Morgunblaðið - 04.02.1990, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ SAMSAFNIÐ SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 1990
C 31
Á tröppum ÍR-hússins vetur-
inn 1947 til 1948 við upphaf
æfinga ólympiukandidata.
Fremstir standa frá vinstri:
Sigurjón Pétursson frá Ála-
fossi, Jakob Albertsson ÍR,
Óskar Jónsson ÍR, Örn Eiðs-
son ÍR og Kjartan Jóhanns-
son IR. I annarri röð, fyrir
aftan Sigurjón, er Pétur
Einarsson ÍR, þá Olle Ek-
berg þjálfari ÍR og Sveinn
Björnsson KR. í þriðju röð
eru f.v: Ólafur Guðmundsson
ÍR, Ingi Þorsteinsson KR,
Haukur Clausen ÍR og Sig;
urjón Ingason Ármanni. í
fjórðu röð Finnbjörn Þor-
valdssonÍR, Reynir Sigurðs-
son ÍR, Örn Clausen IR og
Jóel Sigurðsson ÍR. í fimmtu
röð Friðrik Guðmundsson
KR, Þórður Þorgeirsson
KR, Indriði Jónsson KR og
Páll Halldórsson KR. f næ-
stefstu röð Magnús Jónsson
KR og Bjarni Linnet ÍR.
Efstir standa Ásmundur
Bjarnason KR, Vilhjálmur
Vilmundarson KR og
Trausti Eyjólfsson KR.
Ólympíufarar æfa inngöngu á Melavelli skömmu fyrir brottförina til London sumarið 1948. Finnbjörn
Þorvaldsson er fánaberi og við hlið hans gengur Jens Guðbjörnsson formaður Ármanns. Fyrir hópnum
ganga, frá hægri: Erlingur Pálsson, Olle Ekberg frjálsíþróttaþjálfari og maðurinn í ljósu fötunum er
Jón Pálsson sundþjálfari. Síðan koma keppendur i tvöfaldri röð.
SIMTALID ...
er vió Þorstein Hjaltason fólkvangsvörd í Blájjóllum
Veðrið hefur leikið
okkur grátt
78400
Bláfjöll, góðan dag.
— Góðan dag, er Þorsteinn
Hjaltason við?
Já, augnablik
Halló.
— Þorsteinn?
Já.
— Þetta er á Morgunblaðinu,
Friðrik Indriðason heiti ég.
Komdu blessaður.
— Blessaður. Mig langaði til
að forvitnast um hvernig þetta
hefði gengið til hjá ykkur frá því
að þið opnuðuð.
Það eru nú ekki mjög spenn-
andi fréttir að hafa héðan í augna-
blikinu. Veðrið hefur leikið okkur
grátt og þótt fólk hafi klæjað í
fingurna að komast á skíði þar
sem færið er nú með besta móti
höfum við oft ekki getað opnað
lyfturnar vegna veðurs.
— Eruð þið ekki búnir að 'opna
nýja lyftu á svæðinu?
Það er raunar ekki ný lyfta en
við færðum til og lengdum tengi-
lyftuna þannig að nú er hægt að
komast milli Eldborgargils og
Kóngagils með góðu móti eða frá
norðri til suðurs eftir fjallinu. Áður
var þama ákveðinn tappi. Raunar
höfum við ekki getað opnað þessa
lyftu enn, vegna veðurs, en hún
kemst í gagnið á næstunni. Eftir
tilfærsluna hefur
lyftan lengst úr
400 metmm í
tæpa 700 metra
og hún annar um
600 manns á
klukkustund.
— Hvað koma
margir í Bláfjöll á
góðum degi?
Það er svona á
bilinu 3.000-5.000
manns. Skíðafólk
streymir hér að
þegar opið er.
Lyfturnar geta
með góðu móti annað 3.000
manns en þegar fleiri em mynd-
ast biðraðir við þær og við þurfum
eiginlega að fá fleiri lyftur til að
geta annað mestu eftirspurninni.
— í hverju eru störf þín og þíns
aðstoðarfólks aðallega fólgin?
Það er aðallega gæsla við lyft-
umar og að vera til taks ef
meiðsli og slys verða. Við sjáum
einnig um að vegurinn hingað sé
mddur og að vatn sé flutt á stað-
inn svo dæmi séu tekin.
— Er ekki í nógu að stússast
þegar hátt í 5.000 manns eru á
svæðinu?
Jú, en í góðu veðri er þetta
mjög einfalt og gengur stórslysa-
laust fyrir sig.
— Ert þú sjálfur skíðamaður?
Já, ég er það.
— Og ferðu oft á skíði
Ekki eftir að ég byijaði í þessu
starfi. Vinnan gengur fyrir hjá
mér. Ég fer hinsvegar á skíði
þegar vorið nálgast og starfsemin
er komin í fastar skorður.
— Eru einhver stórverkefni,
fyrir utan tengilyftuna, framund-
an hjá ykkur?
Nei.það er vart hægt að segja
það. En eins og ég gat um áðan
þá þyrftum við að fá fleiri lyftur
sökum þess hve vinsælt svæðið
er orðið meðal sk-
íðamanna og ætli
það sé ekki það mál
sem við setjum á
oddinn í nánustu
framtíð. — Jæja,
ég ætla ekki að
tefja svo önnum
kafinn mann sem
þig meira en ég
þakka þér kærlega
fyrir spjallið. Já,
takk sömuleiðis.
— Vertu blessaður.
Blessaður.
Þórir Baldursson tónlistarmað-
ur hefur ekki verið mikið í
sviðsljósinu hérlendis á undanf-
örnum árum. Hann var félagi í
Savannatríóinu sem var með
vinsælustu skemmtikröftum
landsins á sjötta áratugnum. Á
áttunda áratugnum lá leið hans
til Þýskalands þar sem hann
útsetti lög og spilaði á plötum
með mörgum af stærstu nöfh-
unum í dægurtónlist þess tíma.
Má þar nefna tónlistarmenn á
borð við Grace Jones, Donnu
Summers, Elton John og Boney
M. En hvar ætli Þórir sé stadd-
ur í dag?
órir Baldursson vinnur nú við
lagasmíðar og útsetningar í
New York. Hann hefur þar íbúð
og hljóðver til afnota og segir að
sér gangi alveg prýðilega. Hann
vinnur eingöngu fyrir svarta tón-
listarmenn og gerir það í félagi
við þijá lagahöfunda frá San
Francisco, þá Larry Batiste, Cla-
ytowen og Jon Bendish. Aðallega
er um að ræða blús, danslög, hip
hop og fönk-tónlist.
Tónlistarmenn þeir sem Þórir
vinnur fyrir eru ekki mjög þekkt-
ir utan Bandaríkjanna en þar má
fínna nöfn á borð við Star Point,
hljómsveit sem er samningsbund-
in við Elektra, og Keith Sweat,
sem er á samningi hjá Phonogr-
am. Síðustu tvær plötur sem
Keith Sweat sendi frá sér seldust
í um 3 milljónum eintaka í Banda-
ríkjunum.
„Ég hef haft nóg að gera að
undanförnu sem sjálfstæður laga-
höfundur og er bjartsýnn á
HVAR
ERU ÞAV
WÚ?
Viðtón-
smíðar
i New York
framtíðina,“ segir Þórir en hann
hefur starfað að þessu undanfarin
þijú ár. Hann vann raunar í
Þórir Baldursson.
Bandaríkjunum að svipuðum
verkefnum í lok áttunda áratugar-
ins og fram til 1982. Síðan var
-hann með annan fótinn á íslandi
þar til fyrir þremur árum.
Þórir segir að það sé langt frá
því að hann sé farinn frá íslandi.
Þvert á móti hyggur hann á að
flytja alfarið heim til íslands nú í
haust.
„Ég hef trú á því að ég sé
búinn að koma ár minni það vel
fyrir borð hér úti að ég geti starf-
að að lagasmíðum mínum heima
á íslandi og sent svo efnið utan,“
segir hann.
í máli hans kemur fram að
ástæða þess að hann vill koma
heim sé að fjölskylda hans búi hér
heima og það sé slæmt að vera
lengi íjarvistum frá henni. Hann
er giftur Guðrúnu Pálsdóttur
dansara hjá Þjóðleikhúsinu og
eiga þau eina dóttur saman.