu í dagblöðum í Vest: ur-Þýskalandi að undanfömu. í gær var sagt frá því_ í vikublað- inu „Sport Bild“ að Ásgeir hefði fengið tilboð frá tveimur 2. deildar félögum í Sviss, Glarus og Zug, eins reyndar hefur kom- ið áður fram í svissneskum fjöl- miðlum. Eins er talað um að nokkur félög í Frakklandi hafí áhuga á að klófesta íslending- inn. Knattspyrnuþjálfari óskast UMF Einherji, Vopnafirði, auglýsir eftir þjálfara fyrir 3. deildar lið félagsins næsta keppnistímabil. Upplýsingar gefur Aðalbjörn í símum 97-31108 og 97-31256. ÍÞRÓTTAMENN ÁRATUGARINS Lewis og Navratilova best Iþróttafréttamenn um víða veröld hafa þegar valið íþróttamenn áratugarins, þrátt fyrir að sam- kvæmt skilningi okkar Islendinga ljúki áratugnum ekki fyrr en um næstu áramót. Fremst í flokki eru fijálsíþróttamaðurinn Carl Lewis og tenniskonan Martina Navra- tilova. Lewis og Navratilova höfðu nokkra yfirburði Lewis fékk 31,5% atkvæða og Navratilova 29%. Röð efstu manna: 1. Carl Lewis, frjálsar...........31,5 2. Diego Maradona, knattspyrna....21,5 3. Wayne Gretzky, ísknattl........11,0 4. Mike Tyson, hnefal............. 9,0 5. Ivan Lendl, tennis............. 5,0 6. SugarRay Leonard, hnefaleikar.. 4,0 Greg Louganis, dýfingar........ 4,0 Michel Platini, knattsp........ 4,0 9. Severiano Ballesteros, golf3,0 Matt Biondi, sund.............. 3,0 Sergei Bubka, stangarst........ 3,0 Matti Nykánen, skíðastökk...... 3,0 Javier Sotomayor, hástökk...... 3,0 JoeMontana, amerískurfótb...... 3,0 Röð efstu kvenna: 1. Martina Navratilova, tennis....29,0 2. Steffi Graf, tennis.............24,0 Marita Koch, fijálsar íþr......24,0 4. Kristin Otto, sund..............11,0 5. Jeannie Longo, hjólreiðar...... 9,0 6. Florence Griffith-Joyner, fijálsar. 8,0 7. Katarina Witt, skautar.......... 4,0 8. Jackie Joyner-Kersee, fijálsar.. 3,0 Nancy Lopez, golf.............. 3,0 Ingrid Kristiansen, fijálsar... 3,0 Martina Navratilova. Carl Lewis. HANDKNATTLEIKUR Rúmenar með í HM Rúmenska handknattleiks- sambandið hefur sent alþjóða handknattleikssambandinu, IHF, staðfestingu á því Rúmenar taki þátt í heimsmeistarakeppninni í handknattleik í Tékkóslóvakíu. Rúmenar höfðu ákveðið að koma til íslands og leika tvo leiki í febrúar en atburðir síðustu daga hafa vakið efasemdir um að þess- ir leikir fari fram. HSI hefur enn ekki náð sambandi við rúmenska handknattleikssambandið en erf- iðlega gengur að ná sambandi við landið. „Við vitum að þeir verða með í heimsmeistarakeppninni og í Evrópukeppni félagsliða í hand- knattleik en við vitum lítið um heimsókn þeirra,“ sagði Jón Hjal- talín Magnússon, formaður HSÍ. GETRAUNIR Bjarni Sigurðsson. Spámaðurvikunnar: Bjami Sigurðsson Bjarni Sigurðsson, markvörður Vals og íslenska landsliðsins í knattspyrnu, er tipp- ari vikunnar. Bjarni segist ekki fylgjast mjög vel með ensku deildinni, einna helst „sínum mönnum“ í deildinni. „West Ham er liðið mitt en því hefur ekki gengið nógu vel. Auk þess fylgist ég með strákunum, Guðna, Sigurði og Þorvaldi og athuga hvort þeir hafi ekki örugg- lega unnið,“ sagði Bjami. Ólafur Þórðarson, félagi Bjama í íslenska landsliðinu, tippaði í síðustu viku og var með níu leiki rétta og er það nokkuð góður árangur. Leikir 6. janúar 2 Blackburn — Aston Villa X Brighton — Luton IX Cr. Palace — Protsmouth 2 Hull — Newcastle 1 2 Leeds — Ipswich 1 2 Manchester City — Millwall X2 Middlesbro — Everton 1 Plymouth — Oxford 2 Stoke — Arsenal 1 2 Tottenham — Southampton 1 2 W.B.A. — Wimbledon 1 Wolves — Sheff. Wed.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.