Morgunblaðið - 06.01.1990, Page 35

Morgunblaðið - 06.01.1990, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 1990 35 HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ Stærsti sigur Islendinga á Tékkum frá upphafi ÍSLENDINGAR unnuTékka með átta marka mun, 27:19, ílands- leik í handknattleik í Digranesi ígærkvöjdi. Sigurinn er sá sjö- undi á Tékkum og jafnframt sá stærsti. íslenska liðið lék næstum gallalausan sóknarleik þar sem leikmenn skoruðu oft glæsileg mörk með tilþrifum. Markvarslan var slök ífyrri hálfieik, en Guðmundur Hrafnkelsson bætti úr því i þeim síðari, lokaði þá markinu á köflum og varði m.a. tvö vítaköst. Leikurinn var hraður og skemmtilegur á að horfa. ís- lenska liðið sýndi það í þessum leik hversu öflugt það getur verið. Eftir ■■■■■■I að hafa tapað fyrir ValurB. B-liði Norðmanna Jónatansson fynr skömmu reif skrifar þag gjg nlj Upp meðalmennskunni, allir leikmenn lögðu sig fram og uppskeran var eftir því - stærsti sigur á Tékkum frá upphafi. „Gekk næstum allt upp“ „Þetta var mun betra hjá okkur en ég bjóst við,“ sagði Alfreð Gísla- son, nýkjörinn íþróttamaður ársins, eftir leikinn. „Það gekk næstum allt upp hjá okkur í sókninni. Eins áttu allir leikmenn liðsins góðan dag. Sigurinn var fyrst og fremst liðsheildarinnar. Leikurinn á morg- un [í dag] verður erfiður því þeir sætta sig illa við að tapa fyrir okk- ur. Við verðum að ná upp sama leik eða betri ætlum við að vinna þá aftur,“ sagði hann. Alfreð var í nýju hlutverki í varn- arleiknum. Lék fyrir framan vörn- ina í hlutverki „indiánans“ sem Þorgils Óttar er vanur að spila. „Bogdan ætlar mér sjálfsagt að skipta við Óttar í þessari stöðu. Þessi staða er kannski ekki fyrir „hundraðkílóamann." En ég hafði mjög gaman að spila þarna fyrir framan þótt það hafi verið erfitt.“ 65 prósent nýting Það er varla hægt að gera upp á milli leikmanna í þessum leik. Allir léku eins og þeir gera best, sérstaklega í sókninni þar sem nýt- ingin var 65 prósent. Markvarslan og varnarleikurinn lagaðist í síðari hálfleik og fékk íslenska liðið þá aðeins á sig sjö mörk! Guðmundur Hrafnkelsson, sem stóð í markinu í síðari hálfleik, fann sig vel á gamla heimavellinum í Digranesi. Hann hélt markinu hreinu fyrstu tíu mínútur hálfleiksins og varði hann tvö vítaköst og alls 10 skot. Guðmundur hungraður Guðmundur Guðmundsson, sem kom nú aftur inní liðið eftir meiðsli, var greinilega hungraður í að leika með landsliðinu, lék á alls oddi og gerði hvert glæsimarkið á fætur öðru og eitt þeirra úr hægra horn- inu! Kristján sýndi á sér nýjar hlið- ar er hann brá sér í gervi línu- manns og skoraði þannig tvö mörk. Alfreð og Sigurður Gunnarsson stjórnuðu sóknarleiknum og stóðu vel fyrir sínu og ungu leikmennirn- ir, Héðinn og Júlús, brugðust ekki er þeir fengu tækifæri og gáfu þeim reyndari ekkert eftir. Nafn Skot Mörk Knetti náð Knetti glatað Feng. víti Línus. Skot- nýting Guðmundur Hrafnkelsson 10/2 Einar Þorvarðarson 5 Héðinn Gilsson 4 3 1 75 Alfreð Gíslason 8/3 4/2 1 1 1 50 Júlíus Jónasson 4 3 1 75 Guðmundur Guðmundsson 7 5 1 71 Þorgils Óttar Mathiesen 3 3 1 1 1 100 Bjarki Sigurðsson 1 1 100 Sigurður Gunnarsson 4 3 2 75 ValdimarGrímsson 1 0 3 1 1 0 Kristján Arason 6/1 5/1 2 1 3 83 Guðmundur Guðmundsson átti mjög góðan leik, eins og reyndar allir íslensku leikmennirnir. Hann skoraði fimm mörk, hvert öðru glæsilegra. Hér er eitt þeirra í fæð- ingu. Island-Tékkóslóvakía 27 : 19 Iþróttahúsið Digranesi, landsleikur í handknattleik, föstudaginn 5. janúar 1990. Gangur leiksins: 1:0, 2:2, 4:6, 6:6, 7:7, 9:7, 10:8, 10:10,13:10,14:11,16:12,18:12,18:15, 22:15,22:16, 25:16, 25:18, 27:19. Mörk íslands: Guðmundur Guðmundsson 5, Kristján Arason 5(1, Alfreð Gíslason 4/2, Héðinn Gilsson 3, Júlíus Jónasson 3, Sigurður Gunnarsson 3, Þorgils Óttar Mathiesen 3, Bjarki Sigurðsson 1, Geir Sveins- son, Valdimar Grímsson, Jakob Sigurðsson, Gunnar Beinteinsson. Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 10/2 (þar af fóru tvö til mótheija). Einar Þorvarðarson 4 (þar af tvö til mótherja). Utan vallar: 2 minútur. Mðrk Tékkóslóvakiu: Libar Sovadina 5/1, Vaelav Lanca 5, Petr Baumarak 3, Jan Novak 3/2, Michal Tonar 2 og Martin Setlik 1. Varin skot: Lubomir Svajlen (nr. 1) 5 (þar af tvö til mótheija). Peter Mesnarik (nr. 16) 7 skot (þar af eitt til mótherja). Utan vallar: 6 mínútur. Áhorfendur: 1.200. Morgunblaðið/Bjal! Mm FOLK ISLENDINGAR og Tékkar ÚRSLIT Handbolti 2. deild karla: Þór—FH b..............22:21 Nj arðví k—Fr am......28:31 ÍBK — Selfoss.........23:24 2. deild kvenna: Afturelding—ÍR.......28:18 ÍBK — Þróttur.........26:12 3. deild karla: Haukar b—ÍR b.........27:25 NBA-deildin Þriðjudagur: New York Knicks-Atlanta Hawks.,100: 95 Phoenix Suns-Dallas Maverieks.119:102 Golden State—Miami Heat.......119:117 DenverNuggets—Sacramento......112: 98 Miðvikudagur: Boston Celtics—Washington.....120:101 Chicago Bulls—Cleveland Cavs.. 93; g7 Detroit Pistons—LA Clippers... 84: 80 Milwaukee Bucks—NewJersey.....110: 96 Houston Rockets—Indiana Pacers... 117:103 San AntonioSpurs—Philadelphia....l03: 94 Utah Jazz—Seattle Supersonics.119:108 LA Lakers—Denver Nuggets......114: 93 KNATTSPYRNA / INNANHUSS KR Reykjavíkurmeistari KR varð í gær Reykjavíkurmeistari í knattspyrnu innanhúss. KR sigraði Fram, sem varð Reykjavíkurmeistari í fyrra, í úrslitaleik mótsins, 8:3, í Laugardalshöll. Áður hafði KR unnið lR, 6:3 í undanúrslitum og Fram unnið Val, 8:3, eftir framlengdan ieik. Á myndinni sækir Pétur Pétursson að marki Framara. leika að nýju í dag kl. 16 og í hálf- leik fer fram merkileg keppni. Þar keppa fjögur fyrirtæki í vítakeppni. Sjóvá-Almennar, Landsbankinn, Flugleiðir og Póstur og sími. Keppendur eru þekktir fyrir flest annað en handknattleik en í liði Landsbankans eru m.a. Sverrir Hermannsson og Valur Arnþórs- son en fyrirliði Sjóvá-Almennra er enginn annar en Ólafur B. Thors. Markvörður er Reynir Karlsson, í]iróttafulltrúi ríkisins en varamarkvörður er Bjarni Felix- son. ■ í TILEFNI af heimsókn tékk- neska landsliðsins verður haldin kynning á heimsmeistarakeppniuTÁ í handknattleik sem fram fer f Tékkóslóvakíu í febrúar. Þessi kynning verðuv á Hótel Holyday Inn á morgun og hefst kl. 15. Þar verða íslensku og tékknesku lands- liðsmennirnir og verða m.a. kynntar ferðir á heimsmeistarakeppnina. Tékkneski popptónlistamaðurinn Karel Zich, sem er mjög vinsæiH heimalandi sínum mun einnig flytja nokkur lög.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.