Morgunblaðið - 05.01.1990, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 1990
17
Val á frambjóðendum til borgarstjórnarkosninga:
Talið rétt að reyna aðr-
ar leiðir en prófkjör
- segir Baldur Guðlaugsson, formaður stjórnar fulltrúa-
ráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík
SKIPTAR skoðanir eru um það meðal sjálfstæðismanna í Reykjavík,
hvernig beri að hátta vali á frambjóðendum flokksins til borgar-
stjórnarkosninga. Tillaga um það að fela uppstillinganefiid val á
frambjóðendum var samþykkt með 15 atkvæðum gegn 8, á fundi
stjórnar fulitrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, 3. janúar
sl. Aðalfundur fulltrúaráðsins hefiir hins vegar síðasta orðið í
þessu máli, en sá fundur verður haldinn næstkomandi miðvikudag.
í samtali við Morgunblaðið
sagði Baldur Guðlaugsson, for-
maður stjórnar fulltrúaráðsins, að
vert væri að undirstrika að með
þessari ákvörðun væri.jekki verið
að hafna prófkjörsleiðinni al-
mennt, heldur hefðu menn tekið
þá ákvörðun, vegna mikillar gagn-
rýni undanfarin ár, að staldra að-
eins við og prófa nýjar leiðir við
val á frambjóðendum. Baldur
sagðist hafa átt viðræður við mik-
inn fjölda stjórnarmanna í sjálf-
stæðisfélögunum í Reykjavík.
Hefðu þar verið skiptar skoðanir
og ýmsir möguleikar nefndir.
Menn hefðu verið á því að læsast
ekki inni í prófkjörsleiðinni.
Aðspurður sagði Baldur að eng-
ar slíkar aðstæður væru hjá
flokknum sem leiddu til þess að
mælt væri með því nú að farin
væri þessa leið. Baldur sagði að
ánægja væri ríkjandi í flokknum
með núverandi borgarstjómar-
meirihluta og öragga forystu
borgarstjóra, en á hinn bóginn
væri ekkert sem girti fyrir það að
uppstillingamefndin gerði breyt-
ingar á núverandi lista. Þeir væru
reyndar til sem segðu að breyting-
ar væra líklegri þegar uppstillin-
garnefnd veldi.
Um þá röksemd að prófkjör
væri lýðræðislegra fyrirkomulag
sagði Baldur að þetta breytti engu
í því tilliti, því á endanum væri
það fulltrúaráðið í Reykjavík sem
hefði lokaorðið um val frambjóð-
enda, hvort sem farið væri í próf-
kjör eða ekki.
Baldur benti á að almenna regl-
an hjá Sjálfstæðisflokknum væri
sú að val færi fram hjá uppstillin-
garnefnd. Ef fara ætti í prófkjör
eða beita öðram aðferðum, þyrfti
að taka um það ákvörðun sérstak-
lega. Stjómin hefði ekki talið
ástæðu til að mæla með slíkri
ákvörðun. „Það er hins vegar rétt
að benda á það að stjórnin hefur
lagt þetta mál í hendur aðalfundar
fulltrúaráðsins i Reykjavík til end-
anlegrar ákvörðunar og höfum við
búið þannig um hnútana að auð-
velt á að vera að leggja fram tillög-
ur um annað. Stjórnin mun hins
vegar standa að sinni tillögu,“
sagði Baldur Guðlaugsson.
Aukinn styrkur með
prófkjöri
Biynhildur Andersen, formaður
Félags sjálfstæðismanna í Vestur-
og Miðbæ, er einn þeirra stjómar-
manna í fulltrúaráðinu sem mælti
með opnu prófkjöri. Ástæðuna
sagði Brynhildur vera þá að að-
stæður væru þannig hjá flokknum
í dag að nauðsynlegt væri að opna
hann; flokkurinn hefði verið of lit-
laus og daufur undanfarið. Flokk-
urinn ætti að vera opinn og lýð-
ræðislegur, þar sem stuðnings-
mönnum flokksins gæfist kostur
á að hafa áhrif á val frambjóð-
enda, en honum mætti ekki loka
að fyrirmynd vinstriflokkanna.
Brynhildur sagði að það væri
ljóst að flokkurinn stæði vel að
vígi í Reykjavík og staða borgar-
stjóra væri sterk. Kvaðst hún telja
að bæði flokkurinn og borgar-
stjóri myndu styrkjast við próf-
kjör. „Ég tel ekkert að því að með
prófkjöri sé veittur möguleiki til
að hafa áhrif á hugsanlegan eftir-
mann Davíðs Oddssonar. Þó ég
hafi ekki heyrt að hann sé á föram
úr borgarstjórastólnum er ljóst að
flokkurinn verður ávallt að vera
undir það búinn að einhver þurfi
að taka við,“ sagði Brynhildur.
Brynhildur kvaðst vona að aðal-
fundur fulltrúaráðsins ætti eftir
að endurskoða þessa ákvörðun.
Gaukur Hjartarson við fuglatalninguna. Morgunblaðið/Síiii
Skjálfandi:
42 tegrindir sáust í
fuglatalningn á jólum
Húsavik.
FUGLATALNING hefur farið
fram við Skjálfanda í yfir 30 ár
og við jólatalninguna nú sást hels-
ingi við Arnarneslón, en hann
hefur ekki áður sést i jólatalningu
hér á landi.
Talningin nú fór fram 30. desem-
ber í mjög góðu veðri, bæði til sjós
og lands. Húsvíkingar og nágrannar
töldu. á 12 afmörkuðum talningar-
svæðum, 9 við sjó frá Skjálfanda-
fljótsósi að Lóni í Kelduhverfi og á
þremur landssvæðum.
Alls sáust 42 tegundir og 20.643
fuglar eða um eitt þúsund fleiri en
við talninguna árið áður. Fjöldi ein-
stakra tegunda var svipaður og ver-
ið hefur og er alltaf mest af æðar-
fuglinn eða um 10 þúsund fuglar.
Einnig var mikið af fýlum.
Nokkrar tegundir sáust sem eru
fáséðar í jólatalningum. Þar ber
fyrst að nefna helsingja, sem aldrei
hefur áður sést í jólatalningu hér á
landi. Aðrar tegundir sem verða að
teljast sjaldgæfar hér á Norðurlandi
eru svo sem: lómur, himbrimi, rauð-
höfðaönd, skúfönd, duggönd, hvin-
önd, æðarkóngur, brandugla og gló-
brystingur.
Allt er þetta starf unnið af sjálf-
boðaliðum en undir stjórn Náttúru-
fræðistofnunar íslands og þurfa við-
komandi að eiga góða sjónauka við
þetta starf.
- Fréttaritari
Leiðrétting
I frétt í blaðinu í gær var haft
eftjr Friðrik Sophussyni fyrrverandi
iðnaðarráðherra að ekki væri álitlegt
fyrir ríkið að binda tíu milljarða
króna í rekstri nýs álvers, en þar
átti að standa að ekki væri álitlegt
fyrir ríkið að binda tugi milljarða
króna í rekstrinum. Beðist er velvirð-
ingar á þessum mistökum.
Patreksfjörður:
Sjáum loks glætu
eftir svartnættið
—segir Sigurður Viggósson oddviti
„Það er mikill hugur í fólki hér. Við erum að fá aftur til
baka það sem við misstum og menn sjá nú loksins smá glætu
eftir svartnættið,“ sagði Sigurður Viggósson, oddviti sveitar-
stjórnar Patreksfjarðarhrepps og aðstoðarframhvæmdastjóri
Odda hf. í viðtali við Morgunblaðið.
„Næsta skref okkar er að opna
fyrir almennt hlutafélag. Það
verður tilkynnt almenningi hér á
Patreksfirði á næstu dögum og
er stefnt að því að ná hundrað
og fimmtíu til tvö hundruð millj-
ón króna i hlutafjársjóðinn,“
sagði Sigurður.
Petreksfirðingar hafa haft
Þrym á leigu frá Byggðarstofnun
sl. tvo mánuði, en þeir ganga
formlega frá kaupum á skipinu
á miðvikudaginn kemur, 10. jan-
úar. Þrymur, sem er 230 tonna
togveiðiskip, fer í slipp í
Reykjavík, þar sem ýmsar endur-
bætur verða gerðar á skipinu.
Einnig er Patrekur kominn á
ný til Patreksfjarðar. Hann er
172 tonn og er nú á línu, fór í
sinn fýrsta róður á ný frá Pat-
reksfirði á þriðjudaginn. Sama
dag hófst útgerð á nýjum 214
lesta báti frá Patreksfirði. Það
er Vigdís, sem var keypt frá
Vopnafirði, en báturinn hét áður
Lýtingur. Vigdís er línu- og tog-
veiðiskip. Það era tveir aðilar á
Patreksfirði, Vesturver hf. og
Bjarg hf. sem keuptu bátinn
ásamt Fiskvinnslunni á Bíldudal
hf.
Með því að Patreksfirðingar
eru búnir að fá Þrym og Patrek
aftur og Vigdísi að tveimur
þriðju hluta, eru þeir búnir að
fá tæplega eitt skip á móti togar-
anum Sigurey, sem fór til Hafn-
arfjarðar.
Oddi hf. hefur starfað á Pat-
reksfirði í tuttugu ár og hefur
þar að mestu farið fram salt-
fisksverkun, en einnig frysting.
Hraðfrystihús Patreksfjarðar,
sem lengi hefur staðið lokað,
verður að sögn Sigurðar f ljótlega
opnað aftur og mun öll frysting
fara þar fram, en Oddi hf. mun
þá einungis vera með saltfisks-
verkun.
„Það er bjart yfir og menn
hafa nóg að starfa. Ástandið er
allt annað hér heldur en það var
fyrir nokkram mánuðum. At-
vinnuleysið er búið og nú stefn-
um við að því að ná til baka
fólkinu sem fór héðan á aðra
staði í atvinnu. Um sextíu manns
fóra, en það er um sex prósent
fækkun á íbúum. Við erum bjart
sýnir á að fá þetta fólk aftur til
okkar,“ sagði Sigurður.
Auglýsing frá ríkisskattstjóra:
SKILAFRESTUR Á LAUNA-
SKÝRSLUM O.FL. GÖGNUM
Samkvæmt lokamálsgrein 93. gr. laga nr. 75/1981 um tekju- og eignaskatt
hefur skilafrestur eftirtalinna gagna, sem skila ber á árinu 1990
vegna greiðslna o.fl. á árinu 1989, verið ákveðinn sem hér segir:
I. TIL OG MEÐ 22. JANÚAR 1990:
1. Launaframtal ásamt launamiðum.
2. Hlutafjármiðar ásamt samtalningsblaði.
3. Stofnsjóðsmiðar ásamt samtalningsblaði.
II. TIL OG MEÐ 20. FEBRÚAR 7 990
1. Afurða- og innstæðumiðar ásamt samtalningsblaði.
2. Sjávarafurðamiðar ásamt samtalningsblaði.
III. TIL OG MEÐ SÍÐASTA SKILADEGISKATTFRAMTALA 1990,
SBR. 1.-4. MGR. 93. GR. NEFNDRA LAGA.
1. Greiðslumiðar yfir hvers konar greiðslur fyrir leigu eða afnot af
lausafé, fasteignum og fasteignaréttindum, sbr. 1. og 2. tl. C-liðs
7. gr. sömu laga.
2. Gögn þar sem fram koma upplýsingar varðandi
samninga sem eignarleigufyrirtæki, sbr. II. kafla laga
nr. 19/1989, hafa gertog í gildi voru á árinu 1989 vegna
fjármögnunarleigu eða kaupleigu á fólksbifreiðum fyrir
færri en 9 manns. M.a. skulu komafram nöfn leigutaka
og kennitala, skráningarnúmer bifreiðar, leigutímabil
ásamt því verði er eignarleigufyrirtæki greiddi fyrir
bifreiðina.
Reykjavík l.janúar 1990
RSK
RÍKISSKATTSTJpRI