Morgunblaðið - 05.01.1990, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 05.01.1990, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 1990 EFTERMÆLI SÝSLUNEFNDAR Bókmenntir Sigurjón Björnsson Kristmundur Bjarnason: Sýslunefiidarsaga Skagfirðinga. Síðara bindi. Utgefandi: Sýslunefhd Skaga- fjarðarsýslu. Akureyri. 1989. 438 bls. Fyrir tveimur árum kom út fyrri hluti Sýslunefndarsögu Skagfirð: inga eftir Kristmund Bjarnason. í því bindi var gerð grein fyrir af- skiptum sýslunefndar af málefnum Skagafjarðarsýslu frá því að nefnd- in hélt fyrsta fund sinn árið 1874 og fram yfir 1930 eftir því sem efni stóðu til. Frásögninni var skipt í sex hluta eftir málefnum: Sam- göngur, Menntir, Heilbrigðismál, Utvegur, Búshagir. Sú frásögn var breið og yfirgripsmikil og var í raun þróunarsaga þessara málaflokka. I síðara bindi, sem nú kemur út, er sögunni fram haldið uns sýslu- nefnd heldur lokafund sinn og hætt- ir störfum 14. desember 1988. Þá hafði sýslunefnd Skagafjarðarsýslu starfað í 114 ár. í stórum dráttum er efnisskipan hliðstæð og var í fyrra bindi. Bókar- hlutar eru nú að vísu níu talsins. Við bætist smákafli er nefnist Fundarsköp og verkahringur sýslu- nefndar. Þá koma þrír hlutar eins og áður: Búshagir, Heilbrigðiskerf- ið og Samgöngur. Nýr hluti nefnist Gamanrúnir og hátíðahöld. Þá er sérstakur hluti um rafvæðingu. Menntamálin skiptast á tvo hluta. Annar nefnist Þættir úr sögu Varmahlíðar og hinn Húsmæðra- skóli, söfn og tónmennt. Níunda hluta bókar nefnir höfundur Dreif- ar. Þar ræðir stuttlega um Drang- eyjarmál, Húsakost og bygginga- framkvæmdir og minnst er nokk- urra manna. Þá er hinum eiginlega texta lokið. Eftir er tal sýslunefnd- armanna og oddvita (sýslumanna) sýslunefndar. Það er mikið tal, 163 menn, og eru myndir af flestum þeirra. Að lokum eru Heimilda- skrár, Ljósmyndaskrár og Nafna- skrár fyrir allt verkið. Þetta eru miklar skrár, rífar 100 blaðsíður. Myndir í þessu bindi nálgast hundr- aðið fyrir utan myndir af sýslu- nefndarmönnum. í formála síðara bindis segist höfundur vilja „leiðrétta þann mis- skilning, sem ég hef orðið var við, að hér sé um ritun héraðssögu að ræða. Því fer fjarri, enda þótt skeggið sé skylt hökunni.“ Rétt er þetta vitaskuld. í þetta ritverk vant- ar margt sem héraðssaga myndi hafa á milli spjalda, auk þess sem öðru vísi myndi þar verða tekið á efni. Hitt er og jafn augljóst að allt sem í þessu verki er að finna á heima í héraðssögu og það því fremur sem Kristmundur einskorð- ar sig ekki við bein afskipti sýslu- nefndar af málefnum héraðsins, enda yrði textinn að öðrum kosti lítt skiljanlegur. Það er alkunna að Kristmundi Bjarnasyni er lagið að bera á borð þurrt og tormelt efni svo að það verði lystugt. I þessa bók er borið saman mikið safn upplýsinga af ýmsu tagi, fundarsamþykktir, tölu- leg yfirlit o.s.frv., en yfirleitt flétt- ast þetta inn í þægilega og glaðlega frásögn. Það væri heldur ekki í réttum „sýslunefndaranda“ að gera málefni leiðinleg. Eg hygg að fund- ir sýslunefndar hafi sjaldnast verið leiðinlegir. Oft var að vísu þrefað og margar sundurleitar skoðanir á lofti. Menn virðast hafa átt afar erfitt bæði innan funda og utan að koma sér saman um eina skoðun. Hvemig var réttast að standa að skógræktarmálum? Hvar átti aðal menntasetur héraðsins að vera? Hvar húsmæðraskóli? Hvar var réttast að virkja til rafmagns? Menn stóðu í endalausu stappi og þrefi og framkvæmdir drógust á langinn. En oftar en hitt enduðu umræður með hnyttinni stöku eða jafnvel Arfl MNSMÓUrM Takmarkaður fjöldi nemenda í hverjum tíma A HYBREX SÍMKERFUM OG SAMSKIPTABÚNAM HYBREX AX er eitt fullkomnasta símkerfi sem völ er á á íslandi í dag HYBREXAX er meö sveigjanlegan fjölda innanhússnúmera NYJUNGA ÍSLANDI • íslenskur texti á skjá- tækjum. Allur texti sem birtist á skjám tækjanna er á íslensku. • Vandaöur íslenskur leiöavísir fylgir öllum símtækjum. LATTU SJA ÞIG Sértu að hugsa um símkerfi þá er rétti tíminn núna. Komdu og rabbaðu við okkur. JANUARTILBOÐ í tilefni sýningarinnar erum við með sérstakt tilboð á Hybrex símkerfum. Hybrex 408 ásamt 5 skjá- tækjum: Verð kr........ 87.392,- VSK ........... 21.411,- Stgr.kr 108.803.- Heimilistæki hf Tæknideild, Sætúni 8 SÍMI6915 00 í SOMHÚtí}UiH * Ofangreint verö er miöaö viö gengi USD. 03.01 .’90 Kristmundur Bjarnason brag, sem síðan var samviskusam- lega skráð í Leirgerði. Margt af þessum gamanmálum er hér til- fært. Að vísu var þetta ekki einhlítt, því að sum mál gengu greiðlega fyrir sig, t.a.m. stofnun Byggða- safnsins í Glaumbæ. I þessari bók gerir höfundur til- raun til að rekja sögu hins svo- nefnda Varmahlíðarfélags. Er sú saga lengsti hluti bókarinnar, rúm- ur þriðjungur texta. Hugsjón Varmahlíðarfélagsins var vissulega góð, en sagan er engu að síður dapurleg og þar er nokkra leiða skugga að sjá. Er þó víst sitthvað ósagt. Fróðlegur þótti mér kaflinn um skógrækt í Skagafirði. Hann mætti vera Skagfirðingum hvatn- ing til að-fara nú loksins að taka á honum stóra sínum í þessum málum. Allir Skagfirðingar, sem vilja heill og hag héraðs sfns, ættu að lesa þetta mikla verk vandlega. Það er gott innlegg til sj^lfsskoðunar og sjálfsgagnrýni. Það getur minnt menn á hvernig ekki eigi að standa að málum og hvað þurfi til þess að málefni í almannaþágu nái fram að ganga. Barnadansakeimsla Gömludansakennsla Innritun frá kl. 14.00-20.00 Samkvæmisdansakennsla Kennsla hefst 8. janúar Standard Suður-amerískir Rokk/tjútt Bjóðum einkatíma eftir samkomulagi. Lokaðir tímar fyrir félagasamtök og aðra hópa. ^ HAFNARFJÖRÐUR Kennum í nýju húsnæði á Reykjavíkurvegi 72. Sími 65-22-85 REYKJAVÍK Kennum í Ármúla 17a. Sími38830 Félagar í FÍD og DÍ Raðgreiðslur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.