Morgunblaðið - 05.01.1990, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 1990
23
Hlif Siguijónsdóttir fíðluleikari, David Tutt píanóleikari og Christian
Giger sellóleikari
Tónleikar og ljóðalest-
ur í Listasafíii Siguijóns
SAFN Siguijóns
Ólafssonar
stendur fyrir
tveimur dag-
skrám um helg-
ina.
Laugardaginn
6. janúar kl. 17
verða haldnir tríó-
tónleikar þar sem
Hlíf Sigutjóns-
dóttir fiðluleikari, David Tutt
píanóleikari og Christian' Giger
sellóleikari flytja píanótríó nr. 1
ópus 49 í d-moll eftir Mendelssohn
og píanótríó nr. 1 ópus 8 í H-dúr
eftir Johannes Brahms.
Hlíf, David og Christian hafa
leikið saman undanfarin ár og
meðal annars haldið fjölda tón-
leika í Sviss. Haustið 1988 komu
þau einnig fram sem tríó hér á
landi við vígslu Listasafns Sigur-
jóns.
Sunnudaginn 7. janúar verður
bókmenntadagskrá í safninu eins
og venja er til fyrsta sunnudag
Stefán Hörður
Grímsson'
hvers mánaðar. í þetta sinn verða
lesin bæði þýdd ljóð og frumsamin.
Geir Kristjánsson les úr þýðing-
um sínum á rússneskum ljóðum
úr bókinni „Undir hælum dans-
ara“, Gyrðir Elíasson les síðan úr
nýrri ljóðabók sem nefnist „Tvö
tungl“ og að lokum les Stefán
Hörður Grímsson úr bók sinni
„Yfir heiðan morgun".
Gísli Magnússon píanóleikari
leikur nokkur stutt verk milli at-
riða.
Dagskráin hefst klukkan 15
stundvíslega og tekur um það bil
eina klukkustund.
FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM
4. janúar.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
^ Þorskur 85,00 80,00 82,78 4,790 396.540
Þorskur(óst) 83,00 50,00 80,09 3,214 257.354
Ýsa(ósl.j 142,00 91,00 138,00 0,408 56.233
Karfi 93,00 92,00 93,05 0,011 977
Ufsi 20,00 20,00 20,00 0,016 310
Steinbítur 136,00 136,00 136,00 0,010 1.360
Hlýri 70,00 70,00 70,00 0,014 945
Langa 44,00 44,00 44,00 0,057 2.486
Keila(óst) 24,00 24,00 24,00 0,124 2.976
Samtals 83,23 8,641 719.181
1 dag verður selt óákveðið magn úr bátum.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 88,00 88,00 88,00 1,115 98.120
Þorskur(óst) 79,00 69,00 ■ 74,51 21,672 1.614.816
Ýsa 120,00 120,00 120,00 0,220 ' 26.400
Ýsa(ósL) 140,00 87,00 118,61 6,678 792.061
Undirmál 114,00 45,00 53,07 1,356 71.964
Hlýri+steinb. 87,00 87,00 87,00 0,213 18.531
Lúða(milli) 435,00 435,00 435,00 0,018 7.830
Lúða(smá) 400,00 400,00 400,00 0,007 2.800
Samtals 84,16 31,279 2.632.522
( dag verður selt óákveðið magn úr bátum.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 83,00 66,00 73,95 13,920 1.029.400
Ýsa 143,00 135,00 140,09 2,860 400.660
Ufsi 43,00 43,00 43,00 0,065 2.795
Steinbitur 72,00 72,00 72,00 0,483 34.776
Hlýri 50,00 50,00 50,00 0,100 5.000
Langa 51,00 46,00 50,50 0,111 5.606
Lúða 420,00 265,00 390,00 0,380 148.200
Skarkoli 66,00 66,00 66,00 0,655 43.230
Keila 18,00 18,00 18,00 0,135 2.430
Samtals 89,37 18,709 1.672.097
Með virðisaukaskatti er meðalveröið 111,26 krónur, heildarverðið
2.081.761 krónur, meðalverð á þorski 92,06 krónur, ýsu 174,41 króna,
ufsa 53,53 krónur, steinbít 89,64 krónur, hlýra 62,25 krónur, löngu 62,87
krónur, lúðu 485,55 krónur, skarkola 82,17 krónur og keilu 22,41 króna.
í dag verður selt óákveðið magn úr línú- og netabátum.
Ivantsjúk vekur athygli
Frá Gunnari Finnlaugssyni, fréttaritara Morgunblaðsins á Norður-Jtalíu.
HINN ungi Sovétmaður Vassilíj
ívantsjúk er sá keppandi sem
mesta athygli vekur hér í
Reggio Emilia.
Úrslit í 6. umferð urðu:
ívantsjúk vann Georghiev í 72
leikjum. De Firmian sigraði
Beljavskíj í 61 leik. Margeir Pét-
ursson tapaði fyrir Gúrevits í 33
leikjum. Margeir, sem hafði svart,
fékk gott tafl út úr bytjuninni.
Hann fórnaði snemma peði og fékk
í staðinn þrýsting á peðaveikleika
Gúrevits. í 26. leik lék Margeir
ónákvæmt og Gúrevits náði
óstöðvandi sókn. Stutt jafntefli
gerðu Portisch og Karpov (16 leik-
ir) ásamt Ehlvest og Ribli (18 leik-
ir). Andersson sat yfir.
Staða efstu manna (fjöldi
tef ldra skáka innan sviga) eftir sex
umferðir var þessi: 1. Ivantsjúk 4
(5), 2. Ehlvest 3‘A (5), 3.-5.
Karpov, Ribli og Gúrevits 3 'A (6).
Meðfylgjandi tafla sýnir úrslit
skáka í sex fyrstu umferðunum.
Skák þeirra ívantsjúks og
Georghievs var viðureign sjöttu
umferðarinnar og klöppuðu áhorf-
endur þegar henni lauk. ívantsjúk
tefldi byijunina mjög hratt og
gekk um gólf milli leikja. Hann
hafði aðeins notað 5 mínútur af
tíma sínum á fyrstu 20 leikina.
Tímamörk á þessu móti eru 3 tímar
á hvorn keppanda fyrir 60 leiki,
en venjulega eru tímamörk eftir
40 leiki. Þegar leiknir höfðu verið
30 leikir hafði ívantsjúk notað 15
mín. en Georghiev tvo og hálfan
tíma. Virtist staðan þá vera unnin
hjá ívantsjúk en Georghiev tókst
að ná mótspili. Sjón er sögu ríkari.
Géörghiev - ívantsjúk
Griinfeld-vörn
1. d4 - Rf6, 2. c4 - g6, 3. Rc3
- d5, 4. cxd5 - Rxd5, 5. e4 -
Rxc3, 6. bxc3 - Bg7, 7. Bc4 -
c5, 8. Re2 - 0-0, 9. Be3 - Rc6,
10. 0-0 - Bg4, 11. f3 — Ra5, 12.
Bxf7. (Þetta afbrigði komst í tísku
þegar Karpov hóf að beita því
gegn Kasparov.)
12. - Hxf7, 13. fxg4 - Hxfl, 14.
Kxfl - cxd4!? (Hér hefur oftast
verið leikið 14. - Dd6.) 15. cxd4
- e5, 16. d5 - Rc4, 17. Bf2 -
Df6, 18. Kgl - Hf8, 19. Del -
Bh6, 20. Rg3 - Da6, 21. Khl -
da4! (Leikið án umhugsunar og
trúlega er þetta allt heimabrugg
hjá Ivantsjúk. Menn svarts ráða
brátt lögum og lofum á borðinu.)
22. De2 - b6, 23. h4 - Bf4, 24.
Rfl - Rd6, 25. Hel - Hc8, 26.
g3 - Hc2, 27. Df3 - Dxa2. (Peð-
ið sem fórnað var hefur nú skilað
sér með vöxtum. Þótt ótrúlegt
megi virðast tekst hvítum að ná
mótspili.) 28. Kgl - Bh6, 29. g5
- Bg7, 30. Re3 - Hc7, 31. Rg4
- Hf7, 32. De3 - Dc2, 33. h5 -
Rc4, 34. Dcl - Dxcl, 35. Hxcl
- gxh5, 36. Hxc4 - hxg4, 37.
Hc8 - Bf8, 38. Bel.
(í þessari stöðu biðu menn á annan
tíma eftir leik frá ívantsjúk!
Georghiev átti um 10 mínútur eft-
ir.)
38. - Kg7, 39. Bc3 - Bd6, 40.
Hc6 - Bc5, 41. Kg2 - Hf2, 42.
Khl - Bd4!
(Svartur hefur að sjálfsögðu engan
áhuga á þráskák.) 43. Bb4 (Eftir
43. Bxd4 - exd4 kemur upp at-
hyglisvert endataf 1 sem er svörtum
í hag.) 43. - Hf7, 44. He6? (Af-
leikur. Betra en þó ófullnægjandi
var 44. d6 t.d. 44. - a5, 45. Ba3
- b5, 46. Hc7 - Bb6!) 44. - Hb7!,
45. Hc6 - a5, 46. d6 - axb4! (Nú
vinnur svartur auðveldlega. Hér
voru báðir keppendur í miklu tíma-
hraki og voru lok skákarinnar tef ld
með miklum hamagangi.)
47. Hc7 - Kf8!, 48. Hxb7 - b3,
49. Hb8 - Kf7, 50. d7 - b2, 51.
Hf8 - Ke6, 52. d8R - Ke7, 53.
Hfl - Kxd8, 54. Hbl - Kc7, 55.
Kg2 - Kc6, 56. Kfl - Kc5, 57.
Ke2 - Kc4, 58. Kd2 - Kb3, 59.
Hfl - b5, 60. Kd3 - Ka2, 61.
Kc2 - b4, 62. g6 - hxg6, 63.
Hhl - b3, 64. Kd3 - blD, 65.
Hxbl - Kxbl, 66. Kd2 - b2, 67.
Kd3 - Ka2, 68. Kc4 - blD, 69.
Kd5 - Dgl, 70. Ke6 - Dxg3,
71. Kf6 - Df4, 72. Kg7 - Dxe4
og hvítur gaf.
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11
1. Beljavskíj, Sovétr. X 0 V. 0 ’A 0
2. Ehlvest, Sovétr. 1 X 'k 'k '/, 1
3. Portisch, Ungveijal. '/, 'u X 'k '/, 0
4. Karpov, Sovétr. í 'k '/, X '/, '/, '/,
5. Ribli, Ungverjal. 'k 'k X 'k '/, 1 'k
6. De Firmian, Bandar. í X 'k 0 'k '/, '/,
7. Margeir Pétursson 'k X 0 1 '/, 0
8. ívantsjúk, Sovétr. 'k 1 1 X '/, 1
9. Andersson, Svíþjóð 'k 'k 'k 0 '/, X
10. Georghiev, Búlgaríu 'k ‘a 0 'k 'k 0 X
11. Gúrevits, Sovétr. 0 í '/, ’A 'k 1 X
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Mæðurnar María Magnúsdóttir úr Hrunamannahreppi og Herdís
Eiríksdóttir frá Selfossi með jólabörnin á Sjúkrahúsi Suðurlands.
Tenging útivistarsvæða
26% fjölgun
fæðingaá
Sjúkrahúsi
Suðurlands
Selfossi.
FÆÐINGUM Qölgaði á fæðingar-
deild Sjúkrahúss Suðurlands um
26% á síðasta ári frá 1988. Alls
fæddust þar 144 börn, 76 drengir
og 68 stúlkur.
Á sjúkrahúsinu er vel búin fæðing-
arstofa og góð aðstaða fyrir sæng-
urkonur. A jólanótt fæddust þar tvö
börn og svo vildi til að önnur móðir-
in heitir María og fæddi sveinbam.
Fyrsta barnið á nýja árinu er Fljóts-
hlíðingur sem fæddist klukkan
20.19 á nýársdag, 18 marka dreng-
ur.
Sig. Jóns.
Náttúruverndarfélag Suðvest-
urlands stendur fyrir vettvangs-
ferð á laugardaginn 6. janúar,
þrettándanum, kl. 13.30 frá
„Tjaldhóli" í Fossvogi. (Rétt norð-
ur af Nesti v/Kringlumýrar-
braut.)
Ferðin er farin til að kanna göngu-
leiðir sem tengt gætu Öskjuhlíð og
Fossvogsdal. Gengið verður um
svæðið og ræddar hugmyndir um
æskilegar lausnir. Vettvangsferðin
tekur um einn og hálfan klukkutíma
og lýkur við Tjaldhól.
Þátttaka í ferðinni er öllum heimii.*^
(Fréttatilkynning)
Leiðrétting
í blaðinu í gær var sagt að Frið-
rik Haraldsson sé formaður Félags
leiðsögumanna. Það er ekki rétt,
hann er fyrrverandi formaður fé-
lagsins. Núverandi formaður er
Helgi Guðmundsson. — Biðst blaðið
velvirðingar á þessum mistökum.
Afinæli
í dag, föstudag 5. janúar, er sex-
tug Sveinsína Guðmundsdóttir,
Hásteinsvegi 30, Stokkseyri. Hún
er matráðskona á Kumbaravogs-
heimilinu. Hún ætlar að taka á
móti gestum í dag, afmælisdaginn
eftir kl, 16 í Sæhvoli á Stokkseyri.
t
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim
er sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför eiginmanns míns, föð-
ur, tengdaföður og afa,
BJARNA F. HALLDÓRSSONAR
f.v. skólastjóra.
Guðrún S. Björnsdóttir,
Gunnar Örn Arnarson,
Anna Ó. Bjarnadóttir,
Björn Bjarnason,
Einar S. Bjarnason,
Fanney S. Bjarnadóttir,
Bjarni S. Bjarnason,
Jón Erlendsson,
Guðrún Skúladóttir,
Sigriður Gfsladóttir,
Þorvaldur S. Ólafsson,
Guðrún Richardsdóttir
og barnabörn.