Morgunblaðið - 06.01.1990, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 06.01.1990, Blaðsíða 36
Jólaópera Útvarpsins Kl. 16:30 o ÚTVARPIÐ RÁS 1 0] LAUGARDAGUR 6. JANUAR 1990 VERÐ I LAUSASOLU 90 KR. Thatcher neitar við- ræðuni um Rockall STEINGRÍMUR Hermannsson forsætisráðherra hefur fengið bréf frá Margaret Thatcher for- sætisráðherra Breta þar sem hún hafhar viðræðum um Rock- all klettinn og svæðið umhverf- is hann. „Þetta bréf Thatcher er svar við málaleitan minni frá því fyrir rúmu ári, þegar ég fór þess á leit i~við hana í London, að þjóðirnar fjórar reyndu að leysa ágreining- inn um Rockall með viðræðum,“ sagði forsætisráðherra í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. „F'orsætisráðherra Breta neitar þessari málaleitan minni einfald- lega og segir norðurhluta Rock- ali-svæðisins tilheyra Bretum og bresku yfirráðasvæði, og engum öðrum,“ sagði Steingrímur. Steingrímur kvaðst ekki undr- _^ndi á þessu svari breska forsætis- ráðherrans en hann sagði jafn- framt að mikilvægt væri að þetta svar hefði fengist. Hann myndi í framhaldi þessa eiga fund með utanríkismálanefnd Alþingis, kynna efni bréfsins og ræða málið í heild við nefndina.. Formenn ríkisbanka skipaðir EYJÓLFUR K. Sigurjóns- son hefúr verið skipaður formaður bankaráðs Lands- banka íslands og Guðni Ágústsson formaður Búnað- arbanka ísfands. Jón Sigurðsson viðskipta- ráðherra skipaði í gær for- menn bankaráða Búnaðar- banka og Landsbanka. Um leið skipaði hann varaformenn í báðum ráðum. Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir verður vara- formaður bankaráðs Búnað- arbanka og Kristinn Finn- bogason varaformaður í Landsbankaráðinu. Stýrishús vörubifreiðarinnar er gjörónýtt og brann þar allt sem bunnið gat. Austur-Húnavatnssýsla: Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Gestur Fannar tveggja ára snáði slapp naumlega er bræður hans, Smári Rafin (til vinstri) og Hallgrímur Ingvar, björguðu honum út úr brennandi vörubíl á bænum Litlu-Giljá í fyrradag. Bjargað úr brennandi bíl Blönduósi. TVEGGJA ára drengur, Gestur Fannar Steingrímsson, slapp naum- lega þegar vörubíll í eigu foður hans brann í fyrradag á bænum Litlu-Giljá í Austur-Húnavatnssýslu. Það voru bræður drengsins litla sem björguðu honum út úr vörubílnum á síðustu stundu og var þá mikill reykur inni í bílnum. Það var á tólfta tímanum í fyrra- dag sem eldur varð laus í stýris- húsi á vörubifreið bóndans á Litlu- Giljá og var litli drengurinn einn í bíinum. Skammt frá var faðir hans að vinna á dráttarvél og bræður Gests voru ekki langt undan við að tína saman spýtnarusl upp á vörubílinn. Steingrímur Ingvarsson faðir Gests litla sagðist ekkert hafa orðið var við hvað var að gerast fyrr en strákarnir rifu upp dyrnar á vörubílnum og náðu Gesti út. Það mátti heldur ekki tæpara standa því skömmu síðar var stýrishúsið alelda og brann þar allt sem brunn- ið gat. Steingrímur sagðist þá þeg- ar hafa stokkið inn í vörubílinn og drepið á vélinni en þurft að henda sér út vegna eldsins. Steingrímur gat þess að reynt hefði verið að nota handslökkvitæki en bæði tæk- in sem hann hafði yfir að ráða entust ekki meira en í tíu sekúndur hvort. Sama gilti um slökkvitæki sem bóndinn á næsta bæ kom með. Steingrími Ingvarssyni tókst að bjarga vélinni í bílnum með því að leggja stýrishúsið fram. Bræðurnir Hallgrímur Ingvar, 11 ára, og Smári Rafn, 17 ára, sögðu að þegar þeir litu í átt að vörubílnum hefðu þeir séð hendur litla bróður síns krafla í hliðarrúðu og þótt einkennilegt hversu allt var dimmt og grátt inni í bílnum en áttað sig fljótt hvað var á seyði og komið bróðir sínum til bjargar á elleftu stundu eins og fyrr segir. Steingrímur Ingvarsson telur líklegustu skýringuna á brunanum vera þá að kviknað hafi í út frá miðstöð. Gesti Fannari varð ekkert meint af og má teljast mikil mildi að ekki fór verr. Jón Sig. Tilboð Landsbankans í Samvinnubankann: Erlend lán SÍS gjaldfelld hafiii stjómin tilboðinu STJÓRN Sambands íslenskra samvinnufélaga frestaði í gær fundi sínum til morguns, og þar með ákvarðanatöku um það hvort tilboði Landsbankans í hlut Sambandsins í Samvinnubankanum verður tek- ið eða ekki. Morgunblaðið hefur upplýsingar um að tvísýnt hafi ver- ið talið hver niðurstaða yrði ef til atkvæðagreiðslu hefði komið á fundinum í gær og því hafi málinu verið frestað. Steingrímur HeiTnannsson, for- I ardrottnar Sambandsins muni jafn- sætisráðherra, telur að erlendir ián- | vel ákveða að gjaldfella erlendar skuldir fyrirtækisins, ef stjórnin hafnar tilboði Landsbankans. Morg- unblaðið hefur upplýsingar um að Hambrosbanki hafi þegar ákveðið að gera svo, verði tilboðinu hafnað. Forsætisráðherra segist telja að það geti haft alvarleg áhrif á láns- traust Islands erlendis, ef erlendir Fiskvinnsla íslenzka úthafsútgerðarfélagsins við strendur Alaska: Andra neitað um vinnsluleyfi BANDARÍSKA viðskiptaráðuneytið hefúr neitað íslenska úthafsút- gerðarfélaginu, ÍSÚF, um heimild til að vinna afla úr bandarískum fiskiskipum um borð í Andra BA við strendur Alaska frá og með -áramótum. Skipið kom á miðin rétt fyrir áramót og hafði fengið smáslatta um borð til tilraunavinnslu þegar frekari vinnsla var bönn- uð. Þrátt fyrir tilraunir utanríkisráðherra íslands og Bandaríkjanna og bandaríska sendiherrans á íslandi hefúr leyFið ekki fengist og var því síðast neitað í gær. Halldór Ásgrímsson sjávarút- vegsráðherra hefur sent bandaríska viðskiptaráðherranum, Robert A. Mosbacher Sr., bréf vegna þessa, ^jar sem hann minnir á milliríkja- samninga um að þessar heimildir skuli veittar. Minnt er á mikilvægi þess fyrir bina íslensku aðila að samningarnir verði haldnir og lýkur bréfinu með yfirlýsingu um að íslenski sjávarútvegsráðherrann vonist til að þeim megi takast að leysa þetta aðkallandi og alvarlega mál í þeim anda sem alltaf hafi verið á milli tveggja náinna banda- manna. Ragnar S. Halldórsson fram- kvæmdastjóri ÍSÚF segir að fái félagið ekki leyfið, séu það brigð á samningum miili Bandaríkjanna og íslands. Ragnar kveðst telja að neituninni hafi ráðið embættismenn og bindur hann vonir við að viðskiptaráð- herrann vilji efna samkomulag það, sem í gildi er milli bandarískra og íslenskra stjórnvalda, um heimildir íslendinga til að vinna fisk í banda- rískri lögsögu í samvinnu við þar- lend fyrirtæki. Samningsaðili ÍSÚF í Banda- ríkjunum, Associated Vessel Servic- es, fór í gær fram á að‘ Andra BA yrði úthlutaður vinnslukvóti fyrir þetta ár. Svar barst strax frá bandaríska viðskiptaráðuneytinu um bandaríska utanríkisráðuneytið og var einföld neitun án útskýringa. Morgunblaðið hafði í gærkvöldi samband við bandaríska viðskipta- ráðuneytið, en þar var þá ekki sagð- ur neinn viðstaddur til að ræða málið. lánardrottnar Sambandsins tapi milljörðum króna, vegna við- skipta við Sambandið. „Eg held að þegar svona er orðið geti ríkisvald- ið aldrei litið framhjá því að öllu leyti," sagði Steingrímur og að- spurður um hvað ríkisstjórnin myndi gera, ef tilboðið verður fellt sagði forsætisráðherra: „Ríkis- stjórnin gerir nú kannski lítið á fyrsta stigi. Hún hefur enga heirn- ild til þess að veita ríkisábyrgðir, eða annað þess háttar. Það verður ekki gert án laga frá Alþingi. Verði tilboði Landsbankans hafn- að mun það þýða mjög mikla erfið- leika fyrir Sambandið og líklega fyrir Landsbankann líka,“ sagði forsætisráðherra. Þó að óánægja ríki með áramóta- tilboð Landsbankans innan Sam- bandsins mun Guðjón B. Ólafsson, forstjóri Sambandsins þeirrar skoð- unar að úr því sem komið er sé ekki um annað að ræða fyrir Sam- bandið en taka því. Heimildir Morg- unblaðsins herma að verði niður- staða Sambandssfjórnar á annan veg, muni Guðjón þegar í stað segja starfi sínu lausu hjá Sambandinu. Sjá frásögn á bls. 2.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.