Morgunblaðið - 24.04.1990, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 1990
Yaacov Zamir
Syngur alt- og tenórhlutverkið í H-moll-
messunni með Kór Langholtskirkju
eftirJón Stefánsson
Oft verður mér hugsað til þess
tímabils er ég á síðastliðnu ári, ásamt
Kór Langholtskirkju, heimsótti
Landið helga, til að syngja hina stór-
kostlegu óratoríu, Messías eftir G.F.
Handel. Á fyrstu æfíngunni með
hljómsveitinni tók ég eftir hávöxnum
grönnum manni, alskeggjuðum, með
„spaníólu“ á höfði. Fylgdist hann
mjög vel með æfingunni. Ég var að
fara yfír hljómsveitarundirleikinn í
bassaaríunni „The trumpet shall so-
und“. Ég veitti því athygli að maður-
inn söng bassalínuna með og virtist
hafa góða rödd. í hléi vorum við
kynntir. Yaacov Zamir var nafnið.
Mér til mikillar undrunar reyndist
þessi maður, sem hafði verið að raula
bassaaríuna, vera sá sem átti að
syngja bæði alt- og tenórhlutverkið
í verkinu! í stuttu máli kom þessi
undramaður á óvart á hveijum ein-
asta konsert. Ekki aðeins að hann
skilaði báðum hlutverkum með mikl-
um glæsibrag heldur einnig hvernig
hann „músíseraði" Handel. Eins og
þeir vita sem þekkja hina bresku
hefð í flutningi á Messíasi, þá tíðkað-
ist það að skreyta aríurnar. Oftast
fínnur hver söngvari sér nokkum
veginn fastmótaðan farveg. En ekki
Yaakov! Hugmyndaflugið var slíkt
að í engin tvö skipti notaði hann
sömu útgáfu. Enda var hann hinn
mesti senuþjófur og áheyrendur gátu
■oft ekki stillt sig um að klappa fyrir
honum eftir aríumar þó það tíðkist
yfirleitt ekki í óratoríum!
Yaakov Zamir fæddist í Banda-
ríkjunum og hlaut tónlistarmenntun
sína við háskólana í Maine og
Massachusetts og einnig í Chicago
og San Francisco. Hann sérhæfði sig
í að syngja gamla tónlist og hefur
unnið beggja megin Atlantsála með
mörgum af virtustu flytjendum
slíkrar tónlistar, t.d. Christopher
Hogwood, Raphael de Burgos, Edo
de Waart, Nicolas McGregan, Paul
Halley, James David Christie og
Anthony Newman. Zamir hefur vald
á ýmsum ólíkum raddgerðum þar
sem hann syngur bæði baritón, te-
nór, alt og mezzosópran. Hann hefur
búið og starfað í ísrael síðan snemma
árs 1989. Hann er nú væntanlegur
til landsins í byijun maí og syngur
alt- og tenórhlutverkið í Messu í h-
moll sem Kór Langholtskirkju flytur
í Langholtskirkju 5. og 6. maí. Aðrir
Yaacov Zamir
„Var hann hinn mesti
senuþjófur og áheyrend-
ur gátu oft ekki stillt sig
um að klappa fyrir honum
eftir aríurnar þó það
tíðkist yfirleitt ekki í órat-
oríum!“
einsöngvarar verða Ólöf Kolbrún
Harðardóttir, Signý Sæmundsdóttir
og Magnús Baldvinsson. í ráði er að
Zamir syngi einsöngstónleika hinn
7. maí þar sem efnisskráin ber yfír-
skriftina „Þrír konungar ísraels".
Öll verkefnin tengjast Sál, Davíð og
Salómon.
Höfundur er organleikari og
söngstjóri.
MOBIRA
TALKMAN
FARSÍMINN
Á STÓRLÆKKUÐU
VERÐI!
Þegar menn tala um „alvöru" farsíma eiga þeir við
Mobira Talkman. Vegna sérlega hagstæðra samninga
við framleiðanda getum við boðið þessi vönduðu tæki á
frábæru verði:
■ AÐEINS i
196.368KRÍ1
3 ára ábyrgð
og okeypis kaskótrygging.
Til staðfestingar á því trausti sem við berum til Mobira
Talkman bjóðum við 3 ára ábyrgð ög jafnlanga
endurgjaldslausa kaskótryggingu gegn skemmdum,
skemmdarverkum og þjófnaði. Enginn annar býður
þessa einstöku þjónustu hér á landi.
Hátaéknihf.
Ármúla 26, símar: 91 -31500-36700
Loftorka kaupir ný
tæki fyrir 40-50 millj.
LOFTORKA hf. hefur fest kaup á tveimur beltagröfum, 22 og 43
tonnum að þyngd, og einum veghefli og er ráðgert að stærri grafan
og veghefíllinn verði við virkjunarfí-amkvæmdir við Blöndu í sumar.
Minni beltagrafan verður notuð við gatnagerðaframkvæmdir í
Reykjavík og í Kópavogi. Tækin eru framleidd af fyrirtækinu O&K
í Danmörku og flutt inn af Bræðurnir Ormsson hf.
Að sögn Sigurðar Sigurðssonar,
forstjóra Loftorku, er hér um að
ræða fjárfestingu upp á 40-50 millj-
ónir króna.
„Virðisaukaskatturinn hefur
breytt miklu fyrir verktaka hvað
varðar tækjakaup. Áður var sölu-
skattur inni í kaupverðinu en nú
fáum við virðisaukaskatt til baka
auk þess sem tollar voru lækkaðir
um 5%. Þetta þýðir að verð á vinnu-
vélum hefur lækkað um 29%. Þetta
er alger bylting fyrir verktakafyrir-
tæki,“ sagði Sigurður.
Morgunblaðið/Sverrir
Framan við 43 tonna beltagröfu standa frá vinstri: Karl Eiríksson,
umboðsaðili O&K, Sigurður Sigurðsson, forstjóri Loftorku, Eiríkur
Karlsson, umboðsaðili O&K, og Hinrik Sigurjónsson, sölustjóri Bræð-
urnir Ormsson hf.
Af landkostum Golf-
klúbbs Garðabæjar
eftir Kjartan Borg
Garðbæingar njóta nábýlis við
Vífilsstaði. Reisn staðarins hæfir
merkri sögu landnáms, afrekum
mannsandans, svo og virðingu fyrir
fögni umhverfi.
Á síðastliðnu ári trúðu forsvars-
menn Ríkisspítala Garðbæingum
fyrir hinu dýrmæta Vífilsstaðatúni,
undir golfvöll. Að afsala sér hinni
verðmætu eign fyrir 40 félagsskír-
teini, á sama tíma sem Ríkisspítalar
líða fyrir fjárskort, kann að virðast
lítil hagsýni. En ef betur er að gáð
kynni víðsýni, að staðarsið, að ráða
meiru. Heilbrigðismál ná út fyrir
raðir hinna sjúku, og eigninni er
varið til verndar góðri heilsu og til
heilsubótar. Nú gefst almenningi
tækifæri að teyga hið heilnæma
loft við iðkun göfugrar íþróttar, og
segja má að Vífilsstaðaspítali þjóni
áfram köllun sinni. Læknar gefa í
dag tilvísun á golfklúbbinn við
streitu og of háum blóðþrýstingi
fremur en lyfseðil og meðalakúr.
Stjórn Golfklúbbs Garðabæjar
álítur að völlur á Vífilsstaðatúni
yrði fyrst og fremst gerður fyrir
fjölskyldugolf, en ekki meistara-
flokk. Lögð verður áhersla á æf-
ingasvæði og almenna kennslu.
Unglingar þurfa stutt að fara og
auðveldar það allt starf með þeim.
Völlurinn getur orðið til mikillar
prýði, jafnt fyrir bæjarbúa sem
starfsmenn Ríkisspítala, svo og
vistmenn á Vífilsstöðum. Skógrækt
á auðvelt uppdráttar á svæðinu og
gæti gert völlinn sérstakan hér á
landi.
„Er það nú í ágætum
höndum bæjaryfirvalda
að gera drauminn að
veruleika og góðan bæ
betri“
Eins og landið er í dag er það
fáum til ánægju sökum mikillar
bleytu og jafnframt er það erfitt
yfirferðar vegna djúpra og hættu-
legra skurða. Einnig hefur landið
nánast verið í órækt undanfarin ár.
Mikið starf verður að inna af hendi
við framræslu og ræktun, en til
mikils er að vinna, og er það vel
að umhverfismál eru ofarlega á
baugi í dag.
Mönnum kemur saman um, að
mjög geti verið athugandi að gera
túnið að útivistarsvæði að vetri, og
er þar möguleiki á brautum fyrir
skíðagöngu og jafnvel tjarnir fyrir
skautasvell.
Golfklúbburinn hefur leitað eftir
samstarfi við bæjarráð Garðabæjar
og lagt fram sundurliðaða verk- og
kostnaðaráætlun fyrir fyrirhugaðar
upphafsframkvæmdir í sumar, svo
sem gerð skála og bílastæða auk
æfingasvæðis og bráðabirgða-
brauta. Formaður íþrótta- og tóm-
stundaráðs hefur lagt málefninu lið
af miklum áhuga og góðum vilja,
og er það nú í ágætum höndum
bæjaryfirvalda að gera drauminn
að veruleika og góðan bæ betri.
Höfundur er fornmður Golfklúbbs
Garðabiejar.