Morgunblaðið - 06.01.1990, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 06.01.1990, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 1990 Austur-Þýskaland: Kommúnistar sakaðir um að vilja ekki afsala sér völdum Austur-Berlín, Bonn. Reuter og dpa. RÍKISSTJÓRN Vestur-Þýskalands gagnrýndi kommúnista í Austur- Þýskalandi harðlega í gær fyrir að reyna með brögðum að vinna bug á stjórnarandstöðunni í landinu. Framkvæmdastjóri þing- flokks Kristilegra demókrata, Fri- edrich Bohl, tók undir þessa gagn- rýni og lét svo ummælt að nú ætti sér stað ný valdataka sósía- lista í landinu. Hann sakaði komm- únista um að Ijúga að stjórnarand- stöðunni í hringborðsviðræðunum sem nú fara fram og beita pappírs- skömmtun til að hindra prent- frelsi. Ýmsir vestur-þýskir stjórnmála- leiðtogar óttast að kommúnistum, sem reyna nú ákaft að breyta harðlínuímynd flokks síns, takist að notfæra sér tökin á opinberum fjöl- miðlum og sjóðum ásamt helstu stjómstöðvum til að snúa á reynslu- lausa og margklofna andstæðinga sína og sigra í kosningum í maí næstkomandi. „Kommúnistar mega ekki svíkja fólk í Austur-Þýskalandi um ávexti friðsamlegar byltingar þess með nýjum valdhroka," sagði Volker Riihe, talsmaður stjómar- flokks Kristilegra demókrata í V- Þýskalandi. Hann skoraði einnig á kommúnista að skýra frá þeim auðæfum sem f lokkurinn hefði sank- að að sér á valdaferlinum. Talsmenn Fijálsra demókrata og Oscar La- fontaine, varaformaður í flokki v- þýskra jafnaðarmanna, hafa tekið undir gagnrýninx Kommúnistaflokkurinn vísaði þessari gagnrýni á bug í gær og lýsti því yfir að flokkurinn hefði gert ýmislegt til að auðvelda stjómarand- stöðunni að koma undir sig fótunum. Kosningabandalag stjórnarandstöðunnar Sex flokkar og hópar stjórnarand- stæðinga í Austur-Þýskalandi hafa ákveðið að starfa saman í þing- kosningum, að sögn austur-þýsku fréttastofunnar ADN. Þekktasti hóp- urinn er Nýr vettvangur er hafði forystu í mótmælaaðgerðunum sem urðu til að hnekkja áratuga einræði kommúnista. Auk Nýs vettvangs eiga jafnaðarmenn, samtökin Lýð- ræðisvakning (Demokratischer Auf- bruch), er margir kirkjunnar menn styðja, og þrenn önnur samtök aðild að bandalaginu. Talsmaður græn- ingja, Gerhard Bácher, sagði þetta vonlausa tilraun; skoðanamunur hóp- anna væri allt of mikili. „Þetta er algert ragl og verður búið að leggja upp laupana í næstu viku. Hvemig er hægt að ná málamiðlun milli Trotskíista og stuðningsmanna ftjáls markaðsbúskapar?" spurði Bácher. Vitað er að Lýðræðisvakning er hlynntara sameiningu þýsku ríkjanna tveggja en hinir hópamir fimm og einnig er deilt um af leiðing- ar þess að innleiða umbætur í átt til markaðsbúskapar. Eitt eru hópamir sammála um: Samvinna við komm- únista og flokka meðreiðarsveina þeirra undanfarna fjóra áratugi kem- ur ekki til mála. Yfírburðaaðstaða kommmúnista Nýleg skoðanakönnun gaf komm- únistum 34% fylgi, Kristilegum dem- ókrötum 7,9% og jafnaðarmönnum 5,4%, aðrir sex af hundraði eða minna. Það þykir kaldhæðnislegt að þrír þekktustu og vinsælustu stjóm- málamenn landsins era allir komm- únistar; Gregor Gysi flokksleiðtogi, Hans Modrow forsætisráðherra og Wolfgang Berghofer, borgarstjóri í Dresden. Margir telja Berghofer væntanleg- an flokksleiðtoga. Hann varaði við því á miðvikudag að klofningur stjómarandstöðunnar gæti haft í för með sér upplausn að loknum fijálsum kosningum. Jafnframt réðst hann á vestur-þýska flokka fyrir að skipta sér af austur-þýskum stjómmálum. Flokkarnir hafa veitt bræðraf lokkum Mesta hættan liðin hjá Vindáttir hafa beint olíbrákinni við strendur Marokkó lengra frá landi og er mesta hættan á stórfelldu mengunarslysi þar liðin hjá í bili að minnsta kosti. Spánverjar sem eru uggandi út af þessu máli hafa neitað eigendum íranska olíuskipsins Kharg-5 um hafnaraðstöðu á Kanaríeyjum. Skipið er nú statt um 300 mflur norður af Marokkó-strönd og er í ráði að það leggist við festar um 200 sjómílur suður af Kanaríeyjum þar sem olíunni úr því verði dælt um borð í annað íranskt olíuskip. Þátttakandi í kröfúgöngu í Leipzig 11. desember heldur á spjaldi með mynd af Erich Honecker í búningi sem margir landar hans töldu við hæfi. sínum austan megin fjárstuðning og ýmsa aðstoð, einnig boðist til að senda .ræðumenn að vestan á fram- boðsfundi. Austur-þýskir jafnaðar- menn viðurkenna afskiptin en benda á aðstöðuleysi og skort sinn á öllum gögnum til kosningabaráttu. „Við stöndum andspænis kommúnista- flokki sem enn ræður yfir hreyfingu á landsvísu og öllum hjálpartækjum til kosningabaráttu," sagði Stefan Finger, einn talsmanna flokksins. Erich Honecker, fyrram leiðtoga landsins, var sleppt úr gæsluvarð- haldi á fimmtudag. Yfirmaður a- þýsku rannsóknarlögreglunnar sagði að engin lög heimiluðu framhald á varðhaldinu en Honecker er sagður heilsuveill. Ekki hefur enn verið ákveðið hvort höfðað verður mál gegn leiðtoganum fyrrverandi fyrir ýmiss konar misferli á valdaferlinum. BYLTINGIN í RÚMENÍU Fóstureyðingar leyfðar: Getnaðarvarnir þáttur í draumum um betri framtíð Jaftivel gúmmíblöðrur voru bannaðar Búkarest. Daily Telegraph. EITT af fyrstu verkum nýju bráðabirgðastjórnarinnar í Rúmeníu var að afnema 19 ára gamalt bann Ceausescus einræðisherra við fóstureyðingum. Nú geta allar konur fengið fóstureyðingu gegn vægu gjaldi en áður var slíkt aðeins leyfl. þegar konur undir 16 ára aldri eða eldri en 45 ára höfðu orðið fórnarlömb nauðgara. Yfirmenn heilbrigðismála í Rúm- eníu hafa í þessari viku ráðgast um nauðsyn getnaðarvarna sem bannaðar vora 1966 til að hraða fólksfjölgun er fór þá minnkandi. „Ég fer ekki fyrr en búið er að eyða fóstrinu," sagði Gabriela Radu, þrítugur, fyrrverandi íþróttaþjálfari, á sjúkrahúsi lög- Uppáhaldsskáld Ceausescus bjó í tíu herbergja glæsivillu með einkasundlaug og sánu í miðborg Búkarest. Hinn 22. desember, er Ceausescu var steypt, flýtti Pau- nescu sér að troða sér í fremstu röð mótmælenda við aðalstöðvar kommúnistaflokksins í Búkarest. Er fólk bar kennsl á manninn átti hann fótum fjör að launa. Á jóladag hrakti mannfjöldi hann út úr villunni og eftir dvölina í sendiráðinu hefur Paunescu gist fángelsi hersins, að sögn yfirvalda reglunnar í Búkarest er önnum kafnir læknamir reyndu að fá hana til að koma aftur síðar. Áður fyrr beittu konur öllum ráðum til að reyna að koma af stað fósturláti, m.a. borðuðu þærlyftiduft, blandað áfengi. Þær sem höfðu efni á því leituðu þó til lækna eða hjúkrana- rfræðinga er sumir liðsinntu kon- til að vernda líf hans og limi. Frá 1973 - 1985 var Paunescu framkvæmdastjóri söngva- og ljóðahátíðarinnar „Söngvar handa Rúmeníu" sem var komið á lag- girnar til heiðurs Ceausescu- hjónunum. 1985 féll skáldið hins vegar í ónáð. Lögreglumenn sýndu þá fram á að Paunescu lét halda tilþrifamiklar kynlífs- og drykkjuveislur á heimili sínu og hafði, án leyfis, býggt handa sér sumarhús í Breaza-fjöllum, norð- an við Búkarest. unum í heimahúsum þótt hættan væri mikil. Liðsmenn hinnarhötuðu öryggislögreglu, Securitate, fylgd- ust með konum sem lagðar vora á sjúkrahús vegna afleiðinga mis- heppnaðra fóstureyðinga hjá ýmiss konar skottulæknum og reyndu lögreglumennimir að fá þær til að vísa á lagabrjótana. Þeim síðar- nefndu var refsað með fimm ára fangelsi. „Hingað komu venjulega 10 - 12 konur á mánuði," segir dr. Dan Alessandrescu, stjómandi sjúkra- húss lögreglunnar. „Sumar þeirra vora hörmulega á sig komnar; blæðingar vora miklar og oft kom- in ígerð í sárin. Það var ekki hægt að bjarga lífi þeirra allra.“ Gabriela Radu sagðist fjóram sinnum hafa látið koma af stað fósturláti. Meðan rætt var við hana á sjúkrahúsinu heyrðust vein í konu sem verið var að skoða vegna blóð- eitranar er hún hafði fengið af völdum misheppnaðrar fóstureyð- ingar. Gabriela á tvö börn. Vegna þeirra verður hún að vera heima og hjónin reyna að hjara á launum eiginmannsins. „Við höfum þurft að spara allt við okkur, mat ofan f bömin, hvað þá leikföng handa þeim. Alla mjólk urðum við að kaupa á svarta markaðnum, óholla mjólk sem bömunum hefur orðið illt af.“ Þörfin fyrir fóstureyðingar og getnaðarvamir virðist útbreidd. Á veggteikningum era sýndar vænt- anlegar allsnægtir nýrra tíma í landinu og smokkar innan um allan munaðinn. Þeir hafa verið rándýrir og aðeins fengist á svarta mark- aðnum. Fyrir nokkrum áram var meira að segja hætt að selja venju- legar gúmmíblöðrur handa böm- um; stefnu Ceausescus um aukna mannfjölgun var fylgt út í ystu æsar og engin áhætta tekin. Hirðskáld Ceausescus í hættu: Slapp naumlega und- an reiðum mannfjölda RÚMENSKA skáldið Adrian Paunescu hélt naumlega lífi á jóladag en að kvöldi sama dags var Nicolae Ceausescu einræðisherra tek- inn af lífi ásamt konu sinni, Elenu. Paunescu, sem f verkum sínum hafði lýst Ceausescu sem „ástmegi rúmensku þjóðarinnar,“ reyndi að sögn danska blaðsins Jyllands-Posten að komast inn í banda- ríska sendiráðið undan fokreiðum mannfjölda sem vildi festa ljóð- mæringinn upp í næsta ljósastaur. Starfsmenn sendiráðsins gættu hans þar til hermenn komu á vettvang og fluttu Paunescu í fangelsi. Elena íjólaskapi þrátt fyrir opinbert guðleysi Jólahald var bannað með lögum í Rúmeníu í valdatíð Nicolae og Elenu Ceausescu og var það í samræmi við guðleysisstefnu kommún- ismans. Kirkjunnar menn voru og ofsóttir með ýmsum hætti og raunar hófst byltingin í Rúmeníu í borginni Timisoara er liðsmenn öryggislögreglunnar, Securitate, hugðust handtaka ungverskan prest, Laslo Tokez. Þessi mynd úr fjölskyldualbúmi Ceausescu- hjónanna birtist í vestur-þýska blaðinu Bild am Sonntag fyrir skömmu og sýnir hún Elenu Ceausescu ásamt fóstursyninum Valent- in við jólatréð í stofu þeirra hjóna. Einnig í þessu efni leyfðu höfðin- gjamir sér annað en þeir heimiluðu alþýðunni í alþýðulýðveldinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.