Morgunblaðið - 06.01.1990, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 06.01.1990, Blaðsíða 1
56 SIÐUR B/LESBOK STOFNAÐ 1913 4. tbl. 78. árg. LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 1990 Prentsmiðja Morgunblaðsins Ungverjaland; Valdhafemir sagðir halda njósnum um stjómarandstöðuna Búdapest. Reuter og dpa. Stjórnarandstæðingar í Ungverjalandi lögðu í gær fram skjöl, sem þeir sögðu sanna að innanrikisráðuneyti landsins hefði látið njósna um stjórnarandstæðinga frá því lýðræðisumbótum var komið á í landinu í lok ársins 1988. Þeir kröfðust þess að innanríkisráðherr- ann segði af sér en kváðust ekki fara fram á afsögn forsætisráð- herrans vegna þess að þeir vildu ekki stjórnarkreppu í landinu. „Eg tel að núverandi valdhöfum sé ekki treystandi en Ungvetjum er enginn akkur í stjórnarkreppu rétt fyrir kosningarnar," sagði Las- zlo Kover, leiðtogi ungmennasam- Sviss: Með snjólétt- ustu vetrum í hálfa öld ZUrich. Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins. SNJÓLEYSIÐ í svissnesku Ölpunum er með versta móti í ár. Sérlræðingur'Snjó- og snjó- skriöustofnunarinnar í Weiss- fluhjoch fyrir ofan Davos sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að þetta væri þriðji til Qórði snjóléttasti veturinn á síðastliðnum 30 til 50 ár . Hann taldi ástandið vera svipað í löndunum í kring. Snjó er að finna fyrir ofan 2.000 metra hæð. Skíðafæri er best á jöklum þar sem skíðalyftur ganga langt fram á sumar og á stöðum þar sem gervisnjór er búinn til með snjóvélum. Fólki er ráðlagt að nota gömul skíði því steinar standa víða uppúr og það er hvergi hægt að renna sér niður í dal með góðu móti. Veðrið í fjöllunum undanfarnar vikur hefur verið afar fallegt svo ferðamenn hafa notið útivistar þrátt fyrir snjóleysi. Vötn og tjarnir sem eru venjulega þakin snjó á þessum árstíma bjóða nú upp á ljómandi skautasvell og ferðaráð fjallaþorpa standa yfir- leitt fyrir einhverri dagskrá til að hafa ofan af fyrir gestum. Hóteleigendur hafa enn ekki kvartað undan afpöntunum en þeim líst ekki á blikuna ef veðrið helst óbreytt. takanna Fidesz, sem ásamt frjáls- um demókrötum saka valdhafana um að hafa haft strangt eftirlit með stjórnarandstöðunni. Kover sagði að Miklos Nemeth hefði að öllum líkindum vitað að símar stjórnar- andstæðinga væru hleraðir, bréf þeirra opnuð og njósnað væri um starfsemi þeirra. Fyrstu fijálsu kosningarnar í Ungveijalandi eru áformaðar í mars, en kommúnistar hafa farið með völdin í rúm fjörutíu ár. Varna- og utanríkismálanefndir ungverska þingsins samþykktu í gær ályktun, þar sem hvatt er til þess að allur sovéski heraflinn í landinu verði f luttur burtu fyrir lok þessa árs. Reuter Mótmæli og verkföll í Búlgaríu Nokkur þúsund Tyrkja, sem búsettir eru í Búlgaríu, efndu til mótmæla í borginni Kurdzhali í gær til að krefjast þess að stjórn kommúnistaflokksins undir forsæti Petars Mladenovs stæði við þá ákvörð- sína að veita Tyrkjum rétt til að taka sér un múslímsk nöfn og iðka trú sína. Búlgarar, sem eru andvígir þessari ákvörðun, hafa einnig efnt til mót- mæla og verkfalla í ýmsum borgum landsins undan- farna daga og hóta allsheijarverkfalli ef leiðtogar kommúnistaflokksins falla ekki frá stefnu sinni. Kommúnistar í Litháen slíta öll tengsl við Moskvu; Gorbatsjov sagður sætta sig við flokksklofiiingmn Hefiir aflýst öllum fimdum með erlendum stjómarerindrekum Moskvu. Reuter, Daily Telegraph. FULLTRUI kommúnistaflokksins í Litháen, Vladímír Berejozov, gaf til kynna í gær, að Mikhaíl Gorbatsjov Sovétleiðtogi hefði sætt sig við þá ákvörðun kommúnista í Litháen að slíta öll tengsl við sovéska móðurflokkinn og höfuðstöðvar hans í Moskvu. Talið er að Gorbatsjov eigi í erfið- leikum með að fá félaga sína í stjórnmálaráðinu og miðstjórninni í Moskvu til að fallast á þessa skoð- un. Hefur hann aflýst öllum fund- um með erlendum stjórnarerindrek- um til næstu mánaðamóta til að geta helgað sig stjórninni heima fyt'ir. Mikhaíl Gorbatsjov hitti fulltrúa kommúnistaflokksins í Litháen í Moskvu í fyrrdag og gaf hann þar til kynna að hann gæti sætt sig við þá ákvörðun flokks lýðveldisins að slíta sambandi við sovéska komm- únistaflokkinn, að sögn Vladimírs Berejozovs, eins af helstu leiðtogum f lokksins í Litháen. Berejozov sagði í útvarpsviðtali í gær, að ekki væri allt fengið þó Gorbatsjov sýndi málstað þeirra skilning, því að ýms- ir ráðamenn sovéska f lokksins væru annarrar skoðunar. Hermt er að A-þýska sljórnarandstaðan sakar kommúnista um að vekja upp gamla drauga: Segja of mikið gert úr nýnasisma þeir óttist að önnur lýðveldi fylgi á eftir; flokkarnir þar segi einnig skilið við móðurflokkinn og setji fram sjálfstæðiskröfur. Með því að höggva á tengslin við Moskvu vill flokkurinn í Litháen treysta stöðu sína gagnvart almenningi. Gorbatsjov heldur til Litháens næstkomandi miðvikudag til við- ræðna við leiðtoga kommúnista- flokksins þar. Hefur enginn Sovét- leiðtogi frá því í byltingu bolsévíka 1917 þurft að glíma við flokks- klofning af þessu tagi. Gorbatsjov verður 10.-12. janúar í Litháen og er þetta fyrsta för hans þangað frá því hann komst til valda árið 1985. Gennadíj Gerasímov, talsmaður sovéska utanríkisráðuneytisins, sagði að Gorbatsjov myndi reyna að telja kommúnista lýðveldisins á það að sýna biðlund og fresta sam- Austur-Berlín. Reuter. STJÓRNARANDSTÆÐINGAR í Austur-Þýskalandi sökuðu koinniún- istaflokk landsins í gær um að vekja upp gamla drauga nasismans til að hafa ástæðu til að endurreisa hina illræmdu öryggislögreglu lands- ins. Þeir telja of mikið gert úr nýnasisma sem upp hafi komið og benda til dæmis á að börn hafi málað slagorð á minnismerki um sovéska hermenn milli jóla og nýárs. En opinberlega var mikið veður gert úr því að nýnasistar hefðu ráðist á minnismerkið. Dagblöð í Austur-Þýskalandi og sjónvarp eru þessa dagana full af frásögnum af nýnasistum. „Vissu- lega sjáum við hættuna á hægri öfg- um,“ segir talsmaður Nýs Vettvangs, „en hér er um að ræða vísvitandi herferð hjá Hans Modrow [forsætis- ráðherra] til að sá frækornum ótta og ryðja brautina fyrir endurreisn öryggislögreglunnar." Dagblaðið Junge Welt, sem komm- únistar stjórna, birti hins vegar frétt í gær þar sem spurt er: „Hefur bylt- ingin sinn framgang eða er gagn- bylting í fæðingu? .. Þeir sem segja að baráttan við fasisma sé móður- sýki skilja annað hvort ekki hræring- ar samtímans eða hafa aðrar ástæð- ur til að gera litið úr hættunni.“ Stjórnarandstæðingar segja að herferðin gegn nýnasisma sé hluti af víðtækari þróun þar sem komm- únistaflokkurinn, sem nú kallast Sósíalískur einingarflokkur Þýska- lands — Flokkur lýðræðislegs sósí- alisma, sé að sækja í sig veðrið á ýmsum vígstöðvum. Þeir benda á að útifundurinn á miðvikudag gegn nýnasisma^ sem haldinn var við minnismerki um sovéska hermenn sem féllu í seinni heimsstyijöldinni, hafi minnt óþægilega á gamla tíma. Þúsundir voru fluttar á staðinn í skipúlögðum rútuferðum og kórar sannfærðra kommúnista sungu and- fasíska söngva. Stefan Finger, tals- maður jafnaðarmanna, sem er einn stærsti f iokkur stjórnarandstæðinga, segist sjá túö hugsanleg 'markmið kommúnista með því að blása upp hættuná á nýnasisma: í fyrsta lagi að hræða þjóðina til að kjósa komm- únista í kosningunum í maí og í öðru lagi nð stimpla þá sem vilja samein- ingu þýsku ríkjanna sem nasista. Sjá: „Kommúnistar sakaðir . . .“ á bls. 16. bandsslitunum. í ljósi þessarat' ferðar Gorb- atsjovs til Litháens ákváðu leiðtogar kommúnistaflokksins í Lettlandi í gær að fresta fyrirhugðu flokks- þingi fram yfir heimsóknina. Þá hefur verið ákveðið að kalla saman þing eistneska kommúnistaflokks- ins í mars. Þar verður framtíð f lokksins til umræðu en borið hefur á flótta flokksmanna yfir í.nýstofn- aðan flokk, Sjálfstæða jafnaðar- mannaflokkinn. Sjá: „Landamæragirðingar rifnar . . .“ á bls. 17.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.