Morgunblaðið - 06.01.1990, Side 13

Morgunblaðið - 06.01.1990, Side 13
13 er mikill harmur kveðinn að foreldr- um hans og systkinum. Hvers vegna þarf lífið að vera svona stutt? Svörin þekkjum við ekki. En mannlífið á sitt upphaf og sín enda- lok. Ástúð og umhyggja foreldra Jóns Eiðs í veikindum hans var einstæð og gerði honum léttara að þola erf- iðan sjúkdóm. Nákomin ættmenni hans og samstarfsmenn gerðu einn- ig allt sem í þeirra valdi stóð til þess að dreifa áhyggjum hans og færa honum stopular gleðistundir. Seint líður sólarlaus dagur. Á Landspítalanum naut hann aðhlynningar og umsjár ágætra lækna og starfsfólks. Slíkt verður ekki þakkað svo sem vert er. Styrk í erfiðri lífsreynslu ástvina Jóns Eiðs Guðmundssonar er helst að sækja í von og trú. Eftirlifendur eiga minningar um góðan dreng og þakka stutta en ánægjulega sam- fyigd. Við Guðrún, börn okkar og tengdaböm, sendum foreldrum Jóns Eiðs innilegar samúðarkveðj- ur, svo og systkinum hans og öðru venslafólki. „Af eilífðarljósi bjarma ber, sem brautina þungu greiðir. Vort líf sem svo stutt og stopult er það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri en augað sér mót öllum oss faðminn breiðir." (E. Ben.) Þ. Ragnar Jónasson Það er svo sárt. Það er svo sárt að kveðja hann Jón Eið. Það er svo ljúft. Það er svo ljúft að hafa þekkt hann Jón Eið. Hann fæddist og ólst upp í næsta húsi. Ég þekkti hann alla tíð. Nú fer hann aftur heim í fjörðinn fagra til þess að hvíla við rætur fjallanna sem veita skjól og öryggi, og veittu okkur skjól og öryggi í bemskunni, þegar fjöl- skyldur okkar bjuggu hlið við hlið og vinátta ríkti alla tíð. Nákvæmlega sama dag fyrir níu árum lést móðir mín en þau Jón Eiður vom miklir vinir. Vináttu sína sýndi hann með ógleymanlegri hjálpsemi þegar hún var veik og þau voru mörg óeigingjömu sporin sem hann gekk fyrir hana. Nú ganga þau veg eilífðarinnar. Hann Jón Eiður á ríkan sjóð, þar sem mölur og ryð frá ekki grandað. Hann háði erfiða baráttu en ein- hvern veginn finnst mér eins og hann hafí ekki tapað. Dauðinn er ekki sigurvegari, hann er aðeins sönnun lífsins. Allt sem hefur lifað MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 1990 deyr. Jón Eiður gaf okkur með lífi sínu og baráttu og hann gaf ríku- lega, hans lífsmáti var að gefa og hann var alinn upp í því umhverfi að það væri sælla að gefa en þiggja. í slíku umhverfi stendur enginn einn. Jón Eiður stóð ekki einn þeg- ar síðasta omstan var háð. Fjöl- skyldan stóð saman styrk og með ríka trú. Foreldrar hans Guðmundur Jónasson og Margrét Jónsdóttir. Systkini hans og makar þeirra hafa sýnt að mennimir eru stórir þegar á móti blæs og styrkurinn felst í samheldni, samhygð og sannri trú. Missirinn er mikill og sár en minningamar lifa og það er ljúft að eiga minningar um þennan góða dreng. Elsku Margrét, Guðmundur, Jón- as og Addý. Guð styrki ykkur á þessari sorgarstund. Guð blessar minninguna um Jón Eið. Sigríður K. Stefánsdóttir Jón Eiður Guðmundsson kom til starfa í Samvinnubanka íslands hf. strax er hann hafði lokið Verslunar- skólaprófi árið 1982, þá 18 ára. Hann hóf þá störf í útlánadeild bankans í Bankastræti 7, þar sem hann vann æ síðan, uns þau veik- indi sem nú hafa orðið honum að aldurtila bundu enda á starfsgetu hans. Jón Eiður vakti þegar athygli fyrir stundvísi, prúðmennsku og samviskusemi. Hann vildi hvers manns vanda leysa og lagði sig mjög í framkróka við að veita við- skiptavinum bankans sem besta þjónustu. Við samstarfsfólk sitt var hann í fyrstu dulur og gat virst fáskipt- inn, en við nánari kynni duldist ekki sá góði og indæli drengur sem bak við skelina leyndist. Þegar kornungur maður verður að þola langt og erfitt veikindastríð koma óneitanlega í hugann orð þjóðskáldsins sem sagði: „Til eru fræ sem fengu þann dóm að falla í jörð og verða aldrei blóm.“ En blómin hans Jón Eiðs verða þó eftir í minningu fjöskyldu hans og samstarfsfólks og þau blóm fölna aldrei. Við þökkum honum samstarfið og geymum minningu um góðan dreng. Foreldrum hans og öðrum ástvinum sendum við samúðar- kveðjur. Samstarfsfólk í Sam- vinnubanka Islands hf. ÍjL\ Hjálparsveit skáta vÆ/ Reykjavík Þrettánda flugekflar Opið frá kl. 10-18 í dag í Skátabúðinni við Snorrabraut. 20% afsláttur af öllum vörum. Styðjið okkur - stuðlið að eigin öryggi Notadir TOYOTA Notaðir EINSTAKT TÆKIFÆRI 26 stykki Toyota Corolla STD Sedan árg. 1988 seld á frábæru verði á meðan birgðir endast TOYOTA Hafið samband við sölumenn í síma 44144 Athugið! Við tökum frá bíla TOYOTA TOYOTA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.