Morgunblaðið - 06.01.1990, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 1990
23
Minning:
Guðmunda Guðmunds-
dóttir frá Hurðarbaki
Gleði yfir góðum stundum og
endurminningar um manneskju,
sem er þannig gerð að hún gerist
þátttakandi í lífi þeirra sem hún
umgengst, eru perlur sem hver og
einn geymir við hjarta sér. Það er
gott að umgangast fólk sem gleðst
yfir samfundum, gefur af sér og
er hvetjandi gagnvart framtíðar-
áformum viðmælandans.
Þannig var Guðmunda Guð-
mundsdóttir, Munda frænka, ein
Hurðarbakssystra úr Villingaholts-
hreppi í Flóa, fædd þar 4. júní 1925,
dóttir Guðmundar Kr. Gíslasonar
frá Urriðafossi og Þuríðar Árna-
dóttur ,frá Hurðarbaki, sjötta í röð
10 barna þeirra hjóna. Guðmunda
lést á Sjúkrahúsi Suðurlands að-
faranótt nýársdags eftir erfiða sjúk-
dómslegu. Hún átti við heilsubrest
að stríða um árabil en í þeirri bar-
áttu allri kom glöggt fram sá dugn-
aður, sú þrautseigja og einurð sem
henni var í blóð borin. Þessir kostir
hennar ásamt bjartsýnu hugarfari
og jákvæðu í garð hvers manns og
lífsins skóp áfangasigra hennar
gegn erfiðleikum sjúkdómanna.
Hefðbundin sveitastörf voru hlut-
skipti hennar á uppvaxtarárunum
á Hurðarbaki auk vistarvinnu yfir
veturinn á bæjum í sveitinni og í
Reykjavík. Heima á Hurðarbaki var
liún ávallt á sumrin þar sem hver
vinnandi hönd var vel þegin á stóru
heimili. Skólanám stundaði hún
hefðbundið að hætti þess tíma en
lærði snemma að sníða og sauma-
skapur varð henni áhugamál alla
tíð og síðar ævistarf.
Hún fórtil saumanáms árið 1949
í Stokkhólmi í Svíþjóð og lauk það-
an prófi sem kjólameistari 1950.
Starfaði síðan við saumastofu
Kaupfélags Árnesinga til 1952 en
eftir það við sauma á heimili sínu
á meðan henni entist heilsa. Hún
saumaði á þessum árum fyrir fjöl-
marga og fetaði að því leyti í spor
móður sinnar.
Hún giftist __ Kristjáni S. Guð-
mundssyni frá ísafirði 4. júní 1953.
Þau eiga þrjá syni, þeir eru: Guð-
mundur Guðni landfræðingur,
kvæntur Sólveigu R. Friðriksdóttur
nema. Þau eru búsett í Lundi í
Svíþjóð og eiga þrjú börn. Haraldur
Magnús sóknarprestur, kvæntur
Guðlaugu Guðmundsdóttur hjúkr-
unarfræðingi. Þau búa í Vík í Mýr-
dal og eiga tvo syni. Lárus Þór líf-
fræðingur, sem er ókvæntur og
barnlaus, búsettur í Reykjavík.
Við sem þekktum Mundu eigum
um hana góðar minningar og glað-
værar. Það eru sterk bönd milli
Hurðarbakssystkinanna og glað-
værð og hispursleysi einkennandi í
þeirra samskiptum. Þau eru skær
í minningunni barnaafmælin sem
haldin voru, og eru enn, þar sem
allir nánustu voru boðnir. Þær syst-
ur frá Hurðarbaki mættu alltaf,
hver með sinn hóp og það var ekki
afmæli að gagni nema þær væru á
sínum stað við borðið.
Munda var fastur liður í þessum
fjölskyldusamskiptum og einkar
lagin að tala við stuttfætta drengi
og stúlkur á uppörvandi hátt og
jafnvel síðar þegar þau urðu stærri
og gnæfðu yfir hana. Hún var
heimakær og undi sér vel, var heim-
ilismanneskja af lífi og sál, tiltæk
sonum sínum og öðrum sem til
hennar leituðu og sóttu hana heim.
Hún var þannig grunnurinn sem
skóp festu í lífi þeirra sem hana
umgengust.
Minningin um hana er gefandi ->
og rík, hefur til vegs þau gildi
mannlegra samskipta sem hafin eru
yfir jarðnesk verðmæti. Ættmenni
frá Hurðarbaki kveðja góða systur,
kæra frænku og góðan vin með ósk
um að aðstandendur hennar megi
eflast, Guði falin, á lífsins göngu.
Sigurður Jónsson
t
Hjartkær dóttir okkar og systir,
REBEKKA SVERRISDÓTTIR
byggingaverkfræðingur,
fædd 19. október 1954,
lést í Kaupmannahöfn 30. desember 1989. Jarðarförin fer fram
í Kaupmannahöfn.
Kaino H. Bailey,
Sverrir Ólafsson,
Pfa Rakel Sverrisdóttir,
Halldór Halldórsson.
Fjölbrautaskóli Vesturlands
á Akranesi
Upphaf skólahalds á
vorönn 1990
Dagskóli: Skólasetning og afhending stunda-
taflna hefst miðvikudaginn 10. janúar kl.
10.00. Nemendafélags- og skólagjöld annar-
innar eru kr. 4000,-.
Nemendur af Vesturlandi utan Akraness at-
hugi að farið verður í veg fyrir Vestfjarðaleið
og Snæfellsnesrútu á Akranesvegamótum
þriðjudaginn 9. janúar.
Öldrunardeild: Stundatöflur verða afhentar
kl. 20.00 miðvikudaginn 10. janúar. Skóla-
gjald annarinnar er kr. 8000,-.
Meistaraskóli byggingamanna: Þeir, sem
áhuga hafa á að meistaraskóli bygginga-
manna verði starfræktur á vorönn 1990 hafi
samband við skrifstofu skólans eigi síðar en
8. janúar.
Skólameistari.
IMauðungaruppboð
á eftirtöldum fasteignum fer fram á skrifstofu embættisins Mið-
braut 11, Búðardal, mánudaginn 15. janúar kl. 10.00:
Sunnubraut 9, Búðardal, þingl. eigandi Guðbrandur Hermannsson.
Uppboðsbeiðendur eru Landsbanki íslands, veðdeild, Hróbjartur
Jónatansson hdl., Ásgeir Thoroddsen hdl., Þórunn Guömundsdóttir
hrl., Tryggingastofnun rikisins og Sigurður I. Halldórsson hdl.
Búðarbraut 3, Búðardal, þingl. eigandi Kristjana Guðmundsdóttir.
Uppboðsbeiðandi er Landsbanki Islands, veðdeild.
Brekkuhvammi 10, Búðardal, þingl. eigandi Jóhannes Benediktsson.
Uppboðsbeiðendur eru Landsbanki Islands, veðdeild og Iðnaðar-
banki (slands hf.
Stekkjarhvammi 6, Búðardal, þingl. eigandi Kristján Jón Jónasson.
Uppboðsbeiðendur eru Landsbanki íslands, veðdeild, Guðjón Á.
Jónsson hdl., Kristinn Hallgrímsson hdl. og Valgarður Sigurðsson hdl.
Hóli, Hvammshreppi, Dalasýslu, þingl. eigandi Júlíus Baldursson o.fl.
Uppboðsbeiðandi Landsbanki (siands, veðdeild.
Skarðsá, Skarðshreppi, þingl. eigandi Unnsteinn B. Egertsson.
Uppboðsbeiðendur eru Landsbanki (slands, veðdeild, Lögmenn
Lækjargötu 2, Reykjavík, Ólafur Gústafsson hrl., Sveinn Skúlason
hdl. og Sveinn H. Valdimarsson hrl.
Klifmýri, Skarðshreppi, þingl. eigandi Sverrir Karlsson o.fl.
Uppboðsbeiðendur eru Byggðastofnun og Búnaðarbanki íslands.
Mijibraut 2, Búðardal, þingl. eigandi þb. Kaupfélags Hvammsfjarðar.
Uppboðsbeiðendur eru Brunabótafélag (slands og Helgi V. Jónsson hrl.
Vesturbraut 8, Búðardal, trésmiðja, þingl. eigandi þb. Kaupfélags
Hvammsfjarðar.
Uppboðsbeiðendur eru Guðjón Ármann Jónsson hdl. og Magnús
Norðdahl hdl.
Vesturbraut 12, Búðardal, vörugeymsla o.fl., þingl. eigandi þb. Kaup-
félags Hvammsfjarðar.
Uppboðsbeiðendur eru Magnús Norðdahl hdl. og Brunabótafélag
(slands.
Vesturbraut 10, Búðardal, verslunarhús, þingl. eigandi þb. Kaup-
félags Hvammsfjarðar.
Uppboðsbeiðendur eru Magnús Norðdahi hrl. og Guðjón Ármann
Jónsson hdl.
Leysingjastöðum, Hvammshreppi, þingl. eigandi Óli Pétur Friðjónsson.
Uppboðsbeiðandi er Landsbanki (slands, veðdeild.
Sunnubraut 4, Búðardal, þingl. eigandi Kristinn Jónsson.
Uppboðsbeiðandi Grétar Haraldsson hrl.
Hófatúni 1, Búðardal, þingl. eigandi Grettir Börkur Guðmundsson o.fl.
Uppboðsbeiðendur eru Lífeyrissjóður rafiðnaðarmanna og Gísli
Kjartansson hdl.
Búðardal, 4. janúar 1990.
Sýslumaður Dalasýslu,
Georg Kr. Lárusson, settur.
Nauðungaruppboð
annað og sfðara á eftirtöldum fasteignum fer fram á skrifstofu
embættisins á Miðbraut 11, Búðardal, mánudaginn 15. janúar
nk. kl. 14.
Miðbraut 1, Búðardal, þingl. eign Kaupfélags Hvammsfjarðar,
þrotabú.
Uppboðsbeiðendur eru Andri Árnason, hdl., Brunabótafélag íslands,
Lúðvík E. Kaaber, hdl. og Tómas Þorvaldsson, hdl.
Ægisbraut 3, Búðardal, þingl. eign Kaupfélags Hvammsfjarðar,
þrotabú.
Uppboðsbeiðendur eru Brunabótafélag íslands, Ólafur Garðarsson,
hdl., Gisli Baldur Garðarsson, hrl. og Einar S. Ingólfsson, hdl.
Búðardal 4. janúar 1990.
Sýslumaðurinn í Dalasýslu,
Georg Kr. Lárusson, settur.
Nauðungaruppboð
fara fram á eftirtöldum fasteignum í skrifstofu embættisins, Bjólfs-
götu 7, Seyðisfirði, miðvikudaginn 10. janúar 1990:
SJÁLFSTIEDISFLOKKURINN
^ F F. L AGSSTARF
Sjálfstæðismenn í
Garðabæ
Munið að skila heimsendum seðlum vegna tilnefninga á væntanleg-
an framboðslista Sjálfstæðisflokksins fyrir bæjarstjórnakosningarnar
1990. Seðlunum ber að skila á skrifstofu sjálfstæðisfélaganna, Lyng-
ási 12, sunnudaginn 7. janúar 1990, milli kl. 17.00 og 21.00. Allir
stuðningsmenn í Garðabæ geta gerst félagar og tekið þátt í tilnefn-
ingunni. Hafi seðill misfarist geta félagar fengið seðil á sama tíma.
Upplýsingar í síma 54084 á opnunartima.
Sjálfstæðisfélögin.
Akranes
bæjarmálefni
Fundur um bæjar-
málefni verður hald-
inn í Sjálfstæðis-
húsinu við Heiðar-
gerði sunnudaginn
7. janúar kl. 10.30.
Bæjarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins
mæta á fundinn.
Æsir
- klúbbur ungra sjálfstæðismanna
af landsbyggðinni með aðsetur á
höfuðborgarsvæðinu
Stjórnarfundur verður þriðjudaginn 9. janúar kl. 21.00 í Valhöll.
Allir velkomnir.
Stjórnin.
Fulltrúaráð sjálfstæðis-
félaganna f Reykjavík
- aðalfundur
Fóðurstöð og útihús úr landi Fjósa, þingl. eigandi (sfeldur sf.
Uppboðsbeiðendur eru Búnaðarbanki íslands, Brunabótafólag (s-
lands og Byggðastofnun.
Refabú Isfelds sf. ásamt 2ja ha lóð úr landi Hjarðarholts, þingl. eig-
andi ísfeldur sf.
Uppboðsbeiðendur eru Búnaðarbanki (slands, Brunabótafélag ís-
lands, Gunnar Sólnes hrl. og Eggert B. Ólafsson.
Sunnubraut 11, Búðardal, þingl. eigandi Svavar Garðarsson.
Uppboðsbeiðendur eru Brunabótafélag íslands, Landsbanki (slands,
veðdeild, Reynir Karlsson hdl., Jón Ö. Ingólfsson hdl., Gísli Kjartans-
son hdl. og Búnaðarbanki (slands.
Gillastöðum, Laxárdalshreppi, þingl. eigandi Jóhannes Jónsson.
Uppboðsbeiðandi er Landsbanki (slands, veðdeild.
Kl. 15.00, Gamla barnaskólahúsinu Borgarfirði eystra, þingl. eign
Saumastofunnar Nálinnar hf., eftir kröfum Tryggingastofnunar ríkis-
ins, innheimtumanns ríkissjóðs, Andra Árnasonar, hdl. og Sveins
H. Valdimarssonar, hrl. Annað og síðara.
Kl. 15.10, Austurvegi 52, Seyðisfirði, þingl. eign Ólafs M. Ólafsson-
ar en talin eign Elvars Kristjónssonar, eftir kröfum Helga Jóhannes-
sonar, lögfræðings og veðdeildar Landsbanka (slands. Annað og
síðara.
Kl. 15.20, Skólagötu 2, Bakkafirði, þingl. eign Hermanns Ægis
Aðalsteinssonar, eftir kröfu veðdeildar Landsbanka islands. Ann-
að og síðara.
Sýslumaður Norður-Múlasýslu.
Bæjarfógetinn á Seyðisfirði.
Aðalfundur fulltrúaráðs sjálfstæðisfélag-
anna í Reykjavík verður haldinn í Súlnasal
Hótels Sögu miðvikudaginn 10. janúar kl.
20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Ákvörðun um tilhögun á vali frambjóð-
enda vegna borgarstjórnarkosninga.
3. Ræða: Davíð Oddsson, borgarstjóri.
4. Önnur mál.
Fundarstjóri: Geir H. Haarde, alþingismaður.
Fundarritari: Brynhildur Andersen, húsmóðir.
Fulltrúar eru beðnir að sýna skírteini sín við innganginn. Alýir fulltrú-
ar,. sem ekki hafa fengið fulltrúaráðsskírteini, eru beðnir að hafa
nafnskirteini meðferðis.
Stjórnin.
m