Morgunblaðið - 24.04.1990, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 1990
19
Stofnuð samtök gegn
Morgunblaðið/Sverrir
Frá ráðstefhunni um kynþáttafordóma. Á innfelldu myndinni er
Kalid Salimi, sem var sérstakur gestur á ráðstefnu skiptinemasamtak-
anna um kynþáttamismunun. Hann er rithöfundur og forystumaður
samtakanna „SOS Rasisme" í Noregi.
Ráðstefna ungs fólks um kynþáttamismumm:
viku. Við viljum stuðla að því að
innflytjendalöggjöf sé komið á hér-
Á RÁÐSTEFNU um kynþáttamisrétti, sem haldin var fyrir skömmu, lendis, halda áfram starfsemi eins
var ákveðið að stofiia samtök ungs fólks gegn kynþáttamismunun. og þessari ráðstefnu til þess að
Fyrirhugað er að sögn Ásu Richardsdóttur að stofnfundur verði í lok vekja athygli á málefninu og stuðla
maí. Óli Þ. Guðbjartsson dómsmálaráðherra sagði á ráðstefnunni, að að breyttu hugarfari. Þá munu sam-
tímabært væri að hyggja að löggjöf um aðstoð við þá útlendinga sem tökin reyna að hjálpa einstaklingum
hingað koma til dvalar. Hann kvaðst vilja láta kanna málið í sumar sem verða fyrir aðkasti hér vegna
þannig að frumvarp gæti legið fyrir næsta haust. kynþáttafordóma.“
kynþáttamisrétti
Ný stjórn í Félagi vel-
unnara Borgarspítalans
NÝ stjórn var kosin á aðalfundi Félags velunnara Borgarspítalans
7. apríl sl. Félagið hefur starfað frá 10. febrúar 1983 að því að bæta
aðstöðu sjúklinga og efla hvers kyns þjónustu og vísindastarfsemi á
Borgarspítalanum. Formaður félagsins var kjörinn Egill Skúli Ingi-
bergsson.
Aðrir í stjórn félagsins eru Ása
St. Atladóttir, varaformaður, Sigr-
ún Guðjónsdóttir, gjaldkeri, Reynir
Ármannsson ritari, Bjarki Elíasson,
Ólafur B. Thors og Ottó Michelsen.
Tilgangur félagsins er að stuðla
að auknum skilningi almennings og
stjórnvalda á starfsemi Borgarspít-
alans með máiefnalegri kynningu
og umræðu og að stuðla að því að
spítalinn sé aðlaðandi vinnustaður.
Meðal verkefna sem félagið hefur
innt af hendi er öflun tækjabúnaðar
fyrir spítalann, útvegun skemmti-
krafta á kvöldvökum, undirbúning-
ur fjársafnana vegna kaupa á lækn-
ingatækjum og undirbúningur að
kaupum á aðgerðarsmásjá.
Þá réðst félagið í að þýða og
gefa út bókina „Listin að lifa með
kransæðasjúkdómum“ og hefur
haft veg og vanda að fjölmörgum
öðrum verkefnum í þágu sjúklinga
á Borgarspítala.
Tekjuöflun félagsins hefur verið
í gegnum félagsgjöld, minningar-
kortasölu, framlaga til ákveðinna
verkefna, minningargjafa einstakl-
inga bæði til ákveðinna verkefna
og til fijálsrar ráðstöfunar fyrir
félagið.
Aðaldal:
Nýtt riðutilfelli staðfest
Aðaldal.
RIÐA var staðfest í einni kind á bænum Hólmavaði í Aðaldal i byijun
marsmánaðar. Á bænum voru um 130 kindur, og hefiir þeim nú öllum
verið fargað, en dýralæknir svæfði kindurnar og var þeim síðan komið
í gröf.
Ár er síðan riða kom upp á þessu lögum þessa sjúkdóms. Á Hólma-
svæði síðast, og nú er eitt og hálft vaði er framundan mikil vinna við
ár umliðið að fyrstu niðurskurð- að sótthreinsa öll útihús og skipta
arbæirnir fengu fé aftur, en bændur um jarðveg næst húsunum, og þá
eru að vonum áhyggjufullir yfir því er bóndanum skylt að vera fjárlaus
hversu seint gengur að ráða niður- næstu tvö árin. St.Sk.
Að ráðstefnunni stóðu skipti-
nemasamtökin AFS, AUS og ASSE
auk ungmennahreyfingar Rauða
krossins. Æskulýðsfélög stjórn-
málaflokkanna studdu ráðstefnuna
málefnalega auk ýmissa annarra
samtaka. Yfír 100 manns sátu ráð-
stefnuna sem haldin var í fundahús-
næði ríkisins að Borgartúni 6. „Við
komum af stað mikilli umræðu um
þessi mál og það var einmitt til-
gangurinn með öllu sarnan," sagði
Ása Richardsdóttir, úr undirbún-
ingshópi ráðstefnunnar.
Ása sagði að fram hefðu komið
bæði ljósar og dökkar hliðar á mál-
efnum útlendinga hérlendis. „Þess
eru mýmörg dæmi að kynþáttamis-
rétti er til á íslandi,“ segir hún, „og
á ráðstefnunni heyrðum við af sum-
um þeirra. Stífni yfirvalda hér var
gagnrýnd og meðal annars bent á
að sjálft orðið „útlendingaeftirlit"
hefur niðrandi blæ.“
Hólmfríður Gísladóttir hjá Rauða
krossinum sagði í ræðu sinni á ráð-
stefnunni, að hún teldi kynþáttafor-
dóma hafa farið minnkandi hér á
landi með aukinni víðsýni. Þetta
merkti hún af samanburði á við-
brögðum fólks við komu víetnam-
skra flóttamanna hingað fyrir ára-
tug og við þeirri ákvörðun stjórn-
valda, að taka á móti 60 flótta-
mönnum næstu þijú árin. Hólmfríð-
ur nefndi að aukin ferðalög og áhrif
sjónvarps væru meðal atriða sem
orkað hefðu til að draga úr kyn-
þáttafordómum.
Dómsmálaráðherra sagði á ráð-
stefnunni að talsvert skorti á að
útlendingum sem hér dveldust væri
sinnt sem skyldi. „í gildi eru lög
um útlendingaeftirlit, vinnuréttindi
útlendinga og ríkisborgararétt. En
það meira en tímabært að hyggja
að löggjöf um aðstoð við þetta fólk;
fræðslu um réttindi þess hér og
íslenskukennslu. Vinnuhópur kann-
ar nú að tilhlutan félagsmálaráð-
herra hvað gera megi til að bæta
aðstöðu útlendinga hérlendis. Með
hliðsjón af niðurstöðum hópsins
þarf að kanna þessi mál innan míns
ráðuneytis í sumar.“
Almennur áhugi var meðal ráð-
stefnugesta á stofnun samtaka
ungs^ fólks gegn kynþáttamismun-
un. Ása Richardsdóttir segir stofn-
fund fyrirhugaðan að loknum próf-
um í vor. „Verkefni samtakanna
voru mörkuð á ráðstefnunni fyrir
Verðkönnun á þjónustugjöldum banka og
sparisjóða:
Gjöldin í flestum tilfellum
lægst hjá Landsbankanum
VERÐLAGSSTOFNUN hefur kannað þjónustugjöld banka og spari-
sjóða vegna algengra innlendra viðskipta, og í ljós kom að þau eru
í flestum tilvikum lægst hjá Landsbankanum. Þar kostar til dæmis
tékkhefti með 25 eyðublöðum 200 krónur, en 250 kr. hjá sparisjóð-
um. Þá er gjald Landsbankans vegna innistæðulausrar ávísunar 360
kr., en 400-450 kr. l\já öðrum bankastofiiunum, og tilkynningar- og
greiðslugjald vegna skuldabréfa er 100 kr. hjá Landsbankanum og
Búnaðarbankanum, en 210 kr. hjá Islandsbanka og sparisjóðum.
Könnun Verðlagsstofnunar leiddi
í ljós að nokkrar bankastofnanir
hafa hækkað þóknun vegna útlána
um allt að 50% frá gjaldskrám sem
í gildi voru í júní 1988. Sem dæmi
má nefna að þóknun vegna skulda-
bréfa til skemmri tíma en 5 ára
hefur í mörgum tilfellum hækkað
úr 1,2% í 1,8%, en algengt gjald
fyrir sömu þjónustu var 0,8% í októ-
ber 1986 þegar gjaldið var háð
ákvörðun Seðlabanka íslands.
í frétt frá Verðlagsstofnun segir
að hækkun á föstum gjaldaliðum
banka og sparisjóða frá miðju ári
1988 hafi almennt orðið talsvert
meiri en almennar verðhækkanir.
Hlutfallslega hafi orðið mest hækk-
un á útlögðum kostnaði vegna víxla
og skuldabréfa og á innheimtuað-
gerðum og vanskilagreiðslum.
Hækkun gjaldanna sé hins vegar
mismikil eftir bönkum, meðal ann-
ars vegna þess að gjaldskrár þeirra
hafi tekið gildi á mismunandi
tímum, en gjöld vegna innheimtu
hafa í mörgum tilvikum hækkað um
50-180%. Til samanburðar hefur
lánskjaravísitala hækkað um tæp-
lega 40% frájúní 1988 til apríl 1990.
■ ■
RÁÐSTEFNA
IBM
«3
mm
lil
n
’
VERSLUNARREKSTUR I
NÚTÍÐ OG FRAMTÍÐ
verður haldin í ráðstefnusal
Verslunarskóla íslands að Ofanleiti 1
Reykjavík miðvikudaginn 25. apríl
kl. 13:30-17:00.
H
■I
j||
.
DAGSKRA:
• Opnun ráðstefnu - Gunnar M. Hansson
• IBM kassakerfi - Sveinn Áki Lúðvíksson
• Reynsla af uppsetningu - Benedikt Kristjánsson
• ,,Flygfyren“ - Rolf Holmberg
• Kaffi - sýning
• Þróun í verslunarrekstri - Sune Tungstroem
• Ávinningur af IBM kassakerfinu — Þórhallur Maack
• Ráðstefnuslit
Velkomin
. a
FYRST OG FREMST
SKAFTAHLlÐ 24 105 REYKJAVlK SlMI 697700
( .. ° ' j ’ . v . ;. .. ^ ' ' í . .. j.......
Úl'tk ÍYJ-Ú, l