Morgunblaðið - 05.01.1990, Síða 32
32
(Hfy'J -'iV-l niU/.J'l/iUtfyoty
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 5. JANUAR 1990
fclk í
fréttum
Gáttaþefur tekur á móti frumsýningargestunum.
JÓL
Jólasveinar á rölti og róli
Jólasveinarnir eru ekki
enn farnir til síns heima
á ný, þetta eru eftirsóttir
einstaklingar við ýmis tæki-
færi allttil þrettándans. Þeg-
ar barna- og fjölskylduleik-
ritið Töfrasprotinn eftir Ben-
óný Ægisson var frumsýnt
í Borgarleikhúsinu á öðrum
í jólum var þar til dæmis einn
jólasveinanna, Gáttaþefur,
og færði börnunum glaðning.
Tók Gáttaþefur á móti börn-
unum í anddyrinu og var að
heyra að þeim hefði þótt
þetta fjörleg byijun á
skemmtuninni, því næst lá
léiðin inn í sal þar sem börn-
in skemmtu sér konunglega
með álfum og prinsessum og
fleirum.
Borðapantanirog
miðasala á Hótel
íslandi ld. 9.00-17.00
alla daga í síma
687111.
MatseÖill
kvöldsins
FordrykkurAI-Andalus
Konungleg spansk súpa
með oslabrauði
Grilluð grisakótiletta
aö hteili andalúsiskara
aðalsmanna
Verð aðeins kr.
2.500,-
fyrir manninn.
Aðgangseyrir og
kvöldverður.
OMAE
Glæsilegur
nýársfegnaður
Veraldar-Pólaris
á Hótel íslandi
íkvöld
Veröld þakkar viðskiptavinum sínum og velunnurum frábærar
móttökur á afstöðnu ferðaári og býður ferðaþyrstum listunnendum
á glæsilegan nýársfagnað á Hótel íslandi þann 5. janúar, fylltan
dansi, söng, gleði, gríni og giensi ásamt giassilegri veislumáltíð
að suðrænum hætti.
ÚR DAGSKRÁ NÝÁRSFAGANAÐAR
Húsið opnað kl. 19.00. ARGENTÍSKUR TANGO - suöur-
Glæsiteg dans- og tiskusýning frá Mod- amerfak stommning í kjölfar Veraldar-
el ’79 og Dansstúdfói Sóleyjar. n-'i-u161 Suður Amerfku.
Ómar Ragnara, Hemmi Gunn' og Hauk- Spánskurgítarieikur á heimsmælikvarða
ur Heiðar rifja upp sumar á Spáni 1989. _ Pétur Jónasson.
Glæsilegtferðahappdrætti. EINSÖNGUR-
M YNDASÝNING - stemmningar frá Jsamt0nnu
síðasta sumri.
HBií miníiii
Forsmekkur að fcrðaúrvali
næstasumars.
Veisiusijóri: Hermann Gunnarsson.
Hljómsveitin Stjómin
leikui’fyrirdansi
tilkl. 3.
HMB
Morgunblaðið/Sverrir
GESTIR
A annað hundrað Svisslending-
ar voru hér um áramótin
156 Svisslendingar voru hér yfir áramótin á vegum svissnesku ferðaskrifstofunnar Im-
holz og myndin er tekin þegar jólasveinar tóku á móti fólkinu á Hótel Sögu. Hópurinn
kom til landsins 28. desember og fór aftur 2. janúar. Svisslendingarnir fóru meðal annars
til Vestmannaeyja og Víkur í Mýrdal. Annar hópur, 130-140 manns, mun dvelja hér
yfir páskana á vegum Imholz.
RÓM
Nýju ári fagnað
Aítaliu er það plagsiður heljarmenna og hugrakkra kvenna
að fagna nýju ári með því að stinga sér af Garibaldi-brúnni
í Rómarborg niður í fljótið Tiber. Var myndin tekin er þekktur
ítalskur dýfingamaður, Aldo Corrieri, stakk sér ofan af brúnni
á nýársdag en her manns fylgdist með og hafði allnokkra
skemmtun af.
Gleðilegt ár!
Ný hljómsveit á nýju ári.
Danshljómsveitin „okkar“ með
Karli Möller
leikur í kvöldfrá kl. 22-03.
APASPIL
Apinn
„Bubbles“
trymbill
Jacksons!
Michael Jackson hefur
löngum verið frægur
fyrir ýmis uppátæki sem
mörg hver geta vart talist
annað en en „léttgeggjaðar"
og er þá ekki djúpt í árinni
tekið. Nú er því til dæmis
fleygt að allar andlitsaðgerð-
irnar hafi stefnt að því marki
að hann yrði sem næst tvífari
söngkonunnar Díönu Ross.
Miðað við útlit piltsins sýnist
þessi kjaftasaga ekki svo
galin en það er annað mál.
En nú keyrir um þverbak að
margra mati.
Hann hefur tryggt loppur
sjimpansans Bubbles fyrir
litlar 12 milljónir króna. Bub-
bles, eða Loftbólur, er besti
vinur Jacksons og sagður
meira en miðlungi greindur
api. Það er ekki að ástæðu-
lausu að Jackson tekur upp
á þessu, því að hann er búinn
að veija miklum fjármunum
og tíma í að þjálfa dýrið til
þess að leika á trommur á
væntanlegu músíkmynd-
bandi. Herma fregnir að ap-
inn sé efnilegur, en óvarlegt
sé að láta hann taka trom-
musóló.