Morgunblaðið - 24.04.1990, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 1990
17
Elísabet Lúðvíks-
dóttir - Kveðjuorð
Sofnaðan svanna
sjúkdómsfjötrum leystan
faðma þú mjúklega, móðir jörð.
Hlýtt við þitt hjarta
hana þú geymir
þótt yfir dynji hretin hörð.
(Hannes Hafstein)
Hún Elísabet okkar er öll. Hún
sem barðist svo duglega við hinn
erfiða sjúkdóm, krabbameinið, varð
að lokum að lúta í lægra haldi.
Við erum þakklát fyrir að hafa
fengið að kynnast og vera samvist-
um við þessa einlægu og hjartahlýju
konu, sem skaut hér rótum svo
ijarri ættlandi sínu.
Þegar hún giftist eftirlifandi eig-
inmanni sínum, Sverri Sigurðssyni,
árið 1976, fyllti hún líf hans birtu
og gleði. Hún umvafði hann ætíð
síðan með ást sinni og umhyggju
og stóð sem traustur klettur við hlið
hans í brotsjóum tilverunnar. Elísa-
bet var öllum góð, og sérstakan
kærleik sýndi hún börnum og dýrum.
Hún var gestrisin og hjálpsöm við
alla, glaðlynd og með mikla kímnig-
áfu.
Elsku Sverrir minn, missir þinn
er stór. Við biðjum góðan Guð að
styrkja þig á þessari erfiðu stundu.
Helgi, Esther og börn.
Minning:
Sigríður Ölafsdótt-
ir, VíkíMýrdal
Fædd 1. nóvember 1918
Dáin 9. apríl 1990
Síðasta vetrardag var til moldar
borin frú Sigríður Olafsdóttir fyrr-
verandi organisti Víkurkirkju. Hún
hóf störf sem organisti fyrir nær
30 árum, en áður höfðu hún og eig-
inmaður hennar, Valdimar Tómas-
son, sungið með kórnum um árabil.
Þau Valdi og Sigga höfðu bæði
ágætar söngraddir og var söngur
og hvers konar tónlist þeirra líf og
yndi. Valdi lést árið 1978 langt um
aldur fram og varð okkur öllum
mikill harmdauði. Missir Siggu var
þó mestur, því Valdi var henni mik-
ill félagi. Þau höfðu mjög gaman
af að ferðast, auk þess sem hann
var hennar stoð og stytta í lífi og
starfi. Sigga hélt þó ótrauð áfram
og stundaði organistastarfið af alúð,
þótt heilsan væri ekki alltaf sem
best. Sigga var mjög gjafmild kona,
gaf kórfélögum oft gjafir á jólum,
t.d. nótnabækur eða plötur. Ekki
var hægt að hugsa sér betri vin en
Siggu, þegar sorg eða aðrir erfið-
leikar börðu að dyrum hjá okkur
hinum. Kórstarfið var aðaláhugamál
Siggu og er hún varð að láta af
störfum sem organisti sökum erfiðra
veikinda kom hún þó alltaf og söng
með okkur þegar heilsan leyfði. Að
leiðarlokum viljum við þakka Siggu
samfylgdina og alla hennar vináttu
og ómetanlegt starf í þágu kirkjunn-
ar. Innilegar samúðarkveðjur send-
um við öldruðum föður hennar, Ól-
afi Jónssyni, svo og öðrum ættingj-
um og vinum.
Guð blessi Siggu.
Víkurkirkjukór
Honda ’90
Civic
3ja dyra
16 ventla
Veri fró 746,- þúsund.
GREIÐSLU SKILMÁL AR
FYRIR ALLA.
W HONDA
VATNACÖRÐUM 24, RVÍK., SÍMI 689900
& Ármúla 29 símar 38640 - 686100
Þ. ÞORGRÍMSSON & C0
Armstrong LDFTAPLCfTUR
KORKDPIAIT GÓLFFLÍSAR
^JABMAPLAST EINANGRUN
VINKLARÁTRÉ
CB FORHITARAR
MIÐSTÖÐVARHITARAR
og
NEYSLUVATNSHITARAR
Mest seldu FORHITARAR
landsins
LANDSSMIÐJAN HF.
Verslun: Sölvhólsgötu 13
Sími (91)20680
Áskriftarsiininn er 83033
Tölvupappír
\ handhægum
neytendaumbúðum
fyrir einkaaðila.
500 og 1000 blaða
pakkningar stærð A4.
Kjörin lausn fyrir heimili,
skólafólk og smærri fyrirtæki.
Fæst hjá umboðsmönnum
og söluaðiíum um allt land.