Morgunblaðið - 06.01.1990, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 06.01.1990, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 1990 Frá stjórnarfundi Sambands íslenskra samvinnufélaga í Sambandshúsinu í gær. Stjórn Sambandsins: Tvísýnt um tilboð Landsbankans í hlut SIS í Samvinnubankanum STJÓRN Sambandsins frestaði fimdi sinum eftir fimm og hálfa klukku- stund í gær til sunnudagsmorguns. Það ræðst því ekki fyrr en í fyrra- málið hvort Sambandsstjórn tekur tilboði Landsbankans í hlut Sam- bandsins í Samvinnubankanum eða ekki. Ástæður þess að fundinum var frestað munu fyrst og fremst þær að talið hafi verið tvísýnt um það hver niðurstaðan yrði í atkvæðagreiðslu um tilboðið. Því hafi ver- ið ákveðið að fresta málinu til morguns og vinna þannig tíma til þess að kynna þeim stjórnarmönnum sem andvígir eru tilboðinu, hvaða af- leiðingar það geti haft fyrir Sambandið, verði tilboðinu hafnað. Viðmæl- endur Morgunblaðsins voru flestir á því í gær, að ef tilboðinu verður hafiiað, muni Guðjón B. Ólafsson forstjóri Sambandsins segja upp starfi sínu þegar I stað. Stöð 2: Fyrri aðal- eigendur til- búnir með hlutaféð FYRRI aðaleigendur Stöðvar 2 tilkynntu sljórn eignarhaldsfé- lags Verslunarbankans í gær að þeir væru tilbúnir að greiða það hlutafé sem þeir höfðu lofað að leggja fram, 150 milljónir króna. Þorvarður Elíasson, stjórnarmað- ur í eignarhaldsfélagi Verslunar- bankans og varaformaður stjórnar íslenska sjónvarpsfélagsins hf., sagði við Morgunblaðið í gær- kvöldi, að fyrri aðaleigendur Stöðv- ar 2 hefðu tilkynnt sér seint í gær- dag að þeir væru tilbúnir að greiða hlutaféð, og yrði gengið frá málinu eftir helgina. Eignarhaldsfélagið hefur tekið að sér að kaupa eða selja 250 millj- ón króna hlutafé í Stöð 2. Þorvarð- ur sagði að mikill áhugi væri á hlutafénu, en ekki hefði veriðgeng- ið frá neinu í því sambandi. Skákmótið í Reggio Emilia: Margeir tapaði fyrir Ehlvest Reggio Emilia. Frá Gunnari Finnlaugssyni fréttaritara Morgunblaðsins. MARGEIR Pétursson tapaði fyrir Jaan Ehlvest í 8. umferð skák- mótsins. Margeir hafði svart og náði góðri stöðu en lék illilega af sér og gafst upp eftir 45 Ieiki. Önnur úrslit urðu þau að Beljavskíj og Ivantsjúk gerðu jafntefli, sömu- leiðis Gúrevitsj og Andersson og Karpov og Ribli. Portisch vann De- Firmian en Georgiev sat yfir. Staðan er sú að Ehlvest er efstur með 5 'h vinning úr 7 skákum. Ivant- sjúk er annar með 5 vinninga úr 7 skákum. Gúrevitsj og Ribli eru í 3.-4. sæti með 4'A vinning úr 8 skákum. Margeir er með í 7.-9. sæti með 3 vinninga úr 7 skákum. Morgunblaðið hefur heimildir fyrir því að ríkisstjórnin hafi rætt þetta mál á fundi sínum í gærmorgun og að miklar áhyggjur hafi komið fram um hvaða afleiðingar það hefði í för með sér, m.a. hvað varðar lánstraust íslendinga erlendis, ef tilboðið verður fellt, og erlendir lánardrottnar Sam- bandsins gjaldfella skuldir þess í kjöl- farið. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins liggur fyrir ákvörð- un hjá Hambrosbanka, sem er stór lánardrottinn Sambandsins, að takist fyrirtækinu ekki að rétta úr kútnum með sölu hlutar síns í Samvinnubank- anum verði skuldir þess gjaldfelldar. Talið er að aðrir erlendir lánardrottn- ar myndu gera slíkt hið sama. Steingrímur Hermannsson forsæt- isráðherra. sagði í samtali við Morg- unblaðið að hann teldi að ef tilboðið yrði fellt, gæti það haft í för með sér gjaldfellingu erlendra skulda. Forsætisráðherra sagðist telja að ef erlendir lánardrottnar Sambands- ins töpuðu jafnvel milljörðum króna, við það að gjaldfella skuldir Sam- bandsins, sem eru að mestu án trygg- inga, hefði slíkt óskapleg áhrif á þau lánskjör sem ísland nýtur erlendis. „Ég held að þegar svona er orðið, þá geti ríkisvaldið aldrei litið fram- hjá því að öllu leyti,“ sagði Steingrímur. Aðspurður um hvað ríkisstjórnin hygðist gera, ef svo færi, sagði for- sætisráðherra: „Ríkisstjórnin gerir nú kannski lítið á fyrsta stigi. Hún hefur enga heimild til þess að veita ríkisábyrgðir, eða annað þess háttar. Það verður ekki gert án laga frá Alþingi." „Verði tilboði Landsbankans hafn- að, mun það þýða mjög mikla erfið- leika fyrir Sambandið og líklega fyr- ir Landsbankann líka,“ sagði Steingrímur. Þeir Guðjón B. Ólafsson forstjóri, Ólafur Sverrisson stjórnarformaður og Þorsteinn Sveinsson varaformað- ur stjómar viku af fjmm og hálfs tíma fundi Sambandsstjómar um miðjan dag í gær til þess að eiga fund með bankastjórum Landsbank- ans. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins fengu þeir sambands- menn staðfestingu á því hjá Lands- bankastjórunum að tilboð bankans væri endanlegt og því yrði ekki breytt. Þá hefur Morgunblaðið upplýsing- ar um að þeir sem helst em andvíg- ir því að tilboði Landsbankans verði tekið vilji kanna til hlítar hvort hægt verður að ná betra verði fyrir bank- ann með því að selja ESSÖ og Sam- vinnusjóðnum hlutabréfin, en ekki Landsbankanum, en þeir sem telja sig þekkja hvað best til vanda Sam- bandsins segja að slíkt væri ekkert annað en upphafið að gjaldþroti Sambandsins. Samkvæmt upplýsing- um Morgunblaðsins liggur fyrir sú ákvörðun Landsbankans, að hafni Sambandsstjórn tilboði Landsbank- ans, sé þar um endanlega niðurstöðu að ræða og ekki verði um frekari samningaviðræður að ræða milli að- ila um þettá mál. Sverrir Hermannsson bankastjóri Landsbankans sagði í gærkveldi að engin dagsetning hafi verið ákveðin í tilboði bankaráðs Landsbankans. Því væri ekkert um málið að segja, en öllum mætti vera ljóst að hraða þyrfti ákvarðanatöku. Ólafur Sverrisson stjórnarfor- maður sagði að skoðanir hefðu verið skiptar á fundinum um tilboð Lands- bankans. Tíminn til morguns yrði notaður til þess að afla frekari upp- lýsinga í málinu og kanna stöðuna. Reykjavík kaupir Vatns enda fyrir 172 milljónir ganga inn í DAVÍÐ Oddsson borgarstjóri og Magnús Iljaltested bóndi á Vatns- enda í Kópavogi, undirrituðu í gær samkomulag um kaup Borgar- sjóðs Reykjavíkur á Vatnsendajörð fyrir 172 milljónir króna. Sam- komulagið er með fyrirvara um forkaupsrétt Kópavogsbæjar að jörðinni, og einnig að Alþingi samþykki lög um heimild borgarinn- ar til eignarnáms og sölu á landinu, nýti Kópavogur ekki forkaups- réttinn. Borgarráð samþykkti kaupsamkomulagið samhljóða í gær. Bæjarstjóri Kópavogs segir að það verði ekki þolað að Reykjavíkurborg eignist Vatnsendaland, en Kópavogur hefur 28 daga frest til að ganga inn í samninginn. Kópavogur hefur 28 daga til að samkomulagið Kauptilboð Reykjavíkurborgar hljóðaði upp á 162 milljónir króna sem greiddist á 16 árum en sam- komulagið er um 170 milljónir sem greiðist á 11 árum. Þar af sé út- borgun 12 milljónir en 158 milljón- ir greiðist með skuldabréfi til 10 ára. Talið er um landið sé um 550 hektarar að stærð. Davíð Oddsson borgarstjóri sagðist vera ánægður með að þessi kaup hafi gengið eftir. „Ég held að þetta sé mjög eðlilegt verð og ég yrði mjög ánægður ef borgin eignaðist Vatnsendaland, þegar upp verður staðið,“ sagði Davíð. Kristján Guðmundsson bæjar- stjóri Kópavogs sagði að bæjar- yfirvöld teldu sig hafa 28 daga frest til að taka ákvörðun um að ganga inn í samninginn. „Við höf- um þó lýst því yfir í fjölmiðlum að við þolum það ekki að Reyk- víkingar eignist Vatnsendaland," sagði Kristján. Hann sagði að menn yrðu að gera sér grein fyrir því, að á Vatnsendalandi byggju um 300 manns, og Kópavogur hefði þegar komið fram með hug- myndir um skipulag á þessu svæði, þótt skipulaginu hafi verið frestað. Davíð Oddsson sagði um þetta að ekkert væri við því að segja, ef Kópavogsmenn brygðust við þessu með því að ganga inn í sam- komulagið. „Mér finnst það þó nokkuð sérkennilegt, því ef menn skoða kortið sem birtist í Morgun- blaðinu í vikunni, þá sést hvað landið liggur miklu betur við Reykjavík. Þeir þurfa að sveigja fyrir borgina til að nálgast landið, en borgin er allt um kring. En þeir hafa góðan tíma til að átta sig á þessu og sannfærast um að það sé hægt að gera góða sátt við okkur,“ sagði Davíð. Hann sagði að Reykjavík ætlaði að nota landið annars vegar til byggðar og hins vegar til útivist- ar, og teldi að með góðu móti væri hægt að koma þar fyrir íbúðabyggð fyrir 9-12 þúsund manns. Sérstakt samkomulag þarf að gera milli Kópavogs og Reykjavík- ur til að breyta lögsögumörkunum við Vatnsenda. Þótt Reykjavíkur- borg eignist Vatnsendaland telst það til Kópavogs þar til um annað semst. Reykjavíkurborg á land í ýmsum öðrum lögsagnarumdæm- um, svo sem í Mosfellssveit, Grafn- ingi, Kjalamesi og á Snæfellsnesi, og íbúar þar greiða gjöld og sækja þjónustu til viðkomandi sveitarfé- laga. Ef miðað er við að Reykjavíkur- borg sé að kaupa 500-550 hektara lands fyrir 172 milljónir króna er verð á hektara lægra en á öðrum jörðum í nágrenni Reykjavíkur sem borgin hefur keypt undanfar- ið. Hjörleifur Kvaran, fram- kvæmdastjóri lögfyæði- og stjórn- sýsludeildar borgarinnar, sagði um þetta að hluti af landinu væri ekki byggingarland heldur hraun. Einnig þyrfti að kaupa töluvert af sumarhúsum sem þarna eru, áður en hægt væri að nýta landið sem byggingarland. Þess vegna væri raunverulegt verð á landinu hærra en þetta samkomulag segð’ til um.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.