Morgunblaðið - 05.01.1990, Síða 5
Sala Iceland
Seafood Ltd.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 1990
5
Salanjókst
um 7,6%
síðasta ár
ICELAND Seafood Ltd., sölufyrir-
tæki Sambandsins í Englandi,
seldi 24.566 tonn af sjávarafurð-
um á síðasta ári fyrir 44,2 milljón-
ir sterlingspunda eða sem svarar
4,4 milljörðum króna. Salan að
magni til jókst um 7,6% frá fyrra
ári en um 7% að verðmæti.
Markaðssvæði Iceland Seafood
Ltd. nær yfir Vestur- og Suður-
Evrópu en aðalstöðvar fyrirtækisins
eru í Hull í Englandi. Söluskrifstofur
eru í Vestur-Þýskalandi og Frakk-
landi.
Stærstu markaðslöndin eru Bret-
land, Frakkland og Vestur-Þýska-
land. í Bretlandi nam salan 26,8
milljónum sterlingspunda, sem er
svipað verðmæti og árið áður. Sala
Frakklandsskrifstofu nam 111,2
milljónum franka sem er aukning
um 18,4%, og sala Hamborgarskrif-
stofu nam 22,5 milljónum marka
sem er 46,3% aukning frá fyrra ári.
Launþegar innan
SAL greiða
lífeyri af heildar-
launum:
40% aukn-
ing á tekj-
um sjóð-
anna á fjór-
um árum
LAUNÞEGAR, sem greiða í
lífeyrissjóði innan Sambands al-
mennra lífeyrissjóða, munu frá
áramótum greiða 4% af heildar-
launum sínum til lifeyrissjóðanna
og atvinnurekendur 6%, en fram
til áramóta 1986/87 voru einungis
greidd lífeyrisiðgjöld af dagvinnu-
launum til þessara sjóða.
í kjarasamningum á árinu 1986
tókst um það samkomulag milli Al-
þýðusambands íslands og vinnuveit-
enda að greitt yrðu lífyerisiðgjöld
af öllum launum launþega og þvi
yrði komið á í áföngum. Á árinu
1987 voru þannig greidd iðgjöld af
dagvinnulaunum og 25% yfirvinnu,
. á árinu 1988 varð hlutfallið 50%, á
árinu 1989 75%, og loks að fullu á
þessu ári.
Að sögn Hrafns Magnússonar,
framkvæmdastjóra SAL, var gert
ráð fyrir því að þessar breytingar
ykju tekjur sjóðanna um 10% árlega
og réttindi sjóðfélaga auðvitað sam-
svarandi. Tekjurnar hafa því aukist
um yfir 30% til þessa og eiga enn
eftir aukast um 10% á þessu ári.
Vildu leigja
flugvél
fyrir fals-
aða tékka
LÖGREGLAN handtók tvo menn
á Reykjavíkurflugvelli í fyrra-
kvöld. Þeir komu þangað þeirra
erinda að taka á leigu flugvél til
Akureyrar. Fyrir farið hugðust
mennirnir greiða með illa fengn-
um ávísUnum og greiðsiukorti.
Menn þessir, sem áður hafa kom-
ið við sögu lögreglunnar, gistu-
fangageymslur lögreglunnar um
nóttina en var sleppt daginn eftir
að loknum yfirheyrslum.
NUGETUR Þll
, GRÆTT
ÁTÁOGFINGRI!
Hvergi í heiminum er jafnhátt vinningshlutfaH og hjá Happdrætti Háskólans,
því 70% af veltunni renna beint tj^vinningshafa! Þar með er vinningsvonin hvergi jafnmikil
og hjá Happdrættinu. í ár eru yfir 2000 milljónir króna í pottinum. í raun gæti annar hver íslendingur
hlotið vinning því að vinningarnir eru 135.000 talsins. Mest getur þú unnið 45 miUjónir á eitt
númer — allt skattfrjálst. Með trompmiða er hægt að vinna 10 miUjónir króna í hverjum
mánuði og 25 miHjónir í desember.
Tryggðu þér happamiða strax — þú mátt bara til!
HAPPDRÆTTI
HASKÓLA ÍSLANDS
vænlegast til vinnings
JMHP
lf||||^ ' ' v*1 * ' .? :"\\v
VINNINGASKRÁ FYRIR ÁRIÐ 1990:
9 vinn. ákr. 5.000.000, 108 vinn. ákr. 2.000.000,
324 vinn.ákr. 250.000, 1.953 vinn. á kr. 75.000,
13.797 vinn. á kr. 25.000, 118.575 vinn. á kr. 12.000,
234 aukavinn. á kr. 50.000.
Samtals 135.000 vinn. á kr. 2.268.000.000.
ARGUS/SiA