Morgunblaðið - 06.01.1990, Side 4

Morgunblaðið - 06.01.1990, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 1990 Morgunblaðið/Ingvar Guðmundsson Slökkviliðsmenn aö störfum á vettvangi. Beið bana í eldsvoða ROSKINN maður beið bana í eldsvoða sem varð í íbúð hans í fjölbýl- ishúsi við Öldugötu í Reykjavík um klukkan sjö í gærmorgun. Maður- inn var einn í íbúðinni. Miklar skemmdir urðu á íbúð hans og reyk- skemmdir í gangi hússins en annað fólk í húsinu sakaði ekki. Eldsins varð vart þegar íbúi á leið út varð var við reyk í ganginu og gerði slökkviliði viðvart. Þegar slökkvilið kom á staðinn stóðu log- ar út um glugga í íbúð mannsins, sem er á jarðhæð hússins. Eldurinn var slökktur á skammri stundu. Slökkviliðsmenn fundu manninn í herberginu þar sem eldurinn hafði geisað. íbúðin er mikið skemmd. Skemmdir af sóti og reyk urðu í stigagangi hússins. Eldsupptök voru óljós í gær en RLR vinnur að rannsókn málsins. Uppgjör á skuld Arnarflugs við ríkið: Eftir að fella niður 150 millj. - segir Kristinn Sigtryggsson forstjóri Arnarflugs STJÓRNENDUR Arnarflugs telja að félagið skuldi ríkinu ekki yfir 100 milljónir kr. eins og Ólafiir Ragnar Grímsson fjármálaráðherra hefur áætlað. Segja þeir eftir að taka með í reikninginn niðurfellingu á 150 milljóna kr. af skuldum Arnarflugs við ríkið. Fulltrúar Arnarflugs og fjármálaráðuneytis ræddu saman í gær en ekki fengust upplýsingar í ráðuneytinu um skuld Arnarflugs. Sigurgeir Jónsson ráðuneytisstjóri sagði að mál væru að skýrast en kvaðst að öðru leyti ekki getað fjáð sig um málið. Fjárhagsvandi Arnarflugs birtist meðal annars í því að um áramótin urðu stjórnendur félagsins að lresta greiðslu á bluta af launum starfsmanna. Kristinn Sigtryggsson fram- kvæmdastjóri Arnarf lugs segist vona að uppgjörsmál við ríkið skýrist á næstu dögum. Hann neitar því að Amarflug skuldi ríkinu yfir 100 milljónir kr. eftir að söluandvirði Amarf lugsþotunnar hefur gengið til greiðslu á skuldinni. Teldur hann að misvísandi upplýsingar um skuld þessa hljóti að stafa af því að ríkið telji enn með skuldum Amarflugs 150 milljónir kr. sem ríkisstjómin hefði ákveðið á síðasta vetri að fella niður. Kristinn segir að þetta hefði átt að gera að lokinni endurfjár- mögnun félagsins. Hluti af henni hefði verið endurfjármögnun á þo- VEÐUR ! OAG W 12.00: Heimild: Veðurstofa Í3lands (Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær) VEÐURHORFUR I OAG, S. JANUAR. YFIRLIT í GÆR: IJm 500 km suðsuðvestur af Vestmannaeyjum er heldur vaxandi 985 mb iægð á hreyfingu norðaustur, en á vest- anverðu Grænlandshafi er minnkandi 980 mb lægð. Vaxandi 983 mb iægð skammt norður af Nýfundnalandi hreyfist norðaustur. GPÁ: Norð- og norðvestan átt, víðast 4—6 vindstig. Slydda aða rigning á-Austurlandi en él á Norðvestur- og Norðurlandi, annars jiurrt. JEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: SiORFUR Á LAUGARDAG: Austan og sunnan gola sða kaldi. Rign- ing víða á Suður- og Austurlandi fram á nótt, úrkomulítið og öllu bjartara veður á norðvestanverðu landinu. í nótt snýst vindur smám caman til norðan- og norðvestanáttar með slyddu eða snjókomu um tíma á Norður- og Austurlandi en léttir heldur til á Suður- og Vasturlandi. Hiti víðast á bilinu 0 til 4 stig. ^ Norðan, 4 vindstig: Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrimar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * ■J0° H'rtastig: 10 gráður á Celsius \J Skúrir V Él — Þoka = Þokumóða ’, ’ Súld OO Mistur —Skafrenningur Þrumuveður tunni sem ríkið leysti til sín eða sala hennar. Nú væri þeim þætti málsins lokið og ætti þá að ganga frá niður- fellingu skuldanna. „Á meðan býst ég við að ríkið telji þessa upphæð með skuldum okkar. Þessi tala getur ekki verið fundinn á annan hátt,“ segir Kristinn. Samþykkt ríkisstjómarinnar sem Kristinn vísar til, er frá 17. mars síðastliðinn. Þá ákvað stjórnin með hvaða hætti hún væri reiðubúin til að koma Arnarf lugi til aðstoðar, svo ekki komi til gjaldþrots fyrirtækis- ins. Eftir fundinn sagði Steingrímur J. Sigfússon samgönguráðherra að ríkið væri tilbúið til að fella niður 150 milljónir kr. af skuldum Amar- flugs, sem yrði eftir atvikum niður- felling eða víkjandi lán. Jafnframt væri ríkisstjórnin tilbúin til að að- stoða við útvegum lána, enda yrðu settar fullnægjandi tryggingar fyrir þeim. Arnarflug var með tvær þotur í áætlunarflugi mest af síðasta ári, þotuna sem ríkið leysti til sín í byij- un árs og leigði Amarflugi og Sam- vinnuferðum og þotu sem Amarf lug hefur haft á leigu hjá bandaríska fyrirtækinu Aviation Sales. Þota ríkisins fór i skoðun til Banda- ríkjanna í lok ársins og ríkið seldi hana svo til flugfélagsins Atlanta hf. síðastliðinn fimmtudag. Loft- ferðaeftirlitið stöðvaði f lug Ieiguþot- unnar þegar komið var að skoðun hennar á milli jóla og nýárs. Amar- flug óskaði eftir að losna undan leigusamningunum þrátt fyrir að tæp tvö ár séu eftir af honum. Kristinn Sigtryggsson segir að þessi vél sé ekki hentug miðað við breytta stefna félagsins, þar sem nú sé miðað við að áætlunarfluginu sé sinnt með einni vél, í stað tveggja áður. Þeir þurfi öflugri vél sömu gerðar og sé í athugun að taka hana á leigu af Aviation Sales eða annars staðar. Arnarf lug hefur nú eina vél í milli- landafluginu, Boeing 737-200 þotu sem tekin var á leigu hjá Transwede í Svíþjóð rétt fyrir áramótin og gild- ir sá samningur í þijá mánuði, eða til 1. apríl. Bandalag íslenskra listamanna: Astæðulaust er að gjör- breyta sai Þjóðleikhússins STJÓRN Bandalags íslenskra listamanna hefur sent frá sér eftirfar- andi ályktun, sem hún gerði á fundi 3. janúar sl.: >4^ WEÐUR l/ÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að fsl. tíma iiiti veður Akureyri 2 1 álfskýjað iteykjavfk 3 rkúr ó oí8. klst. 3ergen 3 olskýjað Helsinki :-1 ! kýjað (aupmannah. 1 ['.okumóða Jarssarssuaq +4 snjókoma IMuuk +7 rnjókoma Osló 0 pokumóða Jtokkhólmur *1 r.kýjað 'Jórshöfn 0 skýjað Algarve 14 ckýjað Amsterdam 0 jiokumóða Barcelona 13 mistur Berlfn 0 snjókoma Chicago +6 heiðskírt Feneyjar vantar Frankfurt vantar Glasgow 3 mistur Hamborg 2 poka Las Palmas 17 skýjað London 9 rign. ó síð. klst. Los Angeles 8 heiðskirt Lúxemborg 0 frostúði Madrid 3 þokumóða Malaga 15 léttskýjað Mallorca 14 léttskýjað Montreal vantar hlew York 4 léttskýjað Orlando 19 þokumóða París 2 þoka Róm 9 léttskýjað Vín +4 þokumóða Washington 7 alskýjað Winnlpeg +18 snjókoma „Bandalag íslenskra listamanna bendir á, aö Þjóðleikhúsbyggingin er listaverk með menningarsögulegu gildi og allar breytingar á því, hið innra sem ytra, ber að skoða í því ljósi. Þó sjálfsagt sé að gera breytingar til hagræðis fyrir leiklistarstarfsem- ina, er ástæðulaust að gjörbreyta yfirbragði salarins einungis breyt- inganna vegna eða til að fylgja tísku. Stjórn Bandalags íslenskra lista- manna fagnar umbótum, sem verða til gagns og eflingar leiklist í hús- inu, en lætur í ljós efasemdir um, að stór hluti breytinganna, sem á að gera í húsinu og þess kostnaðar, sem veija á til þeirra, verði til bóta fyrir áhorfendur eða þá listamenn, sem í húsinu starfa. Telji byggingar- nefnd nauðsyn á öllum þessum breyt- ingum er sjálfsögð krafa, að hún skýri þá nauðsyn opinberlega og styðji það gögnum og rökum. Brynja Benediktsdóttir, leik- sljóri, forseti Bandalags íslenskra listamanna. Hjálmar H. Ragnarsson, tón- skáld, varaforseti BÍL. Einar Iíárason, rithöfundur, rit- ari BÍL. Stefán Benediktsson, arkitekt, gjaldkeri BÍL. Guðbjörg Björgvinsdóttir, list- dansari. Guðrún Alfreðsdóttir, leikari. • Kolbeinn Bjarnason, hljómlist- armaður. María Iíristjánsdóttir, leik- stjóri. Þorsteinn Jónsson, kvikmynda- leikstjóri og Þór Vigfússon, inyndlistarmað- ur.“ Samningafundur ASÍ og VSÍ: Línur skýrðust FUNDUR samninganefhda Alþýðusambands tslands og Vinnuveitenda- sambands íslands stóð frá kl. 14 í gær til að ganga 18. Aðilar beggja sögðu í samtölum við Morgunblaðið að fundurinn hefði verið góður, linur skýrst, cn enn vantaði nokkuð á að liægt væri að kynna ákveðna hugmyndafræði úti í aðildarfélögunum. Ásmundur Stefánsson, forseti ASI sagðist vonast til þess að línur skýrðust enn um helgina og nýr fundur yrði haldinn siðdegis á mánudag. Þórarinn V. Þórarinsson, fram- kvæmdasfjóri VSÍ sagði í samtali við Morgunblaðið að grundvöllur þessara viðræðna og sameiginlegt markmið beggja aðila væri að halda kaupmætti eins háum og hægt væri, við sem hæst atvinnustig. „Við munum reyna að draga for- sendumar það skýrt upp fyrir okkur í eigin hópi um helgina að við getum farið að ræða þær við aðildarfleögin eftir helgina," sagði Ásmundur. Hann kvaðst telja að stutt væri í það að línur skýrðust nógu mikið til þess að svo gæti orðið. Þórarinn V. Þórarinsson, fram- kvæmdastjóri VSÍ sagði að fundur- inn í gær hefði sýnt enn frekar að áhugi beggja aðila á að sigla hér með öllum mögulegum tiltækum ráð- um til lágrar verðbólgu á þessu ári væri óbreyttur, og færi jafnvel vax- andi. „Þetta gengur samt hægar en maður hefði viljað sjá,“ sagði Þórar- inn. Enn skorti á að ASI og VSÍ væru búin að koma sér saman um og setja upp það dæmi sem yrði raun- verulegur útgangspunktur í endan- legum viðræðum við bændasamtök, í samráði við bankakerfi og í sam- tölum við ríkisstjóm. „Atvinnurekstrinum er það síður en svo keppikefli að ná kaupmættin- um niður í þessu landi,“ sagði Þórar- inn, „á hinn bóginn eru umsvifin í efnahagskerfinu margfeldi af kaup- mætti og fjölda þeirra sem eru í starfi. Það er þetta margfeldi sem við viljum hafa sem allra hæst. Það er öllum ljóst að ef við fórnum verÖ- lagsmarkmiðunum, þá gengur það út yfir fjölda þeirra sem eru í starfi. Um þessi markmið sýnist mér vera full samstaða. Ég tel því að við séum ennþá á_ré_ttri_leið.“_

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.