Morgunblaðið - 06.01.1990, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 1990
t
lést
JÓHANNES BJÖRNSSON
veggfóðrarameistari,
Bólstaðarhlíð 45,
áður Skarphéðinsgötu 14,
Borgarspítalanum 4. janúar.
Ingólfur Jóhannesson,
Þórunn B. Finnbogadóttir.
t
Hjartkær faðir okkar,
GUÐMUNDUR ELÍAS BJARNASON
járnsmiður
frá Túni,
Bólstaðarhlíð 68,
lést 4. janúar í Heilsuverndarstöð Reykjavikur.
Valgerður Guðmundsdóttir,
Guðfinna Guðmundsdóttir,
Guðjón Guðmundsson,
Unnur M. Guðmundsdóttir.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ÞURÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR,
Grandavegi 47, Reykjavík,
(áður til heimilis á Lindarbraut 4, Seltjarnarnesi),
lést á heimili sínu 4. janúar síðastliðinn.
Haukur Björnsson, Kristín Jónsdóttir,
Pétur Björnsson, Olga Guðmundsdóttir,
Sigurður Björnsson, Hildur Sigurbjörnsdóttir,
Steingrímur Björnsson, Bryndís Snæbjörnsdóttir
og barnabörn.
t
Systir okkar,
GUÐRÚN ÁRNADÓTTIR
hjúkrunarkona,
Sólheimum 23,
lést í Landspítalanum 3. janúar.
Baldina Árnadóttir,
Guðbjörg Árnadóttir,
Ásdís Árnadóttir
og aðrir vandamenn.
t
Útför hjartkærs sonar okkar, bróður og mágs,
JÓNS EIÐS GUÐMUNDSSONAR,
sem lést 1. janúar sl., verður gerð frá Siglufjarðarkirkju í dag,
laugardaginn 6. janúar, kl. 13.30.
Margrét Jónsdóttir,
Guðmundur Jónasson,
Jónas Guðmundsson, Anh-DaoTran
Arnfríður Guðmundsdóttir, Gunnar Rúnar Matthíasson.
Sigríður Helgadóttir
frá Grund - Minning
Hún amma mín, Sigríður Helga-
dóttir, Grund, Garði, er dáin. Hún
fékk hægt andlát að kvöldi 30. des-
ember síðastliðins.
Amma fæddist á Ósabakka á
Skeiðum 20. marz 1899. Foreldrar
hennar voru Helgi Jónsson og Kristj-
ana Friðrikka Einarsdóttir. Systkini
hennar voru Einar, Jón, Vigdís og
Kristín, sem öll eru látin. Helgi fað-
ir hennar dó frá ungum börnum
sínum og tvístraðist þá hópurinn.
Kristjana fór með Einar og Sigríði
að Reykjum á Skeiðum en hin böm-
in fóru á aðra bæi. Amma var á
Reykjum fram undir tvítugsaldur en
þá fór hún suður í Garð til Einars
bróður síns, er þar var seztur að.
Hóf hún þá að nema saumaskap hjá
Dagbjörtu, konu Einars. Á þessum
árum kynntist hún afa mínum, Jú-
líusi Rósant Guðlaugssyni frá Þing-
holti í Garði, og gengu þau síðar í
hjónaband. Áfi hafði reyndar verið
smali á Reykjum í eitt sumar, er þau
vom bæði unglingar, svo það má
kannske segja að þau hafi þar end-
urnýjað gömul kynni. Raunar minnir
mig að afi hafi einhvem tímann
verið að grínast með það, að ekki
hafi þeim þó komið sérlega vel sam-
an, er þau vom á Reykjum. Allt um
það þá hófu þau búskap á Garð-
skaga árið 1928 og fluttust svo að
Grund árið 1933, eftir að afi byggði
þar hús. Þau eignuðust tvö böm,
Þómnni f. 1928 og Kristján f. 1933.
Þómnn, sem býr í Reykjavík, eignað-
ist fjögur börn og Kristján, búsettur
í Keflavík, eignaðist fímm böm. Alls
em barnabarnaböm Sigríðar og Jú-
líusar orðin sextán að tölu.
Júlíus lézt árið 1973. Bjó þá
Sigríður ein á Gmnd í nokkur ár.
Var hún fótaveik og átti erfitt með
gang sem smám saman ágerðist.
Kom þar að hún gat ekki búið ein
lengur og flutti þá á vistheimilið
Garðvang í Garði. Var hún þar til
dauðadags og naut góðrar aðhlynn-
ingar frá starfsfólkinu þar. Hún
hafði unun af lestri góðra bóka og
pijónaði alla tíð mikið. Einnig hafði
hún gaman af að grípa í spil á spila-
kvöldum á Garðvangi. Hélt hún and-
legum skýrleika sínum vel framund-
ir það síðasta og fylgdist af athygli
með málefnum og fyrirtektum af-
komenda sinna. Hafði hún alltaf eitt-
hvað um það að segja og til málanna
að Jeggja.
Ég var alinn upp á Grund hjá afa
og ömmu. Veit ég vel, að enn stend
ég á þeim grunni er hún svo nostur-
samlega hlóð. Er ég var drengur í
skóla, hafði amma á því mikinn
áhuga og tók beinlínis þátt í nám-
inu. Hún var alla tíð mjög metnaðar-
gjörn fyrir mína hönd. Hvatningar-
orð hennar hafa haft djúp áhrif á
líf mitt.
Amma var dul kona og bar tilfinn-
□ St:.St:. 5990164 Rh. Kl. 16.00
□ Gimli 599008017 - 1 Atkv.
□ Mimir 5990187=1
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3
SÍIIAR11798 Ofi19533.
Sunnudagsferö
7„ janúar kl. 13.00
Óttarsstaðir-Kapellan í hraun-
inu, Gengið um Rauðamel,
Slunkaríki, Lónakot og Óttar-
staði að Kapellu heilagrar Bar-
böru. Mætið vel í fyrstu dags-
göngu ársins. Fararstjóri: Kristj-
án M. Baldursson. Verð kr.
500,-, frítt fyrir börn með full-
orðnum. Brottför frá Umferðar-
miöstöðinni (BSÍ), austanmegin.
Ferðafélag íslands óskar öllum
gleðilegs nýs ferðaárs. Strengið
þess heit að vera með í sem
flestum ferðum á árinu ykkur til
fróðleiks, skemmtunar og
heilsubótar.
Ný og fjölbreytt ferðaáætlun
1990 var að koma út. Henni
verður dreift viða og einnig send
til allra félagsmanna F.l.
Myndakvöld á miðvikudags-
kvöldið 10. janúar kl. 20.30. i
Sóknarsalnum, Skipholti 50a.
Vetrarkvöldsganga og blysför á
fimmtudagskvöldið 11. janúat k.
20.00.
Þorrablótsferð í Þórsmörk
verður helgina 2.-4. febrúar.
Þingvallaferð sunnudaginn 14.
janúar kl. 11.00.
Góða ferð!
Feröafélag (slands.
Þrettándaganga
laugard. 6. jan.
Frá Árbæjarsafrii kl. 16.00.
Gengiö í Ijósaskiptunum eftir
skemmtilegri leið að Álfabrennu
við Snælandsskóla. Dagskrá fé-
laganna Líf í Fossvogsdal og
Skátafélagsins Kópa hefst kl.
17.00. Rútuferð til baka.
Kirkju- og nýársferð
sunnud. 7. jan.
Breiðabólsstaður í Fljótshlfð.
Gengið um Krappann með Jóni
Arngrímssyni á Árgilsstöðum og
Sigurþóri Sæmundssyni frá
Þórnúpi. Krappinn er náttúruvin
sem fáir þekkja. Að Breiðabóls-
stað heldur séra Sváfnir Svein-
bjarnarson helgistund og segir
sögu staðarins. Brottför frá
B.S.I. - bensínsölu kl. 11.00.
Verð kr. 1.200,-
Fjölmennum ( fyrstu dagsferð
ársins.
Kvöldferð í Viðey
Fimmtud. 11. jan.
Tunglskinsganga og fjörubál.
Brottför kl. 20.00 frá Viðeyjar-
bryggju, Sundahöfn.
Sjáumst!
Útivist.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Almenn bænasamkoma i kvöld
kl. 20.30.
ingar sínár ekki á torg. Leti eða
sérhlífni þekkti hún ekki. Yfirborðs-
mennska og fals voru henni langt
frá skapi. Kom hún ætíð til dyranna
eins og hún var klædd og bað ekki
afsökunar á þyí. Sumum þótti hún
vera nokkuð þung í lund. Hún var
þó yfirleitt í góðu skapi, þótt ekki
væri hún syngjandi glöð svo á bæri.
En það var S samræmi við persónu-
leika hennar. Fyrir þeim sem þekktu
hana vel, bjó hún yfir miklu skop-
skyni.
Mörg voru þau mál, sem við amma
ræddum í gegnum tíðina. Hún hafði
sérlega gaman af að segja mér frá
árunum á Reykjum, er hún var ung
stúlka. Hún talaði um þann tíma sem
sína „gömlu daga“ og oft fann ég á
henni að þetta voru líka góðir dag-
ar. Stundum bar hún sparsemi og
nýtni þeirra tíma saman við það sem
henni fannst vera óráðsía óg bruðl
samtímans. Einhveiju sinni spurði
ég hana að því, hvað væri það bezta
sem hún hefði gert um ævina. Hun
svaraði af bragði: „Að eignast ykkur
krakkana."
Amma var mjög trúuð og hafði
af trú sinni mikinn styrk. Hún var
sannfærð um að þetta líf yæri að-
eins hluti af veruleika mannsins og
að eitthvað betra tæki við hinum
megin.
Það er með mikilli þökk og virð-
ingu sem ég kveð hana ömmu mína
nú. Blessuð sé minning hennar um
ókomna tíð.
Róbert Magnússon
Minning:
Þórhallur Bjama-
son, Hvammstanga
Fæddur 24. október 1899
Dáinn 23. desember 1989
Sem sjálfur Drottinn mildum lófum iyki
um lífsins perlu í gullnu augnabliki -
(T.G.)
Langri og farsælli lífsgöngu góðs
manns er lokið. Þórhallur er líka
horfinn yfir landamærin miklu. Líka
- vegna þess að Þóra var farin á
undan honum og í mínum huga eru
þau tengd svo nánum böndum að
vart verður annars getið án þess að
hins 'sé minnst í sömu andránni.
Þórhallur Bjarnason átti ættir að
rekja til Eyjafjarðar, en snemma lá
leið hans vestur á Vatnsnes er hann
kom ungur til fósturs hjá föðurbróð-
ur sínum á Flatnefsstöðum. Á þeim
slóðum lágu síðan spor hans.
Þórhallur kvæntist 11. september
1920 Þóru Sigvaldadóttur, sem var
fædd 3. maí 1899 að Múla í Kirkju-
hvammshreppi. í full sextíu ár auðn-
aðist þeim ástrík samfylgd en Þóra
lést 2. janúar 1981.
Frá barnæsku man ég Þórhall sem
hæglátan mann,_brosmildan og hlýj-
an í viðmóti. Ég man góðlátlega
glettni og stundum svolítinn stríðnis-
glampa í augunum en ævinlega var
gamanið græskulaust. Aldrei minn-
ist ég þess að heyra Þórhall leggja
illt til nokkurs manns, né heldur að
aðrir bæru honum nema gott orð.
Hjá honum og Þóru frænku minni
átti ég löngum annað heimili á ungl-
ingsárum og svo var um fleiri af
okkur systkinum. Dvölin hjá þeim
varð okkur veganesti sem seint verð-
ur metið að verðleikum, en yljar í
minningunni. Þess vegna var líka
jafn sjálfsagt að koma við á Brekku
eins og að vitja átthaganna eftir að
sest var að í fjarlægum landshluta.
Þó að húsrými væri ekki mikið í
litla húsinu á brekkunni var aldrei
svo þröngt að ekki væri hægt að
veita gestum beina og húsaskjól.
Án efa hefur ómælt umstang og
fyrirhöfn fylgt sítélldum gestagangi,
en það sjónarmiö ríkti ekki þar.
Gestrisni og hjartahlýja sátu í önd-
vegi og allir voru veíkomnir.
I eftirmælum um Þóru vitnaði
faðir minn til þeirra orða Bólu-
Hjálmars „að Guð á margan gim-
stein þann/ sem glóir í mannsorp-
inu“. Það á engu síður við um Þór-
hall. Bæði voru þau rík af andlegum
verðmætum sem eins og glitrandi
gimsteinar stöfuðu birtu á veg sam-
ferðamanna. Þau voru samhent í
lífsbaráttunni, einhuga um að gera
öllum gott. Allt dagfar þeirra bar
vitni um gagnkvæma virðingu og
ástúð svo að af bar og öllum sem
kynntust þeim hlaut að þykja vænt
um þau.
Fjölskylda Guðjóns á Ásbjarnar-
stöðum biður dætrum Þórhalls og
öllum afkomendum blessunar og
huggunar á kveðjustund. Þakkir
okkar allra fylgja Þórhalli til fegurri
heims.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama.
En orðstír
deyr aldregi
hveim er sér góðan getur.
(Hávamál)
Þórdís Guðjónsdóttir
t
Innilegar þakkir fyrir vináttu og samúð við fráfall móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
MARGRÉTAR SAMÚELSDÓTTUR,
Fossvogsbletti 13.
Samúel D. Jónsson,
Dóra G. Jónsdóttir,
Stefán Jónsson, Kolbrún Þórðardóttir,
Jón J. Jóhannsson,
Steinunn Stefánsdóttir.