Morgunblaðið - 24.04.1990, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. APRIL 1990
Minning:
Guðmundur Guð-
mundsson, Tjörn
Fæddur 19. september 1913
Dáinn 16. apríl 1990
í dag kveðjum við kæran frænda
og vin, Guðmund Guðmundsson,
eða Munda eins og hann var jafnan
kallaður. Hann lést í Sjúkrahúsi
Akraness 16. apríl sl. eftir stutta,
en stranga legu. Hve ótrúlegt, hann
sem alltaf var svo hress og kátur,
engum datt í hug að hann fengi
ekki lengri jarðvist, en svona er
það, við eigum engan dag né stund
vísa. Þessi móðurbróðir minn er
þriðju bróðirinn sem deyr með árs
millibili og er því stórt skarð rofið
í þennan stóra systkinahóp frá Sig-
urstöðum, en 6 systur og 1 hálf-
bróðir eru nú eftir af 12 systkinum.
Þessu fáu orð mín eiga að verða
kveðja og þakkarorð til hans fyrir
hans tryggð við foreldra mína, en
hvern einasta morgunn kom hann
til þeirra ásamt fleirum vinum
þeirra, og var þá oft glatt á hjalla,
skipst á skoðunum um menn og
málefni og slegið á létta strengi
yfir kaffibolla. Var þetta sérstak-
lega mikil ánægja fyrir föður minn,
Þórð Þ. Þórðarson, sem um árabil
gat ekkert farið vegna lasleika, en
hann lést í október sl. Áfram komu
þessir góðu vinir til móður minnar
og var sérlega kært með þeim
Munda og Sigríði, móður minni, og
var hann alltaf boðinn og búinn að
rétta henni hjálparhönd ef með
þurfti.
Mundi var gæfumaður, hann
giftist Ólöfu Guðmundsdóttur frá
Vogatungu og áttu þau 8 börn, sem
öll eru gift og eiga marga afkom-
endur, sem nú kveðja föður sinn.
~fcóa mín, þér og börnum þínum
sendum við hjónin innilegar samúð-
arkveðjur, frá móður minni er flutt
hjartanskveðja og þakklæti til
Munda fyrir allt sem hann var
henni.
Ég heyri Jesú himneskt orð
kom hvíld ég veiti þér
þitt hjarta er mætt og höfuð þreytt
því halla að bijósti mér. (Stef. Thor.).
Fari kær frændi í friði, Guð
blessi Jiann.
Ástríður Þ. Þórðardóttir
Mig langar með fáum orðum að
minnast bróður míns Guðmundar
Guðmundssonar frá Sigurðsstöðum
á Akranesi. En hann andaðist á
Sjúkrahúsi Akraness 16. apríl síð-
astliðinn eftir stutta en erfiða legu.
Við vorum ekki viðbúin því að hann
færi svona fljótt. Hann hafði alltaf
verið svo hraustur.
Guðmundur var fæddur að Sig-
urðsstöðum á Akranesi 19. septem-
ber 1913, sonur hjónanna Kristínar
Jónsdóttur og Guðmundar Guð-
mundssonar. Hann var fjórði í röð-
inni af tíu börnum þeirra hjóna og
eru þau talin hér í aldursröð. Rósa
sem andaðist á fyrsta ári, Sigríður,
Halldór sem andaðist 1989, Sigur-
rós, Guðmundur sem hér er
minnst, Jónmundur er andaðist
1988, Gréta, Júlíanna, Petrea og
Ester er þessa grein ritar. Kristín
átti tvö börn frá fyrra hjónabandi,
Ástríði Þórey og Valdimar. Er nú
stórt skarð höggvið í þennan stóra
systkinakóp frá Sigurðsstöðum er
þrír bræður falla frá á tveimur
árum.
Guðmundur kvæntist eftirlifandi
eiginkonu sinni, Ólöfu Guðjónsdótt-
ur frá Vogatungu í Leirársveit,
þann 3. október 1934 og hafði
hjónaband þeirra staðið í 55 ár sl.
haust.
Mundi og Lóa eins og þau voru
alltaf nefnd eignuðust 8 böm. Þau
em Böðvar, Guðmundur, tvíburarn-
ir Una og Halla, Kristín og Kristinn
sem einnig eru tvíburar, Guðjón og
Dóra. Síðari tvíburarnir fæddust á
60 ára afmæli móður okkar og bera
nafn hennar. Oft hlýtur að hafa
verið erfítt með allan þennan bama-
hóp. Sex böm þeirra hjóna búa á
Akranesi, ein dóttir í Reykjavík, og
ein í Hafnarfírði. Bamabörnin em
26 og barnabarnabörnin em 18.
Svo þar er stór afkomendahópur
þeirra hjóna.
Á þessum ámm kaupa þau sér
hús hér á Akranesi. Húsið heitir
Tjörn og þar bjuggu þau í 51 ár.
Það var söknuður í huga þeirra
þegar þau fóm þaðan eftir öll þessi
ár og fluttu að Vallarbraut 1.
Mundi byijaði ungur sjómennsku
eins og algengt var á þessum ámm.
Síðar gerðist hann bílstjóri hjá
mági sínum Þórði B. Þórðarsyni er
lést í nóvember sl. Var hann hjá
honum í mörg ár bæði við fólks-
flutninga og vömflutninga. Síðustu
starfsár sín var hann hjá Haraldi
Böðvarssyni & Co. við hin ýmsu
störf.
Mundi var léttur í Iundu, gaman-
samur og glettinn. Nú á seinni áram
átti hann fólksbíl og gátu þau hjón-
in farið í smá ferðalög þegar þeim
hentaði. Valdimar bróðir okkar sem
nú dvelst á Dvalarheimilinu Höfða
á Akranesi missir mikið nú þegar
hann er orðin einn eftir af bræðmn-
um. Mundi var honum svo mikið,
sinnti ýmsu fyrir hann og keyrði
hann þegar hann þurfti þess með.
Lóa mín, ekki er síður mikill missir
ykkar, þinn og bamanna. Þið búin
að vera saman í um 60 ár svo tóm-
leikinn er mikill þegar eiginmaður
og faðir, afí og langafí kveður
svona snöggt. Við systkinin frá Sig-
urðsstöðum þökkum þér af alhug
fyrir allt sem þú varst honum öll
þessi ár.
Ég og fjölskylda mín vottum þér,
bömum þínum og fjölskyldum
þeirra okkar dýpstu samúð og megi
góður Guð styrkja ykkur. Blessuð
sé minning Guðmundar Guðmunds-
sonar.
Ester Guðmundsdóttir,
Akranesi.
Afí okkar dó að morgni 16. apríl
1990. Okkur langar að minnast
þessa vinar okkar með fáum orðum.
Hann var bóndi í eðli sínu og naut
þess að fást við búskap af ein-
hveiju tagi. Hann hafði jafnan fá-
einar kindur til að sinna þessari
þörf sinni. Hinsvegar starfaði hann
sem bifreiðastjóri. Ók langferðabíl-
um milli Akraness og Reykjavíkur
og einnig vörubifreiðum fyrir físk-
vinnslufyrirtæki á Akranesi.
Mestan hluta ævi sinnar bjó hann
í Tjöm. Húsið stendur skammt frá
Barnaskóla Akraness og var því á
leið okkar til og frá skóla. Viðkom-
an þar var ávallt skemmtileg.
Amma Lóa gaf okkur að drekka
en afí hélt uppi líflegum umræðum
eða sá okkur fyrir sögum.
Hann hafði frísklega framkomu.
Hressilegt orðaval, hlátur og góð-
látlegt stríð vom sjaldan langt und-
an ef andrúmsloftið gaf tilefni til.
Hinsvegar veitti hann ómælda hlýju
og öryggi þegar á þurfti að halda.
Þetta vom þau persónueinkenni
sem frá honum geisluðu og munu
þau lifa í bijóstum okkar systkin-
anna um ókomna tíð.
Það sem mikla gleði veitir skapar
okkur jafn stóra sorg þegar þess
nýtur eigi lengur. Almættið kallaði
hann snöggt til fundar við sig. Er
það okkar eina huggun gegn svo
miklum harmi að vita hann í svo
góðum höndum.
Guðmundur, Hrafnhildur
Linda Björk, Arnar og Halla.
í dag verður til moldar borin elsk-
ulegur tengdafaðir minn, Guð-
mundur Guðmundsson.
Hann var fæddur á Sigurstöðum
þann 19. september 1913, sonur
hjónanna Kristínar Jónsdóttur og
Guðmundur Guðmundssonar. Ung-
ur að árum fór hann til sjós og
stundaði hann sjómennsku í nokkur
ár. En um tvítugsaldur hóf hann
störf hjá mági sínum, Þórði Þ. Þórð-
arsyni, sem bifreiðastjóri. Keyrði
hann þá mest rútur og stundum
sjúkrabílinn enda þótti hann af-
burða góður bflstjóri sem fólkið
treysti á.
Árið 1958 hætti hann hjá Þórði
og fór til HB og Co. og vann sem
bflstjóri og verkamaður uns hann
lét af störfum fyrir aldurs sakir.
Árið 1934 giftist hann Ólöfu
Guðjónsdóttur frá Vogatungu í
Leirársveit. Eftir 3ja ára hjónaband
fluttust þau að Tjörn og bjuggu þar
í rúma hálfa öld. Bömin urðu 8,
en barnaböm og bamabamabörn
em alls orðin 43.
Ég kynntist þeim Guðmundi og
Ólöfu fyrst árið 1970. Þegar ég
giftist Kristni, syni þeirra, þá bjugg-
um við í Reykjavík og skruppum
stundum í heimsókn á Skagann.
Það var alltaf notalegt að koma í
Tjöm.
Er mér það sérstaklega minnis-
stætt hve mér þótti gaman að
hlusta á Guðmund segja sögur af
ferðalögum sínum sem án efa hafa
oft verið erfið. Hann gat líka oft
slegið á léttari strengi og fengið
mann til þess að hlægja, þó að
hann hefði ekki mörg orð um hlut-
ina. Ekki grunaði mig þegar hann
lagðist inn á sjúkrahúsið að hann
ætti ekki afturkvæmt þaðan.
Elsku Lóa mín, ég bið góðan Guð
að styrkja þig í sorginni og blessa
minningu um góðan mann.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinimir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
(Vald. Briem.)
Kristín Benediktsdóttir
„Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig
við það, sem ég fæ ekki breytt, kjark til
að breyta því, sem ég get breytt, og vit
til að greina þar á milli."
Nú er elskulegur afi minn dáinn.
Það er erfitt að trúa því og sárt
að sætta sig við það. Hann var allt-
af svo hraustur, hress og skemmti-
legur og þrátt fyrir háan aldur
hafði hann aldrei legið í sjúkrahúsi
fyrr, því kemur dauði hans sem
þrama úr heiðskíru lofti.
Hann var yndislegur maður,
besti afi sem hægt er að hugsa
sér. Það var alltaf svo gott að koma
til þeirra, hans og elsku ömmu Lóu.
Hann sat alltaf í sama stólnum í
borðstofunni í Tjörn, grínaðist og
stríddi ömmu.
Ég var mjög mikið hjá þeim á
æskuárum mínum, ólst þar upp
meira og minna sem barn og var
þar allar helgar og öll sumur eftir
að ég fluttist til Reykjavíkur með
foreldmm mínum og bróður. Ferð-
um mínum þangað fækkaði þegar
ungiingsárin færðust yfir og sé ég
mikið eftir því nú að hafa ekki ver-
ið meira með þeim þessi síðustu ár.
En þannig er það oft, að enginn
veit hvað átt hefur fyrr en misst
hefur.
Það er erfítt til þess að hugsa
að eiga aldrei aftur eftir að sjá og
heyra í afa, það er svo óraunveru-
legt núna, ég var viss um að hafa
hann í mörg ár enn. Minningin um
hann er sterk, því hann var sérstak-
ur maður. Hann var duglegur og
athafnasamur, alltaf hlýr og góður
og hafði skemmtilegt skopskyn.
Hann hafði mjög ákveðnar skoðan-
ir á ýmsum hlutum, þeim varð ekki
með góðu móti breytt ef hann beit
þær í sig. Það var alltaf hægt að
ganga að honum vísum, því hann
var alltaf eins, gamli, góði afi
Mundi.
Það eru margar og góðar minn-
ingar sem koma upp í huga mér
þegar ég hugsa til baka, allar ljúfar
og góðar, um samskipti okkar og
alla þá atburði sem upp komu. Ég
man að alltaf þegar við gerðum
eitthvað sem ekki þótti nógu gott,
eins og að vera of lengi úti „að
mæla göturnar", eins og amma
kallaði það, eða keyptum of mikið
af blysum og sprengjum á gamlárs-
kvöld, tók afí alltaf málstað okkar
krakkanna og sagði þetta skiljan-
legt því við værum ung.
Ég fæ víst aldrei framar tæki-
færi til að segja honum hvað mér
þótti mikið vænt um hann og þakka
honum fyrir allt það góða sem hann
hefur gefíð mér. Það er dapurleg
staðreynd að hann sé farinn og
komi ei meir, en eftir stendur minn-
ingin um hann og hún mun lifa
alla tíð.
Elsku amma mín, þinn missir er
mikill en eftir stendur minningin
um góðan mann. Megi góður Guð
styrkja þig í sorg þinni sem og við
munum öll gera. Afa mínum þakka
ég allt gamalt og gott, honum mun
ég aldrei gleyma. Guð blessi minn-
ingu hans.
Magga Stína
í dag er lagður til hinstu hvíldar
tengdafaðir minn, Guðmundur Guð-
mundsson, jafnan kenndur við
Tjörn, þ.e. Heiðarbraut 36 á Akra-
nesi.
Mig langar til að minnast góðs
vinar með nokkrum orðum, með
þakklæti og virðingu fyrir þau ár
er við áttum samleið.
Guðmundur fæddist á Sigurstöð-
um á Akranesi og ólst upp í for-
eldrahúsum. Byijaði ungur til sjós,
en eftir að hann hóf störf í landi
vann hann.lengst af við akstur vöru:
bifreiða og fólksflutningabifreiða. í
12 ár ók Guðmundur fólksflutn-
ingabifreiðum á áætlunarleiðinni
Reykjavík — Akranes fyrir Þórð
Þ. Þórðarson en lengst vann hann
hjá Haraldi Böðvarssyni & Co., allt
þar til að hann lét af störfum fyrir
aldurs sakir.
Guðmundur kvæntist 1934 eftir-
lifandi eiginkonu sinni Ólöfu Guð-
jónsdóttur frá Vogatungu í Leirár-
sveit og eignuðust þau átta börn,
sem öll eru á lífi.
Oft mun Guðmundur hafa komist
í hann krappan er hann var að aka
rútunum fyrir Hvalfjörðinn. Hval-
fjörður er varasöm leið og oft illviðr-
asöm og mun hafa tekið á taugarn-
ar að bera ábyrgð á lífi og limum
fjölda fólks eins og ástandi vega
og bifreiða var þá háttað. Nú má
líta gamla veginn sem grasivaxinn
slóða og geta þeir sem í dag aka
malbikaðan Hvalfjörðinn og fínnst
þeir á stundum eiga erfítt með að
komast leiðar sinnar, sett sig í spor
þeirra er óku gamla veginn, mjóan,
holóttan og með óþarflega mörgum
hlykkjum. Oft þegar gamli maður-
inn fór með mér fyrir fjörð, benti
hann mér á staði er höfðu verið
öðrum torfærari og sagði sem svo:
„Þarna barðist ég með járnkarlinum
við svellbunkana.“ Annars gerði
hann aldrei mikið úr hlutunum.
Heimili hans og Ólafar, er jafnan
var kölluð Lóa, var einstakt.
Ég mun hafa verið 23 ára er ég
kom fyrst inn á heimili þeirra,
hafði þá ekki átt fastan samastað
um margra ára skeið, en þar
fannst mér ég vera kominn heim
og alla tíð síðan hefur mér fundist
heimili Guðmundar og Lóu vera
mitt annað heimili.
Frá Guðmundi stafaði sérstakri
hlýju, sem ekki hvað síst börn
kunnu að meta, þau löðuðust að
honum öðrum fremur, leituðust við
að fá að sitja hjá honum og var
ekki sjaldan að hann sat með allt
að þijú í einu, er hann raulaði
við og reri með.
Hvað það er sem börnin fínna
hjá einum frekar en öðrum er erfitt
að skilgreina en stundum hefur
þetta verið nefnt bjarnarylur.
Það var alltaf mjög gestkvæmt
í Tjörninni, enda sat gestrisni, alúð
og vinsemd þar í fyrirrúmi. Þótt
eigi væri vítt til veggja var alltaf
nóg rými, aldrei þröngt, að minnsta
kosti fann það enginn. Börnin voru
mörg, svo komu barnabörnin og
þarna áttu allir sitt annað heimili,
jafnt tengdadætur sem tengdasyn-
ir.
Fyrir mér var Guðmundur faðir
í tvennum skilningi.
Tengdafaðir og einnig að mörgu
leyti sú föðurímynd er ég hafði
þarfnast, þar sem ég átti aldrei til
föður að telja í mínum uppvexti.
Mér fannst hann alltaf sýna mér
sömu ástúð og hann sýndi sínum
eigin börnum og ég heid og í það
minnsta vona að ég hafi á stundum
sýnt honum það viðmót er ég tel
að ég hefði sýnt mínum eigin föður.
Guðmundur var alla tíð mjög
heilsugóður, hafði frísklegt yfir-
bragð, glaður og reifur jafnan,
dökkur yfirlitum, karlmannlegur og
einarðlegur í framgöngu.
Á skömmum tíma hefur verið
höggvið stórt skarð í systkinahóp-
inn frá Sigurstöðum, þennan eftir-
tektarverða og myndarlega hóp. Á
þremur ámm hafa þrír af fjórum
bræðrum fallið frá, en eftir iifa sex
systur. Mikill missir á ekki lengri
tíma, en allir vom bræðurnir mjög
hraustir og heilsugóðir til þess er
að kallinu kom. Og það er vissulega
mikil náðargjöf að geta náð háum
aldri án þess að eiga við vanheilsu
að stríða.
En glaður og reifur skal gumi
hver uns síns bíður bana.
Það á við um bræðurna þijá,'
þeir voru allir hetjur til hinstu
-'stundar.
Elskuleg tengdamóðir mín, mikill
er þinn missir. Mikill missir okkar
allra er eigum um sárt að binda
vegna fráfalls föður, afa og tengda-
föður. Við sem eftir stöndum og
horfum út yfir ómælisdjúp móðunn-
ar miklu, er við munum öll vera
ferjuð yfir að lokum, og leiðir munu
liggja saman á ný.
Og þá gildir í raun og sannleika
það sem þið tengdaforeldrar mínir
lifðuð ávallt eftir, öðrum fremur,
„að þar bíða vinir í varpa, sem von
er & gesti“.
Ég vil þakka mínum góða vini
og tengdaföður, fyrir mína hönd
og barnanna minna, samleiðina,
sem því miður var alltof stutt.
Lóa mín, megi hinn hæsti höfuð-
smiður himins og jarðar, sá sem
öllu ræður, styrkja þig og börnin
þín í sorginni.
Guð blessi minningu Guðmundar
í Tjörn.
Svanur Geirdal
Lokað
verður á morgun, miðvikudaginn 25. apríl, frá
hádegi vegna jarðarfarar.
Skúlason & Jónsson hf.,
Skútuvogi 12.