Morgunblaðið - 24.04.1990, Page 24

Morgunblaðið - 24.04.1990, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 1990 JMtogtntfrlnfrife Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstraeti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift- argjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið. Virkur hlutabréfa- markaður Háir raunvextir, sem ein- kennt hafa íslenskt efna- hagslíf á undanförnum árum, hafa ekki aðeins komið aga á fjárfestingar margra fyrirtækja heldur einnig beint augum for- ráðamanna þeirra að öðrum möguleikum en lánum í lang- tímafjármögnun. Hlutafjárútboð hafa orðið algengari og æ fleiri fyrirtæki hafa gert sér grein fyr- ir þeim kostum sem nýtt hlutafé býður upp á. Á tímum óðaverðbólgu og nei- kvæðra vaxta var lánsfé mikil- vægt í rekstri íslenskra fyrir- tækja og raunar má ætla að neikvæðir vextir hafi verið for- senda fyrir rekstri sumra fyrir- tækja og fjárfestingum sem síðan hafa skilað litlum eða eng- um arði. Reikningurinn var greiddur af sparifjáreigendum. Þessir tímar eru að baki, sem betur fer. Lán bera háa jákvæða raunvexti og þeir hafa kallað á breytta starfshætti og viðhorf innan fyrirtækja. Peningar eiga ekki að vera verðlaus pappír. Þeir eiga að vera dýrir. Hlutabréfaviðskipti hafa vaxið ótrúlega mikið á undanfömum 2-3 árum bæði vegna aukins skilnings stjórnvalda og almenn- ings og vegna óþreytandi starfs fárra frumheija á fjármagns- markaðinum. Viðskipti með hlutabréf hjá verðbréfafyrirtækj- um voru alls um 700 milljónir króna á liðnu ári. Og á síðasta ári seldu 10 almenningshlutafé- lög nýtt hlutfé fyrir tæplega 1.200 milljónir króna og innan við 200 milljónir króna af þeirri upphæð fóru í gegnum verð- bréfafyrirtækin. Ástæður þess að hlutabréfa- viðskipti hafa vaxið jafn hratt og raun ber vitni em margar. I fyrsta lagi hafa breytingar á fjár- magnsmarkaðinum og háir já- kvæðir raunvextir breytt mögu- leikum fyrirtækja í fjárhagsupp- byggingu og viðhorfum forráða- manna þeirra til langtímafjár: mögnunar, eins og áður segir. í annan stað hafa breytingar á lögum stuðlað að eflingu hluta- bréfamarkaðar, þar á meðal breytingar á skattalögum. í þriðja lagi hefur viðhorf almenn- ings gagnvart hlutabréfum og fyrirtækjum orðið jákvæðara. Og í fjórða lagi hafa fjölmiðlar reynt með skipulegum hætti að kynna hlutabréfamarkaðinn. Morgunblaðið hefur um ára- tugaskeið hvatt til að markaður fyrir hlutabréf fyrirtækja mynd- ist, enda er það ein besta leiðin til að styrkja undirstöðu íslensks atvinnulífs. Þótt þróunin hafi verið ör í þessum efnum er enn langt í land að hlutabréfamark- aður verði jafn virkur hér á landi og ) nágrannalöndunum. Árið 1988 var gefin út skýrsla um þróun hlutabréfamarkaðar á íslandi, sem sérfræðingar En- skilda Securities unnu fyrir Seðlabanka og Iðnþróunarsjóð. Þar segir meðal annars: „Við teljum að brýnasta verkefnið á íslenska hlutabréfamarkaðinum sé að hvetja til aukinnar eftir- spurnar. Tvö mikilvægustu atrið- in í þessu sambandi eru annars vegar hin skattalega meðferð hlutabréfa og hins vegar afstaða lífeyrissjóða til fjárfestingar í hlutabréfum." í þessu sambandi er rétt að benda á að lífeyrissjóðir ættu að taka virkari þátt í hlutabréfavið- skiptum og auka þar með eftir- spumina. I áðurnefndri skýrslu er raunar bent á að sjóðirnir ráði yfir um það bil 50% af því fé sem fyrir hendi er til fjárfestinga í verðbréfum hér á landi. Friðrik Sophusson, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins, segir í grein sem birtist í Morgunblaðinu í síðustu viku' að ráðstöfunarfé lífeyris- sjóðanna á yfírstandandi ári sé um 25.000 milljónir króna. Hann telur að lífeyrissjóðirnir eigi eftir að gegna mikilvægu hlutverki í þróun hlutabréfamarkaðar í ná- inni framtíð. í þessum efnum fara skoðanir Friðriks Sophus- sonar og Jóns Sigurðssonar, við- skiptaráðherra, saman eins og raunar í mörgu öðru er varðar hlutabréfaviðskipti. Sjálfstæðis- menn og alþýðuflokksmenn ættu að geta náð góðri samstöðu um nauðsynlegar lagabreytingar til að efla og styrkja enn frekar hlutabréfaviðskipti. Jón Sigurðsson benti á það í grein hér í blaðinu 10. apríl síðastliðinn, að rétt væri að breyta ýmsum ríkisfyrirtækjum í hlutafélög en ríkissjóður gæti smám saman selt bréfin, eftir nánari heimildum Alþingis. í þessu fer stefna viðskiptaráð- herra vel saman við skoðanir sjálfstæðismanna. Fátt gæti ýtt eins undir virk viðskipti með hlutabréf eins og einkavæðing ríkisfyrirtækja. Og raunar er nú lag að hrinda þessum áformum í framkvæmd, þar sem nauðsyn- legt er að koma í veg fyrir að batnandi horfur í efnahagslífinu leiði til þenslu og nýrrar verð- bólguskriðu. Um leið og gripið er til aðgerða í peninga- og ríkis- fjármálum ætti að hefja sölu á hlutabréfum í ríkisfyrirtækjum. Að öðru óbreyttu ætti það að draga úr hættunni á þenslu. Dagur jarðar: Gengið í Oskjuhlíð o g dag- skrá í Borgarleikhúsinu p • DAGUR jarðar var haldinn hát- íðlegur víða um heim síðastlið- inn sunnudag og í Reykjavík var meðal annars bryddað upp á gönguferð um útivistarsvæðið í Oskjuhlíð. í Borgarleikhúsi stóð umhverfismálaráð Reykjavíkur- borgar fyrir samkomu og þar voru flutt erindi og tónlist í til- eftii dagsins. Þrátt fyrir kalsa í veðri tók fjöldi manns þátt í göngunni og virtist sem veðurguðirnir hefðu slegist með í för því þann tíma sem gang- an stóð yfir stytti upp og sól skein í heiði. Nýútskrifaðir nemar úr Garð- yrkjuskóla ríkisins lýstu staðháttum og gróðurfari í Öskjuhlíð og ungir sem aldnir létu vel af uppfræðsl- unni. Að göngu lokinni var farið í skoð- unarferð um útsýnishúsið Perluna sem verið er að reisa á hitaveitu- tönkum Öskjuhlíðar og loks var boðið upp á grillaðar pylsur. Stefnt er að því að Dagur jarðar verði framvegis haldinn hátíðlegur ár hvert enda fer skilningur fólks á náttúruvernd vaxandi og fólk gerir sér grein fyrir því að náttúru- auðlindir eru ekki óþrjótandi. Mark- mið dagsins er vekja fólk til um- hugsunar um þessar staðreyndir. Davíð Oddson, borgarstjóri, flutti ávarp í tilefhi Dags jarðar. Hulda Valtýsdóttir, formaður Skógræktarfélags Islands, flutti ræðu um umhverfismál í Borgar- leikhúsi. ím " il \ m* í « 1 ™ <m ■Sv B i “ :: 1 Skólakór Árbæjarskóla söng undir stjórn Áslaugar Bergsteinsdóttur. Morgunblaðið/Einar Falur Ungir sem aldnir undu hið besta í Öskjuhlíð og skoðuðu gróðurinn sem enn er í vetrardvala. í bakgrunni glittir í útsýnishúsið. ■

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.