Morgunblaðið - 04.02.1990, Qupperneq 2
2 C
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. FEBRUAR 1990
HETJUR
HQRFINNAR
RERNSKU
Sagan um Karl Blómkvist
er eftir hina kunnu
sænsku skáldkonu Astrid
Lindgren, sem meðal
annars skrifaði sögurnar
um Línu langsokk og
Emil í Kattholti og
víðfrægar urðu. Ég er þó
þeirrar skoðunar að „Leynilögreglu-
maðurinn Karl Blómkvist" sé henn-
ar besta verk. Sagan er einstaklega
lipurlega skrifuð, spennandi og
hugljúf í senn, lýsir vel tíðarandan-
um í sænskum smábæ á sjötta ára-
tugnum og inn í söguþráðinn flétt-
ast rómantískar hugleiðingar um
fyrstu ástina:
■ „Hann sat bara og góndi yfir
í bakaragarðinn eins og naut á
nývirki. Sú, sem dró að sér athygli
hans, var engin önnur en Eva Lotta,
dóttir bakarans. Hún sat í rólunni
sinni, klædd rauðköflóttum bað-
mullarkjól og rólaði sér fagurlega,
meðan hún gæddi sér á ljúffengri
bollu og söng eftirlætislagið sitt við
raust, því þessari stúlku var flest
til lista lagt. Rödd hennar var skær
og fögur og hljómaði ágætlega til
Andra og Kalla. Kalli renndi vonar-
augum til Evu Lottu og bauð Andra
karamellur annars hugar. Andri
fékk sér eina, einnig annars hugar,
en renndi jafnframt vonaraugum
til Evu Lottu. Kalli andvarpaði.
Hann unni Evu Lottu hugástum.
Sama gerði Andri. Kalli var búinn
að ákveða að kvænast Evu Lottu,
jafnskjótt sem hann hefði efni á að
stofna heimili. Hið sama var Andri
einnig búinn að ákveða. En Kalli
var ekki í neinum vafa um, að Eva
Lotta kysi hann - Kalla - heldur.
Leynilögreglumaður með ekki færri
en fjórtán glæsileg afrek að baki
sér var vissulega eigulegra manns-
efni en lestarstjóri. Andri ætlaði
nefnilega að verða lestarstjóri."
Kannski var ég svona hrifinn af
Kalla af því hann var bara venjuleg-
ur strákur eins og ég, en ekki óeðli-
lega klár eins og Tom Swift og Bob
Moran, þótt vissulega tæki maður
einnig þátt í ævintýrum þeirra.
Þeir voru úr hópi þessara \stór-
snjöllu afburðaunglinga, sem allir
kunnu að fljúga flugvélum, víluðu
ekki fyrir sér að ganga í skrokk á
stórglæpamönnum, og voru sumir
vísinda- og hugvitsmenn sem sendu
eldflaugar til tunglsins þótt þeir
væru innan við tvítugt. I þessum
hópi voru einnig Örn Brant og vin-
ur hans Don Scott. Fyrsta bókin
um Örn og Donna hét „Öm og eld-
flaugin“, sú næsta „Sævargull" og
sú þriðja „Kafbíllinn", og segja
nöfnin allt um innihaldið, en Erni
var vissulega margt til lista lagt.
Höfundur þessara bóka var John
Blaine og kann ég ekki nánari deili
á honum. Ólafur Gunnarsson rithöf-
undur hefur hins vegar svipt hul-
unni af höfundi Tom Swift bókanna
í stórgóðri „minningargrein“ um
þessa hetju bemsku sinnar í „Bak-
þönkum" hér í sunnudagsblaðinu
nýverið. Sjálfsagt hefur það orðið
mörgum aðdáendum Tom Swift al-
varlega áfail þegar Ólafur upplýsti
að höfundurinn, Victor Appleton,
var í rauninni kona og hét réttu
nafni Harriet Stratmeyer Adams.
Hún skrifaði jafnframt telpnabæk-
ur, átti stóran búgarð og hafði yndi
af því að safna brúðum að því er
Ólafur segir í umræddri grein.
Kynslóðaskipti
Einhverra hluta vegna tók ég þá
félaga Örn og Donna fram yfir Tom
Swift og vin hans Bud Barclay. Ég
held Ííka að það hafí verið einhver
kynslóðaskipti í þessu því eldri bróð-
ir minn hélt með Tom Swift og
hann las „Ævintýrabækurnar" á
KÖNNUN Á ÞEKKINGU Á SÖGUPERSÓNUM GÖMLU UNGLINGABÓKANNA
TOM SWIFT LIFIR GÖDU LÍFIEN
ÁRNI í HRAUNKOTINÁNAST GLEYMDUR
í LAUSLEGRI könnun sem
íslenskukennarar í Víðistaða-
skóla í Hafnarfirði gerðu fyrir
Morgunblaðið um þekkingu á
sögupersónum barna- og
unglingabóka frá fyrri tíð
kemur meðal annars í Ijós að
Pollýanna, Tom Swift og Bob
Moran eru vel þekkt meðal
barna og unglinga í Hafnar-
firði á sama tíma og Arni í
Hraunkoti og Hjalti Iitli virð-
ast að mestu gleymdir. Hins
vegar lifa Kári litli og Lappi
enn góðu lífi og urðu reyndar
efstir á blaði þegar spurt var
um einstaka bókaflokka.
Skylt er að geta þess að
könnun þessi er háð þeim
takmörkunum að spurt var
beint um einstakar bækur
og sögupersónur og því
komast þar ekki á blað ýmsir
bókaflokkar og persónur sem ekki
var spurt um en vitað er að eru
mikið lesnar samkvæmt upplýs-
ingum frá bókasöfnum. Úrtakið
voru börn og unglingar á aidrinum
12 til 15 ára, samtals 143 talsins.
Aðeins 3 gátu svarað því hver
Árni í Hraunkoti var, en 27 höfðu
heyrt minnst á Beverly Gray og
vissu við hvað hún starfaði. Af
þeim sem spurðir voru kváðust
49 hafa lesið Pollýönnu-bækurn-
ar, 26 bækurnar um Tom Swift
og jafn margir bækurnar um Bob
Moran. Af einstökum bókaflokk-
um voru bækumar um Kára litla
og Lappa mest lesnar af þeim sem
spurt var um, en 64 sögðust hafa
lesið einhveija þeirra. Fast á eftir
fylgdi bókaflokkurinn um Nancy
eftir Carolyn Keene með 62 les-
endur og því næst komu Öddu-
bækurnar eftir Jennu og Hreiðar
Stefánsson með 45 lesendur.
Engin söguhetja naut afger-
andi vinsælda þegar spurt var um
uppáhalds sögupersónu og vom
þar nefndar persónur allt frá
Andrési Önd og Lukku Láka upp
í Gísla Súrsson og Gunnar á Hlíða-
renda. Þó var nokkuð algengt að
nefndar vom sögupersónur úr
unglingabókum sem út komu fyr-
ir síðustu jól og var þar Kiddi,
úr bók Þorgríms Þráinssonar
„Með fiðring í tánum“, oftast
nefndur. Sú bók varð einnig efst
á blaði þegar spurt var hvaða bók
viðkomandi hafði lesið síðast.
Skoðanir voru nokkuð skiptar
þegar spurt var um hvernig bæk-
ur viðkomandi fyndist skemmti-
legastar. Hinir yngri nefndu
gjarnan ævintýrabækur en þeir
elstu kusu spennu- og ástarsögur.
Við þetta má svo bæta að sam-
kvæmt upplýsingum frá skóla-
safnvörðum í Víðistaðaskóla eru
bækurnar um Rósu Bennett enn
talsvert mikið lesnar og eins virð-
ast „ævintýra-, fimm- og dular-
fullubækurnar" hennar Enid Bly-
ton alltaf njóta jafnmikilla vin-
sælda. Karl Blómkvist er enn eitt-
hvað lesinn, þó ekki eins mikið
og ýmsar aðrar bækur eftir Astrid
Lindgren. Lítið er spurt um Öm
Brant, nema í einstaka tilfellum
þar sem lesandinn hefur áður
kynnst Tom Swift og vill fá meira
að lesa um hugvitssama unglinga.
Tii gamans skulu hér birtar
helstu niðurstöður könnunarinn-
ar:
• 1. Hver var Ámi í Hraunkoti?
- Aðeins þrír svöruðu rétt.
2. Hefurðu heyrt minnst á Be-
verley Gray? Hvað starfaði hún?
- 27 gátu svarað þessu á fullnægj-
andi hátt.
3. Hefurðu lesið einhverjar
bækur sem segja frá þessum per-
sónum? - Pollýanna 49, Tom Swift
26, Bob Moran 26, Grímurgrall-
ari 23, Matta Maja 19, Gvendur
Jóns 9.
4. Hefur þú lesið einhveij ar
bækur, eina eða fleiri, úr þessum
bókaflokkum? - Bækur um Kára
litla og Lappa 64, Nancy bækurn-
ar 62, Öddu bækurnar 45, Benna
bækurnar 20, Dóru bækurnar 20,
Kim bækurnar 17 og Hjalta bæk-
urnar 5.