Morgunblaðið - 04.02.1990, Síða 12
12 C
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 1990
Abu Talb: í haldi í Svíþjóð.
Hvemigsamsœrib um ab granda farþegaþotu Pan Am var skipulagt
SKOZKA LÖGREGLAN vill yflrheyra arabíska hryðjuverkamanninn
Mohammed Abu Talb, sem Svíar dæmdu í lífstíðarfangelsi fyrir jólin,
en hefur ekki enn farið fram á að hann verði framseldur. Talb er eini
maðurinn, sem hefur verið opinberlega sakaður um að hafa „myrt eða
tekið þátt í að myrða“ 270 manns, sem biðu bana þegar farþegaþota
bandaríska flugfélagsins Pan Am sprakk í tætlur yfir Lockerbie í Skotl-
andi 21. desember 1988. Kviðdómur í Uppsölum dæmdi Talb útaföðru
og óskyldu máli - sprengjuárásum á bandarísk og ísraelsk skotmörk
i Danmörku og Hollandi 1985.
Lögreglumenn frá Skotlandi
fengu að leita í íbúð Talbs í
Uppsölum og höfðu á brott
með sér föt, sem hann virðist
hafa keypt á Möltu nokkrum
vikum fyrir Lockerbie-slysið.
Sama dag og slysið varð var
taska með fatnaði send frá Möltu
með áætlunarflugvél til Frankfurt.
Útvarpssprengja leyndist í töskunni
og hún var flutt um borð í þotu Pan
Am í „áætlunar-
flugferð 103“ til
Bandaríkjanna.
Þegar skipt
var um vél á He-
athrow-flugvelli
hjá Lundúnum
fylgdi taskan öðrum farangri, sem
var fluttur um borð í Pan Am-þotu
þá sem sprakk yfir Lockerbie. Um
það hefur ekki verið deilt að útvarps-
sprengjan í töskunni frá Möltu hafi
valdið sprengingunni í „flugi 103“
frá Frankfurt. Enginn í Pan Am-
þotunni átti töskuna, sem sprengjan
var í.
Þótt Skotar hafi ekki enn farið
fram á að Abu Talb verði framseldur
eru þeir í engum vafa um að hann
hafi gegnt mikilvægu hlutverki i
Lockerbie-málinu og notið öflugs
stuðnings vina og venzlafólks. Með
þrotlausu starfi hefur tekizt að rekja
slóð Talbs og margra annarra arabí-
skra hryðjuverkamanna og tengja
þá Lockerbie-slysinu. Heppni hefur
mm ERLEND ■
hriwcsiA
eftir Guöm. Halldórsson
átt ríkan þátt í þeim árangri, sem
hefur náðst, en óhöpp hafa einnig
komið við sögu.
Heppni og mistök
Um tíma virtust Vestur-Þjóðveijar
hafa klúðrað rannsókninni. Einn
sprengjusérfræðinga þeirra beið til
dæmis bana og annar særðist þegar
þeir leituðu að falinni sprengju. Hins
vegar fékk einn hryðjuverkamann-
anna samvizkubit
þegar hann var
yfirheyrður og lét
í té mikilvæga
vitneskju.
Við rannsókn-
ina hafa starfað
5.000 brezkir lögreglumenn, tugir
starfsmanna bandarísku alríkislög-
reglunnar FBI, lögreglan í Vestur-
Þýzkalandi, Svíþjóð og á Möltu og
leyniþjónustustofnanir á Vesturlönd-
um og í Miðausturlöndum. Rann-
sóknin hefur náð til 52 landa og
14.000 vitni hafa verið yfirheyrð.
Brak úr Pan Am-þotunni dreifðist
yfir 1.200 ferkílómetra svæði og
milljónum brota hefur verið safnað.
Hvert einasta stykki hefur verið
rannsakað gaumgæfilega og öllum
brotunum raðað saman. Fullkomn-
ustu vísindaaðferðum hefur verið
beitt við rannsóknina, ekki sízt efna-
og eðlisfræðilegum.
Frá byijun var talið nær víst að
palestínskir og íranskir hryðjuverka-
menn hefðu grandað þotunni, en
sannanir skorti. Athyglin beindist
ekki að Abu Talb fyrr en hann var
handtekinn í Svíþjóð í vor. í ljós kom
að hann hafði ýmist sagzt vera Ma-
rokkómaður, Líbani, Líbýumaður,
Jemeni eða ríkisfangslaus Palestínu-
maður, verið svarinn óvinur ísraels-
manna frá blautu bamsbeini og
særzt þrisvar sinnum í baráttu fyrir
málstað Palestínumanna. Smám
saman tókst að af la fyllri upplýsinga
um skuggalegan feril þessa hryðju-
verkamanns, sem kallaði sig Intiqam
(Hefnd), en margt er enn á huldu.
Leiðin til Uppsala
Mohammed Abu Talb er Iíklega
fæddur 1952 : Port Said og er einn
sjö systkina. Þegar bróðir hans féll
í einni orrustu Egypta við ísraels-
menn í sex daga stríðinu 1967 varð
hatur hans á ísraelsmönnum að þrá-
hyggju. Ári síðar gerðist hann sjálf-
boðaliði í egypzka hernum. Hann
þótti samvizkusamur hermaður og
var sendur til þjálfunar í Sovétríkjun-
um 1969, en þremur árum síðar var
honum varpað í fangelsi, líklega
vegna þess að hann reyndi að stijúka
úr hernum. í fangelsinu stóð hann
fyrir óeirðum og særðist.
Talb tókst að flýja frá Egypta-
landi um Jórdaníu til Beirút 1973.
Þá hafði hann verið liðsmaður í Frels-
issamtökum Palestínu (PLO) í þijú
ár, en í Beirút gekk hann í róttæk-
ari samtök, Baráttuhreyfingu pa-
lestínskrar alþýðu (PPSF). Þau sam-
tök hafa verið í slagtogi með Al-
þýðufylkingunni til frelsunar Pa-
lcstínu (PFLP-GC), sem er skipuð
einhveijum mestu hatursmönnum
gyðinga, hefur bækistöðvar í Dam-
askus og er undir forystu sýrlenzka
majórsins Ahmed Jabril. Talb varð
yfirmaður 100 manna öryggissveitar
PPSF, særðist í bardögum 1976 og
Skæruliði úr samtökum Jibrils: Svarnir óvinir ísraelsmanna.
lagði stund á stjórnvísindi og hag-
fræði í háskólanum í Beirút i tvö ár.
Fyrrverandi kona Abu Talbs, Jam-
ila Moghrabi, er frá Líbanon og hef-
ur ekki verið viðriðin hryðjuverk.
Hún er 28 ára og gengur með þriðja
barni þeirra, en þau skildu í marz
1989. Ein systir hans, Khulud, var
handtekin í Bretlandi 1978 fyrir að
reyna að ráða sendiherra íraks af
dögum með handsprengju. Önnur
systir hans, Delai, lézt þegar hún
hafði komið fyrir sprengju í ísraelsk-
um almenningsvagni.
Talb og Jamila fluttust til Svíþjóð-
ar 1983, ári eftir að PLO hrökklaðist
frá Lfbanon, og settust að í háskóla-
bænum Uppsölum. Svíþjóð freistaði
þeirra eins og hundruð annarra Pa-
lestínumanna vegna fijálslyndis Svía
í garð pólitískra flóttamanna. í Upp-
sölum býr fólk frá 130 löndum og
Talb-hjónin kunnu vel að meta tölu-
verðan heimsborgarbrag, sem þar
ríkir.
Hjónin báru fölsuð marokkósk
vegabréf og kváðust hafa komið til
Svíþjóðar til að flýja ofbeldi. Talb
stundaði alls'konar störf í Uppsölum,
en var lengst af húsvörður og flutti
inn og seldi arabískan mat og mynd-
bandsspólur.
Sprengjuherferð
Sennilega var Abu Talb sendur til
Svíþjóðar til að koma á fót „sellu“
palestínskra hryðjuverkamanna í
Skandinavíu. Slík sella varð að veru-
leika undir hans stjórn og varð útibú
úr samtökum Jabrils, PFLP-GC, þótt
hann væri í PPSF. Fram kom í réttar-
höldunum gegn honum fyrir jól að
MANNSIHS