Morgunblaðið - 11.01.1990, Side 1

Morgunblaðið - 11.01.1990, Side 1
64 SIÐUR B 8. tbl. 78. árg. FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 1990 Prentsmiðja Morgunblaðsins Gorbatsjov á leið til Litháens: Heilsað sem leið- toga erlends ríkis - segir formaður þjóðfylkingarinnar Sajudis Vilnius. Reuter. MÖRG þúsund Litháar söfnuðust saman og báru fram sjálfstæðis- kröfur í borginni Vilnius í gær en í dag kemur Míkhaíl Gorbatsjov Sovétleiðtogi í heimsókn til Litháens. Leiðtogi þjóðernissinna sagði í gær að tekið yrði á móti Gorbatsjov sem leiðtoga erlends ríkis. Mikil ólga er nú í Sovétríkjunum og í gær var Jegor Lígatsjov, helsti fulltrúi harðlínumanna, gagnrýndur í fjölmiðlum fyrir stalín- isma og fyrir að hafa farið út fyrir valdsvið sitt með því að senda hermenn til Georgíu í apríl sl. á meðan Gorbatsjov var erlendis. „Við heilsum Gorbatsjov sem leiðtoga öflugs nágrannaríkis ^em við höfum átt löng og erfið sám- skipti við,“ sagði Vytautas Lands- bergis, formaður Sajudis, þjóð- fylkingar Litháens, á fréttamanna- fundi í gær. Mótmælin í gær fóru friðsamlega fram og fólk safnaðist saman fyrir framan dómkirkjuna í Vilnius. Búist er við mun fjöl- mennari mótmælum í dag þegar Gorbatsjov kemur í heimsókn. Gorbatsjov mun eiga viðræður við leiðtoga kommúnistaflokksins í Litháen sem rauf formleg tengsl við flokksforystuna í Moskvu fyrir skemmstu. í upphafi tók Gorbatsj- ov þeirri fregn afleitlega en undan- farið hefur margt bent til að Kremlveijar ætli að sætta sig við ákvörðun flokksins í Litháen. Þjóðaólgan í Sovétríkjunum færist stöðugt í vöxt. í gær sagði sovéska sjónvarpið frá því að eld- flaugar hefðu fundist í vörubifreið sem var á ieið frá Armeníu til hér- Ákveðið að Comecon lúti brátt markaðslögmálum aðsins Nagorno-Karabak í Az- erbajdzhan. Svo virðist sem þjóð- ernissinnaðir Armenar standi fyrir þessum vopnaflutningum en þeir krefjast þess að fá yfirráð yfir N agorno-Karabak. Þær fréttir bárust svo í gær að óróleiki væri í Sovétlýðveldinu Moldavíu þar sem menn vilja sam- einast Rúmeníu en byijað var í gær að rífa niður landamæragirðingar milli ríkjanna af opinberri hálfu. „Gorbatsjov! Farðu heim með Rauða herinn!" mátti meðal annars lesa í gær á mótmælaspjöldum, sem sum hver voru rituð á ensku, í Vilnius, höfúðborg Litháens. I dag er á von á Sovétleiðtoganum í heim- sókn til að ræða sjálfstæðiskröfur Litháa. Varaforseti Kúbu setur fyrirvara vegna séraðstæðna Sófíu. Daily Telegraph og Reuter. ÁKVEÐIÐ var í gær að Comecon, viðskiptabandalag kommúnista- ríkja, léti af einangrunarstefhu sinni og tæki smám saman mið af lögmálum frjáls markaðar. Stefht er að því að byggja á heims- markaðsverði í viðskiptum, miða við gjaldmiðla sem eru livarvetna gjaldgengir og auka viðskipti við Vesturlönd. Iran: Sá fanga brennda lifandi Genf. Reuler. RÚMLEGA tvítug stúlka, Mitra Moazez að nafni, sem var nokkur ár í fangefsi í Iran segir að þar hafi hún séð fúllorðna konu og tvo unglinga brennda lifandi. Kom þetta fram á fréttamannafúndi sem haldinn var í Genf í gær í tilefni þess að sendinefnd frá Sam- cinuðu þjóðunum ætlar að kanna stöðu mannréttindamála í Iran. Moazez var stungið í fangelsi árið 1981 vegna þátttöku í mót- mælagöngu gegn klerkastjórninni í íran og var hún í haidi til ársins 1985. Hún segist hafa sætt pynt- ingum í 85 daga áður en bytjað var að yfirheyra hana. Einhveiju sinni kom það fyrir að hún ásamt um 30 öðrum pólitískum föngum voru látin horfa á þegar þremur and- stæðingum Khomeinis erkiklerks var varpað lifandi inn í „nokkurs konar bakaraofn". Þær fréttir bárust frá íran í gær að 31 eiturlyfjasali hefði verið tek- inn af Iífi. Á síðasta ári voru rúm- lega 900 eiturlyfjasalar hengdir í landinu. „Fjörutíu ára tímabili einangr- unarstefnu er Iokið,“ sagði Miklos Nemeth, forsætisráðherra Ung- veijalands, að loknum tveggja daga fundi aðildarríkjanna 10 í Sófíu, höfuðborg Búlgaríu. Marg- ar umbótasinnaðar ríkisstjórnir í Austur-Evrópu hafa litið á Comec- on sem eitt síðasta vígi Stalínism- ans. Auk Varsjárbandalagsríkj- anna eiga Kúba, Mongólía og Víet- nam aðild að Comecon. I síðustu viku benti margt til þess að Comecon myndi leysast upp en á fundinum nú virðast menn hafa komið sér saman um að sameigin- legir hagsmunir væru það miklir að halda ætti í viðskiptabandalag- ið. Málamiðlun náðist á fundinum eftir að Tékkar gagnrýndu tillögur Sovétmanna um að án tafar yrði komið á fót verðmyndunarkerfi sem byggðist á gjaldgengum gjaldmiðlum. ÞóttTékkar, Pólveij- ar og Ungverjar hafi viljað ganga lengst í átt til fijáls markaðskerfis hafa þessar þjóðir lagt áherslu á að enn væru þær háðar auðveldum aðgangi að auðlindum og hráefni frá Sovétríkjunum. Samþykkt var að skipa nefnd til að semja nýjar grundvallarregl- ur fyrir Comecon. Pram til þessa hafa milliríkjaviðskipti innan bandalagsins byggst á miðstýr- ingu þar sem ákveðið er fyrirfram hver selur hveijum hvað og á hvaða verði. Fulltrúi Kúbu var eini fundar- gesturinn sem hafði fyrirvara á samþykki sínu í gær og mæltist til þess að tekið yrði sérstakt tillit til vanþróaðra aðildarríkja Comec- ons. „Þótt tekið sé tillit til markað- arins þarf það alls ekki að þýða stjórnleysi í framleiðslu," sagði Carlos Rafael Rodriguez, varafor- seti Kúbu. Norður-Noregur: Vilja auð- velda brott- flutninginn Ósló. Frá Rune Timberlid, fréttaritara Morgunblaðsins. NEFND, sem skipuð var til að leita lausna á kreppunni í Norð- ur-Noregi, hefur nú skilað áliti og hefur því vægast sagt verið misjafnlega tekið. Tillögurnar ganga nefnilega helst út á að auðvelda fólki að flytjast frá landshlutanum. Tillögur nefndarinnar, sem mestu máli skipta, eru þær, að Husbanken eða húsnæðismálastofnunin norska gefi norður-norskum sjómönnum upp vexti af lánum og fresti af- borgunum af þeim um ótiltekinn tíma og einnig, að þeir, sem vilja flytjast burt, gangi fyrir úm ný lán. „Hér er verið að tala um að flytja fólk hreppaflutningi en við þurfum ekki hjálp til þess. Við vilj- um aðstoð við að komast af í heim- kynnum okkar," sagði sjómaðurinn Arnt Hansen og flestir Norðlend- ingar virðast vera á sama máli. Reuter Herlögum aflétt í Peking Á miðnætti í nótt að kínverskum tíma var herlögum aflétt í Peking sem verið hafa í gildi í rúma sjö mánuði. Hér sjást hermenn yfir- gefa Torg hins himneska friðar, vettvang fjöldamorða alþýðuhersins 4. júní sl., en almenn umferð verður nú Ieyfð um torgið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.